Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Side 15
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 15 Lengist nefið á Ingibjörgu? Ingibjörg Sólrún Gíslandóttir borgarstjóri. _ Stórkostlegur árangur í fjármálum borgarinnar eöa halli sem samsvarar 2 þúsund milljónur króna? Þrír bankastjórar Landsbankans þurftu ekki alls fyrir löngu að segja af sér þar sem þeir voru taldir bera ábyrgð á röngum upp- lýsingum um risnu og laxveiðikostnað. Fyrir síðustu borg- arstjómarkosningar vakti það athygli að mikið var deilt um fjárhagsstööu borgar- innar. Mikið bar á milli fylkinga. í öllu kynningarefni R-list- ans mátti sjá fullyrð- ingar um að; „böndum hefði verið komið á fjármál borgarinnar", „skuldasöfnun borgar- sjóðs stöðvuð“ og að „borgarsjóður hafi verið rekinn án halla“. Sjálfstæðismenn töldu það af og frá að þessar fullyrðingar væru réttar og töldu að borgin hefði aukið skuldir sínar stórlega undir stjórn R-listans. Úr þessari deilu var ekki hægt að skera þá, þar sem reikningar borgarinnar voru ekki lagðir fram fyrr en eftir kosn- ingar. Raunverulegur halli tæpir tveir milljarðar í ljósi fullyrðinga R-listans fyrir kosningar um bætta fjárhagsstööu er athyglisvert að skoða ársreikn- ing Reykjavíkur- borgar sem nú liggur loks fyrir. í ársreikn- ingnum og meðfylgj- andi skýrslu borgar- endurskoðenda kem- ur skýrt fram að sýndur afgangur á borgarsjóði á árinu 1997 er einungis til kominn vegna þess að hlutafélag, sem er 100% í eigu Reykja- víkurborgar og þar af leiðandi að fullu á ábyrgð borgarsjóðs, er látið „kaupa“ all- ar félagslegar íbúðir Reykjavíkurborgar. „Salan“ er skráð sem „tekjur“ fyrir borg- arsjóð upp á litlar 4.238 milljónir króna og þar kemur skýrt fram i árs- reikningi borgarsjóðs að þessi gjömingur bætir stöðu hans á pappírnum um 2.678 milljónir króna. Fjárhagsstaða Reykjavíkurborg- ar batnar að sjálf- sögðu ekki neitt í raun því að ein- ungis er um færslu fjármuna á milli reikninga borgarinnar að ræða. Enda sér borgarendur- skoðandi í skýrslu sinni ástæðu til að taka fram að ef ekki hefði komið til þessara reiknings- kúnsta þá hefði hallinn á borgar- sjóði verið allt að 1.820 milljónir króna (ef tapið á félagsbústöðum er tekið með - annars 1.779,9 millj- ónir, sjá töflu) eða nær 2 þúsund milljónir. Það samsvarar því að hallinn á ríkissjóði væri 16 milljarðar króna en eins landsmenn vita þá hefur ríkisstjórninni tekist að reka rík- issjóð með afgangi að undanfórnu. Með tilliti til staðhæfinga R-list- ans um bætta fjárhagsstöðu er at- hyglisvert það álit sem fram kem- ur í skýrslu borgarendurskoðanda um rekstur borgarinnar. En þar segir: „Rekstur málaflokka hækk- ar þó enn miðað við skatttekjur og er mjög brýnt að leita leiða til að ná rekstrarkostnaði niður, annað hvort með niðurskurði einhverra liða eða með því að auka tekjur." Borgarstjóri skrökvaði um fjármálin Því liggur það fyrir að í einu mesta góðæri þjóðarinnar hefur R-listinn rekið borgina með tapi og stóraukið skuldir hennar. í stað þess að horfast í augu við þá staðreynd og reyna að takast á við vandann ákváðu forystumenn R-listans að segja Reykvíkingum ósatt og fullyrða við hvert tæki- færi að stórkostlegur árangur hefði náðst við fjármálastjórn borgarinnar, hallinn á borgar- sjóði væri horfmn og skuldir að lækka. Þessi málatilbúnaður vekur upp spurningar um ábyrgð stjórnmála- manna. Borgarstjórinn í Reykja- vik sagði fyrir síðustu kosningar að stórkostlegur árangur hefði náðst í fjármálum borgarinnar og að borgarsjóður væri rekinn halla- laus. Nú liggur fyrir að „raunveru- legur halli sjóðsins", svo vísað sé til skýrslu borgarendurskoðenda, er sem samsvarar 2 þúsund millj- ónum króna og ef allir reikningar borgarinnar eru teknir með er hallinn enn meiri! Spumingin er: mun borgarstjóri segja af sér? Eða eru bankastjórar Landsbankans einu aðilarnir í þessu landi sem ekki mega skrökva um fjármál? Guðlaugur Þór Þórðarson Kjallarinn Guölaugur Þór Þóröarson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins „Spurningin er: mun borgarstjóri segja afsér? Eða eru bankastjór- ar Landsbankans einu aóilarnir í þessu landi sem ekki mega skrökva um fjármál?" Orð forseta íslands Forseti íslands kvaddi sér hljóðs á Hólahátíð 16. þ.m. í um- ræðunni um gagnagrunninn á heilbrigðissviði. Hvatti hann þjóð- ina til að vanda allan málatilbún- að í tengslum við lagasetningu um erfðarannsóknir, íslendinga til að vera opna og jákvæða gagnvart þeim möguleikum sem þeir ættu til að stuðla að framþróun þekk- ingarinnar á sjúkdómum og var- kára þegar kæmi að því að færa þessar rannsóknir á eina hendi. Vel mælt orö og viturleg Það er sjálfsagt að leggja við hlustir þegar forsetinn með sinn fjölbreytta bakgrunn og sína per- sónulegu reynslu tekur til orða með svo áhrifaríkum og afdráttar- lausum hætti. En boðskapur Ólafs Ragnars er ekki nýr af nálinni. Þau sjónar- mið, sem hann setti fram, hafa hins vegar átt undir högg að sækja á liðnum mánuðum. Læknafélag íslands, stjórn þess og einstakir félagar, hefur hvatt til umræðu um aðrar hliðar þessa viðfangsefnis en viðskiptahags- munina eina, svo sem á sviði per- sónuvemdar og persónuréttar frá lagalegu- og siðferðilegu sjónar- horni. Nú er e.t.v. von við þessa brýn- ingu forsetans, að alþingismenn og þjóðin öll vakni af dásvefninum og taki til við það, sem máli skipt- ir. Ljósið hafði a.m.k. kviknað í brjósti Össur- ar Skarphéðins- sonar, alþingis- manns og rit- stjóra, þegar hann lýsti því yfir í útvarpinu þ. 17. þ.m., að verið gæti að þeir ritstjórar Dag- blaðsins hefðu verið um of upp- teknir í skrifum sínum af fjár- hagshliðum þessa máls og van- rækt annað, sem máli skipti. Réttindi sjúklinga í fyrra, þegar gagnagrunnurinn var fjarri allri umræðu, voru sett á Alþingi lög um réttindi sjúk- linga. Össur Skarphéöinsson, for- maður heilbrigðis- og trygginga- nefndar, mælti fyrir áliti nefndar- innar á frumvarpinu og fyrir breytingartillögum hennar. Var þetta 17. maí 1997. Svo mælti Öss- ur: ...,,í stað þess að skilgreina sjúkraskrá sem eign heilbrigðis- stofnunar þar sem hún er færð eða læknis eða annars heilbrigðisstarfs- manns sem færir hana á sinni starfs- stöð, þá leggjum við til að gert sé ráð fyrir því að sjúkraskrárnar skuli varðveittar hjá framangreind- um aðilum. Tel ég með öðrum orðum að það sé siðferðilega ekki hægt að segja að sjúkraskrá sem felur í sér sjúkrasögu einstaklings sé eign einhvers annars heldur en við- komandi sjúklings.“(Lbr.SS). ...,,í fjórða lagi þykir okkur rétt að taka fram og leggjum til að það verði gert í 1. mgr. 15. gr. að upp- lýsingar í sjúkraskrám séu við- kvæmar persónuupplýsingar. (Lbr. SS) Þetta kann ekki að skipta miklu í fljótu bragði, en þarna er um meginreglu að ræða sem við teljum að sé rétt að sé fest í lög.“ ...„Þarna leggjum við einnig til þá grundvallarbreytingu, herra forseti, að lífsýni verði talin hluti af sjúkraskrá og lúti þá sömu regl- um og að framan hefur verið reifað. (Lbr. SS) Ég tel, herra forseti, að þetta sé e.t.v. mikilvæg- asta breytingin sem er að finna í tillögum okk- ar.“ - Þarna mæltist Össuri vel. Alþingi þóttu þetta skynsamleg- ar athugasemdir nefnd- armanna og féllst á þær. Á aö beita öðrum aöferöum? Til þess að frumvarpið um gagnagrunn geti fallið að skoðunum Al- þingis frá þessum tíma þarf það að virða um- ráðarétt sjúklingsins yflr sjúkraskrá sinni og gera ráð fyrir að fengið verði samþykki hans fyrir þátt- töku í tilteknum rannsóknum, sem hafi ákveðin markmið og taki enda. Að ekki er hægt að virða þessi sjálfsögðu mannréttindi bendir til þess að beita eigi öðrum aðferðum við notkun gagnagrunnsins en lagðar hafa verið vísindarann- sóknum til grundvallar fram að þessu. Ég get vel tekið undir það með Össuri, að ritstjórar Dagblaðsins hafi vanrækt margt það, sem máli skiptir, þegar frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði er annars vegar. Sigurbjörn Sveinsson „Til þess að frumvarpið um gagnagrunn geti fallið að skoðun- um Alþingis frá þessum tíma þarf það að virða umráðarétt sjúk- lingsins yfír sjúkraskrá sinni og gera ráð fyrir að fengið verði samþykki hans fyrir þátttöku í til- teknum rannsóknum...." Kjallarinn Sigurbjörn Sveinsson læknir Meö og á móti Á að hefja hvalveiðar að nýju? Nýta hvalinn til fulls „Auðvitað eigum við að heíja hvalveiðar strax næsta sumar því það mæla öll rök með því. I fyrsta lagi er það réttur sjálfstæðrar þjóðar að nýta auðlindir hafsins á sjálíbær- an hátt. í öðru lagi stefnir í vandræði vegna takmarkalausrar Qölgunar hvals í kringum okkur og má minna á að forstjóri Haf- rannsóknastofn- unar hefur bent Gu&jón Gu&munds- á að þetta geti son alþingisma&ur. leitt til þess að við verðum að minnka fiskveiðar okkar vegna þess mikla magn sem hvalurinn étur af fiski. Og náttúrlega í þriðja lagi er þama möguleiki á miklum verð- mætum og mörgum störfum. Það er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því að þetta bitni á útflutningi eða ferðamannastraumi eins og sumir vilja halda fram. Það er reynsla Norðmamia sl. fimm ár að hvalveið- ar þeirra hafi ekki skaðað þá á neinn hátt. Útflutningur, ferða- mannastraumur og aðsókn í hvala- skoðunarferðir hefúr blómstrað sem aldrei fyrr eftir aö þeir hófu hval- veiðar að nýju. Við eigum að nýta hvalinn á þrennan hátt. í fyrsta lagi með veiðum og vinnslu, í öðru lagi með öflugri hvalaskoðun og síðast en ekki síst eigum við að sýna ferða- mönnum hvalvinnsluna. Það var mjög vinsælt meðan Hvalstöðin var og hét að sjá þessar risaskepnur og fylgjast með hvalskurðinum og allt þetta eigum við að nýta okkur." Glapræði „Auðvitað verða hvalveiðar ekki leyfðar. Það var þjóðhagslegt glapræði að byrja þá iðju aftur, hvað sem mönnum finnst um sjálfstæði þjóðarinnar. Nú þegar fæst miklu meira upp úr því að sýna hvalina lifandi en selja þá dauða og það færir okkur líka miklu meiri virðingu á al- þjóðlega visu. Auk þess sem Magnús H. Skarp- margfaldur hé&insson vaxtarbroddur 5kolas<jori' er í hvalaskoðun á komandi árum eins og sýnir sig í því að um allt land eru menn annaðhvort byrjaðir eða að undirbúa atvinnurekstur sem tengist hvalaskoðun, Þorsteinn Páls- son hefm- algerlega runnið á rassinn í þessu máli. Hann hefur aftur og aft- ur lýst yfir aö það sé ekki spuming hvort heldur hvenær hvalveiðar heftist en situr nú uppi með eggið á andlitinu. Hann hefur sem betur fer engin tök á málinu þótt hann tali hreystilega í ftölmiðlum. Hann hefur einfaldlega tapað málinu. Væri í dag farið að ráðum þeirra sem vilja hval- veiðar strax væru íslendingar að skjóta sig í fótinn í efnahagslegu til- liti. Við myndum sæta efnahagsleg- um þvingunum af hálfu einhverra þjóða og sterk samtök á sviði um- hverfisvemdar ættu auövelt með að rústa ferðamennsku hingað og veikja grunn fiskmai’kaðanna. Þetta vita auðvitað ráðamenn þótt þeir tali hreystilega út á við. Málið er ósköp einfalt. Andstæðingar hvalveiða eru búnir að sigra. Lifandi tákn um það mun innan tíðar synda í kví í Kletts- víkinni i Vestmannaeyjum." Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.