Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1998, Page 21
Frumsýning í dag:
Svartur
Eddie Murphy ásamt
nokkrum mótleikurum.
í dag verður frumsýnd í Regnbog-
anum, Laugarásbíói og Sambíóun-
um, Álfabakka, nýjasta kvikmynd
Eddie Murphys, Dr. Doolittle, og
er þetta í annað sinn sem þessi
fræga bamasaga, sem á íslensku
heitir Dagfinnur dýralæknir, er
kvikmynduð. Árið 1967 var gerð
dýr og íburðarmikil kvikmynd eftir
sögunni þar sem Rex Harrison lék
lækninn skemmtilega. í þeirri
mynd var lögð áhersla á hið góða í
sögunni og hafði myndin ákaflega
fallegt og ljúft yfirbragð auk þess
sem sykursæt sönglög krydduðu
myndina. í amerísku útgáfunni er
öll áherslan lögð á grínið eins og
vænta má frá Eddie Murphy.
Það verður að segjast eins og er
að Rex Harrison passar nú betur
við sögupersónuna eins og hún
kemur frá höfundinum Hugh Loft-
ing en Eddie Murphy sem ekki er
aðeins er svartur heldur einnig orð-
lagður orðhákur sem hingað tU hef-
ur ekki kallað allt ömmu sína í
þeim efnum.
Það var framleiðandinn John
Davis sem hafði lengi gengið með
þá hugmynd að færa Dagfmn dýra-
lækni inn í nútímann og var búinn
að að vera með það á hreinu hvem-
ig hann ætlaði að gera myndina en
gat ekki komið sér niður á leikara
fyrr en hann sá The Nutty Profess-
or. Þá fékk hann þá villtu hug-
mynd, eins og hann segir sjálfur, að
kanna hvort Eddie Murphy væri fá-
anlegur til leika dýralækninn. Eins
og við var að búast var þetta nógu
fáránleg hugmynd til aö honum lík-
aði hún og sló til. Þegar búið var að
tryggja að Eddie Murphy færir með
titilhlutverkið streymdu peningarn-
ir að og gat John Davis hafíð gerð
myndarinnar sem hefur fært hon-
um milljónir því Dr. Doolittle er ein
vinsælasta kvikmynd sumarsins í
Bandaríkjunum og hefur fært
Twentieth Century Fox rúmar 140
milljónir dollara í kassann.
Helstu mótleikarar Eddie Murp-
hys í Dr. Doolittle eru Ossie Davis,
sem leikur föður hans, Archer og
Oliver Platt, sem leikur Dr. Mark
Weller sem er dýralæknir eins og
Dagfinnur. Leikstjóri er Betty
Thomas. Hún hefur getið sér ágætt
orð fyrir gamanmyndir. Ber þar
hæst The Brady Bunch Movie þar
sem henni tókst- á skemmtilegan
máta að lífga við, að því er virtist,
fyrir fram steindauða sjónvarpseríu
um fjölskyldu sem vægast sagt var
á skjön við hina hefðbundnu vísi-
tölufjölskyldu og Private Parts, þar
sem einn þekktasti og umdeildasti
útvarpsmaðurinn vestanhafs,
Howard Stern, lék sjálfan sig. Þá
fékk hún viðurkenningu fyrir heim-
ildamynd sína The Late Shift, sem
fjallaði um stríðið á milli Jay Leno
og David Letterman þegar þeir
báðir sóttust eftir að taka við af
Johnny Carson, sem stjómendur
The Tonight Show. Betty Thomas
er fyrrum leikkona sem þekktust er
fyrir hlutverk sitt sem lögreglukon-
an Lucy Bates, í Hill Street Blues.
-HK
tórar með ~tem
á næsta ári
Ljóst er að engin kvikmynd með
Tom Cruise verður frumsýnd á
þessu ári og er ástæðan hinn langi
tökutími á Eyes Wide Shut, sem
Stanley Kubrick leikstýrir. Rúmt
eitt og hálft ár er síðan síðasta
kvikmyndin sem Tom Cruise lék í,
Jerry Maguire, var frumsýnd í
Bcmdaríkjunum og með henni varð
Tom Cruise vænlegasta fjárfesting-
in í Hollywood; höfðu fimm síðustu
kvikmyndir hans allar farið vel
yfir hundrað milljóna dollara
markið í aðsókn, sem enginn leik-
ari hafði áður leikið eftir.
Eftir að hafa búið í meira en ár í
London, þar sem tökur á Eyes
Wide Shut fóru fram, er hann loks
kominn í startholurnar aftur.
Fram undan eru tökur á Mission
Impossible 2 sem munu hefjast í
desember og verður myndin frum-
sýnd haustið 1999. Verður spenn-
andi að sjá hver árangurinn verður
en leikstjóri er sá mikli hasar-
myndaleikstjóri John Woo. Mót-
leikarar Cruise eru Ving Rhames,
sem einnig lék í fyrri myndinni,
Thandie Newton og Dougray
Scott, nýstimi sem leikur prinsinn
á móti Drew Barrymore í Ever
After, ævintýramynd sem nýtur
mikilla vinsælda um þessar mund-
ir.
Á meðan þetta gerist situr
Stanley Kubrick yfir Eyes Wide
Shut og er nú loksins kominn
frumsýningardagur á hana, 16. júlí
1999. Kemur hún í kjölfarið á nýju
Star Wars-myndinni sem fengið
hefur 2. júlí sem frumsýningardag.
Mikiö er búið að ganga á við gerð
Eyes Wide Shut og þykir Tom Cru-
ise hafa sýnt meistaranum mikla
þolinmæði, alltaf komið þegar kall-
að var á hann þótt tökum hafi
formlega átt að verða lokið. Önnur
viðbrögð sýndi Harvey Keitel.
Þegar honum var farið að leiðast
þófið hætti hann alveg og lét ekki
sjá sig meira. Einnig varð að finna
nýja leikkonu fyrir Jennifer
Jason Leigh, sem var komin í önn-
ur verkefni þegar þurfti að taka aft-
ur upp atriði með henni. Tom Cru-
ise hefúr ekki látið hafa mikið eft-
ir sér um samstarfið við Stanley
Kunbrick, sagði þó að það gæti ver-
ið erfitt og tæki á taugarnar en á
móti kæmi að Kubrick væri þægi-
legur í umgengni og þolinmóður.
-HK
Anakin Skywalker (Jake Lloyd) á unga aldri
Lukas verst
slúðri og bulli
2. júlí á næsta ári verður frum-
sýnd fyrsta kvikmyndin af þremur
í næstu Stars Wars-seríu sem hefur
yfirskriftina Episode. Ljóst er að
serían gerist áður en þær þrjár
Star Wars-myndir sem þegar hafa
verið gerðar eiga að gerast enda
voru þær númer 4, 5 og 6. Þegar
George Lucas var að gera þær
myndir þurfti hann ekki að hafa
áhyggjur af þeim mikla upplýsinga-
miðli sem Internetið er og þeim
villandi upplýsingum sem hægt er
að koma þar á framfæri. Hann
ákvað því á byrjunarreitnum aö
stofna netfang þar sem hann myndi
koma á framfæri upplýsingum og
myndum um ýmislegt í seríunni til
þess fyrst og fremst að forðast eftir-
líkingar og misskilning sem gæti
komið upp ef einhverjir tækju upp
á því að veita falsaðar upplýsingar.
Netfangið er www.starwars.com og
þar er nú hægt að sjá flestar þær
furðuskepnur sem munu sjást í
myndinni ásamt upplýsingum sem
þó gefa lítiö upp um hver eiginleg-
ur söguþráður er. Meðal þeirra er
Naboo sem er flokkur fenjadýra
eða manna sem koma mikið við
sögu i myndinni. Þar er einnig að
finna myndir af Liam Neeson,
Ewan McGregor og Natalie Port-
man í fullum skrúða. Á vefnum er
einnig að finna nafnið á fyrstu
myndinni sem samkvæmt því á að
heita Star Wars: Episode 1 - The
Phantom Menace. Vert er þó að
benda á að George Lucas, sem leik-
stýrir fyrsta hlutanum, var alltaf
að breyta um nafn á fyrri myndun-
um og á væntanlega eftir að gera
það núna, en fyrri hluti nafnsins
heldur sér. -HK
b í ó
Björgun óbreytts Ryan
★★★★ Strið I sinni
dekkstu mynd er þema
þessa mikla kvik-
myndaverks. Stórfeng-
legt þyrjunaratn'Bi gæti
eitt sér staðið undir
ómældum stjörnu-
fjölda, en Steven Spiel-
berg er meiri maður en svo að hann kunni ekki
að fylgja þessu eftir og í kjölfariö kemur áhuga-
verð saga um björgun mannslífs, saga sem fær
endi í öðru sterku og löngu lokaatriöi þar sem
barist er gegn ofureflinu. -HK
Sporlaust ★★★ Leikararnir skila sínu og sögu-
fléttan er að mestu í anda góðra spennu-
mynda. Þö er að finna slæmar holur í plottinu
sem eru leiðinlegar fyrir þá sök að auövelt heföi
verið að bjarga þeim. Þessir hnökrar spilla þð
tæplega miklu og myndin ætti ekki að valda
vonbrigöum. -ge
Predikarinn ★★★ Robert Duvall fer á kostum í
hlutverki predikara sem fremur glæp en frelsast
á flótta. The Apostle er kvikmynd Roberts Duvalls
í meira en einum skilningi, hann er einnig leik-
stjóri og handritshöfundur Með mynd sinni sýnir
Duvall að hann er mikill listammaöur og vonandi
er aö hann geri aðra mynd sem fyrst. -HK
Paulle ★
Martha, má ég kynna ... ★★
Kringlubíó
Töfrasverðlð ★★ Þetta er ekki fyrsta og ör-
ugglega ekki síðasta kvikmyndin þar sem Arh-
ur konungur, riddarar hans við hringborðið og
sveröið Excalibur koma við sögu. Það sem
greinir Töfrasverðið frá öörum er að hún er
teiknimynd, en stendur ekki undir samanburði
viö það besta sem komið hefur i þessum
flokki. íslenska talsetningin er góð. -HK
Laugarásbíó
The Patrlot ★ The Patriot er ekki fyrsta mynd
Seagals sem boðar náttúruverndarguðspjall
en hún er líklega sú sem gerir slíkan boðskap
minnst heillandi. Fyrirsjáanieg saga í bland við
óvenju slappt handrit gerir þessa mynd að
allélegustu Seagal-myndinni. Myndmál, hand-
rit, saga, persónur og leikendur, allt var þetta
ekki bara kunnuglegt, heldur beinlínis vand-
ræðalega ofnotað. -úd
Slldlng Doors Paltrow er Helen, ung
kona á uppleið, þegar hún er óvænt rekin af
hópi karlremba og líf hennar tekur stakka-
skiptum tvöfalt. Leikurinn er almennt góður en
þó handritiö innihaldi heilmikið af skemmtileg-
um punktum og klippingarnar milli sviða/veru-
leika séu oft skemmtilegar þá vantar hér ein-
hvern herslumun. -úd
Regnboginn
Phantoms ★★* Sjá gagnrýni á opnunni.
The X-files ★★ Einhvern veginn þýddust ráðgát-
urnar illa á stóra tjaldið. Þarna er sannleikann
bak viB þættina að finna, en það er eins og að-
standendur hafi aldrei almennilega getað gert
upp við sig hvort gera skuli langan sjðnvarps-
þátt eða bfómynd. David Duchovny sýnir enn og
sannar að hann er og verður aldrei annað en
þriöja fiokks sjónvarpsieikari, meðan Gillian
Anderson ber breiðtjaldið betur. -úd
Falry Tale: A True Story ★★* Álfasaga er
hugljúf mynd en líður svolítið fýrir þá sök að
handritshöfundurinn getur ekki gert upp hug
sinn. Stúlkumar eru annaöhvort litlir svindlar-
ar eöa börn sem vissulega búa í undraverðum
heimi. Myndin sveiflast milli þessara skýringa
og ómögulegt er að segja fyrir um hvort álfarn-
ir séu raunverulegir eða ímyndun, -ge
Næturvörðurlnn ★★* Hvernig á að meta og
dæma mynd sem er nákvæm eftirgerð á
annarri, bætir engu við; en tekur hún þá frá?
Einhvern veginn var hinn bandariski Næturvörö-
ur ekki eins heillandi og sláandi upplifun og sá
danski. Aðalleikaraparið McGregor og Arquette
ná sér aldrei á strik og það vantaöi lika mikið
upp á að Nick Nolte væri nógu góður. -úd
Les vislteurs 2 ★
Stjörnubíó
The Mask of Zorro
★★★ Þeir nafnar
og félagar Antonio
Banderas og Ant-
hony Hopkins náöu
einhvern veginn
aldrei sérlega vel
saman í þessari
mynd um tvær kyn-
slððir skylminga-
hetjunnar Zorró.
Hins vegar mátti vel
skemmta sér yfir þessum ýktu hetjulátum og út-
blásnu rómantík og myndin var ákaflega áferö-
arfalleg, glæsileg og glamúrus og flott og
smart, en einhvern veginn vantaði herslumun-
inn. -úd
Hlmnabál ★★★ Gráleit gamanmynd sem byij-
ar vel, bætir jafrit og þétt viö sig og hrynur svo
á síðustu 20 mfnútunum. Ég var þess lengi vel
fullviss að þessi ástralska vegamynd næBi að
feta einstigið milli ofbeldis og húmors, en
myndin tapar áttum og missir flugið. Það er
miöur þvf að lengi vel átti ég von á aB þetta yrði
ein eftirminnilegasta mynd haustsins. -ge
Godzllla ★★★
rri|sa> t Ta Á
■JL ftt «1*1» «in> '%&&&# I
www.visir.is
2. október 1998 f Ókus