Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Page 21
bíódómur
Laugarásbíó/Háskólabíó: The Truman Show
0 ^fj £>_rj i/2jjjjltj íj 2AÍ 'itiuíj íi solamvmu
Lelkstjöri: Peter Weir. Handrit: Andrew Niccol.
Kvlkmyndataka: Peter Biziou. Tónllst: Burk-
hard Dallwitz. Aöalllelkarar: Jim Carrey, Laura
Linney, Ed Harris, Natasha McElkone, Noah
Emmerick og Holland Tayior.
í The Truman Show kynnumst
við tilbúinni sjónvarpsveröld sem
hönnuð hefur verið utan um vin-
sælustu sápuóperu í heimi. I sáp-
unni eru allir leikarar nema einn
- aðalstjaman, Truman Burbank,
hann er fyrsta barnið sem ættleitt
er af stórfyrirtæki og fyrsta mann-
eskjan sem sjónvarpsáhorfendur
hafa fylgst með 24 tíma á sólar-
hring alla hans ævi. Truman býr
ásamt eiginkonu í smábænum Sea-
heaven og er í góðri vinnu sem
tryggingarsali. Það sem hann veit
ekki er að allt bæjarlífið snýst í
kringum hann. Strax á fyrstu mín-
útum kemur í ljós að ekki er allt
eins og það á að vera, en Truman
er samt ekki með á nótunum þrátt
fyrir að hluti af tækniútbúnaði
fellur af himni ofan beint á gang-
stéttina fyrir framan hann og að
hann getur labbað út úr rigningu.
The Tmman Show er byggð á
einstaklega snjallri hugmynd þar
sem gerviveröld sjónvarpsins er
komin inn í hið daglega líf hins
venjulega manns, eitthvað sem vel
er hægt að hugsa sér að unnt sé að
gera með sjónvarps- og kvik-
myndatækni nútímans. Kryddið í
tilverunni er ekki mikið hjá Trum-
an Burbank, enda unir hann að
mestu vel við sitt. Aðeins einu
sinni hefur hann lent í mótlæti,
það var þegar æskuástin hvarf af
sjónarsviðinu (hún fór út fyrir
hlutverk sitt og var skrifuð út úr
sápunni hið snarasta). Truman
hefur ekki gleymt henni og til-
hugsunin um að hún bíði hans á
Fídjieyjum gerir það að verkum að
smám saman koma brestir í tilver-
una og Truman uppgötvar að líf
hans er ekki eins og hann hefur
haldið.
Það er margt óþægilegt sem lesa
má úr The Truman Show og
áleitnar spurningar leita ósjálfrátt
á mann. Svörin eru ekki mörg
enda er í raun verið að fást við
framtíðarsýn í sjónvarpi. Peter
Weir byggir upp mynd sína á
áhrifamikinn hátt. Fyrri helming-
urinn er á yfirborðinu eins og syk-
ursæt sápuópera, eiginlega svo
ómerkileg að þeir áhorfendur sem
ekki vita fyrirfram hvað um er að
vera eða átta sig strax á hlutunum
vita ekki hvaðan á þá stendur
veðrið. Þegar Truman fer svo að
berjast fyrir tilverurétti sínum og
skaparinn Christof birtist hreytist
myndin smátt og smátt í drama
fullt af tilfmningum og ótta.
Peter Weir tók mikla áhættu
meö því að láta Jim Carrey leika
Truman Burbank. Carrey hefur
hingað til tekist best upp í forsum
á borð við Liar, Liar og Dumb and
Dumber og það er ekki svo auðvelt
að gleyma þessu og satt best að
segja tekur það langan tíma fyrir
hann að ná fótfestu. Hinn langi að-
dragandi að dramanu hjálpar ekki
til, en segja má samt að myndin sé
sigur fyrir Carrey þvi hann ræður
vel við þetta erfiða hlutverk þótt
ekki verði úr nein snilld.
The Truman Show er enn ein
rós í hnappagat Peters Weir. Hún
er ekki besta kvikmynd hans, en á
meðal þeirra bestu, virkileg góð og
áleitin kvikmynd sem byggð er á
snjallri hugmynd en verður ekki
talin til meistaraverka. Það má
hugsa sér aðrar lausnir en Weir
velur sér, hvort sem um er að
ræða endinn eða ýmislegt annað.
Til dæmis hefði orðið allt öðruvísi
kvikmynd ef kafað hefði verið í til-
finningar Trumans gagnvart vin-
um og ættingjum, hver heilvita
maður hlyti í raun að brjálast þeg-
ar hann kæmist að því að allir ást-
vinir hans eru í raun leikarar sem
aldrei hafa gefið frá sér neitt í
„The Truman Show er enn ein
rós í hnappagat Peters Weir.
Hún er ekki hesta kvikmynd
hans, en á meðal þeirra bestu,
virkileg góð og áleitin kvik-
mynd sem byggð er á snjallri
hugmynd en verður ekki talin
til meistaraverka.“
hans þágu nema fyrir pening. Alls
óvíst er samt að sú mynd hefði
orðið áleitnari, öðruvísi, en ekki
betri.
Hilmar Karlsson
Les Mlsérables Bille August er á
heimavelli en honum lætur vel aö kvikmynda
miklar skáldsögur og áhorfandinn fær það
ekki á tilfinninguna aö efnið sé sött í 1.500
síöna bók. Hér er á feröinni ágætis skemmt-
un og saga sem svíkur engan. -ge
The Real Howard Spitz ★ Þessi ójafna,
ófyndna og þunglyndislega gamanmynd er
mér hálfgerð ráðgáta. Kelsey Grammer er
einn vinsælasti sjónvarpsleikari Bandarikj-
anna (þættirnir Frasier og Staupasteinn) og ég
heföi ætlaö aö hann setti markið hærra þegar
hann fengi tækifæri til þess aö spreyta sig á
hvíta tjaldinu. Hann ætti aö tala alvarlega yfir
hausamótunum á umboösmanni sínum. -ge
The Mask of Zorro ★★★ Það má vel skemmta
séryfirýktum hetjulátum og útblásinni rómantík
og myndin var ákaflega áferðarfalleg, glæsileg
og glamúrus og flott og smart, en einhvern veg-
inn vantaði herslumuninn. -úd
þeim skilningi að við erum enn
ekki komin á það stig að sjónvarpa
sápuóperu 24 tíma á sólarhring."
En hvers vegna skyldi Peter
Weir, sem margoft hefur lýst því
yfir að hann hafi engan áhuga á
sjónvarpi, gera kvikmynd sem
fjallar um sjónvarp: „Sjónvarp er
hluti af lífi okkar. Ég er enginn
andstæðingur sjónvarpsins sem
slíks, það er bara svo margt vont
sem kemur þaðan. Á mínum fyrstu
árum í hjónabandi áttum við ekk-
ert sjónvarp og það var vegna þess
að við vorum fátæk og vorum með
hugann við allt annað. Ég var að
búa til mínar fyrstu kvikmyndir
og eiginkona mín tók þátt í því
starfi af miklum eldmóði. Þegar
börnin komu þá komu upp þau
sjónarmið að það væri allt í lagi að
halda þeim frá sjónvarpinu og það
tókst um hríð. Með myndbanda-
byltingunni breyttist viðhorf mitt.
Þama var komið kjörið tækifæri
til að sjá kvikmyndir heima, kvik-
myndir sem ekki var hægt að sjá
öðruvísi og í framhaldi fór ég að
horfa á vandaðar sjónvarpsseríur.
Það að ég horfi eins og aðrir á
sjónvarp hefur þó ekki komið í veg
fyrir að ég sjái ekki hversu slæmt
það getur verið. Það versta er
kannski ofnotkun á því fyrir börn
þegar verið er að gera sjónvarpið
að barnapíu." -HK
Laugarásbíó
The Truman Show ★★★ Sjá gagniýni Hilmars
Karlssonar hér á síöunni.
Specles II ★ I þetta sinn tekur geimveran sér
bólstað i líkama karlmanns, sem barnar
hverja konuna á fætur annarri af geimbörnum
(hann er jú hetja) og ætlar sér heimsyfirráð án
dauöa. Þessi framhaldsmynd fellur í allar þær
gildrur sem framhaldsmyndir eiga á hættu og
virðist vera aö framhalda fleiri en einni mynd,
Terminator II, Aliens, Invasion of the Body
Snatchers, Xtro og Insemnoid. -úd
Slidlng Doors ★★! Leikurinn er almennt góö-
ur en þó handritið innihaldi heilmikiö af
skemmtilegum punktum og kiippingarnar milli
sviöa/veruleika séu oft skemmtilegar þá vant-
ar hér einhvern herslumun. -úd
Regnboginn
Dr. Doollttle ★★★ Það kom
mér á óvart hversu lítiö púöur
var í handriti Nat Mauldin og
Larry Levin, en sagan sem slík
heföi átt að tryggja fjörmeiri og
eftirminnilegri mynd. Gaman er
aö ærslunum i Eddie Murphy,
en Dagfinnur olli mér vonbrigð-
um. -ge
Phantoms ★★★ Phantoms inniheldur mikiö
af mögnuöum senum og sitúasjónum sem
gera hana bara nokkuð eftirminnilega. Þaö er
fátt sem kemur á óvart, en hér er unnið vel úr
gömium tuggum, og meö vel völdum og ágæt-
um leikurum má vel hrylla sig (ánægjulega)
yfir þessari. -úd
The X-files ★★ Einhvern veginn þýddust ráögát-
umar illa á stóra tjaldiö. Þarna er sannleikann
bak viö þættina aö finna, en þaö er eins og aö-
standendur hafi aldrei almennilega getaö gert
upp viö sig hvort gera skuli langan sjónvarps-
þátt eöa bíómynd. -úd
Les vlslteurs 2 ★ Þótt Jean Reno sé skemmti-
legur leikari með mikla útgeislun getur hann
ekkert gert til þess aö bjarga þessari mynd. -ge
Stjörnubíó
The Truman Show fjallar um
Truman Burbank, sem ekki veit af
þvi að hann er skærasta sjónvarps-
stjama nútímans, hann er aðal-
leikari vinsælasta sjónvarpsþáttar
í heimi sem sjónvarpað er tuttugu
og flóra tíma á sólarhring. Með
hlutverk Tmmans fer grínistinn
Jim Carrey sem sýnir á sér nýja
hlið í krefjandi hlutverki. Aðrir
leikarar em Ed Harris sem leikur
skapara Trumans og höfund sjón-
varpsþáttanna, Laura Linney sem
leikur eiginkonu Trumans og
Natasha McElhone sem leikur
hina einu sönnu ást í lífi Trumans.
Leikstjóri er Peter Weir, einn
virtasti leikstjóri nútímans.
Mikill undirbúningur liggur að
baki The Truman Show. Myndin
gerist að öllu leyti í tilbúnum smá-
bæ sem virkar eins og leiksvið. í
fyrstu hefði mátt halda að þarna
hefðu leikmyndasmiðir í
Hollywood fengið stórt og mikið
verkefni til að kljást við og í fyrstu
ætlaði Peter Weir að byggja smá-
bæinn Seaheaven í stórri stúdíó-
byggingu. Hann breytti þeirri ætl-
im þegar honum var litið í ástr-
alskt tímarit fyrir arkitekta þar
sem verið var að fjalla um bæ í
Flórída sem hét Seaside. Um var
að ræða 300 íbúða þorp, þar sem
enginn átti fast aðsetur, þannig að
hægt var að leigja bæinn í heilu
lagi, bæ sem hafði allt sem þurfti,
verslanir, pósthús, bókabúð, veit-
ingastaði, gallerí og margt fleira.
Allar götur voru eins og framhlið
allra húsa sneri að sjónum: „Það
leit út í mínum augum eins og Se-
aside hefði verið byggður fyrir
kvikmynd okkar,“ segir Peter
Weir. Þannig leystist stærsta
vandamálið af sjálfu sér.
Engin tímasetning er í The
Truman Show, en Peter Weir segir
aö hann hafi verið með í huganum
tuttugu ár fram i tímann: „Þegar
fengist er við tilbúna veröld eru í
raun aðeins tvær leiðir færar, það
verður að búa til sína eigin fram-
tíðarveröld eða ýmislegt er fengið
að láni úr fortíðinni og það var það
sem ég sá Christof gera, þess vegna
virkar myndin ekki sem framtíðar-
mynd þótt hún sé vissulega slík í
neira á.
www.visir.is
23. október 1998 f ÓkUS
21