Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Page 2
2
ETMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
Fréttir_____________________________________
Flugstjóri C-17 risavélarinnar sem lenti i Eyjum i gær óttaðist „hið óþekkta“:
Ég var tauga-
strekktur fyrir fram
- vitum það núna að gott er að lenda á vellinum
“Lendingin verður mun harka-
legri en það sem þið eruð vön.
Spennið því beltin vel,“ sagði stjóm-
andi í hinni risavöxnu C-17 Glo-
bemaster flutningavél við á þriðja
tug farþega, aðallega fréttafólk, áður
en henni var lent á Vestmannaeyja-
flugvelli í gær. Stuttu síðar sagði
Bandaríkjamaðurinn: 300 fet, 200
fet, 100 fet, og svo 50 fet. Örstuttu
síðar var stundin runnin upp. Vélin
var að lenda. Farþegamir fundu
strax að gríðaröflugt hemlakerfið
var nýtt til hins ýtrasta þannig að
fólk hallaðist fram, líkt og í bil sem
er stöðvaður snöggt.
„Ég var fyrirfram dálítið spennt-
ur og heldur taugastrekktur," sagði
Tim Harris flugstjóri í samtali við
blaðamann DV eftir lendinguna.
„En við höfðum myndir af flug-
brautinni og þetta er nákvæmlega
það sem við erum þjálfaðir til að
gera. Mér fannst tilfinningin góð
þegar ég lenti vélinni. Þetta var
mikii áskomn. Síðan gekk allt eins
og ætlast var til,“ sagði flugstjórinn.
„Ef ég hefði slakað minna á heml-
unum eftir að við voram lent hefði
vélin sennilega stöðvast innan við
þrjú hundrað metra frá fyrstu snert-
ingu. En ég reikna með að við mun-
um nota heldur meiri vegalengd á
Nolan Harvey hjá Free Willy Keikó:
Fyrstu 60 mínúturnar
mest spennandi
Tim Harris flugstjóri, til hægri, var mjög ánægður eftir að hafa lent risavélinni í Vestmannaeyjum í gær. Hann er hér
aö undirbúa brottför frá Eyjum ásamt Randy Huiss flugmanni. DV-mynd BG
flugbrautinni þegar við lendum með
Keikó í næstu viku. Vélin verður
jafnþung þá. Ég hlakka til að takast
á við það verkefni. Við viljum virki-
lega ljúka við það,“ sagði Harris.
Flugstjórinn sagði að fyrirfram
hefði hann mest óttast hið óþekkta
áður en hann lenti í Eyjum - og
klettana við enda flugbrautarinnar.
„Þess vegna notuðum við svona
stutta vegalengd. Ég óttaðist líka að
flugvélin gæti rannið meira til en
hún gerði. Síðan kom í ljós að braut-
in er mjög góð. En ég vildi bara vera
viss um að við gætum stöðvaö okk-
ur.“
Aðspurður um fimmtudaginn í
næstu viku, þegar lenda á með
Keikó í Eyjum, sagði Harris: „Þegar
veðurspáin lofar góðu munum við
leggja af stað frá vesturströnd
Bandaríkjanna með Keikó og vona
það besta þegar hingað kemur. Við
viljum virkilega lenda hér með
hann. Ég get ekki neitað því að
vissulega hef ég nú meira sjálfs-
traust. Ég hef oft lent í Keflavík og
er því ekki ókunnugur íslandi. En
við vitum það núna að mjög gott er
að lenda á vellinum í Vestmanna-
eyjum,“ sagði Tim Harris.
Verði ekki hægt að lenda í Eyjum
með Keikó verður lent í Keflavík og
Keikó fluttur með bíl til Þorláks-
hafnar og þaðan með Herjólfi til
framtíðarheimkynna sinna.
-Ótt
Amy Robach í Vestmannaeyjum í gær.
„Mér finnst eins og það séu deildar
meiningar hjá íslendingum um komu
Keikós hingað. Allir virðast þó
spenntir að sjá hvort feröamanna-
straumur muni aukast og ísland kom-
ist „á landakortið". Hins vegar sýnist
mér mörgum Islendingum finnast að
peningunum, sem er eytt í Keikó,
mörgum milljónum Bandaríkjadala,
væri betur varið í mannúðlegri verk-
efni - að fæða og klæða þá fátæku. Af-
staða fólks heima í Bandaríkjunum
til flutnings Keikó er mjög frábrugðin
skoðunum íslendinga. Fólki vestra
flnnst Keikó bara sætt dýr sem hefur
verið stjama í kvikmyndinni Free
Willy,“ sagði Amy Robach, sjónvarps-
fréttakona frá WCBD sjónvarpsstöð-
inni í Suður-Karólínu, í samtali við
DV í gær.
„Á minni sjónvarpsstöð byrjuðum
við að fjalla um Keikó þegar það frétt-
ist að C-17 vélin, sem er staðsett
heima hjá okkur í Charleston í Suð-
DV-mynd BG
ur-Karolínu, ætti að flytja hann til ís-
lands. NBC mun sennilega sjónvarpa
beint héðan í næstu viku. Stöðin mun
senda nokkra fréttamenn hingað. Ég
vona að ég verði einn þeirra," sagði
Amy sem flýgur vestur til Bandaríkj-
anna með C-17 vélinni í dag.
„Ég held að Keikó sé mjög mikil-
vægur fyrir þá sem standa að því að
flytja hann til íslands. Engu að síður
er ég sammála mörgum íslendingum
um að peningunum gæti verið varið í
annað. Samt sem áður era þetta pen-
ingar þeirra sem láta sig varða vís-
indi og velferð þessa háhymings. Það
er mikið verkefni að ráðast í að flytja
rúmlega 20 ára hval heimshoma á
milli. Fyrir mér er hann bara dýr. En
þetta eru hans heimkynni. Héðan er
fjölskylda hans. En það er frábær
reynsla að fá að koma hingað og stað-
urinn sem Keikó verður í Klettsvík er
hreinlega frábær. Mér líst mjög vel á
hann,“ sagði Amy Robach -Ótt
„Ég held að fyrstu 60 mínútiuuar
verði mest spennandi þegar Keikó fer
í kvína í Klettsvík.
Ég vona að hann muni gera það
sama þá og hann gerði þegar hann
kom í laugina í Oregon. Þá synti
hann lengi um og skoðaði umhverfið.
En fólk verður að hafa í huga að nú
mun Keikó í fyrsta skipti, frá því
hann var um tveggja ára, fara í raun-
Nolan Harvey.
verulegan sjó í náttúrulegu umhverfl.
Þá mun hann heyra hljóð sem hann
hefur ekki heyrt lengi. Það verður
spennandi að fylgjast með viðbrögð-
um hans," sagði Nolan Harvey, eftir-
litsmaður hjá Free Willy Keikó-sam-
tökunum, á flugvellinum í Vest-
mannaeyjum í gær.
„Lendingin gat ekki veriö betri,"
sagði Harvey. „Hún var tilkomumik-
il. Þegar við horfðum á C-17 vélina
koma að flugvellinum höfðum við
lengi haft af því áhyggjur hvemig
tækist til. En flugstjórinn gerði þetta
frábærlega. Ég veit að honum líður
mun betur núna. Nú vitum við að
vindur skiptir ekki öllu máli í næstu
viku en rigning verður óhagstæðari.
Siðan er mér sagt að skyggnið þurfi
að vera um 500 metrar.“
Aðspurður um vangaveltur og spá-
dóma margra hér á landi um að
Keikó eigi eftir að deyja í sjónum hér
á landi sagði Harvey:
„Ég held að Keikó eigi eftir að
spjara sig. Ég hef verið með honum
frá því að hann kom til Oregon.
Klettsvík er yndislegur staður. Hér
verður veður vont en slíkt gerist líka
í Oregon, stormur, regn og kuldi.
Kvíin hér í Vestmannaeyjum er
mun stærri en núverandi laug. En
Keikó á eftir að vera miklu meira
neðansjávar en á yfirborðinu. Út á
það gengur þetta allt. Það verða fimm
manns að vinna með Keikó allan sól-
arhringinn. Það verða hús á kvínni
og þar verða alltaf að minnsta kosti
tveir starfsmenn. Þar getur fólk dval-
ið þegar veður verða vond. Ég tel okk-
ur hafa allt til að gæta hans.“
-Ótt
Sjónvarpsfréttakonan Amy Robach:
Afstaða íslendinga
frábrugðin okkar
Stuttar fréttir r>v
Vantar lækna
Ólafur Ólafsson landlæknir
sagöi í fréttum
RÚV að allt yröi
gert til þess að
ráða lækna til
starfa í Norður-
Þingeyjarsýslu.
Hann telur að
kynna þurfi
kjör lækna hér
á landi fyrir íslenskum læknum
á Norðurlöndum. Tvær lækna-
stöður og þrjár stöður fyrir hjúkr-
unarfræðinga eru ómannaðar í
sýslunni.
Staðgengill ráðinn
Undirbúningsnefnd að stofnun
íbúöalánasjóðs réð í gær Hrólf
Ölvisson starfsmann sinn við að
hleypa stofnuninni af stokkunum.
Guðmundur Bjamason kemur til
starfa sem framkvæmdastjóri 15.
mars.
Meira má rigna
Miklar rigningar sem gengið
hafa yfir Suðurland að undan-
fómu hafa haft lítil áhrif á vatns-
búskap Landsvirkjunar til hins
betra. Til skerðingar mun koma á
orkuframleiðslu fyrirtækisins
eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Bylgjan sagði frá.
Kennarar reiöir
Ólga er meðal kennara í Iðn-
skólanum í Reykjavík eftir að
skólameistari neitaði að endur-
ráða formann kennarafélagsins
sem hafði gegnt stöðu trúnaðar-
manns. Félag framhaldsskóla-
kennara telur kennarann vera lát-
inn gjalda starfa sinna í þágu
kennara skólans. RÚV sagði frá.
Kæru vísað frá
Landstjórn Framsóknarfokks-
ins vísaði á
miðvikudag frá
kæru Félags
ungra fram-
sóknarmanna í
Reykjavík á
hendur Árna
Gunnarsyni
sem er nýkjör-
inn formaður SUF. Ungir fram-
sóknai-menn í Reykjavík töldu að
kjör Árna í embættið hefði ekki
verið löglegt. Bylgjan greindi frá.
Sjúkraflug vestra
íslandsflug mun sjá um sjúkra-
flug á Vestfjörðum til loka næsta
árs. Samningur um þetta var
geröur á miðvikudag á milli flug-
félagsins, Tryggingastofnunar og
Heilbrigðisráðuneytisins. Sjúkra-
flugvél verður á ísafirði.
Kjötbollur úr Keikó
Einn af þeim sem stóð aö því að
fanga háhyminginn Keikó, Jón
Kr. Gunnarsson, lýsir því í grein
í Hafharfjarðarblaðinu Nýtt Viö-
horf að hægt væri að vinna úr
hvalnum þrjú tonn af kjöti og gefa
sveltandi bömum í Súdan 60 þús-
und hvalkjötbollur. Hann kallar
flutning Keikós hingað til lands
hræsni sem kosti 200 milljónir
króna á meðan milljónir barna
úti um allan heim svelti.
Almenningi lánað
Hluthafafundur Landsbankans
ákveður í dag 15% hlutafjáraukn-
ingu. Féö verður boöiö almenn-
ingi til kaups ásamt því að nýir
lánaflokkar til hlutabréfakaupa
verða stofnaöir. Morgunblaðið
sagði frá.
Heiðni á Þingvöllum
Ásatrúai-menn ætla aö halda
heiðna hátíð á
þingvöllum árið
2000. 2000 er-
lendir gestir
munu koma til
hátíðarinnar,
að sögn Jörm-
undar Inga
Hansen allherj-
argoða.
Óráðlegt að lækka
Ekki er víst að ráðlegt sé að
lækka sektarmörk fyrir ölvun-
arakstur niður fyrir 0,03 prómill,
að mati Þorkels Jóhannessonar
prófessors. Þá yrði að vara við
neyslu óáfengs öls jafnframt.
Morgunblaðið segir frá.
-SÁ