Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Page 23
4
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
27
Fréttir
Stykkishólmur:
Danskir dagar vinsælir
DV, Stykkishólmi:
Mikið íjölmenni var í Stykkis-
hólmi dagana 14.-16. ágúst á Dönsk-
um dögum. Veður var gott og vel
skipulögð og fjölbreytt dagskrá var í
boði fyrir alla. Hátíðin var nú hald-
in í fimmta sinn og hefur öðlast
sinn fasta sess i lífi bæjarins.
Götumar iðuðu af mannlífi alveg
frá þvi hátíðin var sett á fóstudegi
og þar til henni lauk á sunnudegi og
fór allt hið besta fram. -B.B
Sandgerði:
Skrúðgangan skrautlega.
DV-mynd Birgitta
Húsnæði óskast keypt
Höldur hf. leitar eftir 3-4 herbergja
húsnæði til kaups fyrir starfsmann.
ÓskaS er eftir raðhúsi, parhúsi eða
hæÖ með sérinngangi.
Ajlar upplýsingar gefa:
Baldur Agústsson í síma, 568 6915
Steinar Birgisson í síma7 461 3000
Niðurfelling
opinberra
gjalda
DV, Suðurnesjum:
Sýslumaðurinnn í Keflavik sendi
bréf nýlega til bæjarráðs Sandgerð-
isbæjar um beiðni til heimildar til
afskriftar útsvarshluta opinberra
gjalda. Afskriftarnefnd fjármála-
ráðuneytisins og Ríkisendurskoðun-
ar hefur fallist á að fella niður opin-
berar kröfur hjá fjórum einstakling-
um og einu fyrirtæki í Sandgerði.
Sandgerðisbær verður fyrir
tekjumissi en útsvarshluti einstak-
linganna eru rúmar 555 þúsund og
útsvarshluti fyrirtækisins er rúmar
208 þúsund. Bæjarráðið samþykkti
niðurfellinguna. -ÆMK
DV, Þórshöfn:
Birkir Yngvason með hluta af net-
inu. DV-mynd Halldór
Net yfir
Keikó
Netagerðin Ingólfur á Þórshöfn
framleiddi á dögunum net sem
stengt er fyrir Klettsvíkina, framtíð-
arheimili Keikós í Vestmannaeyj-
um. Netið verður 275 metra langt og
13,5 metra djúpt Að sögn Birkis
Yngvasonar, framkvæmdastjóra
netagerðarinnar, tekur verkið um
viku. -HAH
Á heimleið úr Smugunni:
Minni þrýstingur
á samninga
- segir Kristján Ragnarsson
Meirihluti þeirra skipa sem héldu
til veiða í Smugunni á dögunum er
á leið heim með lítinn afla. Hafa
veiðarnar gengið illa. Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir
þessa stöðu geta haft áhrif á samn-
ingsstöðu okkar við Norðmenn um
Smuguna.
„Smugumálið biður eins og er.
Veiðamar ganga ekki vel nú og
gengu heldur ekki vel í fyrra.
Þorskstofninn í Barentshafi er
veikari og Norðmenn hafa ekki vilj-
að gera neitt i því. Ef ekki semst um
veiðar þama bíður okkar réttur. En
það er ljóst að þrýstingur á málið
minnkar þegar minni sókn er á mið-
in,“ sagði Kristján við DV. -hlh
-• '*
Viðtal við Möggu Stínu
Alda slær íslandsmet
Bjarkar
- árangur íslendinga á
breska lístanum
Hvers konar fólk erum
við að tæla til íslands
Dómar um íslenskar
spennumyndir