Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Page 13
Ung, atvinnulaus og einstæð móðir á íslandi sem keppist við að halda sér frá ruglinu
á ekki margt sameiginlegt með snoppufríðri og ofdekraðri amerískri klappstýru
í menntaskóla. Nanna Kristín Magnúsdóttir er líklega það eina sem tengir þær saman.
Þá ungu og einstæðu leikur hún í kvikmyndinni Sporlaust sem frumsýnd verður síðar í
þessum mánuði og í söngleiknum Grease fer hún með hlutverk þeirrar ofdekruðu.
Lífsgæðakapphlaupið
Hér er tvímælalaust á
ferðinni ein efnilegasta
leikkonan á íslandi núna og
á hún þó enn eftir eitt ár i
Leiklistarskóla islands.
Nanna Kristín Magnús-
dóttir er þar í bekk sem
virðist hafa fengið leiklist-
argyðjuna í lið með sér þar
sem nokkrir þeirra hafa
þegar slegið í gegn. Má þar
nefna Rúnar Frey Gísla-
son sem fer með aðalhlut-
verkið í Grease, Jóhönnu
Vigdísi Amardóttur sem
leikur Rizzo í sama söng-
leik og Stefán Karl Stef-
ánsson sem leikur í Þjóni í
súpunni og er að sögn
margra einn alfyndnasti
maður sinnar kynslóðar.
„Þetta er flottur bekkur,
það er alveg rétt. Nokkur
okkar hafa verið svo hepp-
in að fá tækifæri til að
sanna sig og það hefur
gengið vel. Eins eru allir í
bekknum orðnir svo góðir
vinir og við erum líka ofsa-
lega skemmtileg," segir
Nanna Kristín brosandi og
bætir við að aldrei hafi
annað komið til greina en
að fara og læra leiklist.
Hún tók stúdentspróf úr
Menntaskólanum í Reykja-
vik og lék þar í Herranótt í
þrjú ár. Þá lá leiðin beint í
Leiklistarskólann sem tók
við henni í fyrstu tiiraun.
Stríðsdans við sjóinn
Eins og þekkt er þykir erfitt að
komast inn í Leiklistarskóla íslands
og skal því engan undra að Nanna
Kristín hafi stigið gleiðidans þegar
henni var ljóst að hún hefði komist
inn.
„Ég var orðin ofsalega spennt eft-
ir að hafa náð svo langt í inntöku-
prófunum. Svo fékk ég bréf sent
heim frá skólanum, gekk niður að
sjó og opnaði það þar. Ég varð svo
rosalega kát að ég réði ekkert við
mig og sté þarna stríðsdans eins og
brjálæðingur. Fósturfaðir minn
vinnur með konu sem býr rétt hjá
þessum stað og sú sagði honum dag-
inn eftir að hún hefði séð einkenni-
lega sjón við sjóinn. Ung kona hafi
dansað þar eins og vitlaus væri og
honum fannst þetta ferlega fyndið."
Ástarguðinn Amor
Nanna Kristín býr með unnusta
sínum, Ólafi Darra Ólafssyni, sem
einnig er á kafi í leiklist.
„Hann var búinn að vera besti
vinur minn í sex ár þegar eitthvað
small allt i einu saman,“ segir
Nanna Kristín og kann engar skýr-
ingar á þessari skyndilegu breyt-
ingu á sambandi þeirra.
Nú er liðið eitt ár síðan Amor
ákvað að hefla skothríð á þessa
vini. Nanna Kristín segir að það sé
mikill kostur að hafa verið svo góð
vinkona hans áður en þau urðu ást-
fangin.
„Við þekktum hvort annað auð-
vitað út og inn strax í upphafi sam-
bandsins og ég held að það hafi líka
auðveldað okkur að vera fullkom-
lega hreinskilin. Hann er enn besti
vinur minn.“
Áhættusöm tækifæri
Kvikmyndin Sporlaust er
spennumynd sem fjallar um ungt
fólk á íslandi sem lendir 1
furðulegum aðstæðum.
Nanna Kristín er að sjálf-
sögðu farin að hlakka til að
sjá hana á hvíta tjaldinu en
er um leið svekkt yfir að
komast ekki á frumsýning-
una þar sem hún leikur í
Grease sama kvöld. Það er
nóg um að vera hjá Nönnu.
„Reyndar var myndin
tekin upp í fyrra en Grease
er vinnan mín í sumar. Þaö
er frábært að hafa fengið
þessi tækifæri til að sanna
sig í leiklistinni og ég hef
öðlast mikla og dýrmæta
reynslu. Það er samt líka
viss áhætta að taka að sér
hlutverk eins og þessi áður
en maður útskrifast úr
Leiklistarskólanum. Ef
verkin mistakast er það
ekki góð kynning fyrir leik-
ara svo snemma á ferlin-
um,“ segir hún.
Trúin og reiðin
Nanna Kristín er rík af
hálfsystkinum. Eitt missti
hún þó fyrir nokkrum árum
þegar þriggja ára systir
hennar dó úr sjaldgæfum
efnaskiptasjúkdómi.
„Þá var ég í Bandaríkjun-
um sem skiptinemi og rétt
ókomin heim. Um leið og ég
var fegin að kvalir hennar
væru loks á enda varð ég
líka reið Guði. Af hverju er
að hann að senda okkur lít-
il börn ef hann ætlar að taka þau
svo strax frá okkur aftur?“ segir
Nanna Kristín og játar jafnframt að
trúin sé eitthvað sem fái hana til að
láta hugann reika.
„Ég var mjög trúuð þegar ég var
lítil og enn í dag bið ég bænirnar
mínar. Mér líður vel eftir að hafa
beðist fyrir og það er einmitt málið.
Ég vil að mér líði vel og það skiptir
mig mestu að geta verið hamingju-
söm og ástfangin. Þá er ég rík, lífs-
gæðakapphlaupið getur átt sig.
Enda verð ég líklega seint auðug á
leikaralaunum."
-ilk
Kammertónleikar veröa á Klrkjubæjarklaustrl
um helgina. 1 kvöld kl. 21 verður fluttur dúó
fyrir fiölu og víólu eftir Mozart, 5 Ijóö úr Möri-
ke - Ijóöum eftir Hugo Wolf, sónata fýrir fiðlu
og píanó eftir Janacek og Ameríski strengja-
kvartettinn eftir Dovrak. Á laugardagskvöldið
kl. 21 veröur m.a. flutt píanótrió í B-dúr eftir
Schubert, slavenskir dansar fyrir fiölu og pí-
anó eftir Dvorak og 6 Ijóðasöngvar eftir Rak-
hmanínov. Á tónleikum sunnudagsins, sem
hefjast kl. 17, verða m.a. 4 Ijóðasöngvar eftir
Pál ísólfsson og 4 Ijóðasöngvar eftir Karl Ó.
Runólfsson, þá verður sónata fyrir selló og pí-
anó eftir Debussy og þeim lýkur með planó
kvintett eftir César Franck.
Sjöundu tónleikar í tónleikaröðinni Sumar-
kvöld vlð orgellð verða í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 23. ágúst kl. 20.30. /
í Hallgrímskirkju
er leikið á orgel-
ið í hádeginu á
fimmtudögum
og laugardögum
í ágúst. Laugar-
daginn 22.
ágúst kl. 12 leik-
ur Douglas A.
Brotchle, annar
organisti Hall-
grímskirkju, I
hálftíma.
Tónleikar Krlstjönu Helgadóttur og Darlos
Macaluso hefjast kl. 20.30 á morgun í Deigl-
unni og leika þau m.a. verk eftir Þorkel Slgur-
björnsson, svítu eftir J.S. Bach, gítartónlist
eftir 19. aldar skáldið Mauro Glullanl og Astor
Plazzolla.
í kvöld kl. 20.30 verða tónleikar Huldar BJark-
ar Garðarsdóttur sópran og Sigríðar Aðal-
stelnsdóttur messósópran I Deiglunni. Undir-
leikari er Krlstlnn Örn Krlstlnsson.
Kvennaband Harmonlkufélags Reykjavikur
þenur nikkurnar kl. 23 annað kvöld í Kaffllelk-
húslnu og verður aðgangur ókeypis.
8*
ZH6 X JT 3l 3l
www.visir.is
Myrkrahöfðinginn
tekinn upp í ár
ÍFókus fyrir viku var fjallað
um skatta og tekjur listamanna.
Meðal annars var sagt að Hrafn
Gunnlaugsson hefði tekið
kvikmyndina Myrkrahöfðingjann
upp á síðasta ári og hlotið til þess
hæsta styrk úr Kvikmyndasjóði.
Hið rétta er að í fyrra var veitt
vilyrði fyrri styrknum en þar sem
Myrkrahöfðinginn var ekki
tekinn upp fyrr en á þessu ári var
ekkert fé greitt til myndarinnar
fyrr en árið 1998. Það er því ekki
rétt að tengja upptöku þessarar
myndar tekjum Hrafns á síðasta
ári eins og gert var í Fókus.
Láttu sjá þig!!!
Sendum í póstkröfu
Opið
21.08/98 föstudag kl. 11-18
22.08/98 laugardag kl. 11-18
sunnudag kl. 11-18
Sölusýning í Loftkastalanum
verður haldin um næstu helgi
á uppblásnum plasthúsgögnum.
Það heitasta frá New York
Fantasía • heildverslun
Brautarholti 8,105 Reykjavík,
sími 5611344, 897 1333
Takmarkaðar birgðir,
21. ágúst 1998 f Ó k U S
13