Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Page 10
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
10 mennmg
Forréttindi
að fá að leika sér
Þeir sem þyrstir í að sjá ný andlit á fjöl-
um leikhúsanna ættu ekki að láta Nemenda-
leikhúsið fram hjá sér
fara í vetur, bæði vegna
þess að árgangurinn virð-
ist vera góður og einnig
af þvi að næsta vetur
verður ekkert Nemenda-
leikhús. Skólinn tekur
aðeins inn þrjá hópa á
fjórum árum þannig að
alltaf „vantar“ einn bekk.
í fjórða bekk í ár eru átta
nemendur, fjórir strákar
og fjórar stelpur, og
nokkur þeirra eru þegar
þekkt andlit af sviðinu í
söngleiknum Grease og
Þjóni í súpunni og úr
kvikmyndinni Sporlaust.
Á dagskrá hjá þeim í vet-
ur eru tvö sviðsverk og
ein sjónvarpsmynd.
Kröftugt fólk
Rússamir eru vinsæl-
ir hjá Nemendaleikhús-
inu nú sem endranær;
fyrsta verkefni starfsárs-
ins er eitt fyrsta leik-
sviðsverkið sem Anton
Tsjekhov samdi og heitir
Ivanov. Það hefur aldrei
verið sýnt áður hér á
landi en var leikið í út-
varpi í þýðingu Geirs
Kristjánssonar sem Nem-
endaleikhúsið styðst við.
„Okkur er heiður að
því að fá að verða fyrst
til að flytja það á ís-
lensku sviði,“ segir Egill
Pálsson, formælandi
Nemendaleikhússins,
„Það er hollt fyrir okkur
að fá að vinna með fólk- islands 1998-9.
ið hans Tsjekhovs vegna
þess að það er svo venjulegt en þó á hver og
einn sér stóra sögu.“ Leikstjóri þessa fyrsta
verkefnis er Guðjón Pedersen.
Næsta verkefni er sjónvarpsmynd sem
verður tekin upp í janúar. Hilmar Oddsson
leikstýrir en Illugi Jökulsson er að skrifa
handrit eftir hugmynd hópsins. Efni þess er
Þau kynna sig fyrir leikhúsáhugafólki í vetur: Fjórði bekkur Leiklistarskóla
leyndarmál.
„Skólinn hefur gert ágætan samstarfs-
samning við Sjónvarpið," segir Egill, „sem
felur í sér að það fær afnot af okkur, leik-
stjóranum okkar og handritshöfundi en við
Borgin
í dag klukkan 18 verður opnuð sérstæð
ljósmyndasýning í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Listamennirnir eru 28 og fá hver sitt
spjald á vegg með einni stórri mynd og
mörgum í kring í venjulegri heimilis-
myndastærð, en ekki er það svo einkenni-
legt út af fyrir sig. Ekki heldur myndefnið
sem er borgarveruleikinn - götur, bílar,
búðir, höfnin, blómin í görðunum og svo
framvegis. Hið sérstæða er sjónarhomið.
Myndirnar eru allar teknar tæplega metra
frá jörðu vegna þess að myndasmiðirnir
eru leikskólabörn, 5-6 ára. Og sýningin
verður líka sett upp í þeirri hæð.
Ljósmyndafélagið Ljósálfar (sem hefur
ekkert að gera með skátahreyfinguna) á
hugmyndina að því að börn af leikskólun-
um Vesturborg og Ægisborg fengu í hend-
ur myndavélar og siðan var farið með þau
í myndatökuferðir. Þeim var veitt lág-
markstilsögn en síðan geflð frelsi til að
Stelpurnar voru hrifnari af blómum en bílum.
Andrea Rún Engilbertsdóttir á Austurvelli,
blómum.
mynda allt
sem þeim
datt í hug.
„Það var farið með þau í Laugardalinn,
á Laugaveginn og Skólavörðuholtið, niður
að Tjöm og niður á höfn,“ segir Svavar G.
Jónsson ljósálfur. „Þau heimsóttu til dæm-
is garðinn umhverfis Hnitbjörg, hús Ein-
ars Jónssonar, og það var vemlega merki-
legt að uppgötva hvað það er
sem þau sjá þar: Þau sjá
stöplana undir styttunum!"
Börnin fengu ekki að ráða
hvert þau fóru í myndatöku-
ferðir en þegar komið var á
staðinn fengu þau að ráða af
hverju þau tóku myndir.
„Kynjamunurinn er athyglis-
verður þegar maður skoðar
myndirnar," segir Svavar.
„Stelpumar reyndust hafa
miklu meiri
áhuga á blómum
og skrauti en
strákamir.
Stelpurnar í
hópnum sem fór Laugaveg-
inn tóku myndir af dúkkum í
búðargluggum en strákarnir
af bílum og mótorhjólum.“
Þetta kom kannski engum
á óvart. Að minnsta kosti
kom Svavari og félögum hans
meira á óvart hvað börnin
reyndust vera glögg á form og
myndbyggingu. „Augun í
þeim em alveg í lagi og ár-
angurinn er ótrúlegur, eins
Myndina tók og fólk getur séð á sýning-
aðallega af unni. Sjónarhomið hefur líka
sín áhrif. Ég man sérstaklega
fáum tæknimenn frá þeim og sýningu í
sjónvarpinu. Þetta er góður samningur fyr-
ir báða aðila því það er gaman
fyrir okkur að fá að prófa bíó-
ið.“
Þriðja verkefni leikársins er
líka leyndarmál vegna þess að
það er enn þá óákveðið. Hóp-
urinn hefur valið sér Hilmi
Snæ Guðnason leikara sem
leikstjóra og aðilar eru enn að
semja um verkefni.
EgUl segir að hópurinn sé
hæstánægður með leiklistar-
skólann sinn og hafi fengið
staðfestingu á að hann væri
góður skóli á námskeiði í Lett-
landi í sumar. Þangað komu
leiklistarnemar hvaðanæva af
Norðurlöndum, Eystrasalts-
ríkjum og Rússlandi til að
vinna saman í þrjár vikur
með leikstjóraefnum frá þess-
um löndum og íslensku nem-
endumir fengu góðar umsagn-
ir.
„Við þóttum kröftugt fólk og
ósérhlífið - við vorum ekki
með neitt múður, unnum bara
eins og til var ætlast, tólf tíma
á dag! Engar sérþarfir," segir
Egill. „Það var líka gaman að
heyra að fólk í þessu námi er
að hugsa um svipaða hluti
hvar sem það býr. Velta fyrir
sér spumingum eins og til
hvers leikhús sé, af hverju
okkur finnst leiksviðið meira
spennandi en kvikmyndir þó
að möguleikar
þeirra virðist enda-
lausir og af hverju
við viljum verða
leikarar. Sjónar-
miðin voru mörg og
umræðurnar spenn-
DV-mynd E.ÓI. andi. En niðurstað-
an úr þeim varð
alltaf sú að þarna viljum við
vera af því okkur finnst svo
gaman að segja sögur. Og fá að leika okk-
ur. Það em forréttindi stéttarinnar."
eftir einni mynd þar
sem stór jeppi er að
koma í áttina að ljós-
myndaranum; bíllinn verður svo ógnvekj-
andi þegar hann er myndaður úr þessari
hæð. Reyndar gæti uppeldismenntað fólk
áreiðanlega lesið margt út úr þessum
myndum um sálarlíf bama.“
Myndasafnið verður afhent Ljósmynda-
Jeppinn stækkar þegar hann er séður metra frá jörð.
Mynd: Kári Guðmundsson, 6 ára.
safni Reykjavíkur eftir að sýningunni lýk-
ur og þar verður það varðveitt í heild.
Svavar sér fyrir sér að eftir tuttugu ár
verði hægt að leita myndasmiðina uppi og
athuga hvort þetta verkefni hafði einhver
áhrif á val þeirra á menntun og starfí.
Ljósálfar em óformlegt félag áhuga-
manna um ljósmyndun og til þessa verk-
efnis nutu þeir styrktar ýmissa aðila, með-
al annarra Menningarsjóðs Dagvistar
barna, Ljósmyndasafns Reykjavíkur og
Fuji-umboðsins. Sýningin stendur til 15.
september. Ráðhúsið er opið kl. 8-19 virka
daga og kl. 10-18 um helgar.
Kórstarf að hefjast
Við Langholtskirkju í Reykjavík starfa hvorki
meira né minna en fimm kórar og er vetrarstarf
þeirra allra að hefjast um þessar mundir.
Kór Langholtskirkju byrjar á því að æfa verk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem verða flutt á
tónleikum í nóvember. Gradualekórinn tekur
þátt í þeim tónleikum. Þorkell varð sextugur í
sumar og kórinn vill heiðra hann meö þessum
flutningi. Hinir árvissu
Jólasöngvar verða svo
18. - 20. desember, og í
dymbilviku flytur kór-
inn H-moll messuna
eftir J. S. Bach. Það er
í fjórða skipti sem kór-
inn flytur hana; síðast
var það árið 1994 í
Barbican tónleikahöli-
inni í London með
Ensku kammersveit-
inni.
Eftir páska hefjast
æflngar fyrir tónlist-
arhátíðina miklu í
september 1999 þegar orgelið nýja í kirkjunni
verður vígt.
Kórskóli Langholtskirkju verður settur 10.
september í áttunda sinn. í skólanum eru tvær
deildir, Krúttakórinn fyrir 4-7 ára og eldri deild
bama frá 8 ára aldri. Gradualekórinn starfar í
tengslum við skólann en er rekinn af foreldrafé-
lagi. Allir kórarnir koma fram á tónleikum og
við helgihald og Gradualekórinn mun einnig
halda sjálfstæða tónleika.
Sjónþing Kristins G.
Á laugardagsmorguninn kl. 11 hefst í Gerðu-
bergi Sjónþing Kristins G. Harðarsonar mynd-
listarmanns. Spyrlar eru Aðalsteinn Ingólfsson
og Ingólfur Arnarsson. Sama dag verða opnaðar
tvær sýningar á verkum Kristins, önnur í
Gerðubergi, sem mun standa til 25. október, og
hin í Galleríi Sævars Karls við Bankastræti sem
stendur til 30. september.
Kristinn lauk námi í Hollandi árið 1976 og tók
fyrst þátt í sýningum í Gallerí SÚM á árunum
1976-8. Hann hefur unn-
ið í flest efni, búið tfl
innsetningar í rými,
hugmyndaverk, hefð-
bundna skúlptúra,
teikningar og mál-
verk, soðið í járn og
saumað út í léreft. Til
marks um fjölhæfni
hans má nefna að i
einu verka hans frá
1993 er að finna fataló, neglur,
karton, blýant, lit, sígarettustubba, útsaums-
gam, dauðar flugur og plast. Á siðustu árum
hefur hann þó æ oftar sýnt málverk í raunsæis-
stíl, til dæmis era minnisstæðar stórar myndir
hans frá Ameríku á sýningu í Gerðarsafni
haustið 1997.
Sjónþing Gerðubergs hafa verið haldin
óreglulega undanfarin ár og eru merkileg viðbót
við myndlistarlífið í landinu. Umsjón með þeim
hefur Hannes Sigurðsson listfræðingur haft.
Næsta Sjónþing verður í október og verður þá
fjallað um Hannes Lárusson myndlistarmann.
Hundarnir í Þessalóníku
í nýrri syrtlu frá Máli og menningu, Himd-
arnir í Þessalóníku, era sex nýjar smásögm- eft-
ir norska rithöfundinn Kjell Askildsen. Þetta er
ný bók, kom út á norsku i fyrra og þótti stað-
festa að Kjell væri einn allra snjallasti smá-
sagnahöfundur á Norðurlöndum.
Sögurnar sex fjalla allar um átakanlega en oft
bráðfyndna einsemd fólks í nútímanum. Hver
reynir að vera út af fyrir sig
og láta ekki annað fólk koma
sér við - en þráir kannski
öðruvísi líf innst inni.
Kjell Askildsen fæddist
1929 og gaf út sína fyrstu bók
24 ára. Hann hefur verið af-
kastamikill rithöfundur og
hlotið margs konar viðm'-
kenningar, meðal annars
bókmenntaverðlaun
norskra gagnrýnenda
tvisvar. Áður hefur komið
út á íslensku smásagna-
safnið Síðustu minnisblöð Tómasar F. fyrir al-
mennings sjónir sem Hannes Sigfússon þýddi.
Nýju bókina þýðir Einar Kárason. Kápumyndin
er eftir Robert Guillemette.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
HBHi