Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Side 10
popp
CAFÉ ROMANCE. Pínanóleikarinn og
söngvarinn Glen Valentlne sendir frá sér
flauelsmjúkar ballöður og breiöir yfir sal-
inn öll kvöld vikunnar. Því miður á maður-
inn aldrei frí.
GULLÖLDIN. Svensen & Hallfunkel stel-
ast úr sumarfrii og skemmta föstudags-
og laugardagskvöld. Þetta eru spaugsam-
ir popparar - eða poppaðir spaugarar.
INGÓLFSCAFÉ. Skítamórall mætir í kvöld
og keyrir í gegn sveitaballaprógrammið
sitt. Rnt fyrir þá sem eiga ekki bíl og kom-
ast ekki á sveitaball í sumar.
KAFFI REYKJAVÍK. Bubbl heldur áfram að
rifja sjálfan sig upp á mánudags- og mið-
vikudagskvöldið. Það er furða hvað sá
maður man þrátt fyrir allt ruglið. Önnur
kvöld spila miklu minni spámenn.
ASTRÓ. Páll Óskar og hljómsveitin Casino
verða á Playboykvöldi í kvöld og íslensku
fyrirsæturnar munu taka á móti gestum
undir stjórn Berglindar Ólafsdóttur.
FEITI DVERGURINN. Elnar Jónsson tryllir
lýðinn þar í kvöld og annað kvöld.
ÁLAFOSS FÖT BEZT. Föstudags- og laug-
ardagskvöld leikur hljómsveitin Blál flðr-
Ingurlnn rokktónlist með blúsívafi.
FJARAN. Jón Möller leikur rómantíska
píanótónlist matargestum til yndisauka.
KRINGLUKRÁIN. Tónlístarmennirnir Arl
Jónsson og Úlfar Slgmarsson verða alla
helgina í aðalsalnum - brjálað að gera hjá
þeim - en í Leikstofunni skemmtir Vlðar
Jónsson.
HÓTEL SAGA. Þar verður hann Hllmar
Sverrlsson í kvöld og annað kvöld.
GRAND HÓTEL. Gunnar Páll leikur og
syngur af lífi og sál fyrir gesti þessa stað-
ar bæði kvöldin.
GAUKUR Á STÖNG. Hljómsveitin Spur
ætlar að halda uppi stuðinu í kvöld, sem
og annað kvöld, en þar er söngkonan
Telma Ágústsfi Ríó Tríójdóttlr fremst í
flokki.
FÓGETINN. Gleðigjafarnir André Bach-
mann og Kjartan Baldursson troða upp í
kvöld og annað kvöld.
NÆTURGALINN. Lúdó sextettlnn er langt
þvi frá að leggja upp laupana og að sjálf-
sögðu er Stefán með í för bæði kvöldin.
KAFFI THOMSEN. Alfreð More (Gus Gus)
og Martln Brew (Strangebrew, Jay Walk) á
sunnudagskvöldið. Sjá annars staöar í
blaðinu.
NAUSTKJALLARINN. Skugga-Baldur sér
um að hressa þá sem það þurfa í kvöld og
annað kvöld. Á fimmtudaginn næsta verð-
ur hins vegar línudanskvöld fyrir þá sem
það vilja.
NORRÆNA HÚSIÐ. Tryggvi Hansen, ása-
trúarmaður og torfhleðslumeistari, er lika
músikant og verður með tónleika á laugar-
daginn klukkan fjögur.
DeeJay Punk-Roc
\
Hermaður í hipp-hoppi
Sveitaböll
SJALLINN, Akureyri. Sálin spilar á föstu-
daginn - og ætlar að sýna það og sanna
aö hún er hvergi af baki dottinn. Til að
hressa upp á móralinn munu fjöllista-
mennirnir Ben og Gúrion hafa ofan af fyrir
gestum í pásum.
MIÐGARÐUR. Stuðmenn mæta i Miðgarð
í kvöld og trylla æskulýð sem heldri menn
og konur. Stuðmenn eru tyrir löngu orðnir
- eins og Egill Ólafsson segir - tákn um
gæði.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi. Á föstudag-
inn spila Ruth Reglnalds og Blrglr Jóhann
en á sunnudaginn mætir Ómar Dlðriksson
og kynnir efni á nýútkomnum diski.
CAFÉ KEFLAVÍK. Hljómsveitin Buttercup
spilar laugardagskvöld.
NJÁLSBÚÐ. Skítamórall sér um laugar-
daginn. Áður en þeir kappar mæta á sviö-
ið geta gestir nartað í hljómsveitina Stæn-
er sem hitar upp.
VALASKJÁLF, Egilsstöðum. Hinir húsvisku
Grelfar munu rifja upp árin með sítt að aft-
an í Valaskjálf á morgun.
ÞÓRSVER Á ÞÓRSHÖFN. í þessu fína fé-
lagsheimili mun hljómsveitin Sóldögg
spila í kvöld en svo heldur hún ferð sinni
áfram og annað kvöld veröur hún komin i
Félagsheimilið Kllf í Ólafsvik.
Veitingastaðurinn MUNAÐARNES. Þotu-
llðlð ætlar að leika þar um helgina.
SKOTHÚSIÐ í Keflavík. Slxties-hljómsveit-
in sívinsæla verður þar á morgun.
VÍKURRÖST Á DALVÍK. Hljómsveltln 8-
vlllt verður þar annað kvöld.
einnig á
www.visir.is
Fyrstu plötu DeeJay Punk-
Roc hefur verið lýst sem „OK
Computer" sem hægt er að breik-
dansa við. Innhverf leiðindi eru þó
hverfandi og á ellefu lögum flettir
Punk-Roc í gegnum djassaða og
fönkaða hipp-hopp-electro-big-beat-
spjaldskrá en lætur pönkið alveg í
friði þrátt fyrir nafnið.
Hann flassar feitri partíplötu
sem ætti að óma um efra og neðra
Breiðholt og önnur úthverfi.
DeeJay Punk-Roc fæddist í
Brooklyn 1971 og ólst upp við tón-
listaráhuga föður síns sem kynnti
honum Barry White og The Isley
Brothers. Stráksi hætti í skóla 16
Quarrymen á
kortið
John Lennon og Paul McCart-
ney kynntust í hljómsveitinni
The Quarrymen í Liverpool fyr-
ir 40 árum. Nú hafa meðlimir
Quarrymen komið saman aftur
(án Lennons og McCartneys!) og
ætla á tónleikatúr um Bandaríkin.
Rod Davis, talsmaður sveitarinn-
ar, er ekkert að skafa utan af
hlutunum: „Við erum bara fimm
gamlir karlar sem þekktum menn
sem urðu frægir!“
f Ó k U S 10. júlí 1998
ára og skráði sig í bandaríska her-
inn. Það reyndist vel: „Ég var í
vondum málum eins og fleiri en
slapp þó alltaf undan laganna
vörðum,“ segir hann. „Herinn
kippti mér af götunni og þar
kynntist ég aga sem gerir mér
kleift að gera það sem ég er að gera
í dag. Ég var sendur til Japans,
Þýskalands og Englands og á ferða-
laginu öðlaðist ég víðsýni."
Hann hætti í hernum fyrir fimm
árum og hefur verið að slappa af,
hlusta á og búa til tónlist síðan.
Hann er mikill tónlistaráhugamað-
ur og á einar 15.000 plötur í fórum
sínum. Helstu hetjumar era Parli-
plötudómar
ament, Grandmaster Flash og Sug-
ar Hill Gang. Einnig er honum um-
hugað um vaxtarrækt og er stór og
stæðilegur.
Fyrstu lög DeeJay Punk-Roc
urðu til fyrir fjórum árum. Vinur
hans var með lítið hljóðver þar
sem þeir kokkuðu upp takta og
tónlist. Það var engin áætlun í
gangi, bara hrein og klár tilrauna-
starfsemi og skemmtun. Punk-Roc
hefur líka plötusnúðast í gegnum
árin og fór að halda partíkvöld á
skólalóðum.
Með laginu My Beatbox vakti
hann athygli Airdog-útgáfunnar
sem vildi ólm gera plötu með hon-
um. Sú kom út nýlega og heitir
ChickenEye. Eftir að Punk-Roc
gerði samning við ensku útgáfuna
Indipendiente flutti hann til Liver-
pool og gerir út þaðan í dag.
Charlie, eins og kappinn heitir,
segir tónlist sína sambland af því
sem hann hefur heyrt um dagana:
„Ég hef aldrei stefnt í eina átt held-
ur er tónlist mín bara eins og stór
pottur sem ég hendi öllu í og vona
að útkoman verði góð.“ Mallið hef-
ur tekist vel því hann hefur fengið
fína dóma fyrir byrjandaverkið og
sjálfur segir hann að hann sé bara
rétt að byrja.
-glh
For Ya Mind: Ýmsir: ★★i
Veljum fslenskt
Það er alltaf gaman þegar ein-
hverjir íslendingar taka sig til og
gefa út almennilega tónlist. FYM
er gott dæmi um slíkt framtak. Á
disknum er að finna Subter-
ranean, Bounce Brothers, Real
Flavaz og svo Dj Rampage & Mr.
Bix featuring Cell 7.
Þessi diskur er greinilega gerð-
ur til þess að kynna íslenska hip
hop-menningu fyrir útlendingum
en jafnframt á hann að sýna heim-
inum hvað OZ séu klárir á tölv-
urnar sínar. Diskurinn er nefni-
lega „enhanced CD“ en það þýðir
að þú getur sett diskinn í PC-tölv-
una þína (ekki Mac) og fengið að
sjá myndbúta um ýmislegt sem
viðkemur flytjendunum, svo sem
kynningar á þeim, og eftir að hafa
horft á það er hægt að færa viss
rök fyrir því að hugsanlega búi
blökkumaður í öllum. Allar þess-
ar tölvuupplýsingar taka svipað
pláss á disknum og tónlistin, sem
ætti í raun að vera aðalatriðið.
En það er tónlistin sem skiptir
mig mestu máli og það er ekkert
nema gott um hana að segja. Mr.
Bix kann vel að pródúsera hip
hop og kom lagið hans með Dj
Rampage og Cell 7 sérstaklega vel
út en það er flottur dark filingur.
Það vantar heldur ekkert á texta-
smíðar flytjenda því þeir semja á
ensku eins og hún væri þeirra
móðurmál og ég fíla það bara hea-
vy vel. Af hverju fólk er að bögg-
ast út i enska texta? En það er
ekki bara hip hop á þessum diski
heldur er þar líka real flava R&B
og þótt ég sé ekki hardcore R&B
aðdáandi þá heyrðist mér þær
stúlkur í Real Flavaz gera þetta
bara vel.
En þótt þessi diskur sé almennt
góður þá var eitt lag sem ég hef
ýmislegt við að athuga en það er
Ariella þar sem Aría syngur hið
frábæra lag „Sveitin milli sanda“
(e. Magnús Blöndal Jóhanns-
son) á milli þess sem Subterrane-
an rappa. Það sem er að: barbí +
neðanjarðar-hiphop, ég held ekki.
En svona til að ljúka þessu, velj-
um íslenskt og FYM, gefið okkur
meiri tónlist og minna OZ-virtual
Guðmundur Halldór
Guðmundsson