Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1998, Qupperneq 10
Einhvern tímann heföi verið
harla ólíklegt aö konungur stofu-
poppsins, Burt Bacharach, og ný-
bylgjupopphundurinn Elvis
Costello ættu eftir að vinna sam-
an. Þetta sérkennilega par sendi þó
nýlega frá sér plötuna Painted
from Memory með tólf lögum sem
þeir sömdu saman á tveggja ára
tímabili. Elvis syngur á plötunni
en Burt stjórnar 24 manna
strengjasveit og leikur á flygilinn.
Nú ætlar tvíeykið „on ðe ród“ og
spilar í stærstu borgum Bandaríkj-
anna í október. Einnig er væntan-
leg plata og myndband frá tónleik-
um sem haldnir voru í apríl þegar
mörg stórstirnin heiðruðu Burt
gamla. Þar komu m.a. fram All
Saints, Chrissie Hynde og svo auð-
vitað Dionne Warwick sem söng
öll frægustu lög meistarans í denn.
Stórsnillingurinn Jarvis Cocker mun leikstýra
stuttmynd á næstunni. Myndin verður hluti af stutt-
mynda-safninu „Tube tales“ sem allar fjalla inn
sannar sögur úr neðanjarðarlestakerfi Lvmdúna-
borgar. Fólk mátti senda sögur til tímaritsins Time
Out og voru 10 sögur valdar úr til að gera stutt-
myndir eftir. Auk Jarvis fá m.a. leikarinn Ewan
McGregor (Trainspotting) og Gilles MacKinnon úr
bítlasveitinni Small Faces að spreyta sig. Það er
gamall draumur Jarvisar að gera kvikmynd og stóð
á tímabili til að hann gerði eina mynd í Acid House-
tríólógíunni, en á endanum leikstýrði Paul McGuigan
þeim öllum. Jarvis túrar nú um Ástralíu með félög-
um sínum í Pulp en tekur að sér leikstjórnina í nóv-
ember. Tube tales verðm- frumsýnd á Sky næsta vor.
NR. 292
vikuna 1.10-8.10. 1998
1 5 IFY0UT0LERATETHIS ... . .MANIC STREET PREACHERS 1 2
2 5 SUBSTITUTE FOR L0VE .... MAD0NNA 4 4
3 5 WALKING AFTERY0U .... F00 FIGHTERS 2 8
4 4 WHATS IT LIKE EVERLAST 11 12
5 4 0NEWEEK BARENAKED UDIES 5 14
6 14 1 D0NTWANTT0 MISS ATHING AER0SMITH 3 1
7 9 1 BEL0NG T0 Y0U LENNY KRAVITZ 7 3
8 3 B00TIE CALL ALL SAINTS 8 24
9 3 BURNING BABY BUMPS 10 22
10 3 D00 W0P (THATTHING) ... LAURYN HILL 13 13
11 8 SÍLIK0KN SKÍTAMÓRALL 6 6
12 1 WATER VERVE .. .MARK VAN DALE WITH ENRIC0 1 H V T T 1
13 9 AN0THER 0NE BITES THE DUST . ... .QUEEN /WYCLEF FEAT... 12 5
14 3 FLAGP0LE SITTA HARVEY DANGER 34 40
15 8 TIME AFTER TIME IN0J 9 7
16 4 MILLENNIUM R0BBIE WILLIAMS 17 18
17 4 WHATCAN 1 D0 C0RRS 20 21
18 5 N0 MATTER WHAT B0YZ0NE 15 19
19 6 PURE M0RNING PLACEB0 27 29
20 2 TEARDR0P (FLAVA MIX) ... L0VESTATI0N 21 -
21 4 EVERYBODY GET UP FIVE 22 25
22 6 ENJ0YTHE SILENCE FAILURE 16 9
23 2 NEEDIN’U . .DAVID M0RALES FEATTHE FACE 28 -
24 4 LASTTHING 0NMYMIND .. STEPS 25 33
25 5 LUV ME, LUV ME SHAGGY & JANET 14 10
26 11 0RGINAL ... .SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 18 20
27 3 FALLING IN LOVE AGAIN .. EAGLE EYE CHERRY 32 35
28 3 ALLTHE WR0NG PE0PLE . SELMA 33 38
29 2 THE FIRSTNIGHT M0NICA 35 -
30 11 1NTERG ALACTIC BEASTIE B0YS 19 11
31 1 HÚSMÆÐRAGARÐURINN .. NÝDÖNSK ItnTT
32 6 NEW KIND 0F MEDICINE . ULTRA NATE 24 28
33 2 1 WILLWAIT .H00TIE AND THE BL0WFISH 39 -
34 2 MYSTERIOUS TIMES . ..SASH FEATTINA C0USINS 37 -
35 3 I'LL NEVER BREAK Y0UR HEART . BACKSTREET B0YS 29 31
36 1 CELEBRITY SKIN H0LE 1 H V T T
37 2 FINALLY F0UND H0NEYZ 40 _
38 1 G0DISADJ FAITHLESS IHlltl
39 9 VIVA F0REVER SPICE GIRLS 26 17
40 1 SPECIAL GARBAGE ■ ll vtt
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er
í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára. aF ðHu landinu.
Einnlg getur Fólk hringt í síma 550 0044 og tekið þátt f vali
listans. Islenski llstinn er frumfluttur á fimmtudagskvöldum á
Bylgjunni kl. 20.00 og ér birtur á hverjum Föstudegi í DV. Ustinn
er Jafnframt endurfluttur á Bylgjunnl á hverjum laugardegi kl.
16.00. Ustinn er birtur, aö hluta, f textavarpi hfTV sjdnvarps-
stöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt f vali „World Chart“ sem
Framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann
áhrif á Evrdpulistann sem birtur er f tönlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandaríska tdnlistarblaðinu BlHboard.
Yflrumsjón meS skoSarwkftnnun: HaTldóra Hauksdóttir - Framkvarmd könnunar. MarkaSsdflld DV - Tölvuvinnsla: D6d6
Handrit, helmlldaröflun og yflrurmj6n me8 framleiSslu: ívar GuSmundsson - Taknlstjórn og framleiSsla: Forsteinn Xsgeirsson og Frálnn Steinsson
Útsenéngastjóm: Asgeir Kolbelnsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar PáH Ólafsson - Kynnir f útvarpi: ívar GuSmundsson
Söngkonan og rokkskáldið PJ Harvey er búin að klára plötu,
þá fyrstu sem hún er virkilega ánægð með:
Smeyk yið að
vera of ánægð
Það eru frekar miklar rokkfrétt-
ir áð PJ Harvey sé búin að gefa út
nýja plötu. Sú heitir Is This des-
ire?, er tólf laga og frnimta plata
söngkonunnar og rokkskáldsins.
Polly Harvey þykir vera flestum
rokkkonum fremri, t.d. segir
Courtney Love að hún sé sú eina
sem fái hana til að langa til að
pakka niður og hætta.
Nýja platan er róleg og svöl, til-
valin á morgnana eða til að slappa
af við. Einvala-aðstoðarmenn
leggja henni lið: Eric Drew Feldm-
an, sem spilaði með Pixies og hef-
ur einnig aðstoðað Captain Beefhe-
art; John Parish, sá sem hún vann
með að síðustu plötu; Joe Gore,
sem hefur spilað mikið með Tom
Waits; Mick Harvey, besti félagi
Nicks Cave, og Rob Ellis sem spil-
aði með henni á árum áður.
í byrjun stóð PJ Harvey fyrir
tríó sem Polly leiddi. Það eru sex
ár síðan fyrsta platan kom út, hin
mergjaða Dry. Ári síðar kom Rid of
Me sem flestir popppennar áttu
ekki orð yfir af hrifningu. Eftir
kynningartúr fyrir þá plötu ákvað
Polly að gerast einyrki, rak aðstoð-
armennina og gaf út sólóplötuna 4-
track Demos '93 og svo To Bring
You My Love árið 1995. Sú varð
metsöluplata, Polly túraði með U2
og tók út sinn skammt af rokklíf-
eminu. Það hefur ekki farið mikið
fyrir henni síðustu árin. Hún hefur
komið fram á plötum með Nick
Cave, Tricky og gerði plötuna
Dance Hcdl at Louse Point með
John Parish, þar sem hún sá um
textagerð og söng. Að auki leikur
hún Maríu Magdalenu i nýjustu
mynd Hals Hartleys, The Book of
Life, og hefur sýnt eigin skúlptúra
og ljósmyndir. Hún hefur skánað af
rokksukkinu og segist glaðari og
jákvæöari í dag en hún hefur
nokkurn tímann verið. Einni viku
eftir að nýja platan var tilbúin var
hún spurð að því hvemig henni
fyndist verkið.
„Þegar þú lýkur við plötu ferðu í
gegnum mörg þrep af alls konar til-
finningum. Ég er enn mjög ánægð
með plötuna. Það er reyndar alveg
ný tilflnning fyrir mig því ég held
ég hafi aldrei klárað plötu og verið
fyllilega ánægð. Svo núna er ég dá-
lítið smeyk við að vera of ánægð.
Guð minn góður, er þetta vondur
fyrirboði, hugsa ég. En svo fjar-
lægist maður verkið og sleppir því
síðan alveg frá sér. Ég held að ef
maður heldur of lengi í eitthvað þá
fari maður að ofvernda það. Ég
byrjaði að semja lög á plötuna í
mars 1996 og kláraði þá vinnu það
ár. Ég setti efnið í salt en kom svo
að því seinna. í plötuferlinu er ég
hræddust við allt það sem snýr að
því að selja plötuna. Ég á t.d. mjög
erfitt með öll viðtölin, þau eru mér
ekki náttúrleg. Og svo mál eins og
að gera video, gera myndasessjón,
velja lög á B-hliðar. Ég er skít-
hrædd við bisnesshliðina á því að
vera í skapandi starfi."
Vonum að PJ Harvey ráði við
þetta og hlaupi ekki i felur í kofa
uppi í sveit. -glh
mf&Z:
plötudómur
Lftið húllumhæ
kríngum Oasis
Það var ekkert lítið húll-
umhæið í kringum síðustu
plötu Oasis, Be here now.
Nú á að fara 'að gefa út
plötuna The Masterplan -
the other side of Oasis,
með lögmn sem hafa ver-
ið B-hliðar á smáskífum,
og á að gefa plötuna út
við lágmarksfjölmiðla-
fár. Noel Gallagher vill að
platan verði seld á lækk-
uðu verði, enda um gam-
alt efni í nýjum pakkn-
ingum að ræða. Lítið
hefur heyrst af Oasis-bræðrun-
um, nema hvað Liam ræfillinn
henti Patsy, konunni sinni, út á
götu um daginn eftir að hafa
komið seint heim eftir sukk
með strákunum. „Ég er enn að
vona að hann verði fullorðinn,“
sagði Patsy.
Annars var merkilega lítið
fjallað um málið af breskum
íjölniiðlum, miðað við það sem
á undan er gengið, enda
kannski flestir orðnir leiðir á
að velta sér upp úr bræðrunum
með augnabrýrnar.
X-ecutioners - X-ecutioners: ★★★"<
Út úr brjálað skratz
X-ecutioners er sérkennileg
hljómsveit því allir meðlimir
hennar eru plötusnúðar. Þetta
eru þeir Mista Sinista, Rob
Swift, Total Eclips og Roc
Raida. Þessir menn eru frekar lít-
ið þekktir hér á íslandi að Roc
Raida frátöldum en hann vann
DMC-heimsmeistarakeppnina
árið 1995.
Þessi samsetning hljómsveitar-
innar setur mjög sérstakan svip á
tónlist þeirra. Það er mjög lítið
rappað í lögunum á þessum diski,
aðaláherslan er lögð á snilli plötu-
snúðanna í því að skratza og búa
til takta. Það verður að segjast
eins og er að það er kærkomin til-
breyting að heyra meira frá plötu-
snúðunum því eins og þeir segja
sjálfir á disknum þá falla þeir oft
í skuggann af röppurunum og
producerunum. Plötusnúðarnir
eru jú alltaf heima að æfa sig og
finna upp nýja skratza og þar af
leiðandi slappir í að stunda sam-
kvæmislífið.
Lögin á plötunni eru flest
þannig að þeir félagar, einn eða
fleiri, búa til frekar einfaldan takt
og bassalínu, oftar en ekki live
með plötuspilurunum, en síðan
gjörsamlega tapa þeir sér í ein-
hverju út úr brjáluðu skratzi.
Einnig fylgja öllu rólegri lög með,
bæði með rappi og án.
Það verður að segjast að böðl-
um krossfadersins hefur tekist
vel til. Þetta er einkar skemmti-
legur diskur sem enginn sannur
hiphop-aðdáandi ætti að láta fram
hjá sér fara.
Guðmundur Halldór
Guðmundsson
„Þeir félagar, einn eða fleiri,
búa til frekar einfaldan takt og
bassalínu, oftar en ekki live með
plötuspilurunum, en síðan
gjörsamlega tapa þeir
sér í einhverju út úr
brjáluðu skratzi
f Ó k U S 2. október 1998
10