Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Blaðsíða 28
S:-mÉÉrL‘É FRETTASKOTIÐ SÍMINNSEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1998 Dæmi eru um að fólk hafi misskilið merkingar við Hvalfjarðargöng. Hvalfjarðargöngin: Fór í hring Nokkuö hefur borið á aö fólk hafl misskilið óljósar merkingar við Hvalfjarðargöng. Þannig er bæði leiðin að göngunum og fyrir fjörð- inn merktar „Reykjavík". Eini mun- urinn er sá að lítil mynd af jarð- göngum er á skiltinu sem vísar að göngunum. Dæmi eru um að ókunn- 9 ugir hafi ekki gert sér grein fyrir þessu og ekið fyrir fjörðinn í stað þess að aka göngin. Þannig hefur DV staðfest að kona af Norðurlandi lagði leið sína suður um heiðar og göng í heimsókn til frænku sinnar. Hún hugðist stytta sér leið með því að nota göngin og spara þannig klukkutimaakstur. Þessi áætlun gekk þó ekki upp því sökun ókunnugleika yfirsást henni gangamunninn að norðanverðu. Hana var farið að lengja verulega eftir göngunum þegar hún loksins i». sá þau til mikils léttis. Hún stakk sér ofan í göngin og i gegn en kann- aðist við sig er í gegn kom. Hún hafði ekið fyrir allan fjörðinn að Kjalarnesi og svo norður, undir fjörðinn. -sf Álfatrú íslendinga: Vekur áhuga ferðamanna - segir ferðamálastjóri „Það er alveg ljóst að þau kort sem gerð hafa verið um áifabyggðir renna út eins og heitar lummur og fólk virðist hafa áhuga á þessu, bæði útlendingar og íslendingar," sagði Magnús Oddsson ferðamála- stjóri í morgun. DV spurði ferðamálastjóra að því hvort sú staðreynd að meirihluti þjóðarinncir trúir á álfa örvi sókn erlendra ferðamanna til landsins. Hann sagði að það hefði aldrei ver- ið kannað og því væri ómögulegt að segja hvort einhveijir erlendir ferðamenn landsins kæmu beinlínis til landsins til að kynnast þjóð sem trúir á tilveru álfa. Ferðamálaráð hefði ekki hingað til lagt neina áherslu á beita álfatrúnni í land- kynningarskyni að öðru leyti en því að fyrrnefnd álfabyggðakort liggja frammi á upplýsingastöðvum Ferða- -— málaráðs. Nánar á bls. 2. -SÁ Alþýðubandalagið í Reykjavík stóð fyrir fjölmennum fundi í gærkvöld þar sem rúmlega eitt hundrað manns hlýddi á framsögu Steingrímus J. Sigfússonar og Jóhanns Geirdal. Umræðuefnið var hvort vinstra vor yrði á íslandi árið 1999. Fundurinn breytti engu um þann ágreining sem er meðal alþýðubandalagsmanna. Svavar Gestsson heilsar hér Helga Hjörvar á fundinum og Steingrímur J. Sigfússon fylgist með. DV-mynd Teitur. Fækkaði um tugi íbúa í Bolungarvík fyrstu 6 mánuði ársins: Pólverjar hraktir burt - brá þegar ég sá tölurnar, segir Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri Mikil fólksfækkun varð í Bolung- arvík fyrstu sex mánuði þessa árs. 76 íbúar fluttu búferlum úr bænum en aðeins 34 fluttu til bæjarins. Fólksfækkunin var því 42 íbúar miðaö við búferlaflutningana. Hátt á annan tug Pólverja hröktust frá Bolungarvík eftir að þeim var sagt upp störfúm í frystihúsinus og er það stór skýring á fækkun íbúa að mati Ólafs Kristjánssonar, bæjar- stjóra í Bolungarvik. „Mér brá nú töluvert þegar ég sá þessar tölur. Ég hef verið að skoða málið og í ljós kemur að aðalskýr- ingin á þessari fækkun er sú að við erum að missa talsvert af erlendu vinnuafli. Við misstum þrjár stórar pólskar ijölskyldur sem unnu hér og voru skráðir Bolvíkingar. Á tíma- bili í vetur var dregið saman í frystihúsinu sem leiddi til uppsagn- ar Pólverjanna. Þeir fóru margir til starfa á Þingeyri," segir Ólafur bæj- arstjóri í samtali við DV. Ólafur segir að undanfarið hafi rofað mikiö til í Bolungarvík og ver- ið feikilega góð veiði þegar vel hafi gefið. „Það vantar fólk til starfa hér og það er yfirfullt að gera. Það eru til- búnar íbúðir og öll þjónusta er fyrir hendi. Við þurfum að fá fleiri í bæ- inn og ég er að vona að þetta lagist aftur þegar fer að líða á árið. Það má segja að nú nagi menn sig í handarbökin að hafa sagt upp fólki,“ segir Ólafur. Fram kemur í tölum frá Hagstof- unni að af þeim 76 sem flúðu frá Bolungarvík fluttu 14 á aðra staði á Vestfjörðum, 41 á milli landsvæða og 21 til útlanda. Af þeim 34 sem fluttu til Bolungarvíkur komu 5 annars staðar af Vestfjöröum, 18 frá öðrum landsvæðum og 11 frá út- löndum. -RR Styrkur Húsverndunarsjóös: Afþakka styrkinn „Ibúar hússins hafa vegna þeirrar gagnrýni, sem fram hefur komið, ákveðið að afþakka styrkinn,“ sagði Margrét Hallgrímsdóttir borg- arminjavörður í samtali við DV í morgun. Húsvemdunarsjóður úthlut- aði hússjóði Sigtúns 23, þar sem borg- arminjavörður býr, alls 300.000 krón- um í styrk. Vegna gagnrýni, sem komið hefur fram í fjölmiðlum í kjöl- far úthlutunarinnar, sá Margrét Hall- grímsdóttir borgarminjavörður ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu um málið í gær. Þar segir að styrkur- inn hafi verið ætlaður þremur eig- endum hússins af fjómm og hafi það aldrei staðið til að Margrét fengi styrkinn heldur greiddi hún sinn hlut að fullu. Aðspurð hvort ekki hefði verið betra að tilkynna slíkt skriflega áður í umsókn sagði Margrét að hún hefði tekið það fram við nefndar- mann í Húsvemdunarsjóði en eflaust hefði verið heppilegra að láta það koma fram skriflega. Helgi Hjörvar sagði við DV að þetta mál hefði verið afgreitt í tíð fyrri borgarstjómar. -hb Veðrið á morgun: Rigning fyrir vestan Á morgun verður norðvestan- kaldi eða stinningskaldi og rign- ing um vestanvert landið framan af degi en annars fremur hæg breytileg eða norðvestlæg átt og skúrir á víð og dreif. Hiti veröur á bilinu 5 til 15 stig yfír daginn. Veðrið i dag er á bls. 45. Margrét Hallgrímsdóttir. Pantið í timal _TH1______ 9 dagar í Þjóðfjátíð FLUGFÉLAG ÍSLANDS Pantanir i síma 760 3030 íi) 'DS 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.