Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1998, Side 31
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 1998
39
Fréttir
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar:
Gengistap
26 milljónir 1997
en samt hagnaður
DV, Borgarnesi:
Aðalfundur Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar var haldinn fyrir
skömmu. Liðin eru tvö og hálft ár frá
því HAB tók til starfa eftir uppskipti
og í breyttu formi. Fyrir uppskiptin
var eiginfjárstaða HAB og UOB nei-
kvæð um 1221 milljón króna.
Eftir uppstokkun og nokkuð breytt
afskriftafyrirkomulag og tveggja ára
rekstur var eiginfjárstaðan neikvæð
um 300 þúsund krónur í árslok 1997.
Á fundinum kom fram að hagnaður
fyrirtækisins varð 5,9 milljónir króna
1997 sem er talsvert minni hagnaður
en árið 1996. Þá nam hagnaður 70,6
miiljónum króna. Ástæða þess er aðal-
lega sú að gengishagnaður varð um 65
milljónir króna á árinu 1996, en 1997
varð gengistap að upphæð um 26 millj-
ónir króna. Sjóðstreymi hækkaði hins
vegar veltufé frá rekstri úr 48 milljón-
um króna í 80 miiljónir króna og
handbært fé hækkaði úr 42 miiljónum
króna í 60 milljónir. -DVÓ
DV-myndir Eva
Öndin með ungana á árbakkanum.
Hæna ungaði út æðareggi:
Með 6 unga á Varmá
- en veiðibjalla hefur náð fjórum
DY Hveragerði
Á þessum árstíma er afar óvenju-
legt að sjá önd synda með ofurlitla
andarunga á eftir sér. En það á sér nú
stað á Varmá í Ölfusi. Öndin, sem
svamlar þar ásamt ungum sínum, er
marglit og ólík þeim tegundum sem
eru yfirleitt á Tjörninni í Reykjavík.
Við nánari eftirgrennslan kom í ljós
að öndin er ein af öndum Hrefnu
Kjartansdóttur, bónda í Reykjakoti.
Hrefna sagði í samtali við DV að ein
af hænum hennar hefði ungað þessari
önd út ásamt sínum eigin ungum.
Andarunginn stækkaði svo ört að
hænan var í vandræðum með að leggj-
ast á en unginn - það er öndin sem hér
um ræðir - elti hænuna á röndum sem
sína móður.
Hrefna sagði einnig að reyndar
hefðu tvær af öndum hennar orpið fyr-
ir skömmu sem væri mjög óvenjulegt.
Önnur þeirra missti alla unga sína. Sú
sem sést hér á myndinni átti tíu unga
en fjórir þeirra urðu veiðibjöllu að
bráð. Sú situr allan liðlangan daginn á
sama steininum mitt í ánni og fylgist
með seiðunum og andarungunum.
Endur Hrefnu og gæsir eru gæfar og
eru þær á vappi á hlaðinu og útihús-
um í Reykjakoti innan um svani,
hunda og hesta en hestaleiga er í
Reykjakoti. Fuglunum er gefið daglega
á hlaðinu.
-eh
Innritaðir eru
Innritun nýrra
nemenda fyrir
skólaárið 1998—1999
stendur yfir í ágúst.
1. Nemendur fæddir 1992 í
Forskóla I
2. Nemendur fæddir 1991 í
Forskóla n
3. Nemendur fæddir 1988-1990
(8-10 ára) sem teknir eru beint
í hljóðfæranám,
án undangengins forskólanáms.
4. Nemendur fæddir 1992 og 1993
í Fiðluforskóla.
Skrifstofa skólans að Lindargötu 51 er
opin frá 10. ágúst kl. 12.30-17.00
Síminn er 562 8477.
<gi> TOYOTA
Árg. 1997 Ekinn 28.000 Vél. 1600 ssk.
Fastnúmer MH-789 Litur silfurgrár
Árg. 1998 Ekinn 12.000 Vél. 1500 ssk.
Fastnúmer PU-873 Litur hvítur
Árg. 1992 Ekinn 85.000 Vél. 1500 ssk.
Fastnúmer PT-390 Litur rauður
Árg. 1989 Ekinn 144.000 Vél. 3000 ssk.
Fastnúmer KL-153 Litur drappl
Árg. 1996 Ekinn 50.000 Vél. 2000 ssk.
Fastnúmer KN-108 Litur silfurgrár
Árg. 1991 Ekinn 90.000 Vél. 1300 5g.
Fastnúmer RU-013 Litur Ijósblár
Árg. 1997 Ekinn 15.000 Vél. 2500 ssk.
Fastnúmer NG-651 Litur svartur
Árg. 1991 Ekinn 116.000 Vél. 3000 ssk.
Fastnúmer OU-952 Litur grænn
Árg. 1997 Ekinn 18.00 Vél. 1500 5g.
Fastnúmer TV-646 Litur grænn
Árg. 1995 Ekinn 50.000 Vél. 2000 ssk.
Fastnúmer LU-299 Litur grænn
Árg. 1993 Ekinn 100.000 Vél. 2400 5g.
Fastnúmer FT-698 Litur blár
Árg. 1998 Ekinn 20.000 Vél. 1500 5g.
Fastnúmer TB-515 Litur fölbleikur
Árg. 1995 Ekinn 52.000 Vél. 2500 5g.
Fastnúmer OB-717 Ljtur blár
Árg. 1993 Ekinn 100.000 Vél. 2800
Fastnúmer MM-618 Litur svartur
Árg. 1993 Ekinn 101.000 Vél. 3000 5g.
Fastnúmer LN-824 Litur blár
Árg. 1992 Ekinn 111.000 Vél. 3000 5g.
Fastnúmer LV-678 Litur vínr/grár
Árg. 1990 Ekinn 152.000 Vél. 3000 ssk.
Fastnúmer VJ-387 Litur vínrauður
Árg. 1994 Ekinn 57.000 Vél. 2500 5g.
Fastnúmer PL-767 Litur drappl
Árg. 1994 Ekinn 84.000 Vél. 2400 5g.
Fastnúmer PK-840 Litur hvítur
Árg. 1992 Ekinn 104.000 Vél. 2400 5g.
Fastnúmer XX-898 Litur hvítur
Toyota Corolla S/D
Hyundai Accent
Mitsubishi Colt
MMC Pajero
Hyundai Sonata
Toyota Corolla H/B
Chrysler Stratus
MMC Pajero
Hyundai Accent
Volvo 850 GL
Toyota Hilux D/C diesel
Hyundai Accent
Nissan King Cab diesel
Nissan Patrol
Toyota 4runner
Toyota 4runner
MMC Pajero
Jeep Cherokee Jamboree
Toyota Hilux D/C