Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Page 2
2 MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 Fréttir Júgóslavnesk Qölskylda bjargaöist naumlega úr brennandi húsi á Isafirði: Slapp út á nærklæðunum - lenti einnig í húsbruna í heimalandi sínu fyrir nokkrum árum „Konan mín vaknaði við reyk- skynjara einhvem tímann um fjögur- leytið, að ég held. Hún kallaði í mig og við opnuðum svefnherbergisdymar og sáum þá að allt var orðið fúllt af reyk. Ég fór til að bjarga dætmm mínum tveim út úr húsinu. Þegar ég fór með aðra þeirra niður stigann sá ég ekki neitt fyrir reyk og datt og meiddi mig á baki. Þegar við vomm komin út sagði ég konu minni að fara með stelp- umar strax inn í bíl og til lögreglunn- ar,“ segir Jovan Popovic sem slapp ásamt fjölskyldu sinni út á nærklæð- um þegar eldur kviknaði í íbúð neðan við íbúð þeirra við Aðalstræti á ísa- firði i fyrrinótt. Fjölskyldan er flóttafólk frá Júgóslavíu sem kom til ísafjarðar 1996. Það er fjölskyldufaðirinn Jovan, 39 ára, eiginkonan Zeljka, 29 ára, og dæturnar Milanka, 7 ára, og Jovana, 4 ára. Þau keyptu íbúðina sína fyrir um einu ári og vom búin að leggja mikla vinnu í að gera hana upp. Klukkan var 4.09 aðfaranótt sunnudagsins er lögreglunni á Isafirði barst tUkynning um eld í íbúðarhúsi að Aðalstræti 32 sem er tvílyft þriggja íbúða timburhús við hlið gamla bamaskólans. Slökkvi- lið kom á vettvang fáum minútum síð- ar en þá logaði glatt í íbúð á jarðhæð. Var eldurinn þá um það bil að brjóta Varaformannsslagur: Finnur volgur Talið er að margir muni blanda sér í slaginn um varaformann Fram- sóknarflokksins þegar Guðmundur Bjamason lætur af embættinu og tek- ur við stööu fram- kvæmdastjóra íbúöalánasjóðs. Margt er þó enn óljóst í þessum Finnur efnum og ráðast Ingólfsson. margir hlutir væntanlega þegar ljóst verður hvemig og hvort ráðuneyt- um sem Guðmundur gegnir í dag verður skipt á milli annarra ráð- herra. Talið er að Valgerður Sverris- dóttir, formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins, hafi mikinn áhuga á stöðunni en hún er af mörgum tal- in eiga góða möguleika á því aö hreppa hnossiö. Siv Friðleifsdóttir var ekki tilbúin að staðfesta í samtali við DV að hún ætlaði i slag- inn. Skv. heimildum DV lítur Siv embættið hýrum augum og ætlar að reyna að fylkja framsóknarkonum um sig og krefjast embættisins í nafni jafnréttis. Finnur Ingólfsson er einnig talinn hafa mikinn áhuga á embættinu skv. áreiðanlegum heim- ildum DV. Hann er hins vegar í erf- iðri stöðu sem stendur vegna banka- mála og ekki er eining innan Fram- sóknarflokksins um hvemig staöið hefur verið að stóriðjuframkvæmd- um. Finnur vildi ekkert tjá sig um málið við DV í gær. „Ég hef ekkert um það að segja á þessari stundu,“ sagði Finnur, aðspurður um hvort hann ætlaði í slaginn um varafor- mannsstólinn. Margt sem tengt er þessu málum mun skýrast á næstu dögum og vikum þegar ljóst verður hvemig ráðuneytum Guðmundar Bjarnasonar verður skipt. -hb Júgóslavnesk fjölskylda á ísafiröi slapp naumlega úr brennandi húsi sínu í fyrrinótt. Þetta er annaö sinn sem fjölskyldan lendir I slíkum hremmingum en áöur höföu þau flúiö brennandi heimlli sitt í gamla landinu. Eins og sjá má er húsiö illa fariö. sér leið út um útidyrahurð og glugga en slökkviliði tókst fljótlega að ná tök- um á eldinum. Ekki er vitað nákvæm- lega um eldsupptök en gmnur beinist helst að raflögnum í vegg á bak viö ís- skáp í eldhúsi íbúðarinnar. Ljóst er að mikill hiti hefur verið í íbúðinni og talsverður eldur. Allir gluggar í íbúöinni voru þó lokaðir þeg- ar eldurinn kom upp og sömuleiðis á íbúðinni fyrir ofan þar sem hjón með DV-myndir Höröur tvö böm bjuggu og mun þaö hafa bjargað því að ekki fór enn verr. Jov- an segir að fjölskyldan hafi verið á nærklæöunum þegar komið var út úr hinu brennandi húsi. Hann hljóp að húsi nágranna og barði að dyrum þar. „Ég stóð þama á nærbuxunum og bankaði en enginn svaraði. Þá fór ég i næstu íbúð og sá að þar var ljós. Ég sagði íbúanum þar að það væri eldur í húsinu en hann trúði mér ekki. Hann sagði bara nei, nei, þetta er allt í lagi. Hann fékkst ekki til að fara úr íbúð- inni sinni fyrr en lögreglan kom og leiddi hann út. Nágranni okkar tók okkur svo inn til sín og lét okkur hafa fót til að fara í.“ - Mér er sagt að þetta sé í annað skiptiö sem þið bjargist úr húsbnma: „Já, þetta er skrýtið. Fyrir fjórum árum, fimmta ágúst 1995, um klukkan hálffimm að nóttu, gerðu hermenn árás á húsið okkar í Króatíu og það kviknaði í því. Þá tók ég aðra litlu stelpuna mína, þriggja mánaöa, og konan tók hina, sem var þriggja ára, og við lögðum á flótta. Nú lendum við aftur í húsbruna hér á ísafirði. Hvaö er hægt aö leggja mikiö á okkur? Við vorum að byrja að lifa eðlOegu lífi hér á ísafirði en þá gerist þetta. Hvað er mOdð hægt að leggja á okkur? Það er ekki vandamál fyrir okkur hjónin en fyrir krakkana er þetta erfitt. Það tekur sig upp aftur óróleiki og stress hjá stelpunum. Ég lenti i fangelsi í Króatíu I þrjá mánuði. Þar var ég barinn í gólfið, það var sparkaö í mig og trampað á brjóstkassanum á mér með hörðum skóhælum. Þá brotn- uðu m.a. rifbein og ég fór á sjúkrahús í Reykjavík vegna þess eftir að ég kom tO íslands. Maður hugsar: hvað getur komiö meira fyrir okkur í framtíð- inni? Við erum aOtaf að lenda í ein- hveiju. Við höfum eytt mikOli vinnu í að laga íbúðina, reyndar aOt of mikOli. Það var þó aOt vel tryggt hjá okkur, við vorum með fasteignatryggingu, íjölskyldutryggingu og húsið og aOt saman var tryggt. Reykurinn eyðOagði þó öO fót og annað og lyktina verður erfitt að losna við. Svo sýnist mér að gólfið hafi gefið sig að hluta vegna brunans á neðri hæðOmi. Þetta var orðið áhyggjulaust líf en nú veit maður ekkert hvað verður," sagði Jovan Popovic sem enn á ný stendur frammi fyrir nagandi ótta um framtíðina, með fjölskyldu sem hrakt- ist úr stríðsátökum og skelfingu í Júgóslavíu tO að hefja nýtt áhyggju- laust líf í framandi landi. - H.Kr Fagna yfirlýsingu Davíðs um erfðarannsóknir: Framtíð okkar tryggð - segir Tryggvi Pétursson, forsvarsmaður nýja fyrirtækisins „Davíð Oddsson sagöi í ræðu sinni að þau fyrirtæki sem tekin væru tO starfa þegar frumvarp um gagnagrunna yröi samþykkt af þing- inu gætu haldið áfram sinni starf- semi. Ég get því ekki annað en verið ánægður með yfirlýsingar hans að þessu leyti vegna þess aö þær tryggja algerlega framtíð Uröar, Verðandi, Skuldar." Þetta sagði Tryggvi Pétursson, einn forsvarsmanna fyrirtækisins, þegar DV leitaði álits hans á ræðu Davíðs Oddssonar á þingi SUS um erfðarannsóknir sem haldið var um helgina. Þar ítrekaði Davíð stuðning sinn við að samþykkt yrði að einu fyrirtæki yrði veittur tímabundinn einkaréttur á að setja á stofn og starfrækja slíka grunna. „Við munum ekki þurfa á hinum umdeOda gagnagrunni að halda heldur getum við notað önnur gagna- söfn. Það kom skýrt fram í ræðu for- sætisráðherra að þeir grunnar sem fýrir eru í landinu verða ekki teknir undir miðlægan gagnagrunn. Þetta tryggir algerlega starfsemi okkar og þess vegna fleiri fyrirtækja sem kunna að verða tO og byggja á eldri grunnum," sagði Tryggvi. Hann sagöi jafnframt að ekki heföi heldur verið hægt að skOja ræðu Kára Stefánssonar ööruvísi en svo að starfsemi fyrirtækjanna tveggja skaraöist ekki að þessu leyti. -ÖS Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna þar sem Davíð Oddsson hélt ræðu um einkaleyfi á gagnagrunn. Stuttar fréttir dv Krókabátar, sem eru á sókn- ardagakerfi, mega aðeins veiða i 9 daga á næsta fiskveiði- ári vegna þess hve mikið þeir hafa veitt um- fram það sem þeim var ætlað að veiða á þessu ári. Dögunum fækkar því úr 40 í 9. Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir ekki koma til greina að sætta sig við þetta. Falsanir endurgreiddar Nokkrir málverkakaupendur hafa skOað málverkum tO lista- verkasala og fengið þau endur- greidd eftir að I ljós kom að þau voru folsuð. Þetta geröist í Dan- mörku en um var aö ræða 16 mynd- fr. Kaupendur falsaðra mynda eru hins vegar yfirleitt tregir tO að við- urkenna að þeir hafi keypt falsaðar myndir. Ekki aö auglýsa? Forsvarsmaður Karls S. Karls- sonar telur sig vera að koma upp- lýsingum á framfæri tO neytenda en ekki að vera að auglýsa áfengi í helgarblöðunum. I auglýsingunum eru myndfr af áfengisflöskum og sést heiti þeirra. Gerður er saman- burður á styrkleika þriggja áfengis- gerða: ginblöndu, bjórs og rauð- víns. Samkvæmt íslenskum lögum er ólöglegt að birta opinberlega myndir af áfengisflöskum, hvort sem það er í auglýsingaskyni eða ekki. Hingað tO hafa yfirvöld ekki treyst sér til að kæra áfengisauglýs- ingar, sem eru misjafnlega dulbún- ar, vegna þess að ólíklegt er að slíkt mál vinnist. Neitað um áritun Varaforseta Taívans, sem forsætisráð- herra tók á móti á ÞingvöOum í fyrra,;hefur ver- ið neitað um vegabréfsáritun tO Svíþjóðar. Því hefúr verið haldið fram að heimsókn hans og fleiri Taívana tíl Svíþjóðar væri í blóra við þá stefhu Svía að Taívan væri hluti Kína- veldis. Eins og margir eflaust muna mótmælti sendiherra Kína á ís- landi þegar varaforseti Taívans kom hingað tO lands. Krafa um umhverfismat Stjórnarformaður Landsvirkjun- ar segir að bráðlega verði tekin ákvöröun um hvort farið verði í umhverfismat vegna Fljótsdals- virkjunar. Krafa um umhverfismat er hávær á-Austurlandi en stjóm Landsvirkjunar fundaði með Aust- ffrðingum á laugardag. 14 á Holtavörðuheiði Lögreglan í Borgarnesi kærði 14 ökumenn fyrir hraðakstur á aðeins tveimur klukkustundum í gær- kvöld. BOamir mældust á 115-130 km hraða. Lögreglan ók norður heiðina þegar hún mældi hraðann og stöðvaði fór ökumannanna sem vom á suðurleið. „Þetta er greinOega að aukast, miklu mefra en veriö hefur aö und- anfómu," sagði talsmaður lögreglu í gærkvöld. Samtals um 30 öku- menn vom teknir f>Tir hraðakstur í umdæmi Borgarneslögreglunnar um helgina. Til umboðsmanns Alþingis Hjördís Há- konardóttir seg- ir það miklum vandkvæðum bundið fyrfr sig sem dómara að fara í mál við dómsmálaráð- herra vegna ráðningar í stöðu ríkislögreglu- sfjóra. Hún Oiugar að vísa málmu tO umboðsmanns Alþingis. Hjördis telur að reynsla sín sem dómara hafi verið vanmetin en Haraldur Jóhannesson var skipaður ríkislög- reglustjóri í febrúar. ÓumdeOt var að Hjördís hefði meiri menntun en Haraldur. -SJAÓtt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.