Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 Fréttir Jóhanna Thorsteinsson leikskólastjóri um tónlistaruppeldi: Börnin læra öguð vinnubrögð „Tónlist er undirstaöa andlegs og líkamlegs þroska barnsins," hefur Jóhanna Thorsteinsson, leikskóla- stjóri á Laufásborg, eftir Belganum Edgar Willems. Willems þessi hefur þróað kenningar um tónlistarupp- eldi ungra barna en þær voru grundvöllur þróunarverkefnis sem Jóhanna stjómaði á leikskólanum Kópasteini í Kópavogi árin 1991 til 1994. Á laugardaginn flutti Jóhanna erindi um þróunarverkefnið á mál- þingi Rannsóknarstofnunar Kenn- araháskólans um þróun og ný- breytni í skólum. „Öll börn, þriggja ára og eldri, tóku þátt í prógramminu sem bar mjög góðan árangur," segir Jó- hanna. „Við byrjuöum á því aö þjálfa tóneyra með því að hlusta á umhverfishljóð, líkamshljóð eins og hjartslátt og meltingaróhljóð, og sið- ast en ekki síst sígilda tónlist. Þá spiluðum við helst barokktónlist fyrir börnin en hún er taktföst og náði vel til þeirra.“ Bömin voru ekki eingöngu þjálfuð í að hlusta heldur sungu þau líka mikið. „Við æfðum taktvísi og rytma með söngvum og dansi,“ segir Jóhanna. „Böm em yfirleitt ekki gjaldgeng í kóra fyrr en þau hafa lært að lesa en bömin hafa ótrúlega gaman af tónlist og gaman af því að geta flutt tónlist. Þau em eldsnögg að læra texta og með markvissu söngstarfi tókst okkur að þjálfa prýðisgóðan kór. Eftir tóneyraþjálfunina voru börnin fljót að komast að því að það er stór munur á hávaða og kór- söng!“ segir Jóhanna. „Bömin hafa óskaplega gaman af þessu og verða kappsfull og átta sig á því að það er miklu skemmtilegra og fallegra þeg- ar allir syngja sama tóninn en ekki bara hver í sínu homi.“ Jóhanna segir að bömin hafi í tónlistarstarf- inu lært öguð vinnubrögð og gengið hraustlegar til annarrar vinnu eftir að hafa fengið útrás í söng. Jóhanna hefur farið á námskeið í Frakklandi og Belgíu til þess að læra um tónlistaruppeldi bama og fer reglulega á námskeið í Lyon. Hún segir þessar aðferðir hafa mjög góð áhrif á böm. „Börnin lærðu að tjá sig í söng, þau sungu ekki aðeins í söngstundinni heldur í rólunum og sandkassanum. Þegar við vomm að útbúa jólapappír með því að þrykkja á hann myndir varð úr taktvís dans. Tónlistin hefur svo sannarlega áhrif á allt líf bamanna. Þá sögðu foreldrar okkur það að börn sem höfðu sig hvað minnst í frammi hjá okkur sungu oft hástöf- um heima hjá sér fyrir fjölskyld- una!“ PATROL Framleiðum brettakanta, sólskyggni og boddýhluti á flestar gerðir jeppa, einnig boddýhluti í vörubíla og vanbíla. Sérsmíði og viðgerðir. ALLT PLAST IHl! Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 Hægt er að fá Norm-X setlaugar í mismunandi stærðum og litum. Setlaugamar bjóða einnig upp á fjölbreytta möguleika hvað varðar uppsetningu, umhverfi og búnað sem setja má í og við laugina. Jóhanna Thorsteinsson leikskólastjóri: „Tónlistin hefur svo sannarlega áhrif á allt líf barnanna." DV-mynd S Hafið samband og fáið sendan bækfing með fit- myndum og tæknilegum upplýsingum. Verð frá kr. 59-500. Skeiðarás við Amarvog 210 Garðabæ Stmi 565 8822 Fax 565 8777 Netfang: normi@íslandia.is H-síða: www.islandia.is/ -normi Sandra Eaton, kennari við Enskuskólann, telur krakka læra svolitla ensku fyrir framan tölvuna: Skipað fyrir á ensku „Krakkar kunna miklu meira í ensku núna heldur en fyrir nokkrum árum siðan", segir Sandra Eaton, kennari við Enskuskólann. „Fimm og sex ára krakkar tala ótrú- lega góða ensku.“ Eftir nokkra um- hugsun bætir hún því við aö réttara sé líklega að segja að þau skilji ótrú- lega mikla ensku en þurfi á skólun að halda til þess að læra að tala. „Þó eru sumir með ótrúlega sterkan am- erískan framburö eftir að hafa horft á margar amerískar kvikmyndir og aðrir meö óskilgreinanlegan fram- burð, kannski ættaðan frá einhverri teiknimyndafígúranna sem tala oft mjög undarlega." Það er misjafnt hversu fljótir krakkar eru til en Sandra segir ótrúlega marga krakka sem aldrei hafí farið út fyrir land- steinana tala eins og þeir hafí dval- ið langdvölum erlendis. „Þetta er auðvitað sjónvarpið og líklega tölvunotkunin líka því krakkamir kunna greinilega ýmsar fyrirskip- anir á ensku. Ég held aö litlir krakkar geri jafnvel ekki greinar- mun á málunum tveimur og hugsi á ensku þegar þau eru fyrir framan tölvuna." Viðbyggingin brátt fokheld. DV-mynd Þórarinn NYR SENDIBILL Neskaupstaður: Kennt á fjórum stöðum aðeins kr. 1.185.500, Ármúla 13- Sími 575 1220 - 575 1200 ■ Fax 568 3818 HYunom - til framtidar DV, Eskifirði: Nú stendur yfir viöbygging við gamla skólann okkar sem var löngu orðin timabær. Á meðan hún stendur yfir veröur kennt á fjórum stöðum í Norðfirði. í skóla- húsinu á Kirkjumel, sem er inni í sveit, safhaöarheimilinu og í verk- menntaskólanum, auk Nesskóla," sagði Einar Sveinn Ámason, skóla- stjóri í Nesskóla, í samtali við DV. Ástæðuna fyrir þessum vanda segir Ein- ar vera að hluta til snjóflóðamat sem lagt var fram síðastliðið vor og varð til þess að verkinu seinkaði til muna - verður ekki tilbúið fyrr en um áramót. Guðmundur Sigfússon, bæjartækni- fræðingur í Neskaupstað, segir verkið allt að 25 % dýrara þar sem styrkja þurfti gler og veggi. Auk þess þurfti að endurhanna bygginguna. Viðbygging- in er fyrri áfangi af tveimur til að mögulegt veröi að einsetja skólann. Einar segir að þegar verkinu verði lok- ið, það er báðum áfóngunum, verði skólinn einsetinn. Reynt veröur að koma fyrir í nýja húsnæði sem flestu sem þurft hefur að vera annars staðar. Má þar nefha tónskóla og mynd- og handmenntaskóla. Auk þess batnar að- staða kennaratil mikiUa muna. -ÞH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.