Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Page 19
1.
Sumar ’86
Meðlimir detta úr Kuklinu sem
hefur verið starfandi síðan 1983 og
aðrir koma inn. Samhliða stofnun
útgáfufyrirtækisins Smekkleysu er
hljómsveit sett á laggimar til að
spila léttari skemmtimúsík en
Kuklið hafði fengist við.
2.
Ágúst ’86
Nýja bandið spilar í fyrsta skipti í
tjaldi í Vatnsmýrinni á N’Art-hátíð-
inni undir nafninu Þukl. Meðal laga
eru Drekinn, Köttur og Póló. Tónlist-
in er beint úr bílskúmum, hrá og
óslípuð, og viðtökurnar blendnar.
3.
Haust ’86
Einar Öm er framkvæmdastjóri
Stuðmanna og m.a. út á það fær
hljómsveitin, sem nú hefur verið
nefnd Sykurmolarnir, ódýra hljóð-
verstíma í hljóðveri Stuðmanna,
Grettisgati. Unnið hefur verið stíft
að lagagerð um sumarið og megnið
af lögunum úr Grettisgats-skorp-
unni endar síðar á fyrstu skífu
Molanna, eða á B-hliðum.
4.
21. nóvember ’86
Á 21. afmælisdegi Bjarkar, kem-
ur út smáskífan „Einn mol’á
mann“ með lögunum Ammæli og
Köttur. Smáskífan er fjármögnuð
með sölu póstkorta af Reagan og
Gorbatsjov sem þáverandi gítar-
leikari Molanna, Friðrik Erlings-
son, hafði hannað í tilefni af leið-
togafundinum. Smáskífan er press-
uð í 500 eintökum en helmingur-
inn kemur út eins og bárujárn í
laginu sökum mistaka hjá íslensku
plötupressunni. Umslagið er límt
og litað af hljómsveitarmönnum
sem dreifa plötunni einnig í plötu-
verslanir. Platan selst sáralítiö og
gagnrýnendur eru lítt hrifnir,
nema Ámi Matthíasson hjá Morg-
unblaðinu.
5.
Vor ’87
Æfingar eru stopular en lögin
slípuð til. Hljómsveitin spilar litið,
þó einu sinni í Hlaðvarpanum, og
tekur þar m.a. Velvet Under-
ground-lagið Sweet Jane. Einar
Öm er við nám í London en leyfir
þó vini sínum úr pönkinu, Derek
Birkett, að heyra lögin úr Grettis-
gati. Derek ákveður að gefa Sykur-
molana út á nýju merki sínu, One
Little Indian, og lögin eru slípuð
til í London.
6.
17. ágúst ’87
kemur Birthday út á smáskífu í
Englandi við fádæma hrifningu
þarlendra gagnrýnenda. í kjölfarið
fer bandið út í viðtöl og myndatök-
ur og að ljúka við lögin fyrir fyrstu
stóm plötuna.
7.
Veturinn ’87-’88
Önnur smáskífan, Cold Sweat,
kemur út og Sykurmolar spila í
London. Þegar kemur í ljós hve
bandið er gott á sviði fyllast út-
sendarar plötufyrirtækja áhuga
og stór tilboð streyma inn, þó með
ýmiss konar boðum og bönnum:
stórfyrirtækin vilja vera með putt-
ana í útliti, tónlist og liðsmanna-
fjölda sveitarinnar. Sykurmolarn-
ir fara því eigin leiðir, halda sig
hjá OLI í Bretlandi, gera samning
við Elektra í N-Ameríku og ýmsa
aðila í öðrum heimshlutum.
8.
Apríl ’88
Fyrsta stóra platan, „Life’s too
Good“, kemur út. Meðlimir era
ekki á eitt sáttir um litinn á um-
slaginu svo Derek kemur með þá
snilldarhugmynd að gefa plötuna
út í 6 litum. Platan fær frábæra
dóma (meira að segja á íslandi) og
selst í yfir milljón eintökum um
allan heim.
12.
Vor ’90
Farin er löng tónleikarana um
Bandaríkin og eftir það tónleika-
ferð til Japans, Ástralíu og Nýja-
Sjálands. Bandið er í góðu formi á
nýjum slóðum en þegar komið er
heim í maí er komin þreyta í
mannskapinn. Sérstaklega vill
Björk fara að prófa eitthvað nýtt,
enda búin að spila með þessum
kjarna í ein sjö ár.
13.
Haust ’90
Sveitin hafði á upphafsárum sin-
um verið eins konar húsband í
Duus-húsi og þegar Jack Lang, for-
sætisráðherra Frakklands, kemur í
opinbera heimsókn og biður um
tónleika - enda mikill Sykurmola-
aðdáandi - er settur upp stofu-
konsert þar. Francois Mitterrand
og Vigdís Finnbogadóttir mæta
líka og hafa gaman af þótt þau
þrauki bara fjögur lög.
14.
Sumar ’91
Þriðja plata Sykurmolanna,
„Stick Around for Joy“, er tekin
upp í hljóðveri nálægt Woodstock
í New York-ríki. Hún er tilbúin í
ágúst en ekki gefm út fyrr en eft-
ir áramótin. Fyrst kemur þó lagið
Hit á smáskífu og fer hæst Sykur-
molalaga á vinsældalistum, upp í
17. sætið í Englandi og jafnar gam-
alt met sem Mezzoforte setti með
Garden Party. Ekki er mikill áhugi
innan Molanna á áframhaldandi
samstarfi, sérstaklega er Björk
orðin leið. Hún hefur hafið sam-
starf við ensku danssveitina 808
State og er einnig að krukka í sóló-
efni. Molaplötunni er fylgt eftir
með örfáum tónleikum en famar
því massífari viðtalaferðir, t.d. í
skemmtiþátt Arsenio Hall sem
sendur er út sama dag og Rodney
King-óeirðimar brjótast út og hef-
ur því lítil áhrif.
15.
Haust ’92
Molamir eru í raun hættir þó
þeir þrjóskist við að tilkynna and-
látið og Björk er komin langt á
leið með sína fyrstu sólóplötu.
Nokkrum endurmixum er smalað
á diskinn „It’s It“ (sem sumir með-
limir kalla „It’s Shit“ sín á mUli)
og kemur út um svipað leyti og U2
hefur samband og býður Molunum
að hita upp fyrir sig á „Zooropa"-
túmum í Bandaríkjunum. U2
býðst til að borga brúsann og Mol-
arnir eru bomir i gullstóli á milli
borga. Þegar heim er komið era all-
ir orðnir þreyttir á samstarfmu og
þar sem Sykurmolarnir gerðu
enga bindandi samninga í upphafi
getur hljómsveitin hætt án vand-
kvæða.
16.
Sumar ’98
Út kemur safnplatan „The Great
Crossover Potential" með 14
„bestu/vinsælustu“ lögum sveitar-
innar. Einar Öm og Sigtryggur eru
að dunda sér við ýmislegt, m.a.
saman í hljómsveitinni Grindverk.
Þór Eldon er í Unun. Magga sem-
ur kvikmynda- og auglýsingatón-
list og snýst í ýmsu. Bragi er búinn
að selja bassann sinn og skrifar í
staðinn. Björk vinnur ekki í hann-
yrðabúð.
-glh
9.
Sumar ’88
Til kynningar fer sveitin á tón-
leikatúr um England. Einar, Björk
og Þór fara í viðtalatúr til Banda-
ríkjanna en illa gengur að fá at-
vinnuleyfi svo sveitin fer ekki á
tónleikatúr þar fyrr en um haustið.
Túrað er stíft fram yfir áramót.
10.
Júní ’89
Sykurmolar láta gabba sig út í
að fara á hóptúr með New Order
og Public Image Ltd, „Monsters of
Altemative Rock“. Til stóð að Mol-
ar og PIL skiptu með sér byrjunar-
sætinu en þegar til kom vildi John
Lydon aldrei hefja tónleikana og
Sykurmolar fara því alltaf á svið
fyrstir, eftir að hafa spilað Hauk
Morthens af bandi. Tónleikaferð-
in gengur vel og í kringum 20.000
manns koma á hvern konsert.
11.
Október ’89
Önnur plata Molanna, „Here
Today, Tomorrow Next Week“, eða
„Illur arfur" á íslensku, kemur út.
Vinnsla við plötuna hófst í lok
árs ‘88 í hljóðverinu Sýrlandi
og gengið hefur á ýmsu. Upp-
tökumaðurinn Brian Pugsley
gekk út í miðjum klíðum og
Pétur Gíslason og Derek sitja
yfir mixunum sem send era
til hljómsveitarmanna hvar
sem þeir eru staddir í heim-
inum við tónleikahald. Plat-
an fær afleita dóma, enda
lögin of mörg og nokkur
hálfköruð. Einnig hefur
hljómsveitin hitt flesta í
blaðamannabransanum
og snýtt sér í þá, Einar
Örn m.a.s. skallað einn
þeirra, John White, sem
hefnir sín í Melody
Maker með því að leggja
til að Einar verði skot-
inn. Platan selst þó í 700
þúsund eintökum.
SdODHEIT
HM TILBOD
Wjf*
r
i* j i 7.
3 . ~J 4---------------'
/ | ..................... •
JXs í-~.
J" 'J
Jýu uks.i íh/J
í)H iiii aí iíiLríajraiiiiii
2 iiira iúi JT ír/iilíur.
J2* iiiaiijajriia
'SjíjÉQ/*
10. júlí 1998 f Ó k U S