Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1998, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Visir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Vísir.is í forystu
Netið er fjölmiðiU framtíðarinnar. Hlutverk þess í
miðlun upplýsinga vex hraðfluga. Hér á landi eru
komnir á Netið nokkrir fréttavefir sem gróin fjölmiðla-
fyrirtæki standa að. Samkvæmt nýlegri könnun hefur
Vísir.is leiðandi stöðu og raunar yfirburði yfir hina.
Könnunin, sem var gerð í júní, er fyrsta neyslu-
könnunin þar sem Félagsvísindastofnun mælir notkun
netmiðla. Niðurstöðurnar voru ótvíræðar. Vísir.is, sem
að meginhluta byggir fréttavef sinn á DV, hefur náð
ótvíræðri forystu meðal íslenskra netmiðla.
Reglulegir notendur hans eru snöggtum fleiri en þeir
sem lesa fréttavef Morgunblaðsins. Vísir.is hefur
jafnframt yfirburði yfir textavarpið og fréttavef Islandia.
Þessi niðurstaða rímar við undirtektimar sem miðillinn
hefur á skömmum ferli fundið meðal netnotenda.
Niðurstaða Félagsvísindastofnunar sýndi að þeir sem
skoða Vísi.is reglulega eru 26.250 talsins. Talsvert færri,
eða 23.100, heimsækja fréttavef Morgunblaðsins, 16.800
skoða textavarpið og um 10.000 heimsækja fréttavef
Islandia. Samanburðurinn talar sínu máli.
Könnun Félagsvísindastofnunar á notkun netmiðl-
anna nær að sjálfsögðu aðeins til svarenda innanlands.
Til viðbótar þeim eru um 5-7000 manns sem heimsækja
vefinn erlendis frá. í reynd er því notendahópur Vísis.is
talsvert stærri en kemur fram í könnuninni.
Það er athyglisvert hversu sterkum rótum Vísir.is
hefur skotið meðal stærstu og sterkustu neysluhópanna.
Hvorki fleiri né færri en 50% netnotenda á aldrinum
20-34 ára heimsækja vefinn. í þessu felast augljóslega
sterk sóknarfæri inn í framtíðina.
Skoðun á aldurshópnum 20-49 ára staðfestir styrk á
markaðnum. Vísir.is er reglulega heimsóttur af 36%
netnotenda í hópnum, 31% þeirra skoða fréttavef
Morgunblaðsins reglulega, 19% textavarpið og 13% lesa
fréttavef Islandia.
Aðstandendur Vísis.is hafa því sérstaka ástæðu til að
fagna þeim góðu viðtökum sem miðillinn hefur hlotið
meðal tölvulæsra íslendinga. Niðurstaðan er án tvímæla.
Hún staðfestir að miðillinn hefur markað sér farsælan
farveg sem fellur netnotendum vel í geð.
Samkeppnin á netmarkaðnum er eðlilega hörð.
Markaðsstaða í árdaga netmiðlanna skiptir miklu um
framtíðina. Morgunblaðið var því ekki yfir sig hrifið af
þeirri staðreynd að Vísir.is naut meiri hylli en
fréttavefur blaðsins meðal notenda Netsins.
Af því tilefni greindi Morgunblaðið frá því á sunnudag
að það hefði fengið Gallup til að gera fyrir sig aðra
könnun á notkun netmiðla. Niðurstöðuna túlkaði blaðið
í eftirfarandi fyrirsögn: „Fleiri skoða fréttavef Morgun-
blaðsins en Vísi.“
Ein af frumreglum í blaðamennsku er að fyrirsögn
standist fréttina sjálfa. Á þeirri skötu skriplar þó frétt
Morgunblaðsins. Fréttin sjálf segir að lestur á fréttahluta
Vísis sé 29,3% á móti 31,9% á fréttavef Morgunblaðsins.
Það er allt annað en fyrirsögnin segir.
Fréttavefurinn er nefnilega aðeins einn af 20 vefjum
Vísis.is. Þess vegna er það óskhyggja eða aðrar göfugar
hvatir sem leiða Morgunblaðið til að nota samanburð
fréttavefjanna til að staðhæfa að færri skoði Vísi.is en
fréttavef Morgunblaðsins. Það er einfaldlega ekki rétt.
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar hefur
Vísir.is forystu á netmarkaðnum. Það er ekki að ósekju.
Netverjar eru kröfuharður hópur. Þeir vilja fjölbreytni
og hraða. Það er lykillinn að velgengni Vísis.is.
Össur Skarphéðinsson
Hvort kemur á und-
an - eggið eða hænan?
Hvort varð Magnús L.
Sveinsson forseti borg-
arstjórnar hér á árum
áður og kjörinn borg-
arfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins árum saman
vegna þess að hann
var formaður Verslun-
armannafélags Reykja-
víkur eða var hann
kjörinn til trúnaðar-
starfa í verkalýðs-
hreyfingunni vegna
þess að hann var fram-
arlega í borgarmálun-
um? Eða voru engin
tengsl þarna á milli?
Var Magnús L. Sveins-
son, forystumaður
verslunarmanna, ein-
hver allt annar Magn-
ús þegar hann ræddi
borgarmálin? Nú þyk-
ist ég muna það rétt að
Magnús L. hefúr ára-
tugum saman verið
virkur í samtökum
verslunarfólks og
framgangur hans í
borgarmálunum innan
Sjálfstæðisflokksins
varð ekki síst vegna
þessarar sterku stöðu
hans þar á bæ. Þannig
að spurningunni um
eggið og hænuna er
auðsvarað. Mér datt
þetta I hug, þegar ég sá Kjallarahöfundur er ósammála Magnúsi L. Sveinssyni sem telur aö verkalýðshreyf-
umræddan Magnús á ingin eigi aö vera ópólitísk.
Eggið og hænan
um stjómmálaskoð-
anir að hann væri al-
gjörlega ópólitískur
og kysi því Sjálfstæð-
isflokkinn! Nei, auð-
vitað er það ekki
skýringin. Hún er
einfaldlega sú að það
hentaði Magnúsi L.
Sveinssyni og öðrum
sjálfstæðismönnum
að reyna að gera það
tortryggilegt að marg-
ir forystumenn í
verkalýðshreyfmg-
unni töldu það hags-
munum launafólks til
bóta að öflugur og
sterkur flokkur jafn-
aðarmanna yrði til
hér á landi, eins og
„Mér þótti þetta kröftuglega
mælt hjá þessum forystumanni I
verkalýöshreyfingunni sem í
gegnum árin hefur einnig veriö í
fremstu röð í Sjálfstæðisflokkn-
um og eftir því sem ég best veit
ekki haft samviskubit vegna
þeirra tengsla.“
Kjallarinn
Guðmundur Árni
Stefánsson
alþingismaöur
sjónvarpsskjánum
fyrir nokkrum vikum
þar sem hann hafði
allt á hornum sér
vegna þess að í um-
ræðum um samfylk-
ingu jafnaðar- og fé-
lagshyggjumanna var
verkalýðshreyfingin
einnig nefnd til sög-
unnar. Hann sagði
það afturför ef tengja
ætti verkalýðshreyf-
inguna við stjómmál
og stjórnmálaflokka.
Hún myndi þá ekki
lengur lúta faglegum
sjónarmiðum.
Ópólitískur Sjálf-
stæöisflokkur
Mér þótti þetta
kröftuglega mælt hjá
þessum forystumanni
í verkalýðshreyfing-
unni sem í gegnum
árin hefur einnig ver-
ið í fremstu röð í
Sjálfstæðisflokknum
og eftir því sem ég
best veit ekki haft
samviskubit vegna
þeirra tengsla. Það
skyldi þó aldrei vera
að gamli misskilning-
urinn um hinn
„ópólitíska" Sjálf-
stæðisflokk sé hér á ferðinni enn
einn ganginn. Að Magnús L. hafi
lífssýn ónefnds kjósanda sem svar-
aði því til þegar hann var spurður
þekkist annars staðar á Norður-
löndum og víðast hvar í Evrópu.
Þar eru flokkar jafnaðarmanna
beint og óbeint tengdir réttinda-
baráttu samtaka launafólks og
þykir hinn eðlilegasti hlutur.
Pólitísk kjarabarátta
Það er satt að segja broslegt
þegar því er haldið fram að verka-
lýðshreyfmgin eigi að vera ópóli-
tísk. Hvernig í veröldinni á kjara-
barátta launafólks að vera ópóli-
tísk? Það er hins vegar allt annað
ef menn eru að ræða skipulagsleg
tengsl verkalýðshreyfingar og
stjómmálaflokka, fjárhagslega og
formlega. Þau tengsl em ekki til
staðar lengur og hafa ekki verið
áratugum saman hér á landi, enda
þótt enn þá séu slíkar tengingar
fyrir hendi - minnkandi þó - í
nokkrum nágrannalöndum okkar.
Hvergi hef ég hins vegar séð slík-
ar tillögur á blaði hérlendis á síð-
ari árum. En verkalýðshreyf-
ingin og verkalýðsbarátta er
auðvitað í eðli sínu stórpólitísk.
Á hreyfmg launamanna t.d. að
sitja með hendur í skauti þegar
ríkjandi valdhafar brjóta niður
hið félagslega íbúðarhúsakerfi
eða rústa vinnulöggjöfina? Nei,
auðvitað ekki. Samfylkingin
jafnaðarmanna verður. Von-
andi getur hún orðið gagnlegt
tæki fyrir launafólk í þessu
landi í baráttu fyrir bættum
kjömm. Ef svo verður þá á hún
góða samleið með verkalýðs-
hreyfingunni. Svo einfalt er
það. Magnús L. Sveinsson og aðr-
ir á hans línu verða að lifa með
því.
Guðmundur Árni Stefánsson
Skoðanir annarra
Stöðvum lausafjárgöngu
„Þetta er mikið alvömmál. Stjórnvöld verða að sjá
svo um að hér verði breyting á. Það er hörmulegra
en orð fá lýst að kona í blóma lífsins skuli deyja af
þessum sökum. Ástandið í þessum efnum er gersam-
lega óviðunandi. Bændur sjálflr eiga að hafa frum-
kvæði að því að nauðsynlegar ráðstafanir verði gerð-
ar til þess að koma í veg fyrir að sauðfé, sem geng-
ur laust, verði að dauðagildrum. Þjóðvegir em fyrir
fólk en ekki sauðfé."
Úr forystugrein Mbl. 21. júlí.
Pólitískir einyrkjar
„Ástæðan fyrir því að Sverrir fær ekki Alberts- og
Jóhönnuútkomu úr fyrstu skoðanakönnun er ein-
föld: hann hefur sjálfur enga samúð, þótt þeir sem
hann talar gegn hafi nokkra andúð. Sverrir verður
álíka vinsæll í haust og ofspilaður sumarsmellur hjá
bílskúrsbandi ef hann fær ekki fljótt dágóðan hóp
málsmetandi manna úr Flokknum til að leggja sér
lið - til að stofna nýjan. Sami sandur rennur úr
stundaglasi Steingríms J. Þeir gætu þvi orðið tveir
einyrkjarnir í íslenskri pólitík hvor á sínu lands-
horninu í vor. Einn maður. Eitt mál. Eitt kjördæmi.
Erindi?"
Stefán Jón Hafstein í forystugrein Dags 21. júlí.
Sverris-skatturinn
„Þessi nýi skattur Sverris eyðileggur með öllu
samkeppnishæfni sjávarútvegsins og bitnar fyrst og
fremst á þeim sem við sjávarútveg vinna; á sjómönn-
um og fiskverkafólki, á þeim sem þjóna sjávarút-
vegsfyrirtækjunum og á sveitarfélögunum þar sem
sjávarútvegurinn er stundaður. Með öðrum orðum;
Sverris-skatturinn bitpar verst á Vestfjörðum. Það
er bágt til þess að vita að Sverrir Hermannsson skuli
leita í smiðju til Þjóðvaka um ráð i fiskveiðistjórnun
sem gagnast mætti Vestfirðingum."
Einar Oddur Kristjánsson í Mbl. 21. júlí.