Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 5 DV Fréttir Fékk hótun um lögsókn vegna bókakaupa fyrir sjö árum: Var búin að greiða - en kvittanir týndar- fólki ráðlagt að geyma kvittanir í sjö ár „Ég fæ sent bréf frá lögfræðingi upp á það að ég skuldi bækur síðan 1991sem ég var löngu búin að borga. Svo hringi ég í lögfræðinginn sem spyr hvort ég hafi einhverja kvittun um það að ég hafi greitt fyrir bæk- umar. Ég sagði að ég hefði flutt síð- an þá og vissi ekkert um það. Þá var mér bara sagt að ef ég hefði enga kvittun þá yrði ég að borga þetta.“ Jóhanna Daðadóttir á Akureyri fékk á dögunum sent innheimtubréf frá lögfræðingi vegna sjö ára gam- alla viðskipta við bókaforlagið Ið- unni. Konan hafði keypt þrjár bæk- ur af nágrannakonu sinni og greitt fyrir þær annars vegar með pening- um og hins vegar með skuldabréfi. Taldi hún vitanlega að hún væri laus allra mála að greiðslum lokn- um og notaði bækurnar m.a. í gjafir handa vinum og ættingjum. Nú, sjö árum síðar, fær hún hins vegar inn- heimtubréf frá lögfræðingi í Reykja- vík þar sem hún er krafin um tæp- lega 12.000 krónur. Konan hafði samband við lögfræðiskrifstofuna og stóð hörð á sínu, þ.e. að hún hafði greitt fyrir bækurnar. Lög- fræðiskrifstofan sagði aftur á móti að hún yrði að sanna það með kvitt- un, sjö árum eftir viðskiptin, að hún hefði greitt fyrir þær. I annað skipti „Ég var búin að þrasa við hana í nokkurn tíma þegar ég ákvað svo að ég skyldi leita, þótt mér fyndist það lyginni likast að maður fyndi eitt- hvað eftir allan þennan tíma. Ég leitaði og fann ekki neitt. Svo hringdi ég í innheimtustjóra Iðunn- ar sem sagðist ætla að athuga mál- ið. Hann hringdi svo í mig og sagð- ist treysta því sem ég hafði að segja. Ég var auðvitað samt ekkert ánægð með þetta allt saman og var ekkert tilbúin að treysta því. Ég vissi ekk- ert hvað gerðist næst.“ En þetta endaði með því að Jóhanna fann kvittunina eftir gríðarlega leit í hús- inu og gat því sannað að hún hefði greitt fyrir bækurnar. Fyrir nokkr- um árum fékk Jóhanna einnig inn- heimtubréf vegna bókaklúbbs sem hún skráði börnin sín í. „Þá kom maður og bankáði upp á hjá mér og sagði að ég skuldaði út af þessum bókaklúbbi. Ég bað hann um að koma aftur daginn eftir vegna þess að ég ætti kvittanir fyrir þessu öllu saman. Sá lét aldrei sjá sig aftur,“ sagði Jóhanna. „Geymiö kvittanir í sjö ár“ Margrét Ósk Guðmundsdóttir, innheimtustjóri hjá lögfræðistof- unni sem hafði mál Jóhönnu til meðferðar, sagði í samtali við DV að hún ráðlegði fólki yfirleitt að geyma kvittanir í a.m.k. sjö ár. „Það fer nú ekki mikið fyrir þessu ef fólk hefur þetta t.d. niðri í kjallara. Þetta eru kannski sjö möppur þá,“ sagði Mar- grét. Hún sagði einnig að það kæmi auðvitað fyrir að mistök sem þessi ættu sér stað og því væri ráðlegt að geyma ávallt kvittanir. -hb Jóhanna Daðadóttir á Akureyri með kvittanir fyrir bókakaupum sínum sl. ár. Lögfræðiskrifstofan, sem hafði mál Jóhönnu til meðferðar, ráðleggur fólki aö geyma kvittanir í möppum í sjö ár. Kópavogur meö langmesta aukningu aðfluttra íbúa: Heildarmyndin skiptir öllu máli - segir Siguröur Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi Utivistar- fatnaður ■ ** «« ’ rí v i „Það hefur verið mjög hröð upp- bygging í Kópavogi á undanförn- um árum. Þetta hefur verið stig- vaxandi. Nú er aukningin mun meiri en imdanfarin ár. Árið 1997 var fjölgunin 360 íbúar og 1996 var fjölgunin 130 íbúar. Að mínu mati er ekki nóg að hafa bara lóðir, gott byggingarsvæði og fallegt útsýni sem við höfum hér í Kópavogi. Það er heldur ekki nóg að vera miðsvæðis. Við erum búin að vera miðsvæðis í 40 ár. Það er heildar- myndin sem skiptir öllu máli. Það eru líka opnu svæðin, göngustíg- arnir, aðstaða fyrir aldraða, íþróttaaðstaðan og gott tónlistar- Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi. hús. Þetta kemur allt inn í heild- armyndina," segir Sigurðm Geir-' dal, bæjarstjóri í Kópavogi, ánægður með hina miklu fjölgim sem hefur orðið í Kópavogi fyrstu sex mánuði ársins. AJls hefur íbú- um í Kópavogi fjölgað um 528 mið- að við búferlaflutninga á þessu tímabili. „f Lindunum tel ég ekki hafa verið skipulagt betra hverfl í nokkurri byggð á íslandi. Kópa- vogur er mjög spennandi dæmi bæði fyrir unga jafnt sem aldraða. Það gerir Kópavog vinsælan. Fólk skoðar allar aðstæður eins og leik- skóla en þeir eru alls 12 hér í bæ og þrír alveg glænýir. Aðstaðan fyrir aldraða er frábær í Kópa- vogi. Svo sjá menn fram á að hvergi er um eins auðugan garð að gresja varðandi verslun og aðra þjónustu eins og hér. Menn sjá líka fram á að uppbygging í verslun og þjónustu mun skapa hér um tvö þúsund störf. Fyrir- tæki eru svo tugum skiptir að bíða eftir að komast inn á lóðir hér í bænum. Höfuðborgarsvæðið er eins og ein stór borg og Kópa- vogur er í miðjunni, I hjarta þessa svæðis. Það er því engin tilviljun að Kópavogur er ört stækkandi og það er að sjálfsögðu mjög gleði- legt,“ segir Sigurðim. -RR Allar vörur á verði / Evrópu Cortina Sport Skólauörðustíg 20 - Sími 552 1555 B I LASALAN BÍLDSHÖFÐA 3, SÍMI 567 0333. LÖGGILD BÍLASALA. LÁNSKJÖR Vló ALLRA HÆFI. I LAHOLLIIM BILDSHÖFÐA 5 SÍMI 567 4949 LÖGGILD BÍLASALA. LÁNSKJÖR VIA ALLRA HÆFI. ÚTVEGUM BÍLALÁN. Suzuki Sidekick '96, ek. 82 þús. km, svartur, 6 g., 5 d. Verð 1.650.000. Toyota Carina st. '94, ek. 52 þús. km, rauður, ssk., 5 d., álfelgur o.fl. Verð 1.490.000. Renault 19 RT '93, ek. 80 þús. km, vínrauður, ssk., 4 d., leðursæti, álfelgur, rafdr. rúður. Verð 890.000. Toyota Corolla touring '90, ek. 164 Volvo 460 GLE '94, ek. 70 þús. km, Toyota Hilux SR5 '92, ek. 175 þús. þús. km, blár, 5 g., 5 d., álfelgur, hvítur, 5 g., 4 d. Verð 1.100.000. km, grænn, 5 g., 4 d., lækkuð drif topplúga. Verð 450.000 stgr. o.fl. Verð 1.280.000. Ford Econoline 4x4 húsbfll '86, ek. 170 þús. km, blár, ssk., 4 d., vél ek. 30 þús. km. Topp bíll. Verð 1.600.000. MMC Lancer '91, ek. 110 þús. km, silfurl., ssk., 5 d„ rafdr. rúður, sam- læs. Verð 640.000. Land Rover, langur, bensín '81, ek. 120 þús. km, blár, 5 g„ 5 d. Verð 420.000. Opel Vectra 2,0 GU 95, ek. 69 þús. km, dökkgrænn, 5 g„ 5 d„ samlæs. rafdr. rúður, þjófavöm álfelgur, dráttar- kúla Verð 1.250.000. Subarn Legacy GL '96-07, ek. 21 þús. km, vínrauður, ssk„ 5 d„ rafdr. rúður, samlæs., álfelgur. Vérð 1890.000. Dodge Caravan '93-04, ek. 125 þús. km, ssk, 4 d„ rafdr. rúður, samlæs., hraðastillir.Verð 1.700.000. Nissan Primera 2,0 SLX 97, ek 18 þús. km, blár, ssk, 5 d„ álfelgur, sam- læs„ CD, þjófav. Verð 1.780.000. Toyota Corolla 90, ek. 115 þús. km, gullsans., beinsk, 3 d. Verð 500.000. Nissan Primera SL '94, ek. 133 þús. km, dökkblár, ssk., 5 d„ átfelgur, sam- læs. rafdr. niður. Verð 1.090.000. Mazda 323 F 96, ek 35 þús. km, dökkblás., 5 g„ 5 d„ rafdr. rúður, sam- læs„ álfelgur, spoiler. Verð 1.350.000. Daihatsu Charade SX 98, ek. 6 þús. km, rauður, 5 g„ 5 d„ rafdr. rúður, samlæs., vökvastýri. Verð 1.180.000. Chrysler Cirrus 96, ek 9 þús. km, grænsans., ssk, 4 d„ rafdr. rúður, hraðastillir, álfelgur. Verð 2.150.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.