Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1998, Blaðsíða 8
fí ✓ )ld • á
aní tcjja!
Hringdu og
pantaðu
16" pizzu
m eð 5
áleggsteg.
fyrir aðeins
1400 kr.
Crfnt^iwcyi 10 • Rcykjavikurwcyi 60
Á milli Vegamóta og Bíla & listar er nú verið að opna glænýtt hönnunargallerí ætlað
íslenskum fatahönnuðum. Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir er önnur tveggja sem
standa að þessu galleríi. Hún segir að þar verði sýndur og seldur hátískufatnaður
enda þýði ekki að bjóða íslenskum konum neitt annað en það helsta og besta.
Fatahönnuöurnir
ráöa ráöum sfnum
fyrir tískusýninguna
á Vegamótum.
sínum á framfæri. Hver hópur
sýnir í einn mánuð í senn og þá
tekur annar við. Guðrún hefur
engar áhyggjur af að ekki verði
nógur mannskapur til að sýna og
selja í galleríinu.
„Það hafa ótrúlega margir ís-
lendingar lært fatahönnun. Þegar
við vorum að
fara af stað
með galleríið
bað ég um út-
skrift hjá
Lánasjóði ís-
lenskra náms-
manna yfir þá
sem lagt hafa
stund á þetta
síðustu þrjú
árin. Ég fékk
langan lista og
samt voru á
honum nem-
endur frá að-
eins fjórum
löndum.
Engir frá ís-
landi?
„Nei, það er
ekki hægt að
læra fatahönn-
un á íslandi. í
Iðnskólanum er
eitthvað hægt að
læra að sauma
en þvi miður
ekkert meira.
hvort þetta
myndi ganga og
höfðum opið í einn
mánuð fyrir jólin.
Við fengum góðar
viðtökur og þess
vegna er ég bjart-
sýn á framhaldið
hér á Vegamóta-
stíg,“ segir hún.
Nóg af fólki
Hönnunargallerí-
ið er hugsað sem
vettvangur fyrir ís-
lenska fatahönnuði
til að koma verkum
Mér finnst að það verði að gera eitt-
hvað í þeim málum og sé til dæmis
fyrir mér að það ætti að vera
grundvöllur fyrir þetta í Listahá-
skólanum nýstofnaða."
Ætlunin er að það verði alltaf
eitthvaö um að vera í hönnunar-
galleríinu á Löngum laugardögum
og klukkan fimm á morgun verður
haldin þar tískusýning sem opin
verður ölium.
En er þetta ekki rándýr fatnaöur?
„Nei, nei. En kannski ekki alveg
jafnódýr og í næstu tískubúð. Við
getum ekki keppt við Kina í þess-
um efnum.“
-ILK
Engi
om
Það var mikið. Nú
hafa íslenskir fatahönn-
uðir loksins fengið al-
mennilegt tækifæri til að
njóta sín. Guðrún Krist-
ín Sveinbjörnsdóttir og
Olga Gunnarsdóttir eru
manneskjumar á bak við
nýja hönnunargalleríið á
Vegamótastíg. Þær segja
löngu kominn tíma fyrir
slíkt fyrirbæri hér á ís-
landi.
„íslenskar konur eru nýj-
ungagjarnar og fljótar að
grípa það helsta sem er að
gerast í tískunni. Þær vilja
ekki allar vera í eins fötum
og ættu þvi að fagna tilkomu
þessa gallerís þar sem allar
flíkumar eru módelfatnaður,
engar tvær nákvæmlega
eins,“ segir Guðrún Kristín.
Tískuföt
og skrýtin föt
Fatnaður eftir tíu konur
er það sem hönnunargaller-
íið byrjar með og eins og
gera má ráð fyrir verður af
ýmsu að taka. Guðrún
Kristín segir að þama megi
finna allt á milli himins og
jarðar.
Eru þessi föt þá skrýtin
og framúrstefnuleg og ekki
fyrir venjulegt fólk?
„Þetta eru engin ömmu-
föt. Það er kannski eitt-
hvað sem þykir skrýtið og
fríkað innan um en fata-
hönnuðimir fylgjast allir
vel með tískunni og þarna
verður tískufatnaður eins
og hann gerist bestur."
Guðrún Kristín lauk ný-
lega fatahönnunarnámi í
Þýskalandi. Ásamt sex öðr-
um hönnuðum setti hún
upp svipað hönnunargallerí
og hér um ræðir í tilrauna-
skyni á neðri hæð verslun-
arinnar Fríða & dýrið.
„Okkur langaði bara til
Ron Whitehead er ólíkur íslensku inniskóaskáldunum. Bítnikinn Whitehead flengriður Bandaríkjunum og messar Ijóðin sín yfir hausamót
unum á hverjum sem verður á vegi hans. í næstu viku ætlar hann að vekja upp sófakommana á Súfistanum og menntskælingana í MH.
■ ■ I
Oskrandi skáld
„Ég hef löngum haft mætur á
Ron Whitehead. Hann er brjálaðri
en níu geðsjúklingar og ljóöin hans
eru seiðandi blanda af alþýðuspeki
og hreinni stærðfræði," segir Hunt-
er S. Thomson, höfundur Fear and
Loathing in Las Vegas, um skáldið
Ron Whitehead sem er væntanlegur
til landsins í næstu viku.
Bókmenntaprófessorinn Ron
Whitehead er aðalkauðinn í endur-
vakningu Bítnikana. Hann er einn
af þessum amerísku skáldum sem
hafa tekið upp á því að messa yfir
fólki að hætti gömlu meistaranna.
Ron kemur fram sem samviska
samfélagsins og lítur ekki á ljóðið
sem dauðan staf á bók fyrir lesand-
ann að blása lífi í. Hann ferðast um
heiminn og predikar boðskapinn.
Kærir sig ekki um að kristna þá
kristnu heldur þrykkir eitruðum
ljóðum inn um hlustimar á almúg-
anum.
Ljóðakóngurinn Allan Ginsberg
lét hafa eftir sér að hann hefði sjald-
an rekist á aðra eins ljóðaorku og í
ljóðum Whiteheads og var Ginsberg
sjálfur þó nógu öflugur. Þó Ron sé
pottþétt ljóðskáld þá er hann ekki
síður þekktur sem leiðtogi skálda.
Hann hefur staðið fyrir vakningu
meðal þeirra, efnt til ljóðamessna
þar sem hvert skáldið af öðru lætur
ljóðstafi dansa á hlustendum og gef-
ið út ótal bækur og diska. íslensk
ljóðskáld gætu eytt tímanum í verri
hluti en að taka hann sér til fyrir-
myndar.
Ron Whitehead mun lesa upp í
Súfistanum (kaffihús Máls og
menningar) á fimmtudaginn ásamt
því að árita bækur. En hann hefur
gefiö út yfir tvö hundruð ljóðabæk-
ur eftir sjálfan sig og aðra. Svo mun
hann lesa upp í Norðurkjallara MH
frá klukkan níu á föstudagskvöldið
eftir viku. í MH verða með honum
skáldin Frank Messina, Mike
Pollock og fyrstu bóka höfundamir
Auður Jónsdóttir og Guðrún Eva
Mínervudóttir.
En það er ekki eina ástæðan fyr-
ir hingaðkomu Rons. Hann ætlar
ekki bara að breiða út fagnaðarer-
indið heldur ætlar hann í félagi við
aðra að halda alþjóðlegt ljóða- og
tónlistarfestival árið 2000. Einnig er
hann að vinna að diski ásamt utan-
garðsmönnunum Mike og Daniel
Pollock og Birgittu Jónsdóttur.
Þá er ótalið að Whitehead mun rit-
stýra bók eftir Mike sem útgáfufyr-
irtæki hans, The Litterary Rena-
issance, mun gefa út á næsta ári.
-MT
Ljóöaspútnikinn Ron Whitehead ætlar aö
hrella íslenska Ijóöaunnendur í næstu viku.
f ÓkllS 2. október 1998