Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Page 22
J5 30 MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998 ' íf I dregið úr stærð kyn ims í reisn Já, oft var þörf en nú er það bókstaflega nauðsyn: Að hætta að reykja. Að minnsta kosti ef körlum er annt um stærð lims- ins í reisn. Rannsóknir vís- indamanna benda einmitt til að reykingar geti dregið úr stærð lims í stinningu. Það voru vísindamenn frá læknadeild Bostonhá- skóla sem gáfú út þessa viðvörun eftir rannsókn á tvö hundruð körlum. Einn vísindamannanna, Pedram Salimpour, segir að niðurstöð- umar séu tölfræðilega mark- tækar. Vísindamennirnir segja að áhrif reykinganna á reðurinn séu sömu ættar og áhrif þeirra á hjartað. Æðamar skemmast og það dregur úr blóðflæðinu. Og þá er nú ekki von á góðu þegar limurinn er annars veg- Ekki er vitað hversu lengi né hversu mikið menn þurfa að reykja til að þessar miður æskilegu aukaverkanir geri vart við sig. Það er því eins gott að hætta strax. Fasanafjaðrir í ' skotheld vesti Fjaðrirnar duga fasananum skammt þegar veiðimaðurinn fretar á hann úr hólki sínum. Þær gætu þó gagnast hermönn- um á vígvellinum ef marka má tilraunir breskra visinda- manna. Vísindamennimir hafa upp- götvað að fasanafjaðrirnar geta dregið mjög úr krafti byssu- kúlna þar sem innra byrði þeirra er mjúkt og froðukennt. Þá innihalda þær keratín, sama efni og neglurnar á okkur eru gerðar úr. Peter Gardiner, verkfræðing- ur við háskólann í Reading á '* Englandi, hefur mælt með því við breska varnarmálaráðu- neytið að skoðað verði hvort hægt sé að setja fjaðrir í stað efnisins kelvars í skotheld vesti. Ef frekari rannsóknir lofa góðu verður kannski farið að rækta fasana vegna fjaðr- anna. Bústaðir Kana- aníta á Vestur- bakkanum Palestínskir fornleifafræð- > ingar sem stunda uppgröft á sjálfstjómarsvæði Palestínu- manna á Vesturbakkanum segjast hafa fundið leifar heim- ila Kanaaníta frá því i kringum árið 3000 fyrir Krist. Fornleif- amar fundust skammt vestan við borgina Nablus. Fornleifafræðingamir telja að fundurinn muni hjálpa Palestínumönnum að koma fram með eigin útgáfu fornrar sögu þessa landsvæðis. Þeir kvarta yfir þvi að ísraelskir kollegar þeirra hafi aðeins * áhuga á sögu gyðinga til að réttlæta landakröfur þeirra á svæðinu. Sumir Palestínumenn rekja ættir sínar til Kanaaníta sem bjuggu á þessum slóðum áður en ísraelsmenn komu þangað. Ný rannsókn á hvað felst í kynþokkanum: Herramenn vilja ljóskur. Þannig hljóðar að minnsta kosti eldgömul formúla frá Hollywood. Og til að nú- tímamanninum finnist hún kyn- þokkafull verður hann að hafa eitt- hvað sem hægt er að klípa í, hún þcuf að vera með stór brjóst og grannt mitti. Horrenglur eins og of- urfyrirsætumar, sem svo margar ungar stúlkur miða sig við, virðast ekki eiga upp á pallborðið hjá ósköp venjulegum körlum. Visindamenn komust að þessum sjálfsögðu sannindum, að margra áliti, þegar þeir sýndu fjörutíu námsmönnum, karlkyns, myndir af líkömum fimmtíu kvenna. Skóla- piltar voru svo beðnir að segja hvaða kona þeim fannst mest aðlað- andi. Rannsóknin, sem Martin Tovee við háskólann í Newcastle á Englandi stóð fyrir og sagt er frá í læknaritinu Lancet, leiddi í ljós að konur sem kalla má horspírur eru ekki taldar jafhaðlaðandi og hinar sem hafa örlítið fleiri kíló utan á sér. Það kom líka í Ijós að karlar em hrifnari af þess háttar konum en þeim sem falla undir hefðbundna skilgreiningu á hvað felst í líkam- legu aðdráttarafli, þar sem mittis- málið er sjötíu prósent af mjaðma- málinu. Traustasti mælikvarðinn á það hvers konar konum karlarnir eru hrifnir af er svokallaður þyngdar- stuðull. Hann er fundinn út með því að deila í þyngd viðkomandi í kíló- um með hæð hans eða hennar í metmm í öðm veldi. Myndirnar sem námsmennimir fengu að skoða sýndu fimm þyngdarflokka og voru tíu konur í hverjum. Konur sem voru með þyngdar- stuðul undir 15 vora flokkaðar sem horrenglur. Þyngdarstuðullinn 15 til 19 táknar að viðkomandi er of léttur og 20 til 24 að hann sé pass- lega þungur. Þegar komið er þar yf- Risaeðluegg fundin í Bólivíu Enn finnast minjar um vini okk- ar risaeðlumar. Nýlega skýrðu vís- indamenn frá því að fundist hefðu það sem talið er vera tvö steingerð risaeðluegg í sunnanverðri Bólivíu. Þar sem eggin fundust eru hugsan- lega fleiri steingervingar saman komnir á einum stað en áður hafa komið í leitirnar. „Við fundum tvö egg sem gætu verið úr risaeðlu,“ segir leiðangurs- stjórinn, svissneski steingervinga- fræðingurinn Christian Mayer. Hann telur að eggin séu um það bil 68 milljóna ára gömul. „Þau fundust í grænum kalk- steini og það eru hugsanlega fleiri í öðram berglögum," segir hann. Eggin vora grafin upp i Cal Ork’o, um sjö hundruð kílómetra suðvestur af bólivísku höfuðborg- inni La Paz, eigi alifjarri borginni Sucre. Eggin sem vísindamennirnir fundu vora nokkuð stór. Annað þeirra var 25 sentiímetrar en hitt, sem var úr fljúgandi skriðdýri, er hvorki meira né minna en 40 sentí- metrar í þvermál að sögn Mayers. Þessi happadráttur vísindamann- anna kom ekki í ljós fyrr en eftir sex vikna uppgröft. Flogið verður með eggin tii Sviss þar sem þau verða rannsökuð nánar. „Við verðum að búa um þau og bera þau saman við aðrar leifar og beinagrindur um víða veröld," segir Mayer. Hann telur ekki útilokað að stein- gervingasvæði þetta, þar sem finna má spor eftir tugi dýrategunda, sé lengri. Meðal þeirra dýra sem hafa skilið eftir sig spor þarna suður í Bólivíu er Týrannósaurasinnn, kjötætan óg- urlega. Bein á svæðinu eru úr krókódílum, ferksvatnsfiski og skjaldbökum. Leiðangurinn til Cal Ork’o er fjár- magnaður af svissneskum rann- Fótspor eftir risaeðlur í Cal Ork’o nærri borginni Sucre í Bólivíu. hið stærsta í heimi. Sumar slóðirn- sóknarsjóði, vefnaðarvöruframleið- ar eftir dýrin eru allt að því 350 anda og fyrirtæki í Bólivíu. metra langar og þær gerast ekki Ofurmjóar sýningarstúlkur kunna að vera fallegar á að horfa en flestir karl- menn vilja þó eitthvað aðeins holdmeira til að eyða ævinni með. ir er þyngdin orðin of mikil, sér- staklega þegar þyngdarstuðullinn er kominn yfir 30. Stúdentarnir voru hrifnastir af konum sem höfðu þyngdarstuðul- inn 18 til 21. „Það kemur í ljós að þyngdarstuð- ullinn er sá þáttur sem ræður hvað mestu um kynferðislegt aðdráttarafl þcir sem hann er góð vísbending um góða heilsu og frjósemi," segir Tovee. Leitað að kúailmi sem fælir burt flugur Flugur eru hvimleiður fjandi, að minnsta kosti þegar of mikið er af þeim. Má þá einu gilda hvort þær era á sveimi kringum mannskepnuna eða blessaðar kýmar. Og þcir eru ekki allar kýr jafnar því sumar laða að sér fleiri flugur en aðrar. Kúabændur sjá nú ef til vill fram á það að geta hætt að nota skordýraeitur á óværuna en þess i stað úða kýmar með nátt- úrulegum kúailmi sem fælir flugurnar burt. Tímaritið New Scientist skýrði nýlega frá því að breskir vísinda- menn væra að reyna að ein- angra efna- sam- bönd sem kýrnar gefa frá sér til að komast að þvi hver þeirra geri kusurnar óaðl- aðandi í augum flugnanna. Þetta er ekki gert af eintómu pjatti því þegar flugur nærast á kúnum verða kusumar stress- aðar. Það hefur aftur í för með sér minni mjólkurframleiðslu og hægari vöxt. Bresku vísindamennirnir, undir forustu Michaels Birketts, gerðu smátilraun þar sem þeir einangruðu átján efnasambönd sem kýr gefa frá sér. Þeir könn- uðu áhrif eins efnasambandsins með þvi að setja það í hæglos- andi poka sem var komið á tvær kýr í sex kúa hjörð. Kýrnar tvær voru greinilega miklu meira aðlaðandi en hinar stöllur þeirra fjórar áður en tilraunin hófst. Þegar pokarnir voru komnir um hálsinn á kúnum tveimur jafnaðist flugnagerið út. Það þykir benda til að efnið hafi staðið sig i stykkinu og fælt flug- urnar burt. Frekari tilraunir verða gerðar og standa vonir tU að um síðir verði hægt að hefja framleiðslu á flugnafæluefni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.