Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Page 9
Mig langar ekki
að umgangast
forsnobbað lið
Ertu klnversk?
„Nei, helmingurinn af mér er fil-
ippseyskur en hinn íslenskur. Dökki
liturinn ræöur yflr þeim ljósa og
þess vegna lít ég frekar út fyrir að
vera filippseysk en íslensk. Samt er
ég hærri en flestir Filippseyingar og
íslenska hlutanum líkar betur hér i
kuldanum heldur en í óbærilegum
hitanum úti.“
Ætlar þú alltaf að búa hér á
Fróni?
„Reyndar ekki. Draumurinn er að
rappa með strákunum í útlöndum
og geta lifað af því. Svo langar mig
líka að opna almennilegan hipp-
hopp skemmtistað úti þar sem spil-
uð yrði alvörutónlist. Svoleiðis staði
vantar alveg hér heima.“
Og geturðu þá hvergi farið út
að skemmta þér?
„Nei, eiginlega ekki. Síðan
skemmtistaðurinn Tetris hvarf hef-
ur bara ekki verið neinn staður fyr-
ir ungt fólk héma. Skemmtistaðim-
ir eru fullir af forsnobbuðu fólki
sem mig langar ekkert að umgang-
ast. Eins var ég að komast að því
um daginn að ég á ekkert auðvelt
með að dansa við eitthvað annað en
rapp. Þannig að ég lendi alltaf i því
að vera eins og hálfviti á dansgólf-
inu með fáránlegar hreyfingar sem
passa ekki við tónlistina."
Hvað er málið meö þetta rapp?
Þú virðist heltekin af því?
„Já, ég er rappari af lífi og sál.
Það er ekki hægt annað. Ég elska
þessa tegund tónlistar og allt snýst
um hana. Svo fylgir rappinu ákveð-
in klæðatíska, víð fót og stór og ég
kann rosaleg vel við mig í slíku.“
Hvemig stóð á því að þú fórst
að rappa?
„Þetta byrjaði í Hólabrekkuskóla
þegar vinur minn ýtti mér upp á
svið á litlum tónleikum þar sem
verið var að rappa. Ég var alveg
brjáluð út í hann fyrir að gera þetta
en innst inni langaði mig og lét því
til leiðast. Svo varð Maggi (Magnús
Jónsson) bara hrifmn af því sem ég
gerði. Hann vildi að við hittumst og
á endanum urðum við ofsa góðir
vinir."
Var það hann sem uppgötvaði
þig?
„Það má kannski segja það. Svo
varð hljómsveitin bara til smám
saman eftir að við höfðum fiktað og
leikið okkur með rappið."
Áttu bara karlkyns vini?
en ég hef
alltaf átt
marga
stráka að
vinum. Ég á
líka fullt af
vinkonum."
Eru þær líka
rapparar?
„Ónei. Ég er sú
eina í víðum fotum.
Ég hef alltaf verið að-
eins öðruvísi og þegar
ég var lítil sagði
mamma alltaf að ég
væri eins og strákur. Við
vinkonumar náum samt
ofsalega vel saman og það
er það sem skiptir öllu máli.
Reyndar deilum við alltaf um
hvaða tónlist eigi að spila í
partíum. Það er það eina.“
Hvað með kærasta?
„Ég á einn slíkan. Hann heitir
Ámi Kristinn Gunnarsson og er
jafngamall mér. Það var hann sem
varð fyrst hrifinn af mér og fór að
sýna mér rapptímarit og svona af
því að hann vissi um rappáhuga
minn. Reyndar veit hann miklu
meira um rapp en ég. Hann er sér-
fræðingur á þessu sviði. Ég er mjög
fegin því að hann skuli hafa sama
áhugamál og ég, annars gengi þetta
ekki. Hann styður mig í einu og
öllu, virðir það að ég þarf frið þegar
ég skrifa texta og bíður þolinmóður
á meðan við spilum á tónleikum."
Semur þú textana sjálf?
„Já, það er ekki hægt annað.
Rapparar fjalla um það sem þeim
fmnst sjálfum en ekki skoðanir ann-
arra.“
Gerirðu ekkert annað en að
rappa?
„Jú, jú. Ég horfi á vídeó með
kærastanum og fer í bió eða keilu.
Stundum er ég líka með vinkonun-
um en þær eru líka margar komnar
með kærasta eða eru í það minnsta
að fikta í einhverjum gæjurn."
Hverrar trúar ertu?
„Ég er kaþólsk. Ég er samt ekkert
á kafi í trúarbrögðum og geri til
dæmis ekki mikið að því að skrifta.
Ég gerði það fyrst þegar ég var sjö
ára. Ég grenjaði mig vitlausa af þvi
að ég vildi ekki segja prestinum frá
öllu þessu vonda sem ég hafði gert
af mér. Ég skriftaði síðast þegar ég
fermdist og þá þótti mér enn svolít-
Rapphljómsveitin
Subterranian státar af
stúlku sem kölluð er
Cell 7. Hún er átján
ára og heitir réttu
nafni Ragna Krist-
jánsdóttir. Sjaldn-
ast eru það stelp-
ur sem rappa en
Cell 7 kærir sig
kollótta um það.
Hún þekkir sín
takmórk og veit
hvað hún vill.
Lífsstíll
Rögnu er
rapp.
ið erfitt að
segja prestinum
frá þessum hlutum
en mér leið betur á
eftir. Ég veit að
hann segir engum en
ég veit líka hvað hann
veit og þegar ég hitti hann finnst
mér eins og hann hljóti að rifja það
upp. Það finnst mér óþægileg til-
hugsun."
Hvað með íþróttir?
„Eftir að hafa prófað nokkrar
íþróttagreinar með vinkonum mín-
um komst ég að því að ég þyrfti að
komast í eitthvað allt annað en fót-
bolta, tennis eða badminton. Mér
finnst
sjálfsvamar-
íþróttir sniðugar og
þess vegna ákvað ég að
byrja að æfa karate. Nú er ég
komin með annað brúna beltið. Það
styttist í það svarta."
Gerirðu aldrei neitt eins og all-
ir hinir?
„Nei. Ég virðist ekki finna mér
neitt við hæfi nema gera hlutina
ein. Ef ég ætti alltaf að gera eins og
hinir hefði ég aldrei byijað að rappa
og ég hefði aldrei farið í karate. Ég
veit best af öllum hvað það er sem
ég vil.“
-ILK
Andinn í Portúgal
Tveir rithöfundar af yngri kynlóðinni sitja
nú vió skriftir í Portúgal. Huldar BrelðQörö
er á Albufeira að berja saman sína fyrstu
bðk en Huldar er líklega best þekkti óút-
gefni íslenski rithöfundurinn. Frá því hann
vann gull, silfur og brons í smásagnasam-
keppni Stúdentablaðsins f fyrra hefur ver-
iö beðið eftir bók frá honum en hún látið á
sér standa. í þorpi stutt frá Albufeira er
Mlkael Torfason aö ganga frá bök sem
kemur út um næstu jól en Mikael vakti
nokkra athygli fyrir Falskan fugl á síðustu
vertíð.
Hagkaupsaurarnir
ekki í Borgina
Við sölu á Hagkaupi til Kaupþings og fiár-
festingarbanka atvinnulífsins losaði Hag-
kaups-fjölskyldan til sín ógrynni af pening-
um. Ætla má að hvert systkinanna hafi
fengið í sinn hlut 750 til 1.000 milljónir.
Skiljanlega hefur fólk víða um bæinn haft
áhyggiur fyrir hönd systkinanna af að
þessum peningum verði vel varið. Helst
hafa menn í kaffitímum haft áhyggjur af
að tengdasynirnir gerðust frekir til fjárins.
Baltasar Kormákur á mörg fjárfrek fyrir-
tæki, Loftkastalann, kvikmyndafyrirtækið
101 og ýmislegt annaö og Tómas Á. Tóm-
asson rekur Borgina og Kaffibrennsluna.
Ef það kann að róa velunnara Hagkaups-
fjölskyldunnar þá upplýsist það hér að
Inglbjörg Pálmadóttlr og Tommi á Borg-
inni eru skilin og þeir þurfa þv! ekki að
hafa áhyggjur af að Hagkaups-auöurinn
hverfi inn í rekstur Hótei Borgar.
Miðaldra atgervi á flótta
Þegar talab hefur verið um atgervisflótta
frá íslandi sér fólk vanalega fýrir sér ungt
og kraftmikiö fólk og helst! tölvubransan-
um eða ! poppinu. En það er ekki bara
unga fólkið sem vill reyna fyrir sér erlend-
is. Þannig eru tveir af vinsælustu lista-
mönnum þjóðarinnar, Ingólfur Margelrs-
son, margfaldur metsöluhöfundur, og Þrá-
Inn Bertelsson, vinsælasti kvikmyndaleik-
stjóri íslendinga, báðir að flýja land. Þráinn
er að flytja til Manchester þar sem hann
mun vinna fýrir Atlanta-flugfélagið. Ingólfur
er á leiö til London þar sem hann mun
veröa læknisfrú að aðalstarfi. Ingó mun
ekki kveðja landann meö miklum söknuöi
enda er hann kalinn á hjarta eftir að hafa
verið dæmdur meðsekur vegna brota Esra
Péturssonar á læknalögum í Sálumessu
syndara.
10. júlí 1998 f Ó k U S