Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Qupperneq 21
Vígalegir geimfarar og olíuleitarmenn, tilbúnlr að bjarga mannkyninu.
Hin fokdýra Armageddon frumsýnd í dag:
LOFTSTEINARNIR
KOMA (aftur)
í dag er frumsýnd í nokkrum
kvikmyndahúsum sumarsmellur-
inn Armageddon þar sem reynt er
að bjarga mannkyninu frá gríðar-
stórum loftsteini sem stefnir á
jörðina og mun eyða öllu lífi nái
hann að komast í gegnum and-
rúmsloftið. Armageddon er önnur
tveggja mynda í sumar sem fjalla
um þetta sama efni. í Deep Impact
var það að vísu halastjarna sem
ógnaði öllu lífi en afleiðingarnar
hefðu orðið þær sömu. Þá vill svo
til að í báðum myndunum er það
New York sem er miöpunktur
hamfaranna eins og í Godzilla
sem enn hefur ekki verið sýnd
hér á landi. Miklu fé hefur verið
fómað til að gera Armageddon
sem raunverulegasta og voru
kvikmyndagerðarmenn í nánu
samstarfi við NASA, geimferða-
stofnun Bandarikjanna, við gerð
nokkurra atriða.
Armageddon sem frumsýnd var
í Bandaríkjunum um síðustu
helgi er hefðbundin stórmynd þar
sem mikilli orku og fjármunum er
eytt í myndræn áhrif. í byrjun
fylgjumst við með þegar loftsteinn
lendir á geimfari og sprengir það
í loft upp. í framhaldi falla loft-
steinar á jörðina af miklu afli og
valda miklu tjóni á mönnum og
mannvirkjum. Þetta er þó bara
lognið á undan storminum. Loft-
steinn á stærð við Texas er á leið
til okkar og eina vömin gegn
honum, að mati visindamanna, er
að bora holu í hann miðjan og
koma þar fyrir kjamorkusprengju
sem muni skipta honum í tvennt.
Þar sem allir þjálfaðir geimfarar
vita lítið um borholur er fenginn
hópur olíubormanna til að taka
að sér verkið.
Bruce Willis er fremstur í hópi
traustra leikara á borð við Billy
Bob Thorton, Steve Buscemi,
Will Patton og Peter Stormare.
Til að krydda myndina fyrir ung-
lingana eru ungstirnin Liv Tyler
og Ben Affleck einnig til staðar.
Leikstjóri Armageddon er Mich-
ael Bay sem á að baki tvær vin-
sælar kvikmyndir, Bad Boys og
The Rock. Frami Bays var snögg-
ur eftir að hann réð sig til Propag-
anda Films þegar Sigurjón Sig-
hvatsson var þar enn við stjórn-
völinn. Vann hann til margra
verðlaun fyrir auglýsinga- og tón-
listarmynd og hann uppskar það
að verða valinn auglýsingaleik-
stjóri ársins árið 1995.
Stórir loftsteinar
hafa lent á jörðinni
í orðabókum er loftsteinum lýst
sem smáum, óreglulegum hlutum
sem ganga á braut umhverfis sól-
ina. Þeir gætu verið leifar af
plánetu sem einhvern tímann í
fyrndinni hefur splundrast eða
leifar af halastjörnum. Talið er að
þúsundir loftsteina lendi á jörð-
inni en yfirleitt eyðast þeir þegar
þeir koma inn í andrúmsloftið.
Þeir sem ná alla leið eru það smá-
ir að þeir valda engu tjóni. Stórir
loftsteinar hafa lent á jörðinni og
er frægasta dæmið, það er að
segja ef tilgáta vísindamanna er
rétt, þegar loftsteinn féll fyrir 65
milljónum ára og eyddi 40% af
öllu lífi á jörðinni, þar á meðal
risaeðlunum. Vitað er með vissu
að fyrir tveimur milljónum ára
féll stór loftsteinn á suðurheim-
skautið og er talið að höggið sem
varð af þessu hafl haft sprengi-
kraft á við 100 milljarða tonna af
TNT. Loftsteinn þessi, sem var
nokkrir kílómetrar að flatarmáli,
gerði það að verkum að ógnarleg-
ar flóðöldur skullu að ströndum
Suður-Afríku.
Loftsteinar sem hér um ræðir
eru samt smásmíði þess loftsteins
sem ógnar í Armageddon. Ef slík-
ur loftsteinn skylli á jörðinni
mundi allt líf eyðast. Sá sem
skrifaði fyrsta handritið að
Armageddon, Jonathan Hens-
leight, fékk hugmyndina þegar
þær fréttir bárust árið 1994 að
stærðar loftsteinn, sem kallaður
hafði verið Shoemaker-Levy,
stefndi á yfirborð Júpíters. Vegna
þéttleika andrúmsloftsins um-
hverfis plánetuna brotnaði hann í
marga hluta sem skullu síðan á
henni af miklu afli. Var fylgst vel
með þessum atburðum á jörðinni.
Síðasta véfréttin um loftstein
kom svo 12. mars síðastliðinn
þegar stjörnufræðingur sendi frá
sér skýrslu um það að stór loft-
steinn væri á leið til jarðar á
17.000 mílna hraða á klukkustund
og von væri á honum mjög ná-
lægt jörðinni 26. október 2028.
Sem betur fer kom leiðrétting á
þessu þar sem sagði að hann
mundi fara í 600.000 mílna fjar-
lægð frá jörðu.
-HK
Titanic ★★★<
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd.
Af miklum fitonskrafti tókst James Camer-
on aó koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd
sem gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta
Camerons skilar sér I eðlilegri sviðsetn- '-
ingu sem hefur á sér mikinn raunsæis-
blæ. Leonardo DiCaprio og Kate Winslet
eru eftirminnileg í hlutverkum elskend-
anna. -HK
Mouse Hunt ★★★
Músaveiðimynd sem segir frá vitgrönnu
bræðrunum Smuntz sem erfa snæraverk-
smiðju og niðurnítt hús (með mús) eftir
föður sinn. Sjálf músin er aðalhetja mynd-
arinnar þar sem hún klífur og stekkur og
sveiflar sér af mikilli fimi og hugrekki um
húsið, sigrast bæði á banvænum ketti og
meindýraeyði og hvomsar í sig kíló af osti
án þess svo mikið sem gildna um miðbik-
ið. -úd
4
Twilight ★★★
Gamaldags gæðakrimmi þar sem Paul
Newman leikur gamla og þreytta einka-
löggu sem fær vandamálin á færibandi
þegar hann reynir að hjálpa gömlum vini.
Twilight er mynd leikaranna og auk
Newmans, sem sýnir gamla takta, eru
Susan Sarandon, Gene Hackman og
James Garner í fínu formi. -HK
Mad City ★★★
Sterk kvikmynd um það hvernig fjölmiðlar
búa til stórfrétt. Þótt deila megi um að
gislatakan í myndinni geti staðiö yfir í þrjá
sólarhringa kemur það ekki að sök. Costa-
Gavras hefur styrka stjórn á því sem hann
er að fjalla um og hefur ekki gert betri
kvikmynd í mörg ár. Dustin Hoffman og
John Travolta eru öryggið uppmálað í aðal-
hlutverkunum. -HK
K
Piparkökukallinn ★★★
Frá Robert Altman koma alltaf athyglisverðar
kvikmyndir og þótt Piparkökukallinn sé ekki
meistaraverk á borö viö MASH, Nashville,
The Player og Short Cut þá er hér um afar at-
hyglisverða sakamálamynd að ræða sem
hefur áhugaverðan söguþráð og góðan leik-
arahóp sem stendur vel fyrir sínu. -HK
Scream 2 ★★★
Þó Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1
átti þá held ég að ég geti ekki annað en
kallað þetta þriggja stjörnu hrollvekju-
skemmtun. Eftir magnaða byrjun fór
Scream 2 of hægt af stað en síðan tók ,
hún kipp og brunaði af stað og hélt uppi
þessari líka fínu spennu án þess aö slaka
á drepfyndnum hroll-vísununum og skildi
við áhorfandann ánægjulega hrylltan. -úd
Six Days, Six Nights ★★★
Fremur hugmyndasnauð en þó skemmti-
leg rómantfsk gamanmynd sem gerist í fal-
legu umhverfi á eyjum f Kyrrahafinu.
Myndinni er haldið uppi af góðum leik að-
alleikaranna Harrisons Fords og Anne
Heche sem ná einstaklega vel saman.
Aðrir leikarar standa sig ágætlega en
hverfa f skuggann af gneistandi samleik
Fords og Heche. -HK
Grease ★★★
Oft hafði ég á tilfinningunni að það eina
sem bjargaði þessu 20 ára afmæli
Grease væri að hún hefði með árunum
tekið á sig „kamp"-ímynd Rocky Horror
Picture Show. Þannig gengur hún upp fyrir i’
mér. Að þessu sögðu má sfðan bæta við
að lögin standa enn fyrir sínu og dansat-
riðin eru skemmtileg. -GE
bíódómar
Armageddon: ★★
Miklar umbúðir - lltið innihald
Nýlegar bandarískar framtíð-
ar- og stórslysamyndir hafa tekið
á sig form sem gerir út á það að
ná sem mestum myndrænum
áhrifum á kostnað innihaldsins.
Ekkert er til sparað til að gera
sem flest myndskeið svo tilkomu-
mikil að áhorfandinn gleymi sér í
rússibanaferð um tíma og rúm
þar sem í raun enginn ætti að
halda lífi léngur en í þrjár mínút-
ur. Armageddon er engin undan-
tekning frá þessu. í henni er
keyrt á fullu í gegnum tækniund-
ur kvikmyndaiðnaðarins í tvo og
hálfan klukkutíma, oft og tíðum á
áhrifamikinn hátt, á meðan per-
sónur eru meira og minna að
öskra hver á aðra. í myndinni fer
Bruce Willis fyrir hópi olíubor-
manna. Þetta eru kaldir kallar og
enginn kaldari en Bruce sem í
hlutverki Harrys S. Stampers
sýnir, svo ekki verður um villst,
að hann er mesti töffarinn í kvik-
myndum í dag. Vísindamenn í
Houston komast að því að eina
leiðin til að koma í veg fyr-
ir heimsendi, sem er óum-
flýjanlegur ef loftsteinn á
stærð við Texas fær að
halda óhindrað áfram ferð
sinni og lenda á jörðinni,
er að senda sveit vaskra ol-
íubormanna í geimferð,
lenda með þá á loftsteinin-
um, láta þá bora holu og
setja kjarnorkusprengju í
hana. Sprengingin mun
síðar gera það að verkum
að steinninn klofnar og
hlutimir stefna hver í sína
átt frá jörðu. Þetta verður
verkefni sveitarinnar gal-
vösku sem tekst að sjálfsögðu á
við verkið af æðruleysi og þeim
vígamóði sem hetjur einar búa yf-
ir.
Það verður að segjast eins og er
að Armageddon er ekki mjög að-
gengileg kvikmynd. Það er verið
að mata áhorfandann á þremur
skömmtum af spennu á móti ein-
um skammti af tilfinningum. Um
tilfinningasemina sér dóttir
Harrys að mestu en hún er einnig
kærasta nánasta samstarfsmanns
hans (Liv Tyler afleit í hlutverk-
inu). Einstaka leikarar ná að
skína í gegnum alla vitleysuna.
Má þar nefna Steve Buscemi í
hlutverki nn stærðfræðisnillings
sem hefur villst af leið og er orð-
inn olíuleitarmaður. Hann á
nokkur snjöll tilsvör
sem skapa ágætan
húmor. Peter Storm-
are leikur rússneskan
geimfara sem hefur
greinilega verið of
lengi í geimnum. Það *
er annars umhugsun-
arefni af hverju eini
„útlendingurinn” i
myndinni er gerður að
hálfgerðu fifli. Hvað
um það, Storemare
gerir honum góð skil.
Um frammistöðu leik-
stjórans, Michaels
Bays, er það að segja
að hann gerir greinilega rétt allt
það sem honum hefur verið sagt
að gera og á því enn bjarta fram-
tíð fyrir sér í Hollywood.
Leikstjóri: Michael Bay. Handrit: Jonathan
Henslelght og J.J. Abrams. Kvikmyndataka:
John Schwartzman. Tónlist: Trevor Rabln.
Aðalhlutverk: Bruce Wlllis, Bllly Bob Thornt-
on, Ben Afflect, Llv Tyler, Will Patton og
Steve Buscemi. Hilmar Karlsson
k
10. júlí 1998 f Ó k U S