Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
Fréttir
Skoðanakönnun DV um álfatrú:
Meirihluti þjóðarinnar
trúir á álfa og huldufólk
- konur trúaðri á tilvist álfa en karlar og framsóknarkonur sterkastar í álfatrúnni
Trúir þú á álfa?
Álfatrú íslendinga Álfatrú karlmanna
Trúa á álfa
i Trúa ekki á álfa
Meirihluti þjóðarinnar trúir á
álfa eða huldufólk ef marka má nýja
könnun DV. Könnunin var gerð
dagana 15. og 16. júlí. Könnunin var
gerð í gegnum síma. Úrtakið var 600
manns sem skiptist jafht milli höf-
uðborgarsvæðis og landsbyggöar og
jafnt milli kynja. Spurt var: „Trúir
þú á álfa eða huldufólk?"
Langflestir þeirra sem spurðir
voru tóku afstöðu og svöruöu spum-
ingunni, eða yfír 90%. Niðurstaðan
varð sú að af þeim sem afstöðu tóku
sögðust 54,4% trúa á álfa en 45,6%
ekki. Nokkur munur var á trú kynj-
anna og vom konur trúaðri á álfa
en karlar. 59,4% þeirra kváðust trúa
á áifa en 40,6% ekki. 50,2% karl-
manna trúa að áifar séu til 49,8%
gera það ekki.
Álfatrú þjóðarinnar ætti ekki að
koma á óvart. Hún hefur fylgt henni
lengi þótt talsvert hafl dregið úr
henni undanfama áratugi. Þó em
nýleg dæmi um að hætt hafi verið
við að reisa fyrirhuguö mannvirki
og leggja vegi á ákveðnum stöðum
til að forðast að eyðileggja álfa-
byggðir og kalla yfir sig reiði og
hefnd álfa með meintum ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Þannig var
lögð lykkja á veginn milli Reykja-
víkur og Mosfellsbæjar upp úr 1970
vegna þess að í upphaflega fyrirhug-
uðu vegarstæði var stór klettur og í
honum sögð vera álfabyggð. Þegar
ryðja átti klettinum úr vegi er sagt
að tæki hafi bilað í stóram stíl, vél-
ar í þeim brætt úr sér og sitthvað
fleira óútskýrt gerst. Fenginn var
„sjáandi" maður til ná samningum
við álfana. Þeir tókust og var vegur-
inn færður til.
Framsóknarkonur
trúaðar á álfa
Þegar svör við spumingu DV um
álfatrú fólks vom borin saman við
svör þess um hvaða flokka það
myndi kjósa ef kosið yrði nú kom
ýmislegt sérkennilegt í ljós. Þannig
er athyglisvert að konur sem styðja
Framsóknarflokkinn virðast vera
hvað mest trúaðar á tilvist álfa því
að 81,2% þeirra sem sögðust mundu
kjósa Framsóknarflokkinni kváðust
trúa á álfa eða huldufólk, 18,8%
þeirra ekki. Einnig vora álfatrúar-
karlmenn nokkm fjölmennari með-
al stuðningsmanna Framsóknar-
flokksins en meðal stuðningsmanna
annarra flokka eins og sést á með-
fylgjandi töflu. Minnst virtist trúin
á álfa vera meðal karlkyns-stuðn-
ingsmanna Kvennalistans þar sem
33,3% þeirra trúðu á tilvist álfa en
66,7% ekki. Taka skal fram í þessu
sambandi að þeir karlmenn sem
kváðust mundu kjósa Kvennalist-
ann og svömðu jafhframt spuming-
unni um trú á álfa voru aðeins þrír.
Öðm máli gegndi um stuðningskon-
ur Kvennalistans. Meirihluti þeirra,
eða 54,5% kvaðst trúa á álfa en
45,5% ekki.
yrðingu í skýrslu sérfræðinganefndar
OECD, Alþjóða þróunar- og framfara-
stofnuninnar, og segir að sérffæð-
inganefndin hafi úrskurðað íslenska
kvótakerfið það besta í heimi með til-
liti til hagkvæmni og fiskvemdar.
Þetta er ekki i fyrsta sinn sem fram
kemur í Útveginum að íslenska
kvótakerfið sé hið besta í heimi þar
sem því sama var haldið fram í blað-
inu í aprílmánuði 1997. Var þar enn
vitnað tO nefndrar skýrslu sérfræð-
inganefndar OECD.
Skýrsla OECD er ítarlegur saman-
burður á fiskveiðistjórnunarkerfi 25
landa og nokkur hundmð síður að
lengd. í skýrslunni er hins vegar
hvergi að finna neina fullyrðingu um
það að íslenska fiskveiðistjómunar-
kerfið sé hið besta í heimi.
Bjami Hafþór Helgason, ritstjóri
Útvegsins og framkvæmdastjóri Út-
vegsmannafélags Norðurlands, segir
aðspurður um málið að að vísu sé
Alþýðubandalagsfólk
vantrúað
Alþýðubandalagsfólk virðist ís-
lenslo-a kjósenda síst trúað á álfa.
51,9% stuðningsmanna kváðust
ekki trúa á tilvist þeirra en 48,1%
trúa. Hjá karlkyns-stuðningsmönn-
um vom hópar trúaðra og vantrú-
aðra jafnstórir en meðal kvennanna
vora hinar vantrúuðu fleiri. Þessu
er öfugt farið í Sjálfstæðisflokknum.
Þar kváðust 57,7% trúa á álfa en
42,3% ekki. 51% sjálfstæðiskarla
kvaðst hins vegar ekki trúa á álfa
en 49% kváðust trúa á þá.
-SÁ
ekki sagt beram orðum í skýrslu
OECD að íslenska kvótakerfíð sé það
besta í heimi. „Sama niðurstaða kom
þó fram í máli sérfræðings frá OECD
á ráðstefnu sem sjávarútvegsráðu-
neytið gekkst fyrir í apríl í fyrra en
hún var efnislega sú að íslenska
kvótakerfið væri þaö besta í heimi
með tilliti til hagkvæmni og fisk-
vemdar."
Benedikt Valsson, hagfræðingur
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins, segir óskandi að jafnvirt stofnun
og OECD hefði komist að þeirri nið-
urstöðu að íslenska kvótakerfið væri
það besta í heimi. „Ég get hins vegar
ekki fundið neinn dóm um það í
skýrslu sérfræðinganefhdarinnar að
íslenska kerfið sé það besta i heimi.
Ef fréttin i Útveginum fjallar um það
að einn sérfræðinga OECD sagði
þetta á ráðstefnu þá er það hans per-
sónulega skoðun en ekki álit sérfræð-
inganefndar OECD.“ -kjart
Stuttar fréttir dv
Launamisræmi
Laun opinberra starfsmanna og
bankamanna hafa hækkað tvöfalt
meira en laun á
almennum mark-
aði samkvæmt
nýjum tölum Hag-
stofu íslands. í
fréttum Bylgjunn-
ar sagði Björn
Grétar Sveinsson,
formaður VMSÍ,
að stjómvöld hefðu breytt um launa-
stefnu síðan síðustu almennu kjara-
samningar vom gerðir.
Besta dísilolían
Samkeppnisstofnun gerir ekki
athugasemdir við að Olíufélagið
hf. tali um bestu dísilolíuna í aug-
lýsingum sínum. íslenska auglýs-
ingastofan hf. kærði þetta orðaval
fyrir hönd Skeljungs hf., að því er
segir í frétt frá Olíufélaginu hf.
Rannsóknarstyrkir NATO
Svanborg Sigmarsdóttir og Ólöf
Björg Steinþórsdóttir hlutu rann-
sóknarstyrki Atlantshafsbandalags-
ins í ár. Svanborg vinnur að dokt-
orsverkefni við Háskólann í Essex
um mannlega virðingu og stjóm-
málaumræðu. Ólöf Björg vinnur að
því að rannsaka stærðffæðinám
barna og unglinga. Ellefu aðrir ís-
lenskir menntamenn hlutu styrki
Atlantshafsbandalagsins.
Varasamt stefnuleysi
Haraldur Ólafsson, prófessor og
fyrrverandi þingmaður Fram-
sóknarflokks-
ins, sagði í ffétt-
um RÚV að
hættulegt væri
fyrir íslendinga
að hafa enga
stefiiu í Evrópu-
málum. Þjóðin
mun hvort sem
henni líkar betur eða verr verða
að tengjast Evrópusambandinu
nánar en hún hefur þegar gert
meö samningnum um EES.
NASA kannar Surtsey
Visindamenn frá bandarísku
geimferðastofnuninni, NASA, fylgj-
ast grannt með þróun mála á Surts-
ey með háþróuðu gervitungli og á
vettvangi. Bandaríkjamennirnir
telja margt sameiginlegt með Surts-
ey og Mars. Stöð 2 sagði frá.
Korpúlfsstaðir skóli
Borgarráð fól í gær bygginga-
geild borgarverkfræðings og
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur aö at-
huga hvort hægt væri að innrétta
vesturálmu byggingarinnar sem
gmnnskóla fyrir böm í Staða- og
Víkurhverfi. Stefnt er að því að út-
tektin verði tilbúin í september.
RÚV sagði frá.
Fær ekki bílpróf
Héraðsdómur Vestfjarða hefur
dæmt pilt, sem ók próflaus og
drukkinn í Vestfjarðagöngum í
fýrra, þá 16 ára gamall, á 110 kíló-
metra hraða á klukkustund í 120
þúsund króna sekt, auk þess sem
honum er gert að greiða allan máls-
kostnað. Hann missir einnig réttinn
til þess að fá ökuréttindi næsta eitt
og hálfa árið. RÚV sagði frá þessu.
Þjóðminjasafni lokað
Þjóðminjasafninu verður lokað
um næstu mánaðamót vegna við-
gerða og ekki opnað aftur fyrr en 17.
júní árið 2000. Viðgerðin mun kosta
yfir 800 milljónir króna.
Geislavirkur úrgangur
Á ráðstefnu Evrópuríkja um um-
hverfismál hafanna ætlar Guð-
mundur Bjama-
son umhverfis-
ráðherra að
reyna að fá
stjórnvöld í Bret-
landi og Frakk-
landi til að
hætta að losa
geislavirk efni I
hafið. RÚV greindi frá.
Kolmunnaveiðar
Kolmunnaveiðar munu hefjast
hér við land um miðjan næsta
mánuð, strax og loðnuveiðum lýk-
ur. Yfir ein milljón tonn
kolmunna er á miðunum suð-
austan við landið. RÚV sagði frá.
-JHÞ/SÁ
Álfatrú - eftir hollustu við stjórnmálaflokka
Flokksheiti Trúa á álfa Trúa ekki á álfa
Alþýðuflokkur 50% 50%
Framsóknarflc^ ur 64,2% 35,8%
Sjálfstæðisflbkkt 52,7% 47,3%
Alþýðubandalag ÍL, 4S.1% 51,9%
Kvennalisti '50% 50%
irgga DV-graf IJ
Álfatrú karla
- út frá stuðningi við stjómmálaflokka
Flokksheiti Trúa á álfa Trúa ekki á álfa
Alþýðuflokkur 45,5% 54,5%
Framsóknarflokkur 57,8% 43,2%
Sjálfstæðisflokkur 49% 51%
Alþýðubandalag 50% 50%
Kvennalisti 33,3% 66,7%
Álfatrú kvenna
-út frá stuðningi við stjómmálaflokka
Alþýðuflokkur 55,6% 44,4%
Framsóknarfiokkur 81,2% 18,8%
Sjálfstæöisflokkur 57,7% 42,3%
Alþýöubandalag 45,8% 54,2%
Kvennalisti DV-graf IJ 54,5% 45,5%
LIÚ vitnar í OECD-skýrslu um að íslenska kvótakerfið sé best í heimi:
Ekkert um það í skýrslunni
- ritstjóri fréttabréfs LÍÚ segir sérfræðing OECD hafa fullyrt þetta á ráðstefnu
íslendingar búa við besta fiskveiði- júníblaði Útvegsins, fréttabréfi LÍÚ.
stjómunarkerfi í heimi, samkvæmt Vitnar blaðið til stuðnings þeirri full-
Þegar ijósmyndari DV átti leið um Hafnarfjarðarhöfn var verið að skipa upp
grús sem kom frá Noregi. Hlaðbær flytur hana inn en grúsin er blönduð mal-
biki til að styrkja hana. Blandan er notuð í stærri verkefni, s.s. við endurbæt-
ur á Reykjanesbraut. DV-mynd S.