Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
5
I>V
Kennsla í grunnskólum á landsbyggðinni:
Misjafnlega gengur
manna stöðurnar
Fréttir
Misjafhlega hefur gengið að fá fólk
til kennslu í grunnskólum á lands-
byggðinni. Á sumum svæðum er
ástandið nokkuð gott, miðað við það
sem verið hefur, en afar slæmt annars
staðar, samkvæmt upplýsingum sem
fengust á skólaskrifstofum sem DV
ræddi við í gær. Það skal tekið fram
að tölulegar upplýsingar um ráðning-
ar kennara og leiðbeinenda liggja
ekki fyrir á umræddum skrifstofum,
þannig að um nákvæma stöðu mála
er ekki að ræða.
„í skólunum hér í kring hefur víðast
gengið upp að fá mannskap,“ sagði
Snorri Þorsteinsson á Skólaskrifstofu
Vesturlands. „í mjög mörgum þeirra hef-
ur máhð verið leyst með leiðbeinendum
en annars staðar hefur verið hægt að
manna með grunnskólakennurum.“
Pétur Bjamason á Skóla-
skrifstofu Vestíjarða sagði
að ástandið væri ekkert
verra en verið hefði. í mörg-
um skólum væri enn eftir að
ráða í 1-2 stöður og menn
væru að íhuga hvort þeir
réðu leiðbeinendur eða
leystu málið með meira
vinnuálagi á þá kennara
sem fyrir væru. Víðast virt-
ist hægt að leysa þetta á
annan hvom veginn.
„Við höfum fengið gróft
yfirlit yfir stöðu mála í
gnmnskólunum á svæðinu
og samkvæmt því virðast
skólar vera mannaðir,“
sagði Einar Már Sigurðsson
á Skólaskrifstofu Austur-
Grunnskólarnir byrja í næstu viku en misjafnt er hvernig
gengur að manna stöður kennara. í sumum landshlutum
er ástandið slæmt en þó ekki verra en á síðasta ári.
lands . „Svo virðist sem nú
hafi gengið betur að manna
þá en oft áður en það er auð-
vitað gert að hluta til með
leiðbeinendum. Ástandið
virðist ívið betra en oft áður
og kann skýringin að vera
fólgin í þvi að menn hér hafa
hafið ráðningar leiðbein-
enda fyrr en gert var á sum-
um öðrum stöðum."
Jón Hjartarson á Skóla-
skrifstofú Suðurlands kvaðst
ekki hafa marktækar upp-
lýsingar um ráðningar í
grunnskólum þar. „Sums
staðar er búið að ráða en
annars staðar gengur afskap-
lega illa að manna skólana.
Mín tilfinning er sú, að ráðn-
ingar gangi verr nú en oft áður, enda
er kennaraskortur í landinu."
„Ég hef ekkert nákvæmt yfirlit en
mér heyrist að staðan sé svipuð og í
fyrra, kannski ívið erfiðari sums stað-
ar,“ sagði Jón Baldvin Hannesson,
Skólaþjónustu Norðurlands eystra.
„Sveiflumar eru meiri á litlu stöðun-
um, kennarar fáir og það munar
meira um hvern."
Bergþóra Gísladóttir á Skólaskrif-
stofu Húnvetninga sagði að skólamir
á svæðinu stæðu mjög misjafnlega
hvað mannaráðningar varðaði. Vel
hefði gengið að manna grunnskólann
á Blönduósi og á Húnavöllum hefðu
ekki verið mikil umskipti á fólki í
langan tíma. Hins vegar væri ástand-
ið afar slæmt á Skagaströnd og
Hvammstanga. -JSS
SUZUKI SWIFT
GERIR INNANBÆJARAKSTURINN SKEMMTILEGRI
Rúmgóður, sparneytinn,
nettur og lipur að keyra.
Sestu inn og láttu
fara vel um þig.
1
I
ÓVENJU MIKILL STAÐALBÚNAÐUR FYRIR BÍL í ÞESSUM VERÐFLOKKI
Vökvastýri • 2 loftpúðar • Þjófavörn • Samlæsingar
Krumpusvæði að framan og aftan • Upphituð framsæti
Rafmagn í rúðum og speglum • Samlitaðir stuðarar
Hæðarstillanleg öryggisbelti • Hemlaljós í afturglugga
Skolsprautur fyrir framljós • Styrktarbitar í hurðum
>vo ef
hann
eins
auðveldur
í e
ndur
taklega
sölul
$ SUZUKI
-
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 5S5 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG
bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is