Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Page 6
6
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998
Fréttir
Talið að um 30 þúsund manns hafi verið í miðborginni þegar mest var:
Menningarnóttin og
maraþon náðu saman
- þeir skemmtanaglöðustu enn í bænum þegar maraþonið var að hefjast
Lögreglan í Reykjavik telur að
um 30 þúsund manns hafi verið í
miðborginni þegar menningamótt-
in stóð sem hæst á laugardagskvöld-
ið og í fyrrinótt. „Það var mest um
fjölskyldufólk, fólk sem allajafna er
ekki í miðborg Reykjavíkur að
kvöldlagi um helgar," sagði aðal-
varðstjóri lögreglu.
Veitingahús höfðu opið til klukk-
an fimm um nóttina. Þetta hafði í
fór með sér að sumir voru heldur
lengur á stjái en vaninn er um helg-
ar. í raun náðu menningamóttin og
Vítiseldurinn spýttist úr koki þessara eldgleypa sem sýndu listir sínar fyrir
framan Höfuðleður, leðursmiðju. Mynd Róbert R.
Um 30.000 manns á menningarnótt:
Menningarþorst-
anum svalað
Áætlað er að um 30.000 manns
hafi komið saman í miðbæ Reykja-
víkur á laugardagskvöld þegar
haldin var menningarnótt þriðja
árið i röð. Það voru ekki einungis
Reykvíkingar og nærsveitarmenn
sem þar söfnuðust saman. Margir
komu utan af landi, auk þess sem
Færeyingar hópuðust til Reykja-
víkur þar sem uppákoman var
auglýst i Færeyjum.
Menningarnóttin fór fram úr
björtustu vonum og veðrið hjálp-
aði þar til. í fyrra komu um 15.000
manns í miðbæinn í úrhellisrign-
ingu.
Harpa Björnsdóttir, verkefnis-
stjóri menningarnæturinnar, seg-
ist hafa upplýsingar um rúmlega
100 atriði. „Svo voru margir að
gera eitthvað sem kom aldrei inn á
borð til mín.“
Atriðin á laugardagskvöld voru
mun fleiri en í fyrra. „Þetta var
metnaðarfyllri og áhugaverðari
menningarnótt. Allir áttu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Það
voru atriði fyrir börn, unglinga og
eldri kynslóðina. Lögð var áhersla
á að skemmtiatriðin höfðuðu til
allra í fjölskyldunni, enda var
mikið af fjölskyldufólki í bænum.
Tónlistin var allt frá pönki,
klassik, poppi og djassi. Auk þess
voru haldnar myndlistarsýningar
af öllu tagi. Ég er alveg undrandi á
því hvað íslendingar eru menning-
arþyrstir. Fólk hafði virkilega
ánægju af þessu. Ég vil líka geta
þess að mér finnst verslunareig-
endur hafa brugðist miklu betur
við heldur en í fyrra en verslanir
voru opnar langt fram á kvöld.“
SJ
Hérna er lítill hópur þeirra 30.000 sem fóru niður í miðbæ Reykjavíkur á laugardagskvöld til að fylgjast með atriðum
sem boðið var upp á á menningarnótt. DV-mynd HARI
Reykjavíkurmaraþonið saman. Þeg-
ar aðstandendur Reykjavíkurmara-
þonsins komu á vettvang á sunnu-
dagsmorguninn, á áttunda tíman-
um, voru sumir enn að reyna að ná
í eða bíða eftir bíl hjá leigubílabið-
stöðinni við Lækjartorg.
„Það voru einhverjir að hugleiða
að setja bara rásnúmer á viðkom-
andi og bjóða þeim að hlaupa
heim,“ sagði gamansamur lögreglu-
þjónn við DV.
Lögreglan segir að nóttin hafi
vissulega verið erilsöm en það telj-
ist á engan hátt mikið miðað við all-
an þann mannfjölda sem var í borg-
inni. „Þetta var í rauninni eins og
venjulegt helgarkvöld,“ sagði tals-
maður lögreglu. Þegar hátíðin stóð
einna hæst, frá því fyrir miðnætti á
laugardagskvöldið þangað til klukk-
an um fimm aðfaranótt sunnudags-
ins, áttu sér stað þrjár minni háttar
líkamsmeiðingar. Ein rúða var
skráð brotin og tveir voru hand-
teknir fyrir að skemma bíla við
Amtmannsstíg. -Ótt
Siv Friðleifsdóttir:
Keikó kemst
aldrei úr kvínni
- trúi að hvalveiðar hefjist
Keikó verður aldrei sjálfbjarga og mun eyða því sem eftir er ævinnar í kví
sinni, ef marka má orð Sivjar Friðleifsdóttur.
„Ég trúi því að hvalveiðar hefjist
að nýju,“ segir Siv Friðleifsdóttir,
alþingismaður og einn þeirra átta
stjómarþingmanna sem bám á síð-
asta þingi upp tillögu um að að
hvalveiðar hæfust að nýju á því
herrans ári 1998. Eins og DV greindi
frá í úttekt í gær hefur þófið um
hvalveiðar staðið á Alþingi í rúman
áratug. Fjöldi tillagna hefur verið
svæfður í nefndum og einu hval-
veiðamar sem fram fara við ís-
landsstrendur fara fram í skjóli
nætur.
Þær raddir heyrast nú að útilok-
að sé að hefja hvalveiðar að nýju í
ljósi endurkomu háhyrningsins
Keikós til íslands. Siv segist ekki
hafa neina trú á því að slíkt hafi
Siv Friðleifsdóttir.
áhrif á möguleika þess að veiðamar
hefjist að nýju. Aðspurð hvemig ís-
lendingar geti varið það að veiða
hvali á sama tíma og Keikó syndi
um vamarlaus í hafdjúpinu svaraði
hún:
„Ég hef enga trú á því að Keikó
muni nokkum tíma verða sleppt úr
kvínni og verða sjálfbjarga. Ég held
að hann verði áfram í vemduðu um-
hverfi þar sem hann geti aldrei
bjargað sér utan kvíarinnar," segir
Siv.
Hún segir óttann við efnahags-
þvinganir af völdum friðunarscun-
taka vera léttvægan, það sýni
reynsla Norðmanna. Þá segir hún
mjög umdeilanlegt að veiðar myndu
eyðileggja þann hagnað sem er af
skoðunarferðum.
„Ég tel að hvorutveggja þrifist
hlið við hlið,“ segir Siv. -rt