Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Blaðsíða 32
40 MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 Sigurvegar- ar á Króks- móti: 6. flokkur, C-lið: 1. sæti: BÍ 2. sæti: Tindastóll 3. sæti: Leiftur 6. flokkur, B-lið: 1. sæti: Tindastóll 2. sæti: KS 3. sæti: Höttur 6. flokkur, A-lið 1. sæti: Tindastóll 2. sæti: KS 3. sæti: Völsungur 5. flokkur, C-lið: 1. sæti: Tindastóll 2. sæti: Dalvík 3. sæti: BÍ 5. flokkur, B-lið: 1. sæti: Dalvík 2. sæti: BÍ 3. sæti: Grundarfj. 5. flokkur, A-lið: 1. sæti: BÍ 2. sæti: Dalvík 3. sæti: Tindastóll Allir leikirnir fóru fram á Sauðárkróki á grasvöllum félagsins. Iþróttir unglinga i>v Lið BÍ frá ísafirði sigraði glæsilega í 5. fiokki A-liða á Króksmótinu. BÍ lagði Dalvík naumlega í úrslitaleik, 1-0. Króksmótið í knattspyrnu fór fram fyrir stuttu: Góðir heimamenn - leikgleðin var í fyrirrúmi á stærsta Króksmótinu til þessa Sjötíu og átta liö frá sautján félög- um mættu til leiks á tólfta Króks- mótið í knattspymu sem fram fór á Suðárkróki 15. og 16. ágúst. Þetta er mesta þátttaka í mótinu til þessa en keppnin var eingöngu fyrir fímmta, sjötta og sjöimda flokk, sem eru yngstu iðkendumir í knattspymu. Um 1300 manns á Króknum Alls vora leiknir um 260 leikir i mótinu á níu keppnisvöllum. Kepp- endur vom um 750 og þeim fylgdi fömneyti sem kunnugir giskuðu á að teldi um 600 manns. Heimamenn í Tindastóli vom sig- ursælir á mótinu og áttu sigurveg- ara í sex flokkum af níu og hirtu auk þess tvívegis annað sætið. BÍ frá ísafirði sigraði í tveimur flokk- um og Dalvík í einum en bæði þessi lið sendu stóra hópa keppenda til mótsins. Heimamenn áttu eina liðið í mótinu sem eingöngu var skipað stelpum en hins vegar vora mörg lið með eina til þrjár stelpur i hóp- um sínum og virtust þær ekkert gefa strákunum eftir. Þrátt fyrir fremur óhagstætt veð- ur, kulda og rigningarsudda, tókst að halda timasetningum í mótinu. Leikgleðin í fyrirrúmi Má segja að leikgleðin hjá hinu unga íþróttafólki hafi verið í fyrir- rúmi á mótinu. Auk fótboltans var öllum á mótssvæðinu boðið til grill- veislu eftir keppni á laugardag og síðan til kvöldvöku í íþróttahúsinu. Ómar Bragi Stefánsson mótsstjóri sagði í samtali við DV að þeir sem stæðu aö mótinu væra ánægðir. Mót með þessum þátttakendafjölda er heilmikið fyrirtæki í framkvæmd sem sést af því að starfsmenn vora 250-300 manns. Ómar gat þess að þeir mótshaldarar væru sérlega ánægðir með umgengni og fram- komu aökomufólks meðan það dvaldi í bænum. En flestir fengu inni í skólahúsnæði í bænum. Valtýr var heiðursgestur Styrktaraðili Króksmótsins var Fiskiðjan Skagfirðingur hf. en heiö- ursgestur var Valtýr Bjöm Valtýs- son íþróttafréttamaður og vakti hann mikla lukku meðal keppenda. Við mótsslit fengu allir keppend- ur verðlaunapening og einnig fengu lið í þremur efstu sætum í hverjum flokki bikar að launum fyrir frammistöðuna. Tindastóll sigraði í 7. flokki í hópi A-liða. C-lið Tindastóll var skipað stúlkum og gáfu þær piltunum ekkert eftir og höfnuðu í fyrsta sæti í 5. flokki C. Lið BÍ sigraði í 6. flokki í hópi C-liða. Liðið vakti athygli fyrir góða liðsheild og mikla samvinnu á vellinum. Króksmótið: Krakkarnir hlakka til allt sumarið „Þetta er þriðja árið í röð sem ég kem hingað á Króksmótið meö 7. flokki. Krakkamir hlakka til svona móts allt sumarið. Að fá að spila svona marga leiki á tveimur dögum og fá nýja mót- herja er það sem þau vilja,“ sagði Guðmundur Kristjánsson, umsjónarmaður 7. flokks í hópi B-liða hjá Dalvíkingum. Guðmundur sagðist vera mjög ánægður með framkvæmdina á Króksmótinu og þá aðstöðu sem boðið væri upp á. Hann sagði að það væri mjög öflugt unglinga- starf hjá Dalvíkingum um þessar mundir og þeir væru nánast með lið í öllum flokkum. Keppendur frá Dalvík vora 75-80 og einnig fylgdi fjöldi foreldra með þannig að hópurinn í heild taldi um 110 manns. Guömundur sagöi að það væri regla hjá Dalvíkingum að í minnsta lagi annað foreldrið færi með krökkunum í 7. flokki þegar þau kepptu utan heima- byggðar og svo færa alltaf ein- hverjir með eldri flokkunum. „Ég er búinn að vera viðloö- andi fótboltann í nokkur ár og verð það áreiðanlega áfram því nú á ég krakka sem famir eru að keppa í þessu af fullum krafti," sagði Guðmundur hress í bragði að lokum við blaðamann DV. Króksmótið: Markmiðiö íhöfn „Við erum búnir að stefna að þessum sigri í allt sumar og það tókst. Úrslitaleikurinn var þó erfiður því þeir börðust vel í vöminni en við sóttum meira. Ég var farinn að kvíða því að þetta færi í framlengingu en þá kom markið," sagði Birkir Hall- dór Sverrisson, fyrirliði 5. flokks BÍ eftir að þeir lögðu Dalvíkinga að velli í úrslitaleik, 1-0. Þar með tryggðu þeir sér sigur í 5. flokki í hópi A-liða. Birkir sagði að þeim ísafjarðarstrákum hefði gengið vel í sumar, unnið alla sína leiki að einum undanskild- um sem varð jafntefli. Hann sagði að þeir æfðu yfirleitt tvisvar á dag og svo væra leikir á sunnudögum. BÍ-strákamir vora að vonum ánægðir með sig- urinn og þökkuðu að hluta til góðum þjálfara sinum. Umsjón írís B. Eysteinsdóttir Sigurvegarar á Króksmóti: 7. flokkur, C-llð: 1. sæti: Tindastóll (1) 2. sæti: Tindastóll (4) 3. sæti: Tindastóll (2) 7. ffokkur, B-lið: 1. sæti: Tindastóll 2. sæti: Leiftur 3. sæti: KS 7. flokkur, A-lið: 1. sæti: Tindastóll 2. sæti: Völsungur 3. sæti: Dalvík Texti og myndir Öm Þórarinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.