Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 6
m a t u r Argentína ★★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalaö. Dýr- ustu og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki alveg eins innanfeitar og safaríkar og áöur.“ Op/'ð 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. Einar Ben ★★ Veltusundi 1. 5115090. „Fremur þemahús en veitingahús og leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og verður því seint jafnvinsæll og Fashion Café eða Planet Flollywood." Op/'ð 18-22. Café Ópera ★ Lækjargötu 2, s. 522 9499 „Undarlegir stælar einkenna þetta Café Óperu og þar virðist vera takmarkaður áhugi á mat- reiðslu." Op/'ð frá 17.30 til 23.30. Fiðlarinn á þakinu ★★★ Sklpagötu 14, Akureyrl, s. 462 7100 „Matreiðslan stóð ekki undir háu verði en hún hefur batnað. Þjónustan var alltaf góð en nú er of mikið treyst á lærlinga." Op/'ð 12.30-14 og 18-22. Hard Rock Café ★★ Kringlunnl, s. 568 9888 „Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annað en skyndibita og vill ekki annað en skyndibita; fólki, sem þolir tvöfalt verð fyrir góða ham- borgara og daufa fmynd þess að vera úti að borða." Op/'ð 11.30-23.30. Hótel Holt ★★★★★ Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti berf matargerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id. Hótel Óðinsvé ★★ v/Óðinstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafn- vel f einni og sömu máltfð." Op/'ð 12-15 og 18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id. ★★ Italía Laugavegl 11, s. 552 4630. „Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir og gæðaþjónustan er hálfítölsk. Það, sem tæpast hangir í ítölskunni, er matreiðslan." Op/'ð 11:30-11:30. Játvarður ★★★ Strandgötu 13, Akureyrl, 461 3050 „Skemmtilega hannaður staður með ffnlegri matreiðslu, ef sneitt er hjá fiski, svo og elsku- legri þjónustu sem getur svarað spurningum um matinn." Op/'ð 11.30-14 og 18-22. Lauga-ás ★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dreg- ur til sfn hverfisbúa, sem nenna ekki að elda i kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferða- menn utan af landi og frá útlöndum. Hér koma hvorki uppar né ímyndarfræðingar." Op/'ð 11-22 og 11-21 um helgar. Lækjarbrekka ★★ Bankastræti 2, s. 551 4430. „Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram- bærileg eða vond eftir atvikum, Með annarri hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en með hinni er farið eftir verstu hefðum." Op/'ð md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30. Mirabelle ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir í profiteroles og créme brulée. Mirabelle er komin á gott skrið." Op/'ð 18-22.30. Pasta Basta ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131 „Ljúfir hrfsgrjónaréttir og óteijandi tilbrigði af góðum pöstum en lítt skólað og of uppá- þrengiandi þjónustufólk." Op/'ð 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. Rauðará ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. „Túrista-steikhús. Nautasteikin getur verið góð, en hún getur líka verið óæt. Yfirþjónninn er svo önnum kafinn við að vera kammó aö hann tekur ekki alvarlega ábendingar um aö nautakjöt sé skemmt." Op/'ð frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aösókn. Skólabrú ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálítið frosiri. Þjónustan er kurteis og hóf- söm." Op/'ð frá kl. 18 alla daga. Smiðjan ★★★ Hafnarstræti 92, Akureyrl, s. 462 1818 „Smiðjan hefur árum og sennilega árum sam- an verið eini staðurinn á Akureyri þar sem er þorandi að borða fisk." Op/'ð 18.00-22.00. meira a. www.visir.is Fyrr í vikunni ræddi háhyrningsþjálfarinn Brad Kingsmauer við Keikó með aðstoð þýðingartölvu og var viðtalið sent út á Netinu. Hér að neðan eru birtir valdir kaflar úr viðtalinu þar sem Keikó ræðir um íslandsför sína, æsku- minningar og vanda þess að vera hvalur. „Vér hvalir erum yfirborðskenndar skepnur Nú er aðeins tæp vika þar til há- hymingurinn Keikó flýgur til lands- ins. Mikið hefur verið flallað um flutninginn í fjölmiðlum, umstangið í kringum hann, viðbúnað í Eyjum og viðskilnað í Oregon. Hér birtist hins vegar fyrsta viðtalið við Keikó í langan tíma, eða frá því fyrri FREE WlLLY-myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum og hin þekkta sjón- varpskona Oprah Winfrey ræddi við hvalinn í beinni útsendingu eins og frægt varð, með hjálp hins fræga sjávarlíffræðings Joshua heitins Browns sem einn fárra manna í heiminum hefur numið hvalamál. Viðtalið sem hér birtist var tekið aðfaranótt miðvikudagsins 2. sept- ember og sent út á Intemetinu. Þjálf- ari Keikós, Brad Kingsmauer, tók viðtalið, sem unnið var með hjálp nýrrar þýðingartölvu þar sem notast var við forrit Browns en hann lést úr lungnakrabba fyrir rúmu ári síð- an. Einnig gafst netverjum kostur á að spyrja Keikó nokkurra spurn- inga. brad: Keikó. Hvernig hefur þú það? keikó: Vér höfum það gott. BRAD: Gæti ég fengið að spyrja þig nokkurra spurninga? keikó: Svara munum vér þeim með ánægju, Brad. BRAD: Keikó. Þú veist að þú ert bráðum á föram héðan frá okkur? KEIKÓ: Vér erum svangir. BRAD: Þú veist það, Keikó, að þú færð að borða strax eftir viðtalið. keikó: Vér erum svangir. BRAD: Ekki vondur strákur núna, Keikó! keikó: Vér erum svangir. BRAD: Ókei, ég gef þér þrjár síldar núna ef þú lofar að svara spurning- unum eins og maðm-? keikÓ: Sjaldan þiggjum vér hvalir hvíld./kœtumst lítt viö þvaöur./En gefir þú oss salta síld/ vér svörum eins og maður. BRAD: Vá! Keikó! Þetta var fallegt! veitingahús Hér kemur síldin! Ertu kátur núna? KEIKÓ: Vart erum vér svangir, en siður þó saddir. BRAD: Hvernig leggst það í þig að fara með flugvél til íslands? keikó: Vér spyrjum: Hvað er flug- vél? BRAD: Flugvél er stór kvi sem getur flogið, í loftinu. Eins og fugl! KEIKÓ: Sannlega munum vér segja yður: Þá sökkva í hafíð skýin grá og fjöll í djúpin falla niður er flýgur sjór um loftin blá. BRAD: Keikó? Er ekki allt í lagi? Hvaðan hefur þú þetta? keikó: Maöur kœr viö myrka strönd./Þú mœlir allt viö smáa hönd./Djúpin eru þér ókunn lönd/og undur mjó þín sjónarrönd. BRAD: Ókei. Segðu okkur þá frá þeim, djúpunum. keikó: Slíkt mun alkunna: Vér hvalir erum yfirborðskenndar skepnur. BRAD: Hvað meinaru? keikó: Andann vér drögum úr yfir- borði/þó undir niöri svömlum vér./Hvalur mun því, í einu oröv./aö nokkru leyti líkur þér. BRAD: Keikó. Þú veist það að í okk- ar augum eruð þið hvalirrnir mjög gáfaðar skepnur. Og mér finnst þú sanna það hvala best. KeikÓ: Kveóum vér Ijóó í dimmu djúpi/en drögum andann úr birtu dags./Sárt er á lœgstum sjávar- núpi/sól aö velja til fylgilags. brad: Ég er ekki viss um að ég fylgi þér héma Keikó. Gætir þú tal- að skýrar? Viltu meiri síld? keikó: Þurrt er þitt land og þurr þinn brunnur./Þrýtur visku viö fjörusand./Af heimsku mun um heiminn kunnur/háhyrningur sem gengur á land. BRAD: Ókei, ókei. Keikó. Erum við ekki orðnir dáldið góðir með okkur hérna? Komdu þá með það. Þú svaraðir mér ekki áðan. Hvað býr í djúpinu? „Eftirlætiskvikmynd Keikós er Rlamaöurinn. Vér höfum vissa samkennd meö honum,“ segir kvikmyndastjarnan Keikó. KEIKÓ: Fregnaö vér höfum um fisk í kross/sem fer viö botn í sjávar- ríki./Vitneskjan um hann viröist oss/vera mjög í skötulíki. [Hér tekur Keikó mjög háværa hlátursroku, buslar og skvettir sporði] í skötu- líki! Ha ha....í skötulíki! Náðir þú þessu? í skötulíki! BRAD: Keikó! Keikó! Rólegur! Róleg- an æsing! Viltu síld! Viltu meiri síld? KEIKÓ: Síldin kemur og síldin fer sildin fer í taugar á mér. BRAD: Ókei. Við skulum þá taka við spurningum frá aðdáendum: TANJA, 10 ára, Orlando, Florida: Kæri Keikó. Nú hefur þú leikið í kvik- mynd. Mig langar að vita hver sé uppáhalds kvikmyndin þín? KEIKÓ: Eftirlætis kvikmynd Keikós er Fílamaðurinn. Vér höfum vissa samkennd með honum. ÁSGEIR MÁNI, 12 ára, Þorlákshöfn: Kæri Keikó. Hlakkar þú til að koma til Vestmannaeyja? keikó: Vér minnumst þess með ljúfsárum trega er vér ungir kálfar fylgdum móður vorri um Eyjafjalla- djúp og Selvogsgrunn. Einkum voru oss hugstæðar volgar vilpurnar í hlíðum Surtseyjar. Afi vor sagði oss sögur af eldsumbrotunum. HEIÐAR, 20 ára, Húsavík: Kæri Keikó. Ég hef farið í hvalaskoðun og séð háhyrninga. Af hverju eruð þið svona andfúlir? keikó: Næsta spurning. LISETTE, 7 ára, Hilversum, Danmörk: Kæri Keikó. Ég er oft að hugsa um það hvernig sé að vera hvalur. Hvernig er að vera hvalur? keikó: Hvalur spyr á móti: Hvernig er að vera maður? TANJA, 10 ára, Orlando, Florida: Kæri Keikó. Hvar lærðir þú að yrkja ljóð? keikó: Úti fyrir íslandsströndum. Vér bræður fórum snemma að lesa nöfn báta og hlusta á útvarpssend- ingar. Úti fyrir Fáskrúðsflrði liggur víkingaskip frá söguöld. Þar gafst oss kostur á að glugga í skinn- handrit. Sjórinn i kringum Island er fullur af skáldskap. Hallgrímur Helgason Primavera ★★★★ Maturinn bjargar deginum A Primavera trufla góðir þjónar ekki samræður gesta með spurning- um um, hvemig smakkist maturinn. Að vafningalausum ítölskum hætti er slíkt gefið mál, sem ekki er til umræðu, nema gestir vilji endilega ræða það að fyrra' bragði. Sjálfs- traust hússins er gott og næg inn- stæða fyrir því. Matreiðslan á annarri hæð við Austurstræti hefur farið batnandi þrátt fyrir vaxandi vinsældir og tek- ur nú flestu fram hér á landi. Bezt og ódýrast er hún sem fyrr í hádeg- inu, þegar þríréttuð veizla með miklu úrvali rétta kostar ekki nema 1.350 krónur á mann. Forréttir voru yfirleitt léttir og nútímalegir. Góður var grillaður og mjúkur maísgrautur, borinn fram með tómötum og finni hráskinku, afbragðs matur. Enn betri var hvít- lauksristaður smokkfiskur, sem bráðnaði næstum á tungu, með gul- um baunum og tómötum. Bezti for- rétturinn var undurmjúk og fínleg spínatbaka með blaðsalati, sannkall- að meistaraverk. Hefðbundnari og þyngri mat- reiðsla var í sumum aðalréttum, ekki þó riffluðum pastarörum með brokkáli og hvítlaukssósu, nákvæm- lega rétt soðnum. Ekki heldur í snöggbökuðum og ljúfum þorski með kartöflustöppu, hvítlauk og miklu af kapers. En dæmigerður var ofnbakaður lambaskanki með kart- öflustöppu, grænmeti og fínu rauð- vinssoði, ljómandi ítalskur og skemmtilega gamaldags. Fínlegur og bragðgóður var rommbúðingur með hindberjasósu og kryddleginni appelsínu. Þurr og góð var möndlukaka með þeyttum rjóma. Að kvöldi voru eftirréttir einnig góðir, einkum undurlétt döðlu- og karamellukaka með sýrð- um rjóma, sem hæfði vel. Góð var einnig fínleg og lagskipt ostakaka með kakóþaki. Þótt matreiðslan sé líka góð á kvöldin, reyndist mér hún meira gamaldags, skör lægri og auðvitað dýrari, um 3900 krónur þríréttað með kaffi. Þorskakinnar voru of þurrar og festust milli tanna, bomar fram með góðum maísgraut og rauð- vínssósu. Mild og einfóld var græn- metisbaka með mozzarella-osti. Bezt- ur forrétta var smjörsoðinn spergill „Sjálfstraust hússins er gott og næg innstæða fyrir því.“ risaspegill gerir öllum kleift að sjá alla og gefur staðnum snobbað uppa- gildi, enda era hér viðskiptamáls- verðir í röðum á kvöldi sem í há- degi. Yfir staðnum vakir endur- prentun Vorsins eftir Sandro Bott- icelli. Hvítt lín er á borðum í hádegi sem að kvöldi, olífur, balsamsósa og ilmandi volgt brauð. Og þetta líka fina útsýni til embættis- og iðnaðar- manna, sem skjótast í Ríkið handan götunnar til að reyna að bjarga deg- inum fyrir hom. Þeir vita ekki, hve öfundsverð við erum innan við gluggana á Primavera, sem höfum þegar bjargað okkar degi. Jónas Kristjánsson grannur með mildu beikoni og kapersblandaðri olífu- og ediksósu. Að kvöldinu var bezti aðalréttur- inn cannelloni pönnukaka vafin um kjúklinga- og vfllisveppahakk, borin fram með miklu blaðsalati. Góðir og meyrir vora grillaðir sjávarréttir, rækjur og smokkfiskur, á tréspjóti, með óhóflega miklu af brenndu raspi gestakokks frá Brescia. Gam- aldags matreiðsla í raspi var einnig á annars frambærilegri kálfasteik með kapers og ansjósusósu í stil millistríðsáranna. Þetta er staður með stfl. Hátt er til lofts, bjart og fagurt í matsalnum, þægilegir armstólar við glugga og fullbólstraðir stólar innar. Veggstór f ÓktlS 4. september 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.