Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
Utlönd
9
j;;
m i
W
■
Eiginkona Pinochets borubrött:
Skortir ekki
andlegt þrek
Augusto Pinochet, fyrrum
einræðisherra i Chile, kemur fyrir
dómara í dag og mun sitja á saka-
mannabekk sem ótíndir glæpamenn
og sprengjuvargar írska lýðveldis-
hersins hafa áður tyllt sér niður á.
Framsalsbeiðni spænsks dómara
verður þá tekin formlega fyrir.
Eiginkona hins 83 ára gamla
hershöfðingja hafði tröllatrú á
bónda sínum þegar hún ræddi við
stuðningsmenn þeirra hjóna í
gærkvöld og sagði að Pinochet
mundi ekki láta bugast.
„Hann mun aldrei skorta hið
andlega þrek sem þarf til að bera
höfuðið hátt fyrir Chile,“ sagði
eiginkonan Lucia tárvot í veislunni
í gærkvöld.
„Þjáningar okkar eiga engan sinn
líka í sögunni."
Hinum megin við Atlantshafið, í
heimalandi harðstjórans fyrrver-
andi, brenndu stuðningsmenn hans
breska fána og veifuðu kröfu-
spjöldum sem á voru letruð vígorð
gegn Bretum. Með því vildu þeir
láta í ljós reiði sína yfir því sem
þeir kalla afskipti erlends ríkis af
innanríkismálum Chile.
Spænski dómarinn Baltasar
Garzon lagði fram 285 síðna
ákæruskjal á hendur Pinochet í
rétti í Madríd í gær. Þar er
einræðisherrann fyrrverandi
sakaður um „djöfullega" glæpi og
hvatt er til þess að allar eigur hans
verði frystar, hvar sem til þeirra
næst.
Miklar öryggisráðstafanir verða
viðhafðar þegar Pinochet kemur
fyrir dómarann. Búist er við að í
þetta sinn taki athöfnin aðeins
nokkrar mínútur. Aðaltilgangur
hennar er að ákvarða dagsetningu
fyrir meðferð framsalsbeiðni
Spánverja.
Pinochet var handtekinn í okt-
óber þar sem hann var að ná sér
eftir veikindi í London.
Fjandmenn Augustos Pinochets, fyrrum einræðisherra í Chile, efndu til
mótmæla við forsetahöiiina í Santiago í gær.
Samþykkur vítum
Dómsmálanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings hóf í gær umræðu
um hvort höfða ætti mál gegn Bill
Clinton Bandaríkjaforseta til emb-
ættismissis. Búist er við að nefndar-
menn samþykki að minnsta kosti
eitt ákæruatriði af fjórum jafnvel í
dag og að atkvæði verði greidd eftir
flokkslínum.
Sjálfur er Bandarikjaforseti sam-
þykkur tillögu flokksbræðra sinna
um að hann verði víttur fyrir ranga
yfirlýsingu.
Talsmaður Hvíta hússins, Joe
Lockhart, sagði Clinton myndu taka
til athugunar allar tillögur „rétt-
sýnna manna“.
Þjónustusími 55D 5DQQ
www.visir.is
NÝR HEIMUR Á NETINU
Smá
sýnishom
fráAEG
AEC
Tövrasproti SM 280
Vofflujarn
. Hárblásári Figaro 1600
WE
100
A.EG
AEG
nna
Kaffikanna KF1000
aeg Expresso og kaffikvél KFEA100 j Expressokaffivél EA100
jpWffpajfc
kr. 10.990,- stSr.
■ . Brauðrisl AT 250
jg AEG
Hraðsuðukanna1L
1 SWA10101L
VEG Gufustraujarn DB 4040
B R Æ Ð U R N
ORMSSONHF
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
aeg Matvinnsluvél KM 21
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal.
Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar; Hólmavík. Kf. V-Hún., Vvammstanga. Kf.
Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. KEA Lónsbakka, Akureyri KEA, Dalvík. KEA, Siglufirði. KEA, Ólafsfirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð,
Raufarhöfn, Lónið Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Bakki, Kópaskeri.
Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðuriand: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
BnmnesJ/estmannaeyjumJJeykjanesjJ^^
Reykjavík/Kópavogur
sími 55 44444
Hafnarfjörður/Garðabær
sími 565 2525
Vesturbær/Reykjavík
sími 562 9292 C
Hringdu á undan þér og pizzan
verður tilbúin þegar þú kemur!