Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 25 DV Fréttir Heimilisiðnaðarfélag íslands: Ekki mosa- vaxnar prjónakonur - segirÁsdís Birgisdóttir Sjókettir í Reykjavíkurhöfn Kraftmiklir sjókettir hafa vafalaust vakið athygli margra sem gengið hafa um Reykjavíkurhöfnina að undanförnu. Um er að ræða tvo sjóketti en þeir komast hæglega á 130 kflómetra hraða enda búnir 135 hestafla vélum. DV-mynd S Stykkishólmur: Stóraukinn ferða- mannastraumur DV, Vesturlandi: Stóraukinn ferðamannastraumur hefur verið til Stykkishólms í sumar, að sögn Birgis Mikaelssonar, fram- kvæmdastjóra Eflingar í Stykkishólmi. „Við sjáum það hér hjá upplýsinga- miðstöðinni að það eru greinilega mik- ið fleiri ferðamenn sem sækja Stykkis- hólm heim I sumar en undanfarin sumur. Ég get nefht sem dæmi að um helgina voru hér danskir dagar sem tókust alveg frábærlega. Fyrir og eftir þá hefur verið stöðug og mikil umferð hér í bænum. Ástæðumar eru margar. Fyrst get ég nefnt Hvalfjarðargöngin. Fólk hefur ekið hingað vestur á Snæ- fellsnes og svo hefur veðrið spilað inn í. En aðalástæðuna tel ég þá að kynn- ingin á Snæfellsnesi er farin að skila sér. Hingað er margt að sækja. Ferða- menn fara mikið í siglingar. Þeir fara út í Flatey, vestur á Firði yfir Breiða- fjörðinn og um Snæfellsnesið. Gistiað- staða er ágæt hér í Stykkishólmi," sagði Birgir Mikaelsson við DV. -DVÓ Frá þjóðbúningakynningu Heimilisiðnaðarfélagsins í júní. Námskeið Heimil- isiðnaðarskólans í þjóðbúningagerð njóta sífellt vaxandi áhuga. Frá 28. umdæmisþingi Kiwanisumdæmis islands og Færeyja þar sem sam- þykkt var að verja söfnunarfé næsta K-dags til Geðhjálpar. Umdæmisþing Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar: Gjöf til Barnaspítala Hringsins Kiwanisumdæmið Ísland-Færeyj- ar hélt sitt 28. umdæmisþing dagana 21.-23. ágúst í Reykjavík. Um tvö hundruð fulltrúar frá klúbbum um- dæmisins sóttu þingið. Auk hefð- bundinna þingstarfa voru Barnaspít- ala Hringsins afhent fjögur fúllkom- in sjónvarpstæki að gjöf frá félaginu. Gjöfin er afrakstur söfnunar sem fé- lagið stóð fyrir á síðasta starfsári með framlögum frá Kiwanis-klúbb- um og stuðningi frá Japis og Sam- myndböndum. Á þinginu var m.a. samþykkt að verja söfnunarfé næsta K-dags, 10. október nk„ til Geðhjálp- ar. Af því tilefni ávarpaði Ingólfur H. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Geð- hjálpar, þingið og þakkaði Kiwanis stuöninginn. Kiwanismenn hafa af- hent söfiiunarfé frá K-dögum að upp- hæð 150 milljónir á núvirði. Lokahóf var svo haldið á Hótel Sögu þar sem margt var um manninn og skemmt- un hin besta. -hb „Áhugi fyrir þjóðbúningagerð hef- ur aukist gífurlega síðan þjóðhátíðar- árið fyrir fiórum árum og vafalaust eru margir farnir að huga að alda- mótaárinu," segir Ásdis Birgisdóttir, félagi í Heimilisiðnaðarfélaginu. Þjóð- búninga íslenskra kvenna; upphlut og peysufót, faldbúning, skautbúning og kyrtil, er hvergi hægt að kaupa til- búna og því verður fólk að leita til saumakonu - eða leggjast sjálft í saumaskap - vilji það koma sér upp þjóðlegum hátíðarklæðnaði. Heimilis- iðnaðarfélagið hefur staðið fyrir nám- skeiðum í þjóðbúningagerð um margra ára skeið en eins og fyrr seg- ir hefur markverð uppsveifla orðið í aðsókninni síðustu árin. „Það eru bæði konur og karlar sem sækja nám- skeiðin,“ segir Ásdís, og vinsælast er að sauma upphlutinn og peysufótin." Heimilisiðnaðarfélágið er áhuga- mannafélag um íslenskt handverk sem var stofiiað árið 1913. Félags- menn eru um það bil eitt þúsund um allt land og Ásdís segist ekki hafa upp- lýsingar um kynjaskiptinguna á reið- um höndum en karlkyns félagar séu þó líklega „afar fáir.“ í lögum félags- ins er meðal arrnars kveðið á um varðveislu gamalla íslenskra vinnu- bragða og er þá tekið til margra hluta er lúta að handverki og heimilisiðn- aði. „Handverksáhuginn hefur vaxið heilmikið síðustu ár,“ segir Ásdís. Heimilisiðnaðarfélagið hefúr þó ekki getað verið þátttakandi í þvi uppbygg- ingarstarfi sem hefur verriö unnið því fiárráð félagsins eru afar takmörk- uð. „Félagið er rekið með félagsgjöld- um en fær litla sem enga opinbera styrki. Við höfum sóst eftir þeim en mætum litlum skilningi. Það er kannski ljótt að segja það en það er eins og þeir sem styrkina veita séu hrifnari af nýjum bólum. Nýjungam- ar fá eftirtektina og styrkina en þetta áttatíu ára gamla félag fellur i skugg- ann.“ Heimilisiðnaðarfélagið hefur rekið skóla í tæp tuttugu ár þar sem vinsæl- ustu námskeiðin hafa verið í vefnaði, útskurði, tóvinnu og þjóðbúninga- saumi. Félagið rekur einnig litla verslun í húsi félagsins við Laufásveg þar sem selt er efni til þjóðbúninga- gerðar og vefnaðar. Ásdís, sem er verslunarstjóri þar, segir að það krefi- ist töluverðrar sérkunnáttu að þjón- usta þá sem leggi stund á þjóðbún- ingagerð. „Það eru ýmsir aukahlutir sem tilheyra þjóðbúningnum sem þarf að hafa vit á og eins þarf oft sér- stakt efni í búningana. Þessir hlutir, ásamt þekkingu á þeim, verða að vera til á einum stað.“ Ásdís, sem er virkur félagsmaður í Heimilisiðnaðarfélaginu, lærði textíl í myndlista- og handíða- skólanum og er „á viss- an hátt alin upp innan banda félagsins. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á því sem gam- alt er; ætli það sé ekki í blóðinu.“ Ásdís segir að það sé engin fortíð- arþrá sem ýti mönnum út í þennan félagsskap heldur virðing fyrir hinu gamla. Hún segir yngra fólk farið að sýna félaginu meiri áhuga á síðustu árum. „í hugum margra era það mosavaxnar prjónakonur sem skipa heimilisiðnaðarfélagið en það er ekki rétt. Þó nafnið sé kannski gam- aldags er félagsskapur- inn það ekki.“ Félagið hefúr lagt áherslu á að tengja gamlar íslensk- ar aðferðir nýjum hug- myndum og hefúr boð- ið upp á ýmis nám- skeið sem ekki tengjast fornum íslenskum vinnubrögðum. „Þetta er auðvitað þjóðlegt í bland en við látum ekki stjórnast af neinni þjóðemisrembu." Aðalatriðið er áhugi fyrir handverki. „Það er viss nautn fólgin í því að virða fyrir sér fallega handgerða hluti, hvað þá að kunna að búa þá tiL“ Ásdís Birgisdóttir á upphlut. „Þetta er auðvitaö þjóðlegt í bland en við látum ekki stjórnast af neinni þjóðernisrembu." DV-mynd Teitur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.