Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 Fréttir Lýðræðisflokkur Sverris boðar stefnu í öllum helstu málaflokkum: Munum stjórna með handafli - segir Sverrir Hermannsson um sjávarútvegsstefnuna Sverrir Hermannsson er ómyrkur í máli þegar kemur að skattgreiðslum út- gerðarfyrirtækja. Fjandinn þakki þeim að greiða skatta, segir hann. „Við munum móta stefnu í öllum höfuðþáttum stjórnmála. Þar fyrir framan kemur gjörbreyting á fisk- veiðistjórnuninni," segir Sverrir Hermannsson, leiðtogi hins nýja Lýðræðisflokks sem formlega verð- ur stofnaður á haustdögum. Eins og DV skýrði frá eru margir tilnefndir til ábyrgðarstarfa fyrir hinn nýja flokk. Meðal þeirra sem taldir eru upp eru þjóðþekktir ein- staklingar á borð við Eggert Hauk- dal, Hrafnkel A. Jónsson, Guðjón A. Kristjánsson og Matthías Bjama- son. Það sem vekur upp flestar spurningar við Lýðræðisflokk Sverris er það hver stefna flokksins í sjávarútvegsmálum verður. Kvóta- kerfið og meint ranglæti af völdum þess var tilefni þess að Sverrir tók höndum saman viö Samtök um þjóðareign um að efna til framboðs. Samtökin voru á sínum tima stofn- uð vegna óánægju með kvótakerfið en forystumönnum þess hefur allar götur síðan verið legið á hálsi fyrir að boða ekkert í staðinn en vilja að- eins afnema kerfið. Sverrir segir flokk sinn hafa sett saman stofn- samþykkt sem hafi að geyma grunn- stefnuna. Hann hafnar alfarið auð- lindaskatti. „Fiskveiðistjómunin er á oddin- um en mig varðar ekkert um auð- lindaskatt sem er útrætt mál. Við viljum fá arð af eigninni okkar, þjóðin en auðlindaskattur er ekki mitt prógramm. Arðurinn kemur í gegnum fyrirtækin," segir Sverrir. Stjórnað með handafli Aðspurður um það hver raun- veruleg stefna samtaka hans í sjáv- arútvegsmálum sé segir Sverrir að beita verði handafli við stjóm fisk- veiða fyrst eftir afnám kvótakerfis- ins. „Það er enginn vafi á því að við verðum að beita handafli í þessum málum fyrst og handstýra um all- mörg ár. Við verðum að leyfa þorp- unum að njóta aðstöðu sinnar með aðgangi að hefbundnum fiskimið- um. Það verður að hindra brottkast á flski og raunar úrgangi. Við þurf- um auðvitað að takmarka sókn. t.d. togaranna, á því hvert þeir mega sækja,“ segir Sverrir. Hann segir nauðsynlegt að efla rannsóknir og gefur í skyn að stefn- an undanfarin ár hafi leitt sjávarút- veginn í ógöngur. „Ég er að taka saman upplýsingar um hvert vemdarstefnan hefur leitt okkur. Afrakstur af miðum okkar er slíkt smáræði sem var meðan sókn var óheft að það hlýtur að vera meira en lítið tortyggilegt. Árið 1970 eða 1971 lýstu fiskifræðingar því yfir að ef farið yrði að ráðum þeirra gætum við sótt jafnstöðuafla sem nemur 500 þúsund tonnum á ári. Nú er verið að fagna stórum seiðastofni en það skyldi þó ekki vera að hann verði fæða fyrir stórþorskana sem fylla hvern vog og hverja vík?Það er alveg ótrúlegt að horfa yfir þetta svið. Þetta er eins og Bismarck sagði: „Þetta er verra en glæpur. Þetta er heimska," spyr Sverrir. Ríkið láni ábyrgðir Hann segir ljóst að semja verði um þá stefnu sem tekin verði upp í stað kvótakerfisins. Þannig verði sest niður og samið við viðkomandi aðila strax og ákvörðun um breyt- ingar hafi verið tekin. Aðspurður um það hvort ekki þurfi að bæta þeim skaðann sem keypt hafi veiði- heimildir og efnt þannig til mikilla skulda segir hann það ekki vera óleysanlegt vandamál þar sem ríkið eigi stærstan hlut i Landsbankan- um þar sem flest útgerðarfélög eigi viðskipti sín. „Ríkið á Landsbankann sem á 65 prósent af þessu öllu saman. Ríkið verður bara að lána sínar ábyrgðir á meðan breytingin nær fram að ganga og það er ekki nokkur vandi. Allt tal um gjaldþrot banka er rugl í mönnum sem ekki vita ekki hvem- ig þeir eiga að bregðast við þegar þeir finna að það er að skriðna und- an fótunum á þeim,“ segir Sverrir. Hann segir áriðandi að skapa sátt um fiskveiðistjórnunina í þjóðfélag- inu áður en allt fari á annan end- ann: „Ef við ekki leysum þetta mál með samningum verður uppreisn í þjóðfélaginu og ég er dauðhræddur við tal sumra manna vegna þess að eitt vil ég ekki hugsa til enda og það er að menn fari að brjóta lög. Ef það brestur á að trillumenn, sem eiga að fá að róa í 9 daga, hefji óheftar veið- ar þá veit ég ekki hvað menn ætla að gera. Ætla þeir að fylla fangelsin af þeim?“ spyr Sverrir. Fjandinn þakki þeim Hann segist hafa hrokkið við þeg- ar Stöð 2 birti um það frétt á besta útsendingartíma að eitt stærsta sjáv- arútvegsfyrirtæki íslendinga myndi líklega greiða skatta á næsta ári. „Nú auglýsa menn upp að Sam- herji ætli að fara að borga skatta. Það er eins og það sé einhver sér- stakur greiði við þjóðfélagið. Svo segja þeir að næst muni miklu fleiri borga. Það er einmitt það, segi ég bara. Fiandinn þakki þeim að borga skatta," segir Sverrir Hermannsson. -rt Fréttastofan sér um fréttirna Enda þótt gúrkutíð ríki í fréttum og fátt beri til tíðinda hefur frétta- stofa ríkissjónvarpsins haft lag á því að fram- leiða fréttir handa sjálfri sér og öðrum fjölmiðlum til uppfyllingar. Þar er fremstur í flokki frétta- stjórinn, Helgi H. Jóns- son, sem verið hefur fréttastjóri í afleysing- um. Helgi hefur starfað lengi sem fréttamaður sjónvarps og haft frekar takmörkuð ráð til að búa til fréttir af sjálfum sér þar til hann leysti Boga Ágústsson af sem fréttastjóri. Þá hófst ball- ið sem einkum er fólgið í þvi að Helgi er sakaður um hlutdrægni i aðdrag- anda borgarstjórnar- kosninganna og hélt maður um tíma að Sjálfstæðis- ílokkurinn hefði tapað kosningunum í sjónvarpinu en ekki í kjörklefanum, miðað við þær upphrópanir sem flokksmenn þar á bæ höfðu um framlag Helga til þeirrar kosningabaráttu. Ekki veit Helgi H. hvaðan á sig stendur veðrið enda illt undir því að sitja að hafa sigrað í borgar- stjórnarkosningum án þess að hafa verið í framboði. Þrátt fyrir margvíslegar rannsóknir, úttektir og samantektir hefur Sjálfstæðisflokknum enn ekki tekist að sanna að það hafi verið Helgi sem sigraði í kosningunum en ekki Ingibjörg Sólrún og Ingi- björg situr enn í borgarstjóm og Sjálfstæðisflokkur- inn er þar enn í minnihluta og Helgi hefur fram til þessa setið sem fastast sem fréttastjóri. Nú hefur hins vegar dregið til þeirra tíðinda að ungur maður, Sigurður Ragnarson að nafni, sem starfað hefur á fréttastofunni, hefurfkært Helga til útvarpsstjóra og sakað hann um sömu hlutdrægn- ina og Sjálfstæðisflokkurinn gerði áður og snýst nú málið um það að Helgi hafi beitt valdi sínu sem fréttastjóri tO að þegja um meintan flknisefnasala sem á að hafa selt skólabörnum fikniefni í skóla- portum rétt fyrir kosningamar. Þetta telur Sigurð- ur alvarlegt brot á fréttamennsku, hvernig svo sem það nú tengist borgarstjórnarkosningunum. Sigurður þessi er einn af umsækjendum um fasta stöðu fréttamanns á þessari sömu fréttastofu og kann það að vera liður í umsókn hans að vinna sig í álit hjá Sjálfstæðisflokknum með þvi að klekkja á Helga H. enda þótt það sé nokkur nýlunda í umsókn- um um störf að rakka niður þá yfirmenn sem um- sækjendur vilja starfa hjá. Því er nú verr og miður fyrir Sigurð aðHelgi mun fljótlega láta af störfum sem fréttastjóri og Bogi taka við aftur og mun því upphefð Sigurðar ekki geta komið í staðinn fyrir útreið Helga. En auðvitað get- ur útvarpsráð, útvarpstjóri og Sjálfstæðisflokkurinn haldið bálför sinni að Helga H. Jónssyni áfram með- an til erum ungir menn sem sækjast eftir störfum hjá þessari stofnun og hafa geð í sér til að kæra fréttastjóri, sjálfum sér til framdráttar. Ekki síst ef þeir tilheyra Sjálfstæðisflokknum sem telur sig hafa tapað kosningunum á fréttastofu sjónvarpsins. Dagfari Stuttar fréttir i>v Islandsflug í Karíbahafi íslandsflug hf. hefur gert samning við Air Gudalupe um útleigu á Boeing 737-200 þotu með áhöfn 1 a.m.k. fjórtán mánuði, frá 1. des. Að sögn Ómars Bendedikts- sonar, framkvæmdastjóra íslands- flugs, tryggir samningurinn ís- landsflugi 500 milljóna króna tekj- ur. Viðskiptablaðið sagði frá Enn slök skil Aðeins um eitt þúsund af yfir átta þúsund skilaskyldum félögum hafa skilað ársreikningum sínum til félagaskrár hjá Rikisskattstjóra. Síðasti lögboðni frestur til þess rann út í gær. Viðskiptavefúr Vís- is sagði frá. Undir útboðsgengi Hlutabréf í íslenska jámblendi- félaginu hf. voru seld á genginu 2,48 á Verðbréfaþingi Islands í gær, eða undir útboðsgenginu 2,50 sem nýir hluthafar keyptu bréf á af ríkinu í maí sl. Viðskiptavefúr Vísis sagði frá. Lánar meira Veitt lán Byggðastofnunar námu um 900 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins og er það nokkru meira en veriö hefúr á sama tímabili á fyrri árum, að sögn Guðmundar Malmquists, for- stjóra stofnunarinnar við Við- skiptablaðið. Davíð heiðraður Evrópusam- tök ungra hægri manna, EYC, hafa ákveðið að heiðra Davíð Oddsson for- sætisráðherra á sérstökum frelsiskvöldverði í Reykjavik laug- ardaginn 26. september. Morgun- blaðið sagði frá Vantar 130 Hjúkrunarfræðinga vantar í um 130 stöðugildi á stóru sjúkrahúsin tvö í Reykjavík. Vegna þessa gæti þurft að draga úr þjónustu. Tvær af þremur læknastöðum í Norður- Þingeyjarsýslu eru ómannaðar. Heimamenn segja að neyðarástand ríki. RÚV sagði frá. Minni hagnaður Hagnaðurinn fyrstu sex mánuð- ina hjá félögum á aðallista Verð- bréfaþings íslands var 2.984 millj- ónir í ár en var 2.667 milljónir í fyrra. Hann hefur því minnkað um rúman hálfan mUJjarð. Viðskipta- vefur Visis sagði frá. Lægri bætur Árið 1996 var fómarlömbum of- beldisbrota greiddar tæplega 15,4 milljónir í bætur samanlagt í 43 málum. Á síðasta ári vora hins vegar greiddar út tæplega 38 miUj- ónir. Samanlagt hafa því verið greiddar tæplega 53,3 milljónir króna í bætur til fómarlamba of- beldisverka. Þetta er minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sáralítið af fénu innheimtist frá ofbeldis- mönnunum. Skelfilegt Varaforseti Free Willy sam- takanna vonast til þess að ís- lendingar taki hlýlega á móti Keikó þegar hann kemur til landsins í næstu viku. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir skelfilegt til þess að vita að hluti heims- byggðarinnar hafi meiri áhyggjur af hvölum en fólki. KEA í Mjöddina Samkeppni á matvörumarkaðn- um harðnar enn á höfuðborgar- svæðinu í dag þegar Kaupfélag Ey- firðinga, KEA, opnar nýja verslun í Mjóddinni. KEA keypti fyrr á ár- inu húsnæði verslunarinnar Kaupgarðs í Mjódd. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.