Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Page 7
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
7
sandkorn
Fréttir
Hvíslað um Steingrím
Lýðræðisflokkur Sverris Her-
mannssonar er nú um það bii að
hefja sig til flugs. Eins og DV greindi
frá í gær er nokkurt lið valinkunnra
manna þegar komið
á framboðsbuxur
með bankastjóran-
um fyrrverandi.
Þarna eru menn
sem tengjast ís-
lenskri stjórn-
málasögu undan-
farinna áratuga,
svo sem Eggert
Haukdal, Hrafnkell A.
Jónsson og Guðjón A. Kristjáns-
son. Einn er sá þungavigtarmaður
sem hvíslað er um að hafi hjartað
Sverris megin. Þar er á ferð gamli
forsætisráðherrann Steingi'ímur
Hermannsson sem fram aö þessu
hefúr ætíð stutt Framsókn. Stein-
grímur sjálfur verst alira fregna en
sú staðreynd að skjólstæðingur
hans, Pétur Einarsson, fyrrum flug-
málastjóri, hyggur á framboð með
Sverri þykir vísbending um að gamli
leiðtoginn sé ekki fráhverfur Sverri.
Þá skemmir ekki fyrir að kuldi ríkir
milli forystu Framsóknar og Stein-
gríms sem talað hefur gegn flokkn-
um í mörgum stórum málum ...
Þriðja myndverið
Bæði Friðrik Þór Friðriksson og
Saga-Film vilja setja á stofn kvik-
myndaver á íslandi, eins og DV
sagði frá á mánudaginn. Nú heyrist
að þriðja kvik-
myndaverið kunni
að vera á döfinni. Sá
sem er nefndur í
þvl sambandi er
Björn Emilsson
sem hefur unnið
við dagskrárgerð
hjá Sjónvarpinu
og er þaulreynd-
ur á því sviði. Hann
mun vera að láta af störfum þarf til
að freista þess að gera gamlan
draum sinn um kvikmyndaver að
veruleika ...
Pólitísk pirra
Mikill pirringur varð innan
stjórnarflokkanna vegna ítarlegra
fregna DV í síðustu viku af áformum
sjálfstæðismanna í bankamálunum
enda heyrðu þing-
menn Framsóknar-
flokksins fyrst af
þeim i DV. Formað-
ur þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins,
Sigríður Anna
Þórðardóttir,
mun hafa full-
vissað þingmenn
Framsóknar um að
ekkert hefði verið samþykkt á fundi
þeirra á Akureyri. í viðtali sem DV
tók við ráðherraefnið Valgerði
Sverrisdóttur klukkan hálfníu á
fóstudag sagði hún að fregnir um
málið væru byggðar á misskilningi.
Röskum tveimur stundum síðar hélt
svo Finnur Ingólfsson blaðamanna-
fund þar sem hann staðfesti allar
fregnir DV af málinu dagana á und-
an. Veruleikinn er grimmur ...
Ingvi Hrafn öruggur
Annað kvöld verður nýr formaöur
Heimdallar kosinn í staö Hluga
Gunnarssonar sem er á fórum til
náms í Bretlandi ásamt unnustu
sinni, Brynhildi Ein-
arsdóttur. Sam-
kvæmt þeim heimild-
um sem Sandkom
telur öruggar er víst
að Flateyringurinn
Ingvi Hrafn Ósk-
arsson verður kos-
inn. Illugi mun
mjög sáttur við
þann arftaka enda er Ingvi
pólitískur fóstursonur hans.
pólitísku rætur þeirra félaga liggja á
óðali Einars Odds Kristjánssonar
alþingismanns, Sólbakka, hvar þeir
hafa frá bamsaldri numið þau fræði
sem nú duga þeim til metorða meðal
ungra sjálfstæðismanna...
Hrafn
Hinar
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Þorskstofninn í uppsveiflu en aðrar tegundir á húrrandi niðurleið:
Rjúkandi rúst og
rífandi uppgangur
- kvóti fyrir hátt í milljarð óveiddur og féll dauður
Tugþúsunda tonna kvóti féll
dauður þegar nýtt kvótaár byrjaði.
Reikna má með að heildarleiguverð
kvótans slagi hátt í milljarð króna
þegar allt er talið. Þrátt fyrir að
þorskstofninn sé i rífandi upp-
sveiflu, að mati veiðimanna sem og
vísindamanna, verður ekki annað
séð á tölum Fiskistofu en að fjöldi
annarra tegunda sé í eða við hrun.
Þannig er svo að sjá að stofn úthafs-
rækju sé mjög illa farinn. Þetta má
marka af því að af þeim 79 þúsund
tonnum sem úthlutað var til kvóta
veiddust aðeins tæplega 59 þúsund
tonn. Útgerðum tókst að geyma til
næsta árs rúm 13 þúsund tonn en
7400 tonna kvóti féll dauður. Þorsk-
urinn er ein örfárra tegunda þar
sem uppistaða kvótans veiðist. Að-
eins féllu tæp 500 tonn dauð en svo
er að sjá að þar sé um að ræða
klaufaskap þar sem geymsluheim-
ildir þorskkvóta eru ekki fuilnýttar.
14.000 tonn
12.000 —
10.000
8.000----
6.000
4.000 —-
2000 1790
■
o-EH
Dauður kvóti og geymdur
- fiskveiðiáriö '97 til '98 -
i geymslu
Fellur dautt
5839
5469
3188
..„J |
1lA
40000
30000
20000
10000
0 ....
Síld
Aflamark 117615
&
1407 jjj| 1233
670
M
Þriðjungur síldarkvóta dauður
Annað ekki síður sláandi dæmi
er af síldinni þar sem úthlutað var
rúmlega 117 þúsund tonnum. Að-
eins veiddist rúmlega helmingur
kvótans, eða 64 þúsund tonn. Alls
féll dauður síldarkvóti sem nemur
35 þúsundum tonna þegar 18 þús-
und tonn höfðu verið geymd til
næsta árs. í báðum þessum tegund-
um höfðu útgerðir barist um á hæl
og hnakka til að
ná kvóta sínum en
ekki tekist. Verð-
mæti hins dauða
síldarkvóta nemur
350 milljónum
króna ef miðað er
við leiguverð sem
nemur 10 krónum
á kílóið. Engar
visbendingar hafa verið um að illa
væri komið fyrir sildarstofninum
og hefur ráðgjöf fiskifræðinga verið
fylgt i hvívetna varðandi veiðarnar.
Aðrar tegundir sem brösuglega
hefur gengið að veiða eru ufsi, ýsa,
steinbítur, karfí, skarkoli og skráp-
flúra. í öllum þessum tegundum fell-
ur kvóti dauður sem nemur þúsund-
um tonna. Það er auðvitað vísbend-
ing um tilvistarkreppu þeirra. Gróf-
lega reiknað nemur tjón útgerða
vegna dauða kvótans hátt í milljarði
króna. Tjón þjóðarbúsins í heild er
síðan miklu meira og kemur fram í
minni útflutningi en lagt var upp
með í upphafí síðasta kvótaárs.
Röng fiskveiðistefna?
Meðal sjómanna er þau sjónar-
mið uppi að uppgjör kvótaársins
sýni öðru fremur að kolvitlaus fisk-
Þorskur Ýsa
Aflamark 159449 38791
veiðistefna hafi ráðið ferðinni und-
anfarin ár. Sú áhersla sem lögð
hafi verið á uppbyggingu þorsk-
stofnsins með harkalegum niður-
skurði hafi kostað gífúrlega sókn í
aðrar fisktegundir sem nú hafi lát-
ið undan síga. Þá hafi það kostaö
þjóðarbúið millj-
arða að veiða
ekki þann þorsk
sem skynsam-
legt sé og nú
blasi við að
stofninn sé
lagstur í sjálfs-
rán; stærri
þorskar éti hina
smærri. Grétar Mar Jónsson, skip-
stjóri á Suðurnesjum, sagði í DV i
gær að sjávarútvegsráðherra
hreykti sér eins og hani á haugi
yfir uppbyggingu þorskstofhsins en
lokaði augunum fyrir hruni ann-
arra stofna.
Síldin týnd
DV spurði Gunnar Stefánsson
hjá Hafrannsóknastofun um skýr-
ingar þess að ekki næðist í úthlut-
aðan kvóta í flestum fisktegundum.
Hann segir ijóst að ýsu- og ufsa-
kvótar hafi verið auknir beinlínis
vegna niöurskurðar í þorski. Þá
hafi ufsastofninn á sínum tíma ver-
ið ofmetinn.
„Að hluta til var þetta vísvitandi
ákvörðun um að létta mönnum
byrðina vegna niðurskurðar í
þorski,“ segir Gunnar.
Fréttaljós
Reynir Traustason
Skólabörn og umferðin:
Foreldrar undirbúi börn sín
„Umferðaraðstæður á skólaleið
bama eru mjög mismunandi og því er
full ástæða til að hvetja foreldra eða
forráðamenn bama til að setja þeim
skýrar reglur um hvemig þau geti
komist ömggast leiðar sinnar. Það má
ekki gleyma þeirri staðreynd að um-
ferð eykst yfirleitt í september saman-
borið við sumarmánuðina og því fylg-
ir aukin hætta,“ segir Óli H. Þórðar-
son, framkvæmdastjóri Umferðarráðs,
i samtcdi við DV.
Starfsemi grunnskóla um allt land
er nú hafin. Tugir þúsunda bama og
unglinga eru þar með á leið í og úr
skóla hvem virkan dag.
„Nauðsynlegt er að foreldrar undir-
búi böm sín sem best en ábyrgð öku-
manna er að sjálfsögðu einnig mikil.
Sérstök ástæða er til að hvetja tO að-
gæslu í nágrenni skóla og annarra
staða þar sem starfsemi sem tengist
bömum og unglingum fer fram. Hafa
ber i huga að viðbrögð bama i umferð-
inni eru ekki alltaf rökrétt. Þeim hætt-
ir tO að bregðast öðmvísi við en öku-
menn búast almennt við,“ segir Óli H.
Lögregla mun leggja mikla áherslu
á eftirlit við grunnskóla og verður
fyrst og fremst hugað að ökuhraða og
akstri við gangbrautir. Einnig mun
lögregla fylgjast vel með hvemig öku-
menn hleypa börnum út úr bOreiðum.
-RR
Ufsl Karfl Stelnbítur Skarkoll Skrápflúra Úthafsrækja
30316 67339 10430 9960 4606 79255
- ..................................pra
Hann sagði flskifræðinga hafa
séð fyrir að rækjustofninn myndi
minnka enda væri samhengi milli
þess að þorskstofninn kæmi upp og
rækjan léti undan síga.
„Við vitum að það er vandi varð-
andi rækjuna og þar er nú sú nið-
ursveifla sem við töldum okkur sjá
fyrir. Það er ljóst að það er eitthvað
að varðandi sOdina. Það er mikfl
óvissa varðandi ástand stofnsins.
Við höfum fundið hann með berg-
málsmælingum og mælt hann fyrir
ekki löngu sem talsvert stóran. Svo
aflt í einu finnst sfldin ekki en hins
vegar sést hún dreifð fyrir norðan
land en það hefur ekki sést áður.
Það þýðir að hún hagar sér öðru-
vísi þetta árið og enginn getur
reiknað. Við erum að vona að við
náum að mæla stofninn næst,“ seg-
ir Gunnar.
Það er svo að sjá við uppgjör
kvótaársins að sjómenn hafi nokk-
uð til síns máls. Sfldin týnd, rækj-
an dauð. Fjöldi annarra stofna
veiðist ekki en þorskurinn er alls
staöar. Ástand fiskistofna við Is-
landsstrendur skiptist alveg í tvö
horn; ýmist rjúkandi rúst eða ríf-
andi uppgangur.
TiIJboð
50%
atfJJattu/
af pizzum - taktu með ... eða snaeddu á staðnum
Opia 11-23.30 og til
01.00 um helgar
Engihjalla 8 Sími 554 6967
Gildir einungis í Kópavogi