Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Page 7
Sýningin -30 60+ þar sem ungir myndlistarmenn
sem enn eru ekki komnir á fertugsaldurinn, sýna mec
kollegum sínum sem eru á sjötugs- og áttræðisaldr
verður opnuð á Kjarvalsstöðum á morgun. Af þessi
tilefni hitti einn ungliðinn, Gabríela Friðriksdóttir,
einn öldunganna, Magnús Pálsson, að máli oc
spjallaði við hann um listina, tímann, æskuna og ellina
n
£ * ||
6KKJ nara nei
í efnahagslegri uppsveiflu eftir-
stríðsáranna brenndu múraðir ís-
lendingar peninga sér til skemmt-
unar á meðan listamenn með
óloðna lófa gerðu abstraktverk. Fyr-
ir ekki allöngu glefsaði rússneskur
listarakki í sænska gesti á opnun og
ungum listamanni var hótað lifláti
fyrir að brenna fimm hundruð
krónur í listrænum tilgangi á Sól-
oni íslandus í fyrra. í dag er sam-
sýning á verkum myndlistarmanna
að Kjarvalsstöðum sem ber hið tölu-
lega heiti -30 +60 Þeir sem halda að
um hitamælingar sé að ræða hafa
ekki alrangt fyrir sér því einhveij-
um er heitt þarna en öðrum kalt.
En sannast er að annar helmingur-
inn er undir þritugu en hinn yfir
sextugu. Ég átti smáspjall við
Magnús Pálsson í vikunni en við
eigum bæði verk á sýningunni.
Tónverkasprenging
í hljóðhimnu
Magnús er búsettur á Bretlandi
en kemur heim til íslands helst fjór-
um sinnum á ári til þess að næra
rætur sínar og fylgjast með. Að-
spurður er hann á því máli að við
eyjarskeggjar séum ekkert svo
voðalega heimsk heimaalin börn
eins og við héldum heldur bara
nokkuð mær hvað myndlist varðar
og þakkar það skorti á framhalds-
menntun hérlendis og tíðum náms-
dvölum íslendinga erlendis af þeim
sökum.
Magnús nam leiklist og leik-
myndagerð I Vín. 1956 kom hann
heim, þá 27 ára, og hóf störf hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og vann þar
nokkur ár.
Ég varð þeirrar ánægju aðnjót-
andi að sjá á fjölum Þjóðleikhússins
1991 „Sprengda hljóðhimnu vinstra
megin“, leikverk eftir hann sem
hann leikstýrði ásamt öðrum. Þegar
ég spyr Magnús hvemig hann hafi
það í hljóðhimnunni segir hann
hana alltaf jafnbilaða. Og vissulega
var leikverk þetta „bilað“ en það
var líka það sem gerði það mein-
hollt, eins og raun bar vitni. Þetta
var sannkölluð sáluhjálp þeim sem
skaddaðir voru orðnir af realískri
sviðsleikritaneyslu.
Magnús er með tónverk i hlust-
unum þessa dagana en bætir því
hæversklega við að „alvöru" tónlist-
armenn myndu líklega ekki vilja
kannast við þennan verk og satt
best að segja sé hann háifhræddur
við hann sjálfur.
Ómengað fluxusloft
og yngisánægjan
Þegar ég færi mig upp á skaftið
og kref hann álits á yngislist sam-
tímans og spyr hvort hann þekki
eitthvað til listamannanna í -30
menginu á Kjarvalsstöðum nefnir
hann Gjömingaklúbbinn sem tróð
upp á Nýlistasafninu ásamt honum
í fyrrasumar. Hann lætur vel af
þeirri uppákomu og þó sérstaklega
hafi verið gaman að sjá að þar var
hópur að vinna saman en ekki ein-
björn að metast við tvíbjöm eins og
gjaman vill verða.
Hvaö var í gangi í myndlist þegar
hann var -30 ára? Jú, alveg rétt, það
var abstraktið! Magnús segir þá
stefnu hafa birst sér á björtu hlið-
inni og sú hlið snúi enn þá upp. En
vel uppalin börn lenda líka í úti-
stöðum við foreldra sína og Magnús
lenti þarna í bardaga við abstraktið
með brjóstið, m.a þanið af fjörefna-
ríku flúxuslofti.
En hvað gerum við nú þegar
risar eru vindmyllur og allt of fáir
fjargviðrast út í listina og enginn
kallar okkur geðtrufluð lengur?
Verður ekki að fara í stríð?
Magnús bendir á að sér finnist að
ungt fólk sé ánægt í dag og hafi
enga ástæðu til að nöldra.
Ég nefni við hann að margir mér
eldri listamenn haldi því fram að
við þessir ungu höfum i raun ekk-
ert að segja og að list okkar megi
flokka undir skemmtiiðnaðarfram-
leiðslu. Margir vilji meina að það
vanti pólitík í unglist samtímans.
Magnús bætir hér inn í að honum
hafi nú aldrei fundist að pólitísk
mótmæli eigi beint erindi inn í list
en að list sé alltaf afar pólitísk í
sjálfu sér, hvort sem um sé að ræða
köld stríð eða ekki. Ef eitthvað sýð-
ur í mönnum þá er það náttúrlega
pólitískt.
Víti til varnaðar
og tepruskapur
Er eitthvað sem myndlistarmenn
þurfa að varast?
„Galleríin eru hættuleg," segir
Magnús, „og listastofnanir þegar
þau ganga hinum myrku markaðs-
öflum á hönd. Þessi öfl eru að vissu
leyti góð þvi að fjárhagsleg gróska
er aflgjafi fyrir list og hvað sem er
en þetta er farið að stjórna og mæla
fyrir hvemig list eigi að vera.“
„Finnurðu ekki fyrir þessu?"
spyr hann.
Ég reyni að fara undan flæmingi
„Galleríin eru hættuleg og listastofnanir þegar þau ganga hin-
um myrku markaðsöflum á hönd,“ segir Magnús Pálsson
consept-afi í foðurlegum tón við Gabríelu Friðriksdóttur, sem er
að feta sín fyrstu spor inn í myndlistarheiminn.
og ber fyrir mig reynsluleysi en
nefni þá við hann að tíðrætt hafi
verið á undanförnum misserum
hversu hræddir myndlistarmenn
séu við peningastyrki í auglýsinga-
formi og fyrir mér sé þetta í ætt við
tepruskap. Af hverju ættu myndlist-
armenn ekki að markaðssetja sig
duglega og græða almennilega?
Magnús segir hræðsluna kannski
bara gamla rómantik, það að vera
fátækur listamaður og og helst í ást-
arsorg og avantgarde-hugmyndin að
vera óháður öllu. Magnús bætir síð-
an við að listamenn verði að vera
vel á verði gagnvart öflum sem viija
temja þá.
Við erum orðin frekar þreytt á
þessum orðum og viljrnn fara að
gera eitthvað! Magnús að stjórna
tíu manna tónsveit og ég að sauma
minnisvarða. Þama upp í geimnum
hljóta að svífa einhvers konar
myndir, orð og gjörningar, tónar og
draumar - hvað verður annars um
þetta allt? Ef svörin felast í svart-
holum verðum við að smíða tæki til
þess að komast þangað inn, engin
spurning! Gabríela Friðriksdóttir
Á morgun kl. 21.00 ver&ur „Sorglegt kvöld“ í
Kaffllelkhúslnu meö Ollver Manoury og góö-
um gestum. Þeir byrja klukkan níu og eru örfá
sæti laus.
Bryndís Ásmundsdóttlr byrjuö aftur. Á
sunnudaginn heflast djass- og blúskvöld með
Bryndísi og félögum á veitingastaðnum Vega-
mótum. Félagar hennar eru engir aðrir en Ást-
valdur (planó), Blrgir Braga (kontrabassi) og
Gu&mundur „Papa Jazz" Stelngrímsson
(trymbill).
Gu&rún Jóhanna Jónsdóttlr einsöngvari heldur
sína fyrstu tónleika í Hafnarborg á mánudags-
kvöldið kl. 20.30. Undirleikari verður Wllllam
Hancox. Á efniskrá eru meðal annarra
söngverk eftir Pál ísólfsson, Jón Ásgelrsson,
Obradors, Brahms, Serrano, Cllea og Verdl.
Þann 8. september verða tönleikar í Selfoss-
kirkju. Þar verða Slgrún HJálmtýsdóttlr sópr-
an og Anna Gu&ný Gu&mundsdóttlr, planó.
Tónleikarnir byrja kl. 20.30 og eru innan við
50 mln langir. Aðgangur ókeypis.
meira a.
www visiris
meyjar ath...
lýkur um helgina
INGHÓLL
lokatónleikar á
ROADWAY-----------1
að sér kveða
að auki:
+ Spur+ DJ Rokkbitsj —
er hafin
--------landsmenn &
sumarreisu Sálarinnar
föstudagskvöld:
----laugardagskvöld:
B
óvæntir gestir láta
Real Flavaz
1200 - forsala miða
4. september 1998 f ÓkllS
7