Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Side 18
18
FMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
Fréttir
Fjarkennarar 1 framhaldsskólum:
Mikil einhliða
launaskerðing
Uggur er meðal kennara sem
stunda fjarkennslu við Verkmennta-
skólann á Akureyri vegna fyrirhug-
aðra breytinga menntamálaráðu-
neytisins á launum þeirra Kennarar
telja að breytingamar muni fela í sér
um 30% launaskerðingu. I mennta-
málaráðuneytinu líta menn ekki á
breytingamar sem launaskerðingu
heldur sem kennslubreytingar og er
þeim tilmælum m.a. beint til kenn-
ara að þeir minnki persónulega þjón-
ustu við nemendur.
Hingað til hafa greiðslur fyrir fjar-
kennslu tekið mið af því að um til-
rauna- og þróunarverkefni var að
ræða og tímanotkun og álag á kenn-
ara því meira en ella. Nú gerir
menntamálaráðuneytið hins vegar
ráð fyrir því að laun íjarkennara
taki mið af launum fyrir hefðbundna
kennslu þar sem fjarkennslan sé
ekki lengur á tilraunastigi.
Snæfellsnes:
Allt blátt
og svart af
berjum
DV, Vesturlandi:
„Ég fór suður fyrir flugvöll-
inn, út fyrir Gufuskála, þar sem
heitir Gufuskálamóða. Ég fór
upp með ánni og þar er gífurlega
mikið af berjum alveg suður úr.
Ég hef aldrei séð eins mikið af
berjum síðan ég kom hingað og
oft hefur berjaspretta þó verið
mikil á þessum slóðum. Mér
skilst að það sé mikið af berjum
hér um allt Snæfellsnes. Mikið
af aðalbláberjum er viö Amar-
stapa, upp við Öxl, auk þess er
mikið af krækiberjum I hraun-
inu í kringum Arnarstapa,"
sagði Pétur S. Jóhannesson í
Ólafsvík í samtali við DV. -DVÓ
HÍK og KÍ fella sig hins vegar ekki
við þessi rök og segja aö um einhliða
launaskerðingu sé að ræða. „Kjarn-
inn í þessu máli er að laun kennara
eru ákvörðuð samkvæmt kjarasamn-
ingi og svona einhliða breytingar
eru algjörlega óásættanlegar. Einnig
eru vinnubrögðin og tímasetningin
viö þessa ákvörðun óásættanleg því
kennurum er tilkynnt um þessa
ákvörðun nítján dögum eftir að nýtt
skólaár hefst,“ segir Elna Katrín
Jónsdóttir, formaður HÍK. -GLM
Hafnarhúsið við Tryggvagötu, sem nú hýsir Listasafn Reykjavíkur, er óðum
að breyta um svip. Undanfariö hefur verið unnið að þvi' að brjóta niður
glugga hússins en til stendur að stækka þá um helming. Framkvæmdirnar
hafa að sögn gengið vel og styttist í að húsið verði komið í endanlegt form.
DV-mynd S
^ Takið þátt í \
krakkapakkaleik
Kjörís og DV!
Klippiö út Tígra og límið á
þátttökuseðil sem fæst á næsta
sölustað Kjörís krakkapakka.
Sendið svo inn ásamt
strikamerkjum af
krakkapökkum.
Nöfn vinningshafa
birtast í DV
á miðvikudögum.
KLIPPTU ÚT'
Þingvellir skarta sínu fegursta yfir sumartímann. Þessi mynd var tekin um síð-
ustu helgi þegar fjöldinn allur af fólki kom í þjóðgarðinn í góða veðrinu. Fleiri og
fleiri koma til Þingvalla ár hvert og f sumar hafa nokkrir notað tækifærið til að
baða sig naktir í Öxará til að kæla sig í hitanum. DV-mynd Þorleifur
Piltur í klandri:
Númeraplöturnar
pössuðu ekki
Eftir að lögreglan hafði veitt 18
ára ökumanni eftirfór í Reykjavík í
nótt kom í ljós að númeraplötur á
bíl sem hann ók áttu alls ekki við
viðkomandi ökutæki. Einnig kom í
ljós að pilturinn hafði ekki ökurétt-
indi og var auk þess grunaður um
ölvun við akstur. Til að bæta gráu
ofan á svart hafði pilturinn ekki
sinnt stöðvunarmerkjum lögregl-
unnar og endaði hann fór sína á
steyptum stólpa við Laugaveginn.
Málið verður rannsakað í dag.
-Ótt
íslenska járnblendifélagið:
Hagnaour
217 milljónir króna
DV Akranesi:
Hagnaður íslenska jámblendifé-
lagsins hf. varð 217 milljónir króna
á fyrstu sex mánuðum ársins. Sölu-
tekjur á fyrri helmingi ársins námu
2.056 milljónum króna, samanborið
við 2.197 milljónir króna á sama
tímabili i fyrra.
Hagnaður fyrir skatta á fyrstu
sex mánuðum ársins er 441 milljón
króna en 424 milljónir króna að frá-
dregnum eignarskatti. Heildareign-
ir félagsins námu 4.512 milljónum
króna í lok júní en voru um áramót
4.331 milljón króna. Eiginfjárhlut-
fall er 88,9% en var 82,8% i lok síð-
asta árs.
íslenska jámblendifélagið fær
endurgreiðslu frá Landsvirkjun
vegna lokauppgjörs á raforku á ár-
unum 1993 til 1997 að upphæð 207
milljónir króna. Að endurgreiðsl-
unni frátalinni nemur hagnaður fé-
lagsins 217 milljónum króna á fyrri
helmingi ársins, samanborið við 260
milljónir króna á sama tímabili í
fyrra. -DVÓ
Langur laugardagur í miðborg Reylcjavíkur
Kaupmenn, veitingamenn og aðrir þjónustuaðilar í miðborginni, athugið
Auglýsing
Næsti langi laugardagur er 5. september.
Þeim sem vilja tryggja sér plóss fyrir auglýsingu
í DV föstudaginn 4. september er bent á áb hafa
samband við Sigurð Hannesson sem fyrst
i síma 550 5728.