Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 18
^ 34
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
Fréttir____________________________________________________________________________________pv
Skattrannsóknastjóri fann svartan milljarö í veitingahúsum á 4 árum:
Veitingamenn óttast heim-
sóknir í jólahlaðborðið
Ríkisskattstjóri hefur sent fyrir-
-*■ tækjum í veitingageiranum bréf
þar sem bent er á að eftirlitsmenn
geti hvenær sem er kannað starf-
semi fyrirtækjanna, ástand tekju-
skráningar, bókhald, skattskil og
starfsmannahald. Veitingamaður í
Píanóbekkir
Margar gerðir
og litir
LEIFSH.MAGNÚSSONAR
GULITEIGI6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI568 8611
Reykjavík sagði í samtali við DV
að heimsóknir skattrannsókna-
manna og gerlateljara heilbrigðis-
eftirlitsins væru vægast sagt
óþægilegar á matmálstímum og
væru lítt lystaukandi fyrir gestina.
Veitingareksturinn í landinu
hefur verið í stórfelldri rannsókn
sl. fjögur ár. Skúli Eggert Þórðar-
son skattrannsóknastjóri tjáði DV
að undanskot af veltu upp á á 900
milljónir hefðu komið í ljós við
rannsóknir á veitinga- og gistihús-
um á Qórum árum. Skúli sagði að
þar væri aðeins um 30 fyrirtæki að
ræða. Aðeins hluti af þessari upp-
hæð hefur skilað sér til ríkissjóðs
og ekki mun oft hafa komið til
fangelsunar vegna þessara brota.
Brotlegir eru hins vegar dæmdir í
himinháar sektargreiðslur.
Bréfið hrellir
Ríkisskattstjóri segir í bréfi sem
hrellt hefur marga veitingamenn:
„Rekstraraðilar mega meðal ann-
ars búast við því að talið verði upp
úr sjóðvélum og niðurstöður úr
þeim talningum bornar saman við
innstimplaðar fjárhæðir, að tekin
verði niður nöfn starfsmanna og
þær upplýsingar bornar saman við
innsendar staðgreiðsluskilagrein-
ar. Jafnframt má búast við að ósk-
að verði eftir því að bókhald og
tekjuskráningargögn verði afhent
til frekari athugunar."
í bréfinu er vakin athygli á því
að eftirlitsaðgerðir kunni að verða
framkvæmdar hvenær sem er á af-
greiðslutímanum í veitingahúsum
og gistihúsum.
Óþægilegar heimsóknir
„Maður getur átt von á að þeir
komi á háannatíma og hnýsist í
alla hluti, ekki síst ef þeir koma
þegar við erum að „servera“ mat-
inn og jólahlaðborðið standandi
uppi. Ég get ekki ímyndað mér að
það sé löglegt að ráðast inn þegar
verst stendur á hjá okkur,“ sagði
kona, veitingamaður í Reykjavík,
sem hafði samband við DV. Hún
sagði að eftirlitsmenn væru að
öðru leyti velkomnir til sín.
„Kjarni málsins er að það er
hópur manna í þessum rekstri sem
vill hafa hlutina í lagi og er að
berjast við það. Þeir eru að keppa
við aðra sem ekki er hægt að
keppa við, menn sem greiða laun
undir borðið og taka hluta
veltunnar í að greiða rekstrar-
gjöld," sagði Skúli Eggert.
Hann sagði að samráðsfundur
hefði verið haldinn með Samtök-
um veitinga- og gistihúsa og fé-
lagsskapnum Matvís, samtökum
fagstétta sem starfa í veitingahús-
um. Niðurstaðan varð sú að ríkis-
skattstjóri sendi frá sér upplýsing-
ar og leiðbeiningar um hvernig
haga á bókhaldi. Nú er bréf hans
og leiðbeiningar komnar til eig-
enda veitingahúsa.
-JBP
I
I
I
I
(
(
Keflavíkurverktakar keyptu á dögunum rafknúinn bfl af gerðinni Peugeot
106 sem notaður verður til sendiferða innan svæðis á Keflavfkurflugvelli og
til Reykjanesbæjar. Er þetta fimmti rafbíllinn af þessari gerð sem seldur er
hér á landi. Keflavíkurverktakar munu halda skýrslu um rekstur bílsins
næstu árin og bera saman við rekstur hefðbundins bensínbfls. Á myndinni (
afhendir Guðmundur Hermannsson, framkvæmdastjóri Jöfurs, t.v., Þóri
Helgasyni, fulltrúa Keflavíkurverktaka, rafbílinn. DV-mynd ÞÖK
I------------------------------------------------------------------------I
Jólagetraunin 1998. 6. hluti \
I Hver er hjálparsveinn Jóla?
; □ Súsanna Svavarsdóttir □ Björk □ Vigdís Grímsdóttir
; Nafn________________________________________________________________ ;
I Heimilisfang________________________________________________________ ;
! Staður________________________________ Sími__________________________ !
Sendist til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík, merkt DV - Jólagetraun
•------------------------------------------------------------------------1
2. verðlaun eru Akai-hljómflutningstæki, að verðmæti 54.900 krónur, frá Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2. Samstæða þessi er með stafrænu útvarpi með FM/MW/LW-bylgjum, RDS og 30
minnum. Magnarinn er umhverfismagnari (270w+83w+83w eða 2x120+30+30w RMS) með full-
komnu Dolby ProLogic-hljóðkerfi, tónjafnara með popp-, rokk-, jass-, bgm-, klassík- og flat-
hljómi. Innstunga erfyrir heyrnartól og hljóðnema, auk klukku og vekjara. Þá er í þessari stæðu
þriggja diska geislaspilari með 30 minnum og handahófsspilun og tvöfalt snældutæki með sí-
spilun.
Öllu er stjórnað með fullkominni fjarstýringu.
Jólasveinninn er í óöaönn aö koma sér til byggöa meö gjafirnar. Til að geta
komist meö allar gjafirnar hefur Sveinki ráðið sér hjálparsvein. En þar sem
sveinki er gamall og gleyminn þekkir hann ekki alla sem bjóöa sig fram í starfið.
Þar kemur aö ykkur, lesendur góðir, aö hressa upp á minni sveinka. Hver hefur
boðist til aö hjálpa honum í dag? Hver er hjálparsveinn Jóla?
Krossiö viö rétta nafnið, merkiö seöilinn meö nafni og heimilisfangi og klippiö
hann út úr blaðinu. Geymiö seöilinn á vísum stað. Áríðandi er aö öllum svarseöl-
unum, 10 aö tölu, sé safnaö saman áöur en þeir eru sendir blaðinu. Ekki
senda hvern seðil fyrir sig. Tíundi og síöasti hluti jólagetraunarinnar mun
birtast í DV17. desember. Skilafrestur verður 23. desember. Dregiö veröur milli
jóla og nýárs.
Verið með því vinningarnir eru glæsilegir.
2.
verðlaun
Jólagetraun DV - 6. hluti:
Hver er hjálparsveinn Jóla?
(
(
(
(
(
(
(
(
(
í
i
(
(
í
(