Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 19
myndlist
4
Árni Dani'el Júlíusson, fyrrum pönkari og nýorðinn
doktor í sagnfræði, segir að flótti landnámsmannanna
til íslands hafi verið flótti frá snobbinu í Evrópu,
konungsvaldinu og borgarmenningunni.
Þegar íslendingar gengust undir þetta tvennt og létu
í ofanálag svokallaðar þjóðhetjur troða upp á sig
þeirri evrópsku uppfinningu, þjóðríkinu,
var stríðið tapað.
Evrópa sigrar
gamla íslenska
flóttamenn
Maður er nefndur Jesse L.
Byock. Hann er prófessor I norræn-
um fræðum við UCLA, Háskóla
Kaliforníu í Los Angeles. Að hans
sögn gripu menn tækifæriö þegar
þeir höfðu numið ísland og losuðu
sig við allt það óþarfa umstang sem
fylgir ríkisvaldi og öðrum evrópsk-
um stofnunum. Menn vildu vera
frjálsir og töldu að allar þær stofn-
anir sem siðmenning Evrópu hafði
skapað hindruðu þær fyrirætlanir.
Það skapaði hina sérstæðu, íslensku
þjóðmenningu þjóðveldisaldar, sem
var svo sérstæð að við íslendingar
höfum aldrei beðið þess bætur. Sam-
kvæmt Byock voru íslendingar því
að flýja Evrópu og evrópska menn-
ingu, rétt eins og Ameríkanar nokk-
ur hundruð árum síðar.
Ameríkaníseraðir 800
árum á undan Könum.
Sé grannt skoðað skapa hinar
áhugaverðu hugmyndir Byocks al-
veg nýjan grundvöll fyrir Evrópum-
umræðuna. Ef íslendingar voru að
flýja Evrópu í leit að frelsi, eins og
innflytjendur til Bandaríkjanna
síðar, má túlka íslandssöguna síð-
an þá, að minnsta kosti lengst af,
sem tilraun til að Evrópuvæða ís-
land.
Eiginlega eigum við íslendingar
miklu meira sameiginlegt með Am-
eríkönum en Evrópubúum, sé það
skoðað að Evrópa haföi verið byggð
Evrópubúum í marga tugi þúsunda
ára þegar ísland fannst og byggðist
frá Evrópu en ekki leið nema til-
tölulega skammur tími á þeim
mælikvarða þar til Ameríka fannst
og var byggð Evrópubúum. í þeim
skilningi eigum við miklu meira
sameiginlegt með Ameríku en Evr-
ópu og unnt er að færa að því rök
að íslendingar hafi orðið ansi amer-
íkaníseraðir strax við landnám hér
- 800 árum á undan Könum.
sem þeir héldu að væru framsækn-
ustu hugmyndir upplýsingarinnar á
18. öld og stofnuðu lýðveldi sem í
rauninni var ekkert annað en evr-
ópskt konungsveldi íklætt dulbún-
ingi lýðveldis. Flest vandamál í
stjómkerfi Bandaríkjanna má rekja
til þess að þeir hafa enn ekki gert al-
mennilega upp við arfinn frá ein-
veldinu. Þá er betra að gera eins og
íslendingar gerðu: Þykjast vera kon-
ungssinnar en fara sínu fram.
Ekki er nóg með að íslendingar
vildu ekkert konungsvald heldur
vora þeir á móti öllu sem hét borg-
armenning. í Noregi voru stofnaðar
borgir að framkvæði konungs, til
dæmis Bergen, og lét konungsvaldið
flytja þangað biskupssetur og stuðl-
aði á annan hátt að vexti borga. Hér
vildu menn ekkert með slíkt hafa og
héldu sig við að hafa biskupssetur
eins langt inni í landi og mögulegt
var með góðu móti, á Hólum og í
Skálholti. Þetta var meðvituð (eða
ómeðvituð, það skiptir ekki höfuð-
máli) and-Evrópustefna þeirrar tíð-
ar. Þannig fóru tvær merkustu upp-
finningar hins evrópska hámiðalda-
samfélags nær algjörlega fram hjá
íslendingum: Efling konungs- og rík-
isvalds og stofnun borga. Banda-
ríkjamönnum feilaði algjörlega á
þessu, þeir stofnuðu hverja borgina
á fætur annarri og stældu þannig
evrópska menningu, líka á þessu
sviði, með misjöfnum árangri eins
og þekkt er.
Af þessu má draga þá ályktun að
flóttinn frá Evrópu hafi tekist á ís-
landi, að þar hafi mönnum tekist
það sem þeir ætluðu sér samkvæmt
Byock, að minnsta kosti um skeið,
en ekki í Ameríku.
Danakóngurákveðurað
gera eitthvað í málinu
En sagan er ekki öll sögð. Þar
kom nefnilega að Evrópa náði í
Jón Sigurðsson, Jónas Hallgrímsson og Jón Baldvin Hannibalsson. J-in fjögur í liði
Evrópu gegn íslensku tilrauninni til að losna undan áhrifum meginlandsins.
Engan kóng
og engar borgir
Islendingar tóku sína ameríkanís-
eringu ansi alvarlega, eiginlega
miklu alvarlegar en Kanar sjálfir
gerðu nokkum tíma. Þeir höfnuðu
því algerlega til að byija meö að
taka upp þá evrópsku uppfinningu
konungsvald sem þá var nýjasta
nýtt í evrópskri menningu. Það var
kúl að hafa kóng en íslendingum
fannst það ekki. Að lokum neyddust
þeir til að leyfa norska kónginum að
þykjast hafa völd hér á landi en í
rauninni breyttist fátt eða ekkert.
Konungsvaldið réð litlu sem engu,
það var bara þægilegra að láta sem
svo væri gagnvart snobbuðum Evr-
ópumönnum. Bandaríkjamenn fóra
öðravisi að þessu, þeir stældu það
skottið á Islendingum. Það gerðist
þegar Danakonungur komst að því
að hann bar formlega ábyrgð á þess-
um flóttamönnum og hafði sú
ábyrgð hafnað á skrifborði hans við
að Noregsveldi hrundi og Danakon-
ungur varð líka Noregskonungur.
Danakonungur ákvað að gera eitt-
hvað í málinu.
Byrjað var á því að kenna Islend-
ingum að bera virðingu fyrir kon-
ungsvaldinu. Tækifærið var notað í
siðaskiptunum og Jón Arason og
synir hans hálshöggnir og þorðu
menn eftir það ekki að draga vald
Danakongs í efa. I þessu fólst ýmis-
legt annað en bara virðing fyrir kon-
ungsvaldinu því þetta var upphafið
á því að íslendingar kynntust því
evrópska fyrirbæri sem heitir sið-
menning. Það komst sem sagt úr
tísku að menn gætu drepið mann og
annan og hagað sér eins og þeir
vildu svo lengi sem þeir áttu eitt-
hvað undir sér. Tillitssemi og kurt-
eisi varð allt i einu in en þó aðeins
í hófi. Hin séríslenska útgáfa af evr-
ópskri siðmenningu fól í sér (og fel-
ur enn þá) að siðmenningin var not-
uð sem skálkaskjól, ýmis ytri form
hennar voru tekin upp til að róa
herraþjóðina. Ekki er vist að hún
hafi náð mjög djúpt. Guðhræðsla,
konungshollusta og annað slíkt
snobb hefur aldrei verið hin sterka
hlið Islendinga.
Borg búin til
Næsta skref í langtímaáætlun
Dana var að stofna borg á íslandi.
Það kemur raunar á óvart að sá
framkvæmdaóði Kristján 4. sem
stofnaði borgir um allt ríkið og
byggði Rósenborgarhöll, Börsen og
aðrar þjóðargersemar Dana skyldi
ekki láta byggja borg á íslandi upp
úr 1600 en líklega hefur borgarastétt
Kaupmannahafnar átt eitthvað inni
hjá honum. Hún fékk nefnilega
einkarétt á því að versla á íslandi
eins og allir þekkja. íslendingar
fengu enga borg í það sinnið.
Það gerðist síðar og Danir studdu
Skúla Magnússon með ráðum og
dáð í þeirri framkvæmd. Reykjavík
var valin sem tilraunaverkefni á
þessu sviði og á tímabilinu
1785-1800 voru mikilvægustu stofn-
anir landsins á þeim tíma, biskups-
stólarnir, sameinaðir og jarðir
þeirra seldar. Sá eini biskupsstóO
sem eftir var hafði aðsetur í Reykja-
vík. Þar sátu líka stiftamtmaðurinn
og aðrir háembættismenn. I raun-
inni gerðist ekki annað lengi vel:
Embættismenn og yfirvöld fluttu í
þurrabúðarhverfið á Seltjaraamesi
sem þar hafði verið við lýði frá
ómunatíð. Það var hin séríslenska
útgáfa af því evrópska fyrirbæri
borg.
Dönum hafði loks tekist um 1800
að koma á fót eins konar eftirherm-
um af tveimur af þeim stofnunum
sem gerðu Evrópu að því sem hún
var: Ríkisvaldi og borgarmenningu.
Það verkefni að afameríkanísera ís-
lendinga og gera þá að Evrópubúum
á ný hvað varðaði þessi tvö grund-
vallaratriði var nú tiltölulega vel á
vegi statt.
Evrópusinnar undir
merkjum þjóðernis
Þriðji liðurinn og úrslitaþáttur-
inn í þessari áætlun var að sann-
færa íslendinga um að þeir byggju á
jaðri veraldar og ættu allt sitt undir
því að taka upp sem allra mest af
evrópskri menningu. Annars
myndu þeir farast. íslendingar
þurftu á framfórum að halda, var
sagt. Bent var á hungursneyðir og
eldgos 18. aldar og sagt: Sjá, ef þið
gerið ekki eins og við segjum (sögðu
íslenskir evrópusinnar þess tíma,
Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðs-
son og aðrar „þjóðhetjur", sem í
raun gerðu ekki annað en að lepja
upp hráar kenningar Herders og
annarra þýskra menntamanna um
þjóðemisstefnu, eins óislenskar og
mest mátti vera) ferst þjóðin, hún
verður flutt á Jótlandsheiðar eða
eitthvað enn verra. Og nú var fjand-
inn laus: Undir merkjum „þjóðemis-
stefnu" var íslendingum att út í að
líkja sem mest eftir einhverri mis-
heppnuðustu stofnun sem fundin
hefur verið upp í Evrópu, þjóðrík-
inu. Fundinn var upp þjóðfáni, bú-
inn til þjóðsöngur og loks var stofn-
að lýðveldi með höfuðborg. Að sögn
var verið að endurvekja foma reisn
íslenska þjóðveldisins en ekkert get-
ur verið fiær sanni. Undir merkjum
„þjóðernisstefnunnar" hafði tekist
að gera íslendinga evrópskari en
nokkurn tímann áður. Það markmið
að flýja Evrópu og snobbið þar var
endanlega gleymt. íslendingar fóru
að trúa því sjálfir, i raun og veru, að
stofnanir eins og ríkisvald, borgir
og framfarir væru til góðs, í stað
þess að nota heilbrigða skynsemi og
játa þeim með vörunum en vera trú-
ir íslendingseðlinu í hjarta sínu.
Að vísu voru til einstaka heil-
brigðir íslendingar, eins og Jónas
frá Hriflu, sem af eðlisávísun höfn-
uðu evrópskum áhrifum, en hann
var fljótlega úthrópaður og minning
hans svert.
Allt er tapað
Nú er ekkert eftir nema að taka
lokaskrefið, sameinast Evrópu. Það
er allt tapað. Það eina sem hægt er
að gera er að taka því sem að hönd-
um ber með stóískri ró. Það eru ör-
lög okkar að snúa á ný aftur til upp-
runans. Ein efnilegasta tilraun til að
öðlast frelsi frá Evrópu er á enda.
Þeir sem nú berjast hetjulega gegn
inngöngu í Evrópu eiga lof skilið
fyrir baráttu sína en hún er von-
laus: Allar stoðir íslendingseðlisins
eru löngu hrundar og komnar í
glatkistuna. Hetjuskapur þeirra sem
höfðu kjark til að yfirgefa Evrópu og
skapa nýja og frumlega menningu á
grundvelli frelsis er að engu orðinn,
eins og bylting sem kveðin hefur
verið niður. Leiðin liggur óhjá-
kvæmilega til Evrópu.
Ljóst er af þessu að Evrópuvanda-
málið á sér mun dýpri rætur en al-
mennt er taliö. íslendingar geta að-
eins verið samkvæmir sjálfum sér,
trúir upprana sínum, með því að
leggja niður borgir, ríkisvald og
þjóðríki. Svokallaðar framfarir 19.
og 20. aldar eru ekkert annað en
hömlulaus Evrópuvæðing. Spurn-
ingin um að ganga í Evrópubanda-
lagið eða ekki verður hjóm eitt hjá
þessum grundvallaratriðum.
Árni Daníel Júlíusson
Opnanir
Gerðuberg menn-
ingarmiðstöö Á
morgun, 5. septem-
ber kl. 11, hefst
Sjónþlng Kristlns
G. Harðarsonar.
Spyrlar eru Aðal-
steinn Ingólfsson
og Ingólfur Arnars-
son. Ferill Kristins er svo litrikur aö þetta
gætl orðiö mesta fjör. Sama dag verða opn-
aðar sýningar á verkum hans í Gallerii Sæv-
ars Karls og Gerðubergi. Sýningin í Gerðu-
bergi stendur til 24. október, opið mán.-fim.
kl. 9-21, fós. kl. 9-16, laug. og sun.
12-16. Sýningin í Galleríi Sævars Karls
stendur til 30. september og er opin á versl-
unartímum.
n Gerðarsafn, Kópavogl.
5. september kl. 15 verð-
v ^ 1' * málverkum Slgrúnar Eld-
' * e„,\ stendur til 27. septem-
™ ber. ^ Margrét Sveins-
vestursal á sama tíma. Opið frá kl. 12-18
alla daga nema mánudaga.
KJarvalsstaðir, v/nókagötu. Föstudaginn 4.
september kl. 20 verður opnuð samsýning
tveggja kynslóða: -30 / 60 +. Fjölmargir lista
menn úr báðum aldurshópum taka þátt. Sér-
kennilegt upplegg; gæti verið spennandi.
Norræna húslð, anddyrl. Föstudaginn 4.
september verður opnuð sýning á náttúrulífs-
Ijósmyndum sem Andý Horner hefur tekið á
Álandseyjum. Sýningin stendurtil 30. septem-
ber og er opin kl. 9-18 alla daga, nema
sunnudaga frá kl. 12-18.
Ráöhúslð, TJarnarsalur. I gær var opnuð sýn-
ing á Ijósmyndum eftir 5-6 ára bórn. Sýningin
stendurtil 15. september og er opin kl. 8-19
virka daga og 10-18 um helgar.
Síðustu forvöð
Listasafn íslands Yfirlitssýningunni um ís-
lenska myndllst, sem verið hefur í sumar, lýk-
ur núna um helgina. Safnið er opið alla daga
nema mánud. kl. 11-17.
Perlan. Sýning Ríkeyjar hefur verið framlengd
fram á sunnudag vegna mikilla vinsælda.
Þetta er fjölbreytt sýning og eitthvað fýrir alla.
Hún er opin frá hádegi og fram eftir kvöldi.
Ketilhúsið, Akureyri. Sýning Arnars Þor-
stelnssonar, sem ber yfirskriftina „Málmur I
Atómstöð", er opin frá kl. 14-18 alla daga
vikunnar til 8. september.
Mokka, Skólavörðustíg. Sýningu Valgerðar
Guðlaugsdóttur, „Þjóðgarðar", lýkur 9. sept-
ember.
Nýllstasafnlð, Vatnsstíg 3b. Daníel Þ. Magn-
ússon, Juan Geuer, Hrafnhildur Arnardóttlr og
Flnnur Arnar sýna verk sín til 6. september.
Safnið er opið frá kl. 14-18 alla daga.
Aðrar sýningar
Árþúsundasafnlð, í rlsi Fálkahússlns, Hafnar-
stræti 1. Sýning Grelpars Ægls er opin frá
9-19 alla virka daga og um helgar frá 10-19.
Gallerí Geysir. Sýning Llstasmlðju Hlns Húss-
Ins stendur til 13. september.
Gallerí Hár og Llst. Brynja Árnadóttlr sýnir
pennateikningar. Opið á virkum dögum frá kl.
9-18 en um helgar frá 14-18 til 17. septem-
ber.
ÉHafnarborg, menningar-
og llstastofnun Hafnar-
fjaröar. Við mörk mál-
verksins, samsýning
Jóns Óskars, Guöjóns
Bjarnasonar og BJarna
Sigurbjörnssonar. Hanna
Kristín Gunnarsdóttlr
Ijósmyndari með sýning-
una Stefaníu í kaffistofu hússins. Sýningarn-
ar standa til 14. september. Opiö alla daga
nema þriðj. kl. 12-18.
Llstahátíö í Reykjavík. Höggmyndlr. Sýningin
er 6 km löng og nær frá Sörlaskjóli I vestri og
inn í Fossvogsbotn. Sýningin stendur til 7.
október.
Ustasafn ASÍ. Ásmundarsalur: Slgriður Ólafsdótt-
ir sýnir olíumálverk. Gryflan: Helena Guttorms-
dóttlr sýnir olíumálverk. Opið frá 14-18 alla daga
nema mán. Sýningin stendur til 13. september.
Llsthúslð Laugardal, Engjatelgi 17. islensk
náttúra, íslenskt landslag eftir Sjöfn Har. Opið
virka daga kl. 12-18. Laugardaga kl. 11-14.
Norræna húslð. Sýning á verkum Rojs Frl-
bergs. Sýningin verður opin kl. 14-18 alla
daga nema mán. til 27. september.
Listasafnlö á Akureyrl.
Skjáir veruleikans er sýn-
ing á verkum 10 evr-
ópskra listmálara; fulltrú-
ar íslands eru Daði Guö-
björnsson og Helgi Þor-
glls Frlðjónsson. Hún
stendur til 18. okt. og
verður opin kl. 14-18
alla daga nema mán.
xneiiira sl
www.visir.is
4. september 1998 f Ókus
19