Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Side 15
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 15 Einnota boðskapur Árið 1985 neituðu þingmenn græningja á vestur-þýska þinginu að nota tölvur þar sem þeir töldu að ekki væri rétt að nota tækni iðn- menningarinnar til að leysa vandamál! Þessi afstaða græningjanna er eitt dæmi af mörgum um að svonefnd um- hverflsvernd líkist fremur einstrengings- legum trúarbrögðum en vitrænni umhyggju' fyrir náttúrunni. Eitt af boðorðum umhverfis- vemdar er að menn skuli hafa andúð á hvers kyns umbúðum og öðrum einnota hlut- ““ um. Lítum á nokkur dæmi. Kreist fyrir umhverfið? Víðfrægur er sá boðskapur um- hverfisverndarsinna að menn kreisti appelsínur sínar sjálfir í stað þess að kaupa tilbúinn appel- sínusafa i fernu eða flösku. Nátt- úran hefur að þeirra mati búið til bestu umbúðirnar þ.e. appelsínu- börkinn. Á það ber hins vegar að líta að verksmiðjur ná mun meiri safa úr appelsínunni en venjuleg- Kjallarinn Glúmur Jón Björnsson efnafræðingur „Umbúðir létta okkur lífið og vernda okkur gegn hvers kyns pestum. Matur geymist betur eft- ir að einnota umbúðir komu til sögunnar og minni hætta er á að smit berist með honum eða hann valdi eitrunum. “ ur heimakreistari og hratið sem eftir verður í verksmiðjum er nýtt i dýrafóður en heima endar það í ruslinu sem flytja þarf á haugana. Auk þess er mun dýrara að flytja ferskar appelsínur til neytenda en tilbúinn safa enda eru þær nær sjöfalt þyngri en sambærilegt magn af tilbúnum safa á fernu. Það má því segja að sjö trukkar bruni með appelsín- urnar í búðir til þeirra neytenda sem kreista sjálfir á meðan einn sér um að flytja safa til þeirra neytenda sem hafa ekki fall- ið fyrir predikim- um umhverfis- verndarsinna. Bleiur og bollar Umhverfisvernd- arsinnar hafa lengi barist gegn einnota bleium en þær enda oftast á haugunum en tuskubleiurnar má nota aftur og aftur. Það gleymist hins vegar að þvo þarf ““"“ tuskubleiumar og til þess þarf bæði orku (sem stundum er fengin með kolabruna), vatn (sem oft er af skornum skammti) og sápu (sem rennur svo á haf út). Það er þvi hreint ekki augljóst hvort er betra fyrir umhverfið og fer eftir aðstæðum á hverjum stað. Raun- ar hafa umhverfisvemdarsinnar, m.a. í Þýskalandi, verið að átta sig á þessu að undanfornu og bæði skipt um bleiu og skoðun. Einnota plastmál eru vinsæl enda þægileg, hreinleg og ódýr lausn. Þeim þarf hins vegar að farga. Þau hafa þó þann kost að þau þarf ekki að þvo upp með til- heyrandi vatns- eyðslu og sápu- notkun. Um- hverfisverndar- sinnar hafa engu að síður talið sjálfsagt að ólmast gegn plastmálunum. Mjólkurfernur hafa einnig verið skotmark um- hverfisvemdarsinna og þær hafa jafnvel verið bannaðar í Maine í Bandaríkjunum. Þó þarf 15 flutn- ingabíla til að flytja sambærilegt magn af tómum glerflöskum og plastpappann í femurnar. Líka fyrir manninn ABoll af mat eru mun minni þar sem umbúðir em notaðar og Bílfarmar af appelsínum fara i búðir til þeirra neytenda sem kreista sjálfir á meðan einn sér um að flytja safa þeirra neytenda sem hafa ekki fallið fyrir predikunum umhverfisverndarsinna. því þarf ekki að flytja jafnmikið á haugana af skemmdum mat. En umbúðir og aðrir einnota hlutir geta ekki aðeins hlíft umhverfmu eins og dæmin sanna. Þótt það skipti umhverfisvemdarsinna sennilega litlu máli em mnbúðir manninum gagnlegar. Umbúðir létta okkur líflð og vernda okkur gegn hvers kyns pestum. Matm- geymist betur eft- ir að einnota umbúðir komu til sögunnar og minni hætta er á að smit berist með honum eða hann valdi eitrunum. Glúmur Jón Bjömsson Biskupinn og lukkutröll Æðsti postuli „islensku" kirkj- unnar virðist hafa meiri áhyggjur af íslenskri þjóðtrú og að menn heiti að gamni sínu á steinrunnin tröll og forn goð en hinum raun- verulegu ástæðum fyrir rýmun og visnun þjóðkirkjunnar í huga ís- lensku þjóðarinnar. Biskupinn virðist vera „þræl“- blindur fyrir gmndvaUarástæðunum ffyrir því af hverju í svo mörgum tilfellum kirkjan er litin homauga af hugs- andi og séémilega menntuðu fólki og í mörgum tilfellum orðin að at- hlægi. Fyrirvari á starfsleyfi Þegar kristinni kirkju leyfðist starfsemi á íslandi fyrir tæpum þúsund árum af skynsömum og umburðalyndum fomum forfeðr- um vorum var sá fyrirvari á starfsleyfi hennar að hún tæki við vemdun íslenskrar menning- ar og íslenskra hagsmuna - sem sé; fjöreggi íslensku þjóðarinnar - og léti íslendinga í friði með sinn hefðbundna þjóðlega hugsunar- hátt að mega jafnframt heiðra sín fornu goð og átrúnað. Á fyrstu tveimur öldum eftir kristintöku lifðu fslendingar mik- ið til æðrulausu lífi hvað trúar- brögð snerti þótt ofstopi kristinna manna hafi oft gengið fram af frjálshugsandi mönnum þess tima. Kirkjan var þá í aðalat- riðum sambland heiðninnar og kristindómsins og þjónaði sálar- lífi manna all- bærilega. Þaðan í frá fór í æ rík- ari mæli að bera á stjómun kirkj- unnar erlendis frá og þá hlut- fallslegri ofbeld- ishneigð og kúg- un og um leið hnignun íslensku þjóðarinnar. Þessi þróun hefur haldist í mismunandi mæli, með nokkrum undantekningum ein- stakra íslenskra þjóna kirkju og þjóðar, þar til í dag að íslensk kirkja er að verða hluti af erlendu afli. Ef þá ekki nú þegar og til höf- uðs sjálfákvörðunarrétti og sjálf- stæði íslensku þjóðarinnar. - Sem sé: hin útlenda kirkja er að verða einn tróju- hesturinn enn í ís- lenska þjóðfélaginu. Ögrun við kristna kirkju Hræðsla biskupsins við fomtrú og þjóðtrú íslendinga er svo ótta- leg að hann telur að þjóöin sé á tímamótum þess að menn verði að kjósa á milli fomra trú- arbragða vorra og kristninnar. Er að furða þótt fólk brosi í kampinn? Ég bið háttvirtan biskup íslands að líta i barmkristnu kirkjunn- ar á íslandi; líta á sögu hennar í landinu, hegðun þjóna hennar, hlutverk hennar sem vemdari ís- lenskra hagsmuna og undirlægju- hátt hennar við erlenda hags- muni. Ég skora á biskup að íhuga samviskusamlega hvort kirkjan hans hafl ekki bragðist íslending- um. Gerir biskup sér grein fyrir því að erlendir trúar-trúðar og ís- lenskir þjónar þeirra flæða yfir íslensku þjóðina? Hér er um að ræða harðvítuga sálnaveiðara, peningaplokkara og stór- mennskubrjálæðinga sem sýkja íslenskt þjóðfélag. Hér er ekki að- eins ögrun við kristna kirkju á ís- landi og þá við at- vinnu biskupa og presta heldur við almennt velsæmi. Ég hið háttvirtan biskup íslands að láta það sem ís- lenskt er í friði en standa fremur vörð um það. Hann á að beita sér fýrir því að gera kristnu kirkjuna alís- lenska og starfa fyrir íslenska hagsmuni á öllum sviðum. Færa kirkjuna úr þeim farvegi að hún sé verkfæri erlenda afla til að plokka og blekkja íslendinga í nafni líknarstarfsemi erlendis. Með því að tala t.d. um þann ósóma að íslendingar skuli vera peningaplokkaðir með spilavítis- vélum í nafni liknarverka. Tala um að það er verið að tæla ótal- inn fjölda »instaklinga frá þriðja heiminum til íslands þar sem þeir verða sjálfum sér og íslendingum til mikils ama. Kaþólska kirkjan er sérstakur aðili að þessu ljóta máli. - Herra biskupinn líti sér nær og stuðli að því að það sem íslenskt er njóti sín. Helgi Geirsson „Gerir biskup sér grein fyrir því að erlendir trúar-trúðar og íslenskir þjónar þeirra fiæða yfir íslensku þjóðina? Hér er um að ræða harð- vítuga sálnaveiðara, pen- ingaplokkara og stórmennsku- brjálæðinga sem sýkja íslenskt þjóðfélag." Kjallarinn Helgi Geirsson framkvæmdastjóri 1 IVIeð Oj á móti i Er vélstjóranámið of langt? Eins og læknanám Jóhann Ólafsson, framkvæmdastjóri „Staðreyndin er sú að atvinnu- möguleikar em að aukast og tæki- færin hafa vaxið í landi. Þetta em því erfiðir tímar fyrir útgerðina. Vélstjóranámið er að mínu mati of langt. Það gerir það að verkum að það fara færri og færri í þetta nám. Þetta tek- ur orðið 5 ár í skóla og 10 ár að ná í full rétt- indi. Þetta er að verða eins og læknanám og þróunin getur ekki endað nema á einn veg. Það er aðeins einn læknir á Raufar- höfn og stundum er reyndar eng- inn. Ég tel að það hljóti þá að vera nóg að hafa einn svona mikið menntaðan vélstjóra á hverju skipi og hafa þá undirvélstjóra með sem væri með vissa grunn- þekkingu sem hann gæri hlotiö i námi á tveimur önnum. Þá mynd- um við sjá mikið af mönnum í þessum störfum. Það fer enginn i svona langt nám með það fyrir augum að gerast vélstjóri úti á sjó. Ég er ekki að segja að það sé slæm aðsókn í skólann en hún skilar sér ekki út í það atvinnulíf sem markmið með skólanum er, þ.e. á sjóinn. Menn eru að tala um að hækka laun vélstjóra en ég er ekki viss um að það myndi heldur skila sér. Þetta em mikið mennt- aðir menn og þeir sækja frekar í vinnu í landi heldur en á sjóinn. Útlendingar munu ganga í þessi störf á einhverjum tímapunkti í framtíðinni að mínu mati.“ Styttra en í ná- grannalöndum „Svo lengi sem undirritaður hefúr haft afskipti af félagsmálum vélstjóra hafa útgerðarmenn und- ir dyggri forystu LÍÚ haldið þvi fram að vélstjóranám hér á landi sé allt of langt samanborið við námið annars staðar á Norð- urlöndunum. Til þess að fá botn í málið í eitt skipti fyrir öll fól mennta- málaráðherra Sigurði Brynj- ólfssyni prófess- or að bera nám- ið hjá okkur saman við vélstjóra- námið annars staðar á Norður- löndunum. Helstu niðurstöður em að nám til fyllstu réttinda er allt að 11 mánuðum skemmra hjá okkur en í Danmörku. Nám til 1500 kW réttinda er um 22 mánuð- um skemmra hjá okkur en í Fær- eyjum og nám til 750 kW réttinda tekur um 58 mánuöi í Noregi en aðeins 18 mánuði hjá okkur. Af þessuih dæmum sést að vélstjóra- nám hér á landi er síst lengra en í nágrannalöndunum. Vilji útgerð- armenn frekari styttingu námsins em þeir annaðhvort að gefa í skyn að íslenskt vélstjóranám eigi ekki að uppfylla sömu gæðakröfur og gerðar em annars staðar á Norðurlöndunum en það hefur í for með sér að íslenskir vélstjórar eiga ekki kost á vinnu við sitt hæfi utan landsteinanna. Það myndi tæpast auka aðsókn að náminu hjá okkur. Hin ástæðan gæti verið sú að útgerðarmenn telji hagkvæmara að viðhalda skipunum sínum í gegnum trygg- ingafélögin i stað þess að hafa hæfa fagmenn mn borð. Hver veit?“ -RR Holgl Laxdal, for- maöur Vólstjórafó- lagslns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.