Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Side 12
r
+
uíiteic
Gaukurinn ★★
Gaukurinn er vél sem gengur og
hefur gengiö æöi lengi. Þar hefur
veriö stanslaust tónleikapró-
gramm síöan tæplega miöaldra
muna. En þrátt fyrir þessa áhersiu
á tónleika þá rekst fólk ekki á
neinar stjörnur þar aö sumbli.
Þetta er bar rótaranna. Gaukurinn
býöur upp á stysta og breiðasta
dyravörö bæjarins.
Kaffi Amsterdam
O
Staður sem lifir á nágrönnum sín-
um. Þegar mikiö er aö gera á
Gauknum og Glaumbar þá tekur
Kaffi Amsterdam viö því sem flýt-
ur yfir af biörööunum. Þegar
minna er að gera hjá nágrönnun-
um er ekkert aö gera á Amster-
dam. Staöurinn lifir því nokkurs
konar sníkjulifí.
Glaumbar ★★
Þótt staöurinn sé fyrst og fremst
sóttur af fólki sem er einhvern
veginn of venjulegt til aö passa
inn í nokkurn ákveöinn hóp þá rís
hann alltaf upp í kringum stórmót
í fótbolta. Glaumbar er eini sport-
pöbbinn í miöbænum og fótbolti
og bjór fara einhvern veginn ótrú-
lega vel saman.
BBÍMk.
~i V I liHLijiJiiiá
[1
Píanóbarinn ★★
Bar eins og búast mætti viö í far-
þegaskipi sem er í síðustu sigl-
ingu áöur en því veröur lagt. En út-
lendingarnir í Reykjavík og kanarn-
ir af Vellinum fíla þetta andrúms-
loft. Reykvíkingar geta litiö viö og
fyllst stolti yfir aö borgin þeirra sé
svo mikil heimsborg aö hún rúmi
útlendingabar.
Dubliners ★★
Krá fýrir fólk sem kíkir aöeins
endrum og sinnum í bæinn. Hér er
allt eins og það á aö vera; bar-
þjónar sem tala meö útlendum
hreim, gítargutl í einu horninu,
risastór borö svo gestirnir neyöast
til aö hristast saman. Staður fyrir
þá sem eru óvanir því aö
skemmta sér sjálfir.
Hafnarkráin
★★★★
Hafnarkráin er búlla á heimsmæli-
kvaröa og mundi sóma sér vel í
hvaöa hafnarhverfi sem er hvar
sem er í veröldinni. Geiri vert er
stór og flottur og stjórnar sínu
fólki. Hafnarkráin er ekki fýrir
áhugamenn I drykkjunni - þangaö
á enginn erindi nema meö í þaö
minnsta þrjár mislukkaðar meö-
feröir aö baki. Þetta er sóöabúlla
par exelans.
Kaffi Thomsen
★★★★
Nýtt kaffihús sem hefur komið
sterkt inn. Að hluta til hefur þaö
erft þá sem uröu heimilislausir
þegar Café Au Lait lokaöi. En
Thomsen er mun virkari, djarfari
og háværari og hefur dregiö aö
sér mun breiöari hóp en þá
þröngu klíku sem hékk á Café Au
Lait. Thomsen er ungur enn og
ómótaöur - og þannig eru bestu
sumarstaðirnir.
Ingólfskaffi O
Staöur sem dó og viröist ekki eiga
neinn að sem vill blása í hann lífi.
Þess f staö var Skítamórall látinn
sjá um útförina. Fólkiö sem slæö-
ist inn erflest nýflutt í bæinn utan
af landi og er að leita aö sveita-
ballinu sem fær þaö til aö líða
eins og heima hjá sér.
Sólon íslandus
★★★
Ef til vill er það staösetningin og
húsakynnin en Sólon mun líklega
alltaf halda einhverjum dampi. Eft-
ir frekar daufa tíð náöi hann flugi í
vetur og er nú þéttsetinn af há-
skólanemum og helst þeim sem
hafa meiri áhuga á pólitík en reifi,
snobbar frekar fyrir bókmenntum
en tísku. Góöur týrir sitt fólk.
Sir Oliver O
Bar á barmi taugaáfalls. Þótt
Laddi sé fýndinn þegar einhver
skrifar handritiö fýrir hann þá nær
hann engum tökum á barnum þótt
aörir bruggi fyrir hann öliö. Sir Oli-
ver hefur drukkiö frá sér hæfileik-
ana og er oröinn sjabbí, miöaldra
og pirraöur - eitthvað sem minnir
á Mímisbar á sínum mesta niöur-
lægingartíma.
Þióðleikhús-
kjallarinn ★★★
Þessi fýrrum endurvinnsla vakn-
aði til lífsins fýrir fáum vikum og
naut þar niðursveiflu Ingólfskaffis
og Tunglsins. Skyndilega er kjallar-
inn fullur af ungu fólki sem lætur
sér ekki nægja eldhúsfyllerfis-
stemninguna á hörunum og vill
eitthvaö líkara dansiballi.
> I
Skipperinn ★
Lítil búlla fýrir þá sem hafa gefist
upp fýrir drykkjunni og drekka einn
dag í einu. Þaö er mest aö gera
þegar Tryggingastofnun borgar út.
Þótt staöurinn sé náttúrlega fyrst
og fremst sorglegur þá á hann
besta slagorö allra bara: Sigldir
menn og sjóaðar konur. Og þaö
segir allt.
Naustkjallarinn O
Þessi staöur er á jaörinum. Hann
er einhvern veginn ekki hluti af
miöbænum en er á jaörinum. Og
hann hefur ekki alveg náð inn -
fólk gleymir aö hann er til. Þeir
sem mæta eru miöaldra og fá sér
stundum asna - eöa eitthvaö sem
barþjónar þurfa aö kafa nokkra
áratugi aftur í tímann til aö muna
eftir.
Fógetinn ★★
Sviplaus bar meö fólki á ýmsu reki
og úr ýmsum áttum - þó helst úr
úthverfunum og fólk nýflutt í bæ-
inn. Þar fær þetta fólk stundum
aö heyra í Megasi, Súkkat, KK og
fleirum og fyrir það verður Fóget-
inn að teljast bjóöa upp á skástu
trúbadorana.
Kaffi List ★★
Tekin aö þreytast á síöari tímum.
Orðinn of óhamingiusamur í hjóna-
bandinu eöa of fráskilinn, of
mislukkaður í vinnunni og of von-
svikinn til aö teljast til skemmti-
staöa. Samtölin eru mest tuö og
nöldur. Staöur fýrir þá sem telja
sig hafa átt aö fá meira út úr lífinu
en þeir fengu.
iw.tini
Kaffi Reykjavík O
Á Kaffi Reykjavík er þverskurður
nýskilda fólksins og þeirra sem
aldrei tolla í neinum samböndum
en eru sífellt aö reyna. Og þótt
þverskuröur sé eftirsóknarveröur I
skoöanakönnunum þá getur hann
breytt öllum skemmtistööum I
stórmarkaði. Og Kaffi Reykjavík er
stór kjötmarkaöur - þótt sumt
kjötiö fari aö nálgast síöasta
neysludag.
Kaffi Austurstræti
O
Einn af þeim börum sem vita ekki
hvaö þeir ætla aö veröa. Dregur
helst aö þá sem vilja sitja f friöi
yfir sínum bjór og tala við barþjón-
inn. Þeir leita því á þá staöi þar
sem barþjónninn hefur lítiö aö
gera.
PwHWHI
Café París ★
Helst góöur fýrir þurra alka sem
mæta á svæöiö upp úr tíu þegar
AA-fundunum lýkur. Ekki beint liöiö
sem maöur vill hafa í kringum sig
á fýllerii.
Skuggabarinn
★★★
Skuggabarinn hefur haldiö sínu
furöu lengi enda hefur hann
ákveöna sérstööu. Upp úr miö-
nætti tekur hann viö þeim sem
vilja eitthvaö dekkra og skugga-
legra en barina. Sama fólk og á
brennslunni, Kaffibarnum og
Thomsen.
>ðal ★
Staður fyrir túrista - og ekki bara
fýrir hvaöa túrista sem er, heldur
gifta menn sem sendir eru hingað
á ráðstefnur á kostnaö fýrirtækis-
ins. Þannig menn líta á þaö sem
ómissandi þátt í utanlandsferðinni
að reka nefiö inn á nektarbúllu og
helst eitthvaö inn I meyjarnar sjálf-
ar. Þetta er staður fýrir þá sem
vilja vera óþekkir þegar mamma
sér ekki til.
Kaffibrennslan
★★★
Velheppnaöur innflutningur frá
New York hjá Tomma. Góöar inn-
réttingar, flottur bar, gott and-
rúmsloft og þetta hefur skilaö góö-
um kúnnum eins og fyrirmyndin.
Liöiö er samsett af Kaffiharsfólki
en með viöbótum úr ýmsum áttum
sem gerir hópinn breiöari.
Kaffi Frank ★
Einn af mörgum stööum án nokk-
urs svipmóts. Frank er því ágætur
fyrir þá sem vilja kíkja í kollu en
síöur fýrir þá sem ætla út aö
skemmta sér.
Wunderbar ★★
Staöur sem veit ekki alveg hvaö
hann vill, fyrir fólk sem veit ekki al-
veg hvaö þaö vill og sest niöur f
einn bjór til aö ákveöa sig.
Astró ★
Astró hefur veriö kaffært í alls
kyns kynningum, afmælum, uppá-
komum og giggum. Út af öllu
þessu hafarii hefur staöurinn ekki
náð að veröa hann sjálfur. Mis-
munandi boösgestir kvöld eftir
kvöld hafa sett losaralegan blæ á
staöinn og gert hann karakter-
lausan. Astró má muna sinn fífil
fegri.
Litli Ijóti
andarunginn ★
Staður fýrir miöaldra sem hætta
sér ekki dýpra inn í bæinn og
sætta sig viö aö fá sinn bjór en
ekkert umfram þaö. Ekki fyrir þá
sem vilja sýna sig og sjá aöra -
hins vegar ágætur fýrir þá sem
vilja fela sig.
Casablanca O
Dautt. Ekki bara f óeiginlegri merk-
ingu heldur lokaö og læst. Frá
Jazzbarnum hefur ekkert náö aö
lifa f þessu húsnæöi.
-VAióB'í'vS-
Café Romance
★★★★
Rándýr og þröngur bar sem ein-
hverra hluta vegna hefur tekist aö
halda f þaö fólk sem heldur að
þaö sé eftirsóknarvert T3ö vera
uppi og borga allt of mikiö fýrir
drykkinn sinn. Og þeir eru svo
vissir f sinni sök aö þeir láta ekki
einu sinni innfluttu sólarstrandar-
gaularana hrekja sig út meö sín-
um eiturvæmnu ballöðum. Frekar
sitja þeir þöglir og gráta ofan í
glösin sín yfir öllum þeim tilfinn-
ingum sem þeir gætu haft ef þeir
væru ekki alltaf f vinnunni.
Nelly's.cpfé ★
Nelly's^tti óvænftjpnkomu þegar
þaö opnaöi og varö vlnsæll og kúl
þrátt fyrir billegustu innréttingu og
útlit sem sést hefur. Niö'urleiöin
hófst sföastliöiö haust 'og þegar
Vilhjálmur Svan gaf* ,'sig fram
tveimur dögum of s'nemma og var
stungiö inn^var útséö um aö
Nelly's næöi sér á strik. En ekki
afskrifa Villa. Hann þlómstrar á ný
þegar hann sleppur út.
Kofi Tómasar
frænda ★
Sviplaust herbergi meö boröum
og stólum og fólki sem ákvaö aö
standa upp frá sjónvarpinu og
kíkja í öl. Innan um eru stráka- og
stelpuhópar sem þrá aö lenda I
einhverju en hefur ekki kjark til aö
teygja sig eftir þvf.
Vegamót ★★★★
Nýr staöur f góöri uppsveiflu.
Hörku-diskó eftir tólf um helgar.
Og allt frá krökkum upp í vel miö-
aldra, nafnleysingjar sem nafntog-
aöir, á barnum. Hann er akkúrat á
besta aldri og í besta ásigkomu-
lagi, hefur ekki enn náö aö setlast
og er þvf spennandi deigla. Einn
heitasti staöurinn f sumar.
ma
22 ★★★
Hommar og lesbíur hafa veriö 22
tryggar stoðir. Þótt diskótekiö á
efri hæöinni detti stundum út f
leiðindi þá jafnar þaö sig vanalega
aftur. Á neöri hæöinni hefur tekist
aö endurnýja liöiö reglulega þótt
tryggar byttur eigi sín föstu sæti.
Telst enn meöal hornsteina f ís-
lenskri barmenningu.
Heaven O
Ef litiö yröi yfir síöustu átta ár þá á
Tungiö (eöa hvaö þaö nú heitir
hveiju sinni) líklega átta mánuöi
góða en hundraö slæma. Það rfs
eina, tvær helgar en hnígur svo
aftur. Heaven sem opnaöi um síö-
ustu helgi þyijaöi ekki vel en þaö
er ástæðulaust að afskrifa þaö.
Þaö er hins vegar óskrifað blað.
Ari í Ögri ★
Staöur sem átti örstutt bióma-
skeiö eitt sumarið vegna verand-
arinnar fyrir utan. Sföan hefur
■ hann veriö líkastur hverfispöbb á
íslandi þar sem hver drekkur í
sfnu horni og vill helst sem minnst
vita af nágrönnunum. Áhersla eig-
endanna á eitursterka og eitur-
vonda snafsa hefur gert staðinn
heldur langdrukkinn.
Bíóbarinn ★★
Eftir áralangt niðurlægingartfmabil
hefur Bíóbarinn sýnt örlítiö Iffs-
mark á undanförnum vikum. Fólk-
ið sem hefur gefist upþ á hálfkák-
inu á Kaffi List hefur fært sig niö-
ur um þrettán skref og drekkur nú
innan um og saman viö atvinnu-
mennina sem áöur sátu einir aö
drykkju. Þetta er þó enginn staöur
fýrir hobþý-drykkjumenn.
Grand Rock ★★
Subbuleg búlla sem náði flugi um
tíma en ofmetnaðist og hefur dal-
að stórum. Hrafn Jökulsson hætt-
ur á barnum og farinn til Prag. Eft-
ir sitja stífir drykkjumenn, sem
margir hverjir hófu ferilinn í Tjarna-
búö á sínum tfma. Sorgin leggst
yfir upp úr tvö.
Kaffibarinn ★★★★
Þetta er stofnun í fslensku nætur-
lífi og þótt þarinn sé ef til vill ekki
eins ferskur og þegar hann var
upp á sitt besta er hann enn í fullu
fjöri. Sætustu stelpurnar og flott-
ustu gæjarnir, öll á barmi þess að
meika það í einhverju tískufaginu
- þótt þaö sé oröiö æöi óljóst hjá
sumum hvaö þaö er. Ef Kaffibar-
inn heldur sfnum sessi í tvö ár í
viöbót veröur hann eilífur.
Frá horni Kíapparstígs og Laugavegar og að
Grófinni eru 35 barir. Þetta er miðbærinn í
Reykjavík, svæðið sem er orðið heimsfrægt fyrir
fyllerí. Um hverja helgi safnast þar saman um
tuttugu þúsund manns, detta inn á barina og
vafra á milli þeirra, drekka, daðra og djamma.
Þetta er frumskógur Reykjavíkur. Ef einhvers
staðar er þörf á góðu landakorti til að finna rétta
staðina - og forðast þá röngu - þá er það hér.
Landakort
drykkiumannsins
f Ó k U S 10. júlf 1998
10. júlí 1998 f Ó k U S