Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1998, Qupperneq 6
m a t u r
Argentína ★★★
Barónsstíg lla, s. 551 9555.
„Bæjarins besta steikhús hefur dalaö. Dýr-
ustu og enn þá bestu nautasteikur landsins,
en ekki alveg eins innanfeitar og safarikar og
áöur." Op/ð 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
Einar Ben ★★
Veltusundl 1. 5115 090.
„Fremur þemahús en veitingahús og leggur
meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar
Ben. býöur yfirleitt ekki upp á vondan mat og
verður því seint jafnvinsæll og Fashion Café
eða Planet Hollywood." OpiO 18-22.
Café Ópera ★
Lækjargötu 2, s. 522 9499
„Undarlegir stælar einkenna þetta Café Óperu
og þar virðist vera takmarkaður áhugi á mat-
reiöslu." OpiO frá 17.30 til 23.30.
Hard Rock Café ★★
Krlnglunnl, s. 568 9888
„Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annað
en skyndibita og vill ekki annaö en skyndibita;
fólki, sem þolir tvöfalt verð fyrir góða ham-
borgara og daufa ímynd þess að vera úti að
borða. Þjónustan jafn alúðleg og ágæt og
fyrr." OpiO 11.30-23.30.
Hótel Holt ★★★★★
Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700.
„Listasafniö á Hótel Holti berí matargerðarlist
af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara
saman frumlegir réttir og nærfærin mat-
reiðsla, sem gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti."
OpiD 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30
og 18-22 fd. og Id.
Hótel Óðinsvé ★★
v/Óöinstorg, s. 552 5224.
„Stundum góður matur og stundum ekki, jafn-
vel í einni og sömu máltíö." OpiD 12-15 og
18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
Iðnó ★★★
Vonarstrætl 3, s. 562 9700
„Öll umgjörð Iðnó er vönduð og stílhrein.
Henni fylgir traust og góð þjónusta og mat-
reiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir, en
nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var
að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis-
stæðir." OpiD frá 12-14,30 og 18-23.
Ítalía ★★
Laugavegl 11, s. 552 4630.
„Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir
og gæðaþjónustan er hálfítölsk. Þaö, sem
tæpast hangir í ítölskunni, er matreiöslan."
OpiO 11:30-11:30.
Lauga-ás ★★★★
Laugarásvegl 1, s. 553 1620.
„Franskt bistró að íslenskum hætti sem dreg-
ur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda
í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og feröa-
menn utan af landi og frá útlöndum. Hér koma
hvorki uppar né Imyndarfræðingar." OpiO
11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka ★★
Bankastrætl 2, s. 5514430.
„Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram-
bærileg eða vond eftir atvikum. Meö annarri
hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en
með hinni er farið eftir verstu hefðum." OpiO
md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30.
Mirabelle ★★★
Smiöjustíg 6., s. 552 2333.
„Gamal-frönsk matreiösla alla leið yfir I
profiteroles og créme brulée. Mirabelle er
komin á gott skrið." OpiO 18-22.30.
Pasta Basta ★★★
Klapparstíg 38, s. 561 3131
„Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af
góðum pöstum en lítt skólað og of uppá-
þrengjandi þjónustufólk." OpiD 11.30-23
virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er
op/nn til 1 virka daga og til 3 um helgar.
La Primavera ★★★★
Austurstræt! 9, s. 561 8555
„Sjálfstraust hússins er gott og næg innistæöa
fyrir því." OpiO 12,00-14,30 og 18,00-22,30
virka daga og um heigar frá 18,00-23,30.
Rauðará ★
Rauöarárstíg 37, s. 562 6766.
„Túrista-steikhús." OpiO frá kl. 18 og fram eft-
ir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aOsókn.
Skólabrú ★★★
Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt,
en dálítiö frosin. Þjónustan er kurteis og hóf-
söm." OpiO frá kl. 18 alla daga.
Við Tjörnina ★★★★
Templarasundl 3, s. 551 8666
„Nú virðist Tjörnin endanlega hafa gefið for-
ystuna eftir og raunar annað sætið líka, gerir
oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar
stundum." OpiD 12-23.
Þrír Frakkar ★★★★
Baldursgötu 14, s. 552 3939
„Þetta er einn af hornsteinum íslenskrar mat-
argerðarlistar og fiskhús landsins númereitt."
OpiO 12-14.30 og 18-20 virka daga og
18-22 um helgar en til 23 föstudag og
laugardag.
meira á.
www.visir.is
ísienska samfélagið er lítið annað en leiktjöldin. Við erum langskólagengin en í raun ómenntaður, nýríkur
skríll. Við eigum utanríkisráðuneyti en rekum andskotans enga utanríkisstefnu. Við eigum Þjóðarbókhlöðu
en hlægilega lítið af bókum. Það varð alla vega niðurstaðan í lítilli könnun Fókuss á hversu margar af mest
metnu fagurbókmenntum síðustu ára væri að finna í bókageymslunni á Melunum.
Þaö vitlausasta sem nokkur mað-
ur getur gert er að labba út á vídeó-
leigu og ætla sér að leigja einhverja
tiltekna mynd. Hún er aldrei inni.
Þess vegna fer fólk út á leigu og
reynir að sætta sig við það sem í
boði er. Það sama á við um ís-
lensku alfræðibókina. Hún gagnast
ekki eins og venjulegar uppfletti-
bækur, það eru einfaldlega of fá
uppflettiorð í henni. Það er hins
vegar ágætt að blaða í henni, svona
þegar fólk hefur ekkert skárra að
gera.
Landsbókasafnið - Háskólabóka-
safn i Þjóðarbókhlöðunni er svipað
fyrirbrigði. Ef fólk vantar íslenska
bók finnur það hana vanalega, í
það minnsta fær að vita að hún er
í útláni. En það er verra með út-
lendar bækur. Fólk verður að sætta
sig við að lesa það sem til er og
reyna að gleyma ölium hinum bók-
unum.
Einhverjum finnst þetta sjáifsagt
hljóma öfugsnúið í ljósi þess að ís-
lendingar kcilla sig bókaþjóð (á
seinni tímum hefur verið tilhneig-
ing í þá átt að nota orðið bók-
menntaþjóð) en þannig er þetta nú
samt. Það er sáralítið til af al-
mennilegum bókum í Þjóðarbók-
hlöðunni.
Til að sýna þennan skort tók Fók-
us saman lista yfir þær bækur sem
hafa fengið nokkur heldri verðlaun
undanfarin fimm ár og kannaði
hvort þær væru til í Þjóðarbókhlöð-
unni. Þetta eru þær bækur sem þeir
sem fylgjast með fagurbókmenntum
ættu ekki að geta verið án. En því
miður. Þeir verða að bíða í nokkur
ár áður en þessar bækur koma á
safnið. Ástandið er um margt svipað
og í bíóunum fyrir tíu fimmtán
árum þegar myndir voru orðnar
fjögurra fimm ára gamlar þegar þær
rak á land hér. Þannig eru til á safn-
inu svo til allar þær bækur sem
unnu Pulitzer-verðlaunin í flokki
skáldsagna og rita almenns eðlis allt
þar til fyrir ljórum fimm árum síð-
an. Nýrri bækur sjást ekki á safn-
inu. Svona er ísland vel tengt um-
heiminum. íslenska intellígensían
virðist sætta sig við að vera útnári
veraldar þótt bíósjúklingamir láti
ekki bjóða sér það lengur.
Hér að neðan má sjá listann yfir
þær verðlaunabækur síðustu ára
sem eru til á Landsbókasafninu en
þó einkum þær sem vantar á safnið.
Gjörið svo vel og skoðið bækumar
sem við fáum ekki að lesa.
veitingahús
bókaþjóð
+ Til á Landsbókasafninu — Ekki til á Landsbókasafninu
Pulitzer-verðlaunin Skáldskapur Philip Roth American Pastoral
Almenn rit Jared Diamond Guns, Germs and Steel +
., Ævisögur Katharine Graham Personal History
Saga Edward J. Larson Summer for the Gods
Ljóð Charles Wright Black Zodiac —
PEN/Faulkner-verölaunin Skáldskapur Rafi Zabor The Bear Comes Home ■B
Alþjóðlegu IMPAC-verðlaunin Skáldskapur Herta Muller The Land of Green Plums
1997
Pulitzerverðlaunin Skáldskapur Steven Millhauser Martin Dressler
Almenn rit Richard Kluger Ashesto Ashes
Ævisögur Frank McCourt Angela's Ashes —
Saga Jack N. Rakove Original Meanings ■B
Ljóð Lisel Mueller Alive Together -i
Booker-verðlaunin Skáldskapur Arundhati Roy The God of Small Things —
The National Book Award Skáldskapur Charles Frazier Cold Mountain mm
Almenn..tit. Joseph Ellis American Sphinx —
Ljóð William Meredith Effort at Speech
Ungt fólk Han Nolan Dancing on the Edge
PEN/Faulkner-verðlaunín , ..Skáldskapur Gina Berriault Women in Their Beds —
National Book Critics Circle Awards Skáldskapur. Penelope Fitzgerald The Blue Fiower —
Almenn rit. Anne Fadiman The Spirit Catches You and You Fall Dowi
Ævisögur James E. Tobin Ernie Pyle's War
Ljóð Charles Wright Black Zodiac —
Gagnrýni. Mario Vargas Llosa Making Waves
Alþjóðlegu IMPAC-verðlaunin Skáldskapur. Javier Marias Corazón tan bianco —
1996
Pulitzer-verðlaunin . .Skáldskapur, Richard Ford Independence Day —
Almenn rit Tina Rosenberg The Hounted Land —
Ævisögur Jack Miles God; A Biography —
Saga Alan Taylor William Cooper's
Ljóð Jorie Graham The Dream of the Unified Fieid —
Booker-verðlaunin Skáldskapur Graham Swift Last Orders +
The National Book Award Skáldskapur Andrea Barrett Ship Fever and Other Stories
,, Almenn rit James Carroll An American Requiem —
Ljóð, Hayden Carruth Scrambled Eggs and Whiskey —
Ungtfólk Victor Martinez Parrot in the Oven —
PEN/Faulkner-verðlaunin Skáldskapur. Richard Ford Independence Day —
National Book Critics Circle Awards Skáldskapur Gina Berriault Women in Their Beds —
Almenn rit Jonathan Raban Bad Land —
Ævisögur Frank McCourt Angela's Ashes —
Ljóð Robert Hass Sun Under Wood -T1
Gagnrýni Wiiliam Gass Finding a Form —
Alþjóðlegu IMPAC-verðlaunin Skáldskapur David Malouf Remembering Babylon —
1995
Pulitzer-verðlaunin Skáldskapur Carol Shields The Stone Diaries +
Almenn rit Jonathan Weiner The Beak of the Finch
Ævisögur Joan D. Hedrick Herriet Beecher Stowe —
Saga Doris Kearns Goodwin No Ordinary Time +
Ljóð Philip Levine The Simple Truth
Booker-verðlaunin ..Skáldskapur Pat Barker The Goast Road —
The National Book Award Skáldskapur Philip Roth Sabbath's Theater —
Almenn rjt Tina Rosenberg Facing Europe's Goasts —
Ljóð Stanley Kunitz Passing Through —
PEN/Faulkner-verðlaunin Skáld.skapur David Guterson Snow Falling on Cedars +
National Book Critics Circle Awards . Skáldskapur. Stanloy Elkin Mrs. Ted Bliss
Almenn rjt Jonathan Harr A Civil Action —
..Ævis.ögur Robert Polito Savage Art —
Ljóð William Matthews Time & Money —
... .Qagnrýni Robert Darnton The Forbidden Best-sellers —
1994
Pulitzer-verðlaunin Skáldskapur E. Annie Proulx The Shipping News +
Almenn rit David Remnick Lenin's Tomb +
Ævisögur David L. Lewis W.E.B. DuBois
Ljóð Yusef Komunyakaa Neon Vernacular —
Booker-verðlaunin Skáldskapur James Kelman How Late It Was, How Late +
The National Book Award Skáldskapur William Gaddis A Frolic of His Own
Almenn rit Sherwin B. Nuland How We Die —
Ljóð James Tate Worshipful Company of Fletchers -T
PEN/Faulknervverðlaunin Skáldskapur Philip Roth Operation Shylock -
Kínahúsið: ★★★★
meyr og fínn hörpudiskur með
sterkri ostrusósu. Of seigur var
þó smokkfiskur með grænni
papriku og bambusspírum.
Kjúklingar hæfa matreiðslu af
þessu tagi, svo sem bragðsterkur
Szechuan-kjúklingur með rauðri
sósu, meðalsterkur kjúklingur í
karrí eða mildur kjúklingur með
grænmeti. Andakjöt er lakara og
sízt er Pekingönd. Lambakjöt var
sæmilegt með ostmsósu, sveppum
Hingað kem
A síðustu árum hef ég komið
oftar í Kinahúsið við Lækjargöt-
una en nokkurt annað veitinga-
hús. Margt er það, sem dregur,
matreiðsla, verðlag og andrúms-
loft, sem samanlagt gera Kínahús-
ið að einni af helztu matarvinjum
miðbæjarins. Þar er framreiddur
bezti Kínamatur landsins á hóf-
legu verði.
Stemningin er samt minnis-
stæðust, vingjamleg og friðsæl,
studd mildri tónlist austrænnar
ættar að tjaldabaki. Einfold salar-
kynni lifna við vandaðar Kína-
skreytingar á borð við ljósakrón-
ur, útskorna tréskerma og skel-
plötumyndir. Vestræn þjónusta er
hlýleg og látlaus.
í hádeginu kostar rækjuréttur
575 krónur og þríréttað með súpu
675 krónur. Á kvöldin fást fimm
smáréttir saman á 1375 krónur og
ýmsar aðrar réttasyrpur á 1975
krónur að meðaltali. Meðalverð á
þriréttuðu að frjálsu vali af löng-
um seðli með kaffi er 2.165 krón-
ur.
Matreiðslan er vönduð og
traust, alltaf eins, dag eftir dag og
ár eftir á
steikingar eru hóf-
legar og eldunar-
tímar skammir.
Hér er sérstaklega
eldað fyrir hvern
og einn, en ekki
ausið pottréttum
upp úr hitakössum,
svo sem víða
tíðkast í veitingahúsum, sem
sögð eru kínversk eða austræn.
Súpur eru yfirleitt matar-
miklar, flestar eggjablandaðar,
svo sem mild sjávarréttasúpa,
sterk Pekingsúpa með andakjöti
og sterk karríkrydduð andakjöt-
súpa. Bezt slíkra var humar-
súpa með stórum og meyrum
humarbitum. Súpa dagsins hefur
verið tær og mild hvítkálssúpa,
ekki áhugaverð.
Rækjur hafa reynst mér vel í
ótal útgáfum. Algengastar og þó
lakastar eru milt hjúpaðar, djúp-
steiktar rækjur í súrsætri sósu.
Betri voru pönnusteiktar rækjur
með cashew-hnetum og rækjur í
karrí með grænmeti. Aðrir sjávar-
réttir voru líka góðir, svo sem
„Margt er það, sem dregur, matreiðsla, verðlag og
andrúmsloft, sem samanlagt gera Kínahúsið að
einni afhelztu matarvinjum miðbæjarins.“
og bambus. Vorrúllur hafa alltaf
reynzt sérstaklega góðar, þunnar
og stökkar, greinilega gerðar á
staðnum.
Af eftirréttum er áhugaverðust
eplarúlla, djúpsteikt pönnukaka
með eplasultu. Jasmínte drekkum
við með matnum og milt kaffí á
eftir, ef tími vinnst tiL Hingað fer
ég oftast, þegar ég nenni ekki að
elda.
Jónas Kristjánsson
6
f Ó k U S 2. október 1998