Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1998, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
Fullorðins fjallareiðhjól 18 gíra
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
dftt mMH hírtj/fjg
Smáauglýsingar
Fréttir
Nemendur i
fjarkennslunni
á ísafirði.
DV-mynd Hörður
www.visir.is
eirmig á|
Hverjir eru flottustu
, íslandi?
gæ^arnxr
Rúnar Júl er kúl
Viðtal við Keikó
íslenska byltingin
er runnin út
í sandinn
ísafjörður:
Fyrsta fjar-
kennsla á há-
skólastigi
Merkur áfangi hófst í íslenskri
skólasögu mánudaginn 31. ágúst þeg-
ar fjarkennsla á háskólastigi var
formlega sett á ísafirði i iyrsta sinn á
íslandi. Níu nemendur hófu þá nám í
hjúkrunarfræði í Framhaldsskólan-
um á ísafírði sem tengdur hefur verið
með gagnvirkum myndfundabúnaði
við Háskólann á Akureyri. Þannig fer
kennslan að verulegu leyti fram í
gegnum sjónvarpsskjá og um Inter-
netið. Fengu gestir á ísafirði við þetta
tækifæri að fylgjast með iyrstu fjar-
kennslushmd Sigurðar Bjarklind sem
var í skólastofú á Akureyri.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, setti kennsluna
formlega og sagði við þetta tækifæri
m.a. að nemendumir níu á ísafirði
yrðu nú þátttakendur í brautryðj-
endastarfi sem ætti eftir að skilja eft-
ir sig varanlegar breytingar á tilhög-
im háskólamenntunar í landinu og
þeirrar þjónustu sem landsbyggðin
getur sótt.
Undirbúningsvinna að þessari
kennslu hefúr gengið hratt fyrir sig
en samningar um þetta verkefni voru
undirritaðir á ísafirði í vor. Auk Há-
skólans á Akureyri hafa Fjórðungs-
samband Vestfjarða, Framhaldsskóh
Vestfjarða, Fjórðungssjúkrahúsið á
ísafirði og ísafjarðarbær haft veg og
vanda af því að koma þessu fjamámi
í gang auk þess sem Landssíminn og
Byggðastofnun hafa stutt málið dyggi-
lega við öflun tækjabúnaðar.
Einar Kristinn Guðfinnsson alþing-
ismaður ávarpaði gesti á ísafirði í
gegnum íjarfundabúnað frá Reykja-
vík við þetta tækifæri og sagði að
Vestfirðir væm nú að verða í aifara-
leið menntunarinnar. Sagði hann eng-
an vafa á því að Vestfirðingar hefðu
nú tekið ótvíræða forystu á þessu
sviði og sagði hann slíkan framfara-
hug til marks um að menn væm á
réttri leið. -HKr.
Grettistak á
Flateyri
- byggja frjálsíþróttavöll)
DV; ísafirði:
Sigurður Hafberg, formaður bygging-
amefndar frjálsíþróttasvæðis Grettis á
Flateyri, tók fyrstu skóflustunguna að
nýju fijálsiþróttasvæði á staðnum ný-
verið. Nýi frjálsíþróttavöllurinn er á
gamla malarvellinum og í næsta ná-
grenni við Goðahól og skólann. f fyrsta
áfanga, sem nú er byrjað á, verður gerð
130 metra hlaupabraut með steyptu
undirlagi sem á verður lagður dúkur úr
gerviefiii. Næsta vor er síðan ráðgert að
ganga frá 50 metra langstökksbraut, 25
metra spjótkastsbraut og 25 x 50 metra
sparkvelli með grasi. Þá er einnig gert
ráð fyrir aðstöðu fyrir hástökk á svæð-
inu, auk aðstöðu fyrir kúluvarp og
kringlukast. Áætlaður kostnaður við
þessar framkvæmdir er um 4,5 milljón-
ir króna fyrir utan kostnað við há-
stökksaðstöðu sem tahð er að kosti um
eina milljón króna. Það er verktakafyr-
irtækið Afrek sem hefur tekið að sér
framkvæmd við fyrsta áfanga. -HKr