Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 Fréttir Framtíð gagnagrunns er ekki tryggð þótt frumvarpið fari í gegn: Læknar geta hafnað samvinnu - andstaða lækna og sjúklinga gæti stöðvað gerð grunnsins Þó gagnagrunnsfrumvarpið nái fram að ganga er óvíst að þar með þar með sé hagur einkaleyfishafa tryggður. Læknar og sjúklingar geta hafnað að samvinnu og þar með væri gerð gagnagrunnsins stöðvuð. Myndin er tekin á rannsóknastofu íslenskrar erfðagreiningar. Eitt þeirra fjölmörgu álitaeftia sem vaknað hafa í tengslum við hið svo- nefnda gagnagrunnsfrumvarp er hvort einhver geti talist eigandi þeirra heilsufarsupplýsinga sem til stendur að færa í gagnagrunninn. Ýmsir hafa lýst þeirri skoðun að verðmæti þeirra upplýsinga sem færa á í gagnagrunn- inn sé hugsanlega tugmilljarða virði en það verðmæti er líklega fremur bundið við á hvaða formi þær eru. Til dæmis eru sjúkraskrár heilbrigðis- stofnana lítils virði einar sér á því formi sem þær eru núna. Færsla upp- lýsinganna í gagnagrunn sem opnar nýja og óþekkta möguleika á því að vinna úr þeim getur hins vegar búið til umtalsverð verðmæti. Ef niðurstað- an er sú að heilsufarsupplýsingar séu háðar eignarrétti þá gæti það gert rík- inu mjög erfitt fyrir að setja reglur um þær sem með einhveijum hætti tak- marka forræði eigenda þeirra. Hverjir eiga sjúkraskrár? Samkvæmt eldri lögum áttu læknar og heilbrigðisstofnanir allar þær sjúkraskrár sem færðar voru. Þessu hefur hins vegar verið breytt með setn- ingu laga um réttindi sjúklinga. Ástæð- an fyrir því að sú breyting verður varla talin ganga gegn eignarréttarvemdinni var sú að skerðingin náði til allra sjúkraskráa og bitnaði jafnt á öllum læknum. Ríkisvaldinu hefur yfirleitt verið kleift að setja almennar takmark- anir eignarréttar á borð við þessa, sem dæmi um slíkt má nefha ýmsar friðun- araðgerðir stjómvalda eins þegar veiði- réttur bænda í löndum sínum er tak- markaður með banni við veiði dýra. Með lögunum um réttindi sjúklinga er lögð rík skylda á sjúkrahús og lækna að varðveita sjúkraskrár. Strangar reglur gilda um meðferö sjúkraskrár og upplýsinga sem í þeim era og að sögn Jóhannesar Pálmason- ar, forstjóra Sjúkrahúss Reykjavíkur, er þessum reglum fylgt fast eftir. Eng- in sjúkragögn fara til dæmis út af stofnuninni nema aflað sé sérstaks samþykkis yfirstjómar þess. Þrátt fyrir að heilbrigðisstofnanir og læknar eigi ekki lengur sjúkra- skrár er þó tæpast hægt að segja að sjúklingur geti í raun talist eigandi sjúkraskrár í venjulegri merkingu þar sem hann getur hvorki krafist þess að honum verði afhent sjúkra- skráin né að hún verði eyðilögð, eins og menn geta almennt með eigur sínar. Það er hins vegar skýlaus réttur einstaklings að fá aðgang að sjúkraskrá sinni hverju sinni og að hindra að óviðkom- andi aðilar fái aðgang aö henni. Þá get- ur einstaklingur fengið upplýsingar í sjúkraskrá leiðréttar ef þær reynast rangar. Eigi að síður virðist meginnið- urstaðan um eignarrétt að sjúkraskrám vera sú að þær eigi enginn. Tengsl Mývatns og sjúkraskráa Víða á Vesturlöndum er það megin- regla að það sem enginn á falli til ríkis- ins. Sú regla hefur þó ekki verið talin gilda á íslandi. í frægum málaferlum sem Mývetningar áttu í við íslenska ríkið þar sem deilt var um hver ætti botninn í Mývatni komst Hæstiréttur að þeirri merkilegu niðurstöðu að hvoragur ætti þau verðmæti sem um væri deilt. Aftur á móti gæti ríkið í krafti löggjafarvalds síns sett reglur um meðferð og nýt- ingu þeirra verð- mæta sem um var deilt í málinu. Sama ár féll dómur í máli þar sem bændur deildu við ríkið um eignarrétt að Landmannaafrétti og varð niðurstaða Hæstaréttar á sömu leið. Þar sem ólíklegt er að fallist verði á að einhver eigi eignarrétt að sjúkra- skrám, hvort sem það era læknar eða sjúklingar, þá getur ríkið sett ýmsar reglur um meðferð og nýtingu sjúkra- skráa. Hafa verður þó í huga að valdið til að setja þessar reglur takmarkast af því að sjúkraskrár innihalda við- kvæmar persónuupplýsingar og ákvæði stjómarskrár um friðhelgi einkalífsins setja ríkinu vissar skorð- ur hvað þetta varðar. Neitunarvaldið Þó að eignarréttur að sjúkraskrám standi almennt ekki í vegi fyrir því að ríkið geti sett lög um meðferð og nýt- ingu sjúkraskráa þá fela ákvæði gagna- grunnsframvarpsins bæði heilbrigðis- stofnunum og læknum, sem og sjúk- lingum, ákveðið valfrelsi um hvort upplýsingar úr sjúkraskrám fara inn í gagnagrunninn. Til dæmis er ekki gert ráð fyrir því að heilsufarsupplýsingar fari inn í gagnagrunninn öðravísi en að fengnu samþykki þeirra lækna og heilbrigðisstofnana sem í hlut eiga. Heilbrigðisráðherra hefúr bent á af- stöðu þessara aðila sem eitt af óvissu- atriðunum um þennan grunn þar sem ekki sé ljóst hver samningsvilji þeirra gagnvart leyfishafa gagnagrunnsins verður. Þá geta sjúklingar enn fremur neitað að upplýsingar um þá fari í grunninn þó að samþykki heilbrigðis- stofnana liggi fyrir. „Ég get í sjálfú sér ekki fúllyrt um hvort læknar muni neita í stórum stíl að afhenda upplýsingar í þennan gagna- grunn,“ segir Guðmundur Bjömsson, formaður Læknafélags íslands. „Það er hins vegar alveg ljóst að ef ekki verður gengið frá þessum málum í sátt við starfsfólk í heilbrigðisþjónustu þá er gagnagrunnurinn gagnslaust verkfæri sem mun ekki skapa annað en deilur og illindi næstu áratugi." Það er því engan veginn ljóst hvort það fyrirtæki sem fær einkarétt á rekstri gagnagrunns, eins og íslensk erfðagreining til dæmis, getur fengið upplýsingar úr sjúkraskrám afhentar nema með samþykki viðkomandi heilbrigðisstofnana og lækna - jafti- vel þótt gagnagrannsfrumvarpið verði samþykkt sem lög frá Alþingi. Svo virðist sem stjórnir heilbrigðis- stofhana sem og læknar hafi í hönd- um vopn til að þvinga rekstrarleyfis- hafa gagnagrunnsins til að semja um greiðslur fyrir afnot af heilsufarsupp- lýsingum. Fré w — — Oþarfír framsóknarmenn Dagfari Það er gaman að gegna hárri stöðu, hafa völd og áhrif. Það vita stjómmál- menn allra manna best enda sækjasf þeir öðrum fremur eftir vegtyllunum. Sú dýrð er þó ekki enda- laus. Máltækið segir að maður komi í manns stað. Það er þó ekki endilega víst, a.m.k. ef framsóknar- menn eiga í hlut. Það er svo að sjá að valda- miklir framsóknar- menn í kerfínu hafi verið óþarfir. Það sést best af stööu Guðmundar Bjamasonar. Hann hefur undanfarin ár gegnt tveimur ráðherra- embættum, landbúnaðar- og umhverfismála. Allir héldu að þetta væri einn valdamesti maður landsins. Annað kom þó í ljós þegar ráðherrann ákvað að skipta um starfsvettvang. Þá sást að hann hafði nán- ast verið óþarfur. Þótt allir framsóknarþingmennim- ir gangi með það í maganum að fá þessa ráðherra- stóla era mestar líkur á því að gömlu brýnin, Páll á Höllustöðum og Halldór flokksformaður, geri sér lít- ið fýrir og skipti þessu lítilræði Guðmundar á milli sín. Umhverfismálin hafa alla tíð verið hálfgert oln- bogabarn í ríkisstjómum. Á því verður engin breyt- ing þótt Guðmundur láti af því embætti. Austfjarða- goðinn, flokksformaðurinn og utanríkisráðherrann, tekur það með vinstri. Utanríkisráðherrann er alltaf á ferð og flugi í krafti stöðu sinnar. Hann gæti því sinnt umhverfismálunum meðan hann situr í flugvél milli landa og sent ákvarðanir sínar með rafþósti heim. Hitt er svo sjálfgefið að Páll bóndi á Höllustöðum taki við landbúnaðarmálunum að það þarf vart að ræða. Páll náði því langþráða markmiði sínu að hljóta ráðherraútnefningu þegar ljóst varð eftir síð- ustu kosningar að Framsókn gengi í eina sæng með íhaldinu. Þá gekk al- þýða manna út frá því sem geftiu að hann yrði landbúnaðarráð- herra. Annað væri vart við hæfi. Hann var sá eini sem haföi einhverja reynslu af málaflokknum. Það kom því verulega á óvart þegar Guð- mundur Bjamason var dubbaður upp í starf landbúnaðarráð- herra. En Guðmundur Bjamason er ekki eini framsóknarmað- urinn í hárri stöðu sem reynist við betri skoðun hafa verið gersamlega óþarfúr. Það sannaðist best þegar fyrrum flokksfor- maður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, sjálfur Steingrimur Hermannsson, lét af störfum seðlabankastjóra fyrr í sumar. Eftir það brotthvarf hefur engum dottið í hug að skipa bankastjóra í hans stað. Eftir þessa útreið þessara bestu sona Framsóknar er von að það fari um minni spámenn flokksins. Þeir munu þvi hanga á embættum sínum sem hundar á roði. Ella standa þeir frammi fýrir þeim harða dómi sögunnar að hafa verið skrauthúfur einar, óþarfir með öllu. Dagfari Stuttar fréttir dv Ekið á hross Ekið var á hross á Krýsuvíkur- vegi við Hlíðardalsskóla í Ölfusi á fostudagsnótt. Hvorki fólkið, sem var í bílnum, né hesturinn slasað- ist. Bilinn er hins vegar óökufær. Ríkisútvarpið sagði frá. Ráðning sögð í lagi Samkvæmt fréttum Bylgjunnar braut dómsmálaráðherra ekki jafnréttislög þegar hann skipaöi Harald Johannessen í embætti ríkis- lögreglustjóra sl. vetur. Hjör- dís Hákonar- dóttir héraðs- dómari taldi að gengið væri fram hjá sér við ráðninguna og kærði til kærunefndar jafnréttismála. Meirihluti hennar hefúr komist að þeirri niðurstöðu að ekkert hafi verið athugavert við ráðn- ingu Haralds. Sviptur ökuleyfi Lögreglan á Selfossi svipti öku- mann ökuleyfi fyrir ofsaakstur á föstudagskvöld. Maðurinn var tekinn á meira en 150 kílómetra hraða á klukkustund á Suður- landsvegi í Flóa. Rikisútvarpið sagði frá. Slasast í bíiveitu Hjón á miðjum aldri slösuðust nokkuð þegar bifreið sem þau voru í fór tvær veltur á ómalbik- uðum vegarspotta á Mývatnsöræf- um á fóstudagskvöld. Þau voru flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en þau eru ekki mikiö meidd. Háskólinn nýtur trausts í nýrri könmm Gallups kemur fram að Háskóli íslands nýtur enn sem fyrr mests trausts meðal almennings. Al- þingi og dómstólamir vekja hins vegar minnst traust hjá þeim sem tóku þátt í könnuninni. Um 40% segjast bera mikið traust til Alþingis og er það tíu prósentustigum hærra en í fyrra. Einungis 35% segjast treysta dómskerfinu en 60% treysta heil- brigðiskerfinu. Könnunin var gerð í gegnum síma og voru 1.200 í úrtaki hennar. Spurt var: Hversu mikið traust berð þú til tiltekinnar stofnunar. Könnunin var gerð á tímabilinu frá 17. júlí til 7. ágúst meðal ein- staklinga á aldrinum 18-75 ára. 70% þeirra svöruðu spurningum. Vafasöm listaverk Rannsóknir sem gerðar hafa verið á málningarsýnum á meint- um fólsuðum listaverkum styðja grunsemdir um að tugir, ef ekki hundruð, falsaðra listaverka hafi verið seldir íslenskum kaupend- um. í fréttum Ríkisútvarpsins kom fram að í einföldum athug- unum forvörsludeildar Ríkislista- safnsins í Kaupmannahöfti hefðu komið fram vísbendingar um að 15 eða 16 listaverk, sem sögð eru eftir Svavar Guðnason, væru fölsuð. Þessar athuganir sanna þó ekki falsanir og ætlar danska lög- reglan að rannsaka máliö enn frekar. Leggja Súdönum liö Rauöi kross íslands hyggst styrkja hjálparstarf í Suður-Súd- an um tvær milljónir króna. Þar er líf hundraða þús- unda manna í hættu vegna hungursneyðar. Þetta ákvað stjórn samtak- anna á fundi á föstudag. Ríkis- stjómin hefúr einnig ákveöið aö verja einni milljón króna til hjálp- arstarfs í Súdans. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.