Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
15
Þrír bláþræðir
Ferð Clintons
forseta til Miðaust-
urlanda um helgina
átti að verða sigur-
for. Ætlunin var að
staðfesta friðarsam-
komulag ísraela og
Palestínumanna
sem gert var í síð-
asta mánuði, og
sýna kjósendum
heima fyrir í leið-
inni að hann væri
sá sem réði, utan-
lands sem innan,
þrátt fyir Móníku-
málin. En ein vika
er langur tími í
pólitík, og mánuður
heil eilífð.
Allt er nú öfug-
snúið frá því sem
var eftir kosningarnar í nóvember
og friðarsamkomulagið í Wye
Mills. Sigurför Clintons fellur í
skuggann af ákæru til embættis-
missis, sem dómsmálanefnd full-
trúadeildarinnar samþykkir eftir
helgina. Sú bjartsýni sem ríkti fyr-
ir fáeinum nokkrum dögum er að
víkja fyrir kvíða og óvissu. Póli-
tisk staöa Clintons hangir nú á
bláþræði.
alla burði til að verða
með merkari forsetum.
Nú mun hans verða
minnst fyrir hneykslis-
mál aðallega, ef full-
trúadeildin ákærir.
Þetta eru örlagatímar í
forsetatíð Clintons.
Gaza
Staða Bandaríkjanna
meðal Arabaríkja í Mið-
austurlöndum stendur
og fellur með samkomu-
laginu sem gert var í
Wye, einkum vegna
hefðbundinnar þjónkun-
ar Bandaríkjanna við
israelsk sjónarmið. Til
að sýna í verki að
Bandaríkin séu óvilhöll
mun Clinton lenda á
nýja alþjóðaflugvellinum í Gaza og
ávarpa þing Palestínumanna. f eina
tíð hefði þetta eitt verið frétt ársins.
En sú frétt mun falla í skuggann af
þingfréttum frá Washington.
Netahanyahu hefur í raun afneit-
að samkomulaginu. Öfgasinnar í
Kjallarinn
Gunnar
Eyþórsson
blaöamaður
Örlagatímar
Það hefur legið fyrir frá upphafí
að dómsmálanefndin muni ákæra
Clinton. Það sem er nýtt er að sá
meirihluti demókrata og hófsamra
repúblikana í fulltrúadeildinni
allri, sem var andvígur ákæru, er
að því er virðist horfinn. Nú er
svo mjótt á munum að velta kann
á einu atkvæði innan tveggja
vikna, hvort réttað verður yfir for-
setanum í öldungadeildinni. Þessu
veldur tómarúm í forystu
repúblikana. Gingrich er úr sög-
unni og nýr leiðtogi tekur ekki við
fyrr en í janúar. Á meðan hafa
hægri öfgamenn undirtökin í þing-
flokknum, undir forystu DeLays
nokkurs.
Öldungadeildin mun ekki dæma
Clinton frá embætti. Til þess þarf
tvo þriðju atkvæða, sem ekki eru
til staðar. En réttarhöldin ein
gætu rúið Clinton æru og áhrifum
heima og erlendis, að ekki sé
minnst á arfleifð hans. Hann hafði
Bill Clinton, Yasser Arafat og Benjamin Nethanyahu. - „Ailir þrír hanga á bláþræði og á þeim sama bláþræði
hangir síðan friðarsamkomulagið."
ísarel ætla að fella stjórnina ef
hann gerir það ekki, og harm er
fundvís á tyliiástæður. Hann kenn-
ir Palestínumönnum um allt, og
neitar að afhenda það land sem
samið var um í Wye. Nethanyahu
hangir á bláþræði, en heldur áfram
að sölsa undir sig hemumið land
þvert á öll loforð. Á sama tíma
vatnar ört undan Arafat, hann er
sakaður um að vera leppur Isarels-
stjórnar, og á í blóðugu stríði við
sína eigin andstæðinga. Hann hang-
ir líka á bláþræði. Clinton sýnir
mikið hugrekki með því að koma til
Gaza og sýna samstöðu með Arafat
með því að ávarpa Palestínuþingið.
Þetta er þó ekki í
takt við þau sjónar-
mið sem mest er
hampað í Bandaríkj-
unum. Þrátt fyrir
lofsverða viðleitni
getur Clinton ekki
beitt ísrael nauðsyn-
legum þrýstingi. Þar
veldur miklu hversu
skuldbundinn hann
er ísraelskum
þrýstihópum í
Bandaríkjunum, og
aldrei meira en nú,
þegar hann þarf á
liðveislu allra þing-
manna að halda til að bjarga póli-
tísku lífí sínu. Friðarsamkomulagið
er undir þessum þremur mönnum
komið. Allir þrir hanga á bláþræði
og á þeim sama bláþræði hangir
síðan friðarsamkomulagið.
Gunnar Eyþórsson
„Þrátt fyrir lofsverða viðleitni
getur Clinton ekki beitt ísrael
nauðsynlegum þrýstingi. Þar
veldur miklu hversu skufdbundinn
hann er ísraelskum þrýstihópum í
Bandaríkjunum ogaldrei meira en
nú, þegar hann þarf á liðveislu
allra þingmanna að halda til að
bjarga pólitísku lífi sínu.“
Hjálparstarfsemi
viö Mið-Ameríku
í DV. fímmtud. 3. des. sl. er
grein um framlög til hjálparstarf-
semi í fjórum ríkjum Mið-Amer-
íku, er urðu fyrir ægilegum skaða
frá fellibyl. Talið er að nálægt
20.000 manns hafi farist og um 4
milljónir manna hafí misst allt sitt
eða því sem næst, auk gereyðingar
á vegakerfi og skólum, sjúkrahús-
um og svo framvegis. Jörðin er
gjörónýt á fjölda svæða. Fram-
kvæma þarf umbyltingu til að
nytja hana aftur.
Glöggar lýsingar
í spænskum blöðum hafa glögg-
og umkomuleysi eins og sakir
standa. Margar þjóðir sendu hátt-
setta fulltrúa sína á flóðasvæðin.
Sonur Spánarkonungs fór á vett-
vang til stuðnings almenningi og
uppörfunar. Margir lánardrottnar
strikuðu út fyrri lán og buðu nýtt
framlag til hjálpar. Flestum er vel
kunnungt um hina miklu fátækt
er var hjá þessum þjóðum. Al-
menningur getur því ósköp lítið
gert sér til bjargar nema með
hjálp utan frá.
Hvílík rausn
Umrædda grein, sem vitnað er
til, skrifar for-
maður Rauða
kross Islands,
Anna Þrúður Þor-
kelsdóttir. Hún
þakkar eðlilega
góð viðbrögð
sumra deilda
Rauð kross ís-
lands. Svo bætir
hún við: „én bæði
almenningur og
íslenska ríkisstjórnin hafa þar lagt
sitt af mörkum“. Hér vil ég sann-
arlega gera mikinn
greinarmun á.
Jafnan hefur al-
menningur sýnt svona
málum mikinn vel-
vilja og lagt mikið
fram. En núverandi
ríkisstjóm sýndi enga
rausn. Halldór Ás-
grímsson lagði til á
fundi hjá ríkisstjórn-
inni að framlagið yrði
tvær milljónir ís-
lenskra króna. Það
var samþykkt. Hvílik
rausn! Á sama tíma er
það marg tuggið í
eyru þjóðarinnar að
nú ríki mesta góðæri
á landinu á þessari
öld og það sé ríkis-
stjóminni að þakka!
Hærra framlag
Nokkru áður en „framlagið"
kom í ljós hafði ég farið í þjóð-
arsálina og lagt til að ríkisstjórnin
legði fram sem samsvaraði einum
USA dollar á hvem Islending eða
um kr. 70. Þetta yrðu þá um kr.
19,2 milljónir króna.
Anna Þrúður treystir
sér ekki til þess að
nefna framlag ríkis-
stjórnarinnar i tölu,
sem vonlegt er. - Eft-
ir að „framlagiö"
kom í ljós hafa
fjöldamargir beðið
mig að koma aftur i
þjóðarsálina og gera
kröfu um hærra
framlag.
Ég rita þess stuttu
grein til að vekja at-
hygli á málinu og í
von um að rausn rík-
isstjórnar okkar
verði meiri en nú er.
Við skulum ekki
gleyma hvað við
fengum vegna ægi-
legra hamfara hér á
landi fyrir skömmu og svo í gos-
inu í Eyjum. Æskilegt væri að
draga úr hégómlegum ferðum og
fleim í svipuðum dúr og auka
framlag í nafni íslensku þjóðar-
innar. Það yrði í þökk hennar.
Jón Ármann Héðinsson
„En núverandi ríkisstjórn sýndi
enga rausn. Halldór Ásgrímsson
lagði til á fundi hjá ríkisstjórninni
að framiagjð yrði tvær milljónir ís-
lenskra króna. Það var samþykkt.
Hvilik rausn!u
ar lýsingar verið nær daglega af
hörmungum fólkins, sjúkdómum
Kjallarinn
Jón Ármann
Héðinsson
fyrrverandi
alþingismaður
Með og
á móti
Henry Birgir Gunn-
arsson, Manchest-
er United-aðdáandi.
Heföi Man.Utd átt skilið
að vinna Bayern Miinchen
í meistaradeildinni?
Eru miklu
betri
„Ekki nokkur
spurning. Þeir
réðu leiknum
og áttu færin á
meðan ekkert
var að gerast
hjá Bæjurum og
það var ekki
vegna styrk-
leika Bæjara
sem United
kláraði ekki
leikinn, heldur þeirra eigin klaufa-
skapur. Færin voru alveg til staðar
þótt þau hafi oft verið fleiri. Skot
Andy Cole fór t.d. rétt fram hjá eft-
ir frábæran undirbúning félaga
hans og svo kom langbesta færi
United þegar Ronny Johnsen fær
tækifæri i tvígang inni í markteig
í upphafi síðari hálfleiks en tekst á
einhvern óskiljanlegan hátt að
klúðra því en hann var reyndar
nýkominn inn á og því ískaldur
sem er kannskí skýringin. Mesta
bitið fór síðan úr sóknarleik
United er þeir misstu Dwight Yor-
ke út af í meiðsli en hann hafði
verið mjög ógnandi og réð Ghana-
maðurinn í vöminni ekkert við
hann. Ég veít til þess aö ákveðnum
Bayem-aðdáendum létti mikið er
Yorke fór út af. Það má segja að
lánið hafi leikið við Bæjara eina
ferðina enn. Skemmst er að minn-
ast fyrri leiks liðanna í Þýskalandi
og svo leiks þeirra á móti
Barcelona á Spáni. En þetta er í
lagi því bæði lið eru áfram og mín
tilfínning er sú að hlutskipti þess-
ara liða verði ólíkt þegar upp verð-
ur staðið í maí, því United hefur
sýnt að það hefur alla burði til að
fara alla leið þar sem það er lang-
sterkasta sóknarlið Evrópu. Tutt-
ugu mörk í riðlakeppninni tala
sínu máli og vömin verður orðin
firnasterk þegar keppni hefst að
nýju. En hvað getur maður sagt
um lið eins og Bayern sem tapar
fyrir Bröndby"
Bayern spilaði
út á jafntefli
„Þeir áttu það
innilega ekki
skilið að vinna
þennan leik.
Bayern fór í
þennan leik
með því hugar-
fari að halda
jöfnu og vinna
þar af leiðandi
riðilinn. En það
fékk náttúrlega
mikla pressu á sig í upphafi leiks-
ins sem gat ekki endað nema með
því að fá mark á sig og urðu leik-
menn því að setja í annan gir þeg-
ar þeir voru komnir undir. Reynd-
ar gátu þeir engan veginn tapað
leiknum og mættu sterkir til leiks
í upphafi siðari hálfleiks og jöfn-
uðu 1-1. Svo fjaraði leikurinn bara
út og bæði lið fóru sátt eftir að
Bayern; skoraði þetta jöfnunar-
mark. Elber fékk svo mjög gott
færi sem hann hefði getað nýtt og
skilað Bayern sigri og ég gæti talið
upp endalaust af svipuðum færum.
Það verður að segjast eins og er að
Bayern er heilsteyptara en
Manchester United sem veit ekki
alveg hvað varnarleikur er. Þetta
lið mun ekki að mínu mati ná
miklu lengra en það hefur náð
fram að þessu - þeir eru komnir
þangað sem þeir hafa getu til. I
Evrópubolta þarf maður bæði að
geta sótt og varist. Þannig er það
nú að besta lið á Bretlandseyjum
getur bara sótt en knattspyrna
gengur út á það að geta bæði sótt
og varist."
-hb
Andri Sigþórsson,
fyrrum ieikmaður
Bayern Miinchen.