Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Síða 17
16
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
33
íþróttir
rr»- EMGLAMD
Fyrirliöi Leeds United, Lucas
Radebe, og markvörðurinn Nigel
Martyn hafa báðir ákveðiö aö fram-
lengja samning sinn við félagið.
Þetta verður tilkynnt á blaðamanna-
fundi í kvöld. George Graham, fyrr-
um stjóri Leeds og nú hjá Totten-
ham, hafði áhuga á að kaupa félag-
ana en ekkert verður af því.
David Batty hefur viðurkennt að
hafa tárast er hann kvaddi Howard
Wilkinson á sínum tíma hjá Leeds.
Batty, sem er aftur genginn í raðir
Leeds, leikur sinn fyrsta leik með fé-
laginu á mánudag.
David O’Leary, stjóri Leeds, segir
að Leeds sé ekki með nægilega gott
lið til að vinna ensku úrvalsdeild-
ina. „Við höfum hæfileika til að
vera á meðal átta efstu liða. Viö
erum i fjórða sæti sem stendur en
erfiðasti hluti tímabilsins fer senn i
hönd. Þá munu ungu mennirnir i
mínu liði þreytast. Það er stað-
reynd,“ sagði O’Leary í gær.
Það ríkir vitanlega ekki mikil ham-
ingja á meðal forráðamanna Glas-
gow Rangers eftir að liðið var slegið
út úr UEFA-keppninni. Nú stendur
til að kaupa tvo sterka leikmenn til
að styrkja liðið, markvörðinn Stef-
an Klos frá Borussia Dortmund og
Neil McCann frá Hearts. Klos hefur
þegar fengið leyfi frá Dortmund til
að ræða við Rangers.
Roy Hodgson, sem rekinn var úr
stóli framkvæmdastjóra hjá Black-
burn Rovers, á ekki von á því að
vera lengi atvinnulaus. Hodgson hef-
ur sagt að margir framkvæmdastjór-
ar eigi eftir að missa vinnuna áður
en keppnistímabiliö er á enda og
þess verði ekki langt að biða að hon-
um bjóðist ný staða.
Forráðamenn Sheffield United hafa
lýst þvi yfir að ekki komi til greina
að Steve Bruce, fyrrum varnarjaxl
Man. Utd, hætti sem framkvæmda-
stjóri félagsins til að gerast aðstoðar-
maður hjá Alex Ferguson, stjóra
United. Bruce hefur náð mjög góð-
um árangri með lið Sheffield United
og forráðamenn liðsins sögðu i gær
að brottför hans frá félaginu væri
alls ekki á dagskrá.
Dregið verður i 8-liða úrslit meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu um
miðjan desember og leikirnir fara
síðan fram í mars á næsta ári. Ljóst
er að Manchester United mun ekki
mæta Real Madrid eöa Bayern
Múnchen þegar dregið verður og því
hefur það eflaust verið betra hlut-
skitpi fyrir United að fara bakdyra-
megin inn í úrslitin.
Andy Cole hefur átt hvern stórleik-
inn af öðrum með Manchester
United á síðustu vikum. Nú er ljóst
að Dwight Yorke mun missa af
tveimur næstu leikjum United og þá
mun fyrst reyna á Cole. Samvinna
þeirra félaga í framlinunni hefur
verið frábær og því verður fróölegt
að sjá hvernig Cole spjarar sig án
hans. ck-
Um helgina
1. deild karla 1 handknattleik:
Afturelding-FH . . .
HK-lBV...........
Fram-Selfoss.....
KA-Valur ........
Grótta/KR-Stjarnan
Haukar-ÍR........
L. 16.15
S. 20.00
S. 20.00
S. 20.00
S. 20.00
S. 20.00
1. deild kvenna i handknattleik:
Haukar-FH F. 20.00
KA-ÍBV L. 14.00
L. 14.30
Valur-Grótta/KR L. 16.30
Bikarkeppni karla í körfuknattleik:
Snæfell-Smári L. 16.00
Þór Þ.-Þór Ak L. 16.00
GG-Stjarnan L. 18.00
Breiðablik-Haukar S. 20.00
Njarðvík-Grindavík S. 20.00
Keflavík-ÍS S. 20.00
Skallagrímur-Akranes .... S. 20.00
Tindastófl-KR S. 20.00
1. deild kvenna í körfuknattleik:
KR-Njarðvík...............L. 17.00
Keflavík-ÍR...............L. 17.00
1. deild kvenna í blaki:
Þróttur N.-Víkingur ......F. 20.00
Þróttur N.-Víkingur ......L. 14.00
íþróttir
1 795-690 16
2 941-774 16
3 896-845 14
4 820-809 12
4 781-756 10
5 876-864 10
5 828-844 10
5 692-729 8
Valur
10 1 9 759-871 2
Fram - Fótboltafelag Reykjavíkur hf.:
Stefnt er að
titli árið 2001
Útboðslýsing vegna sölu hluta-
bréfa í Fram - Fótboltafélagi Reykja-
víkur, var kynnt í gær. Sala hluta-
bréfa hefst þann 14. desember og lýk-
ur 31. desember.
í greinargerð með rekstraráætlun
hins nýja hlutafélags kemur ýmis-
legt forvitnilegt fram. í greinargerð-
inni er vikið að helstu forsendum
rekstraráætlunar.
Gert er ráð fyrir því að Fram
hafni í 3. sæti á næsta íslandsmóti
og að meðaltali komi 1.200 áhorfend-
ur á leiki liðsins. Gert er ráð fyrir
að hagnaður af sölu leikmanna inn-
anlands verði 500 þúsund krónur.
Fram hafnaði í 6. sæti á síðasta ís-
landsmóti og 841 áhorfandi kom að
meðaltali á leiki liðsins.
Árið 2000 stefna Framarar að 2.
sæti á íslandsmótinu og að 1.300
áhorfendur komi að meðaltali á
leiki liðsins á íslandsmótinu. í bik-
arkeppninni er gert ráð fyrir fjórum
leikjum í íjögurra liða úrslit. Þá er
gert ráð fyrir að hagnaður vegna
sölu á leikmönnum nemi 5 mUIjón-
um króna og seldur verði einn leik-
maður til Norðurlanda. Gert er ráð
fyrir að Fram mæti liði frá Austur-
Evrópu í UEFA-bikarnum, að 1.500
áhorfendur sjái leikinn og tekjur frá
UEFA nemi 6,5 milljónum króna.
Árið 2001 ætla Framarar sér !s-
landsmeistaratitilinn og að Fram
leiki fjóra leiki í bikarnum og kom-
ist í fjögurra liða úrslit. Meðalað-
sókn á íslandsmóti verði þá 1.400
áhorfendur og hagnaður af sölu
leikmanna nemi 10 milljónum
króna. Seldur verði einn leikmaður
til Þýskalands. Sama ár er reiknað
með 3.000 áhorfendum á leik í
UEFA-bikarnum og andstæðingur-
inn verði lið frá Norðurlöndunum.
Tekjur frá UEFA 4,5 milljónir
króna.
Árið 2002 gera Framarar ráð fyr-
ir að hafna í 1.-2. sæti á íslandsmót-
inu og 1.400 áhorfendur verði meðal-
aðsókn á íslandsmóti. í bikarkeppni
er gert ráð fyrir að liðið leiki til úr-
slita. Reiknað er með að fyrri leikur
í forkeppni Evrópukeppni meistara-
liða verði gegn liði frá Austur-Evr-
ópu og að hann vinnist. Enn er
reiknað með 6,5 milljóna króna tekj-
um frá UEFA og að áhorfendur
verði 1.500. í síðari leiknum í for-
keppninni er reiknað með að and-
stæðingurinn verði þokkalegt lið frá
Norður-Evrópu og að leikurinn tap-
ist. Aftur er reiknað með 6,5 millj-
óna króna tekjum frá UEFA og að
5.000 áhorfendur mæti á völlinn.
Vegna ósigursins í síðari umferð
forkeppni Evrópukeppni meistara-
liða reikna Framarar með að fá lið
frá Austur-Evrópu sem andstæðing
í UEFA-bikarnum. Að 1.500 áhorf-
endur mæti á leikinn og tekjur frá
UEFA nemi 4,5 milljónum króna.
-SK
Þrír lykilmenn Framara. Frá vinstri: Gústaf Björnsson aðstoðarþjálfari,
Ásgeir Elíasson, knattspyrnustjóri og þjálfari, og Jón Steinar Gunnlaugs-
son, varaformaður hlutafélagsins. DV-mynd ÞÖK
5-6 sterkir leik-
menná leið til Fram
Framarar gera ráð fyrir að ráðstafa hluta af hlutafénu sem selst á
næstu vikum, 30 milljónir króna að nafnveröi, til fjármögnunar á
nokkrum leikmönnum og styrkja þannig liö Fram verulega fyrir næsta
keppnistímabil.
í greinargerðinni með rekstraráætlun nýja hlutafélagsins segir orð-
rétt: „Áætlanir gera ráð fyrir að fengnir verði 5-6 sterkir leikmenn tO fé-
lagsins og þar af einn til tveir erlendir leikmenn."
Þjálfari Fram og knattspymustjóri verður Ásgeir Elíasson. Gústaf
Björnsson, sem starfað hefúr hjá KSÍ, hefur veriö ráðinn til félagsins sem
aðstoðarmaöur Ásgeirs og mun m.a. sinna þjálfun 2. flokks. -SK
körfuknattleik:
Vill fá vetrarfrí
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, vill fá vetrarfri í
ensku knattspyrnunni en hann óttast að
hið mikla álag sem fylgir keppni í ensku
deildinni og í bikarkeppninni komi nið-
ur á liðinu þegar það keppir í 8-liða úr-
slitum meistaradeildarinnar en þau hefj-
ast í mars. Ferguson er minnugur síð-
asta tímabils en þá fengu nokkrir leik-
manna liðsins að kenna á meiðslum sem
fylgir miklu álagi.
„Það segir sig sjálft að það er mikil
hætta á að ég geti ekki teflt fram mínum
besta mannskap í mars. Það tekur sinn
toll að spila svona marga leiki og auðvit-
að óttast ég að meiðsli muni hrjá ein-
hverja af mínum mönnum þegar meist-
aradeildin fer af stað aftur,“ sagði Fergu-
son í samtali við fréttamenn í gær.
Sumir andstæðingar Manchester Uni-
ted í meistaradeildinni verða í frii yfir
hávetrartimann og það sama vill Fergu-
son að gert verði í Á-deildinni.
„Sum liðin eins og til að mynda Dyna-
mo Kiev eru komin í frí og á meðan geta
leikmenn liðsins jafnað sig á meiðslum.
Þeir fara eflaust í ferð til Kanaríeyja á
meðan við þurfum að puða heima í
deilda- og bikarkeppninni," segir Fergu-
son.
United hefur þegar spilað 7 leiki í des-
ember og fram undan eru tveir leikir á
fjórum dögum. Á laugardaginn mætir
United Tottenham á White Hard Lane í
Lundúnum og á miðvikudaginn Chelsea
á Old Trafford. Báðir þessir leikir eru í
deildakeppninni.
4 -GH
Bland i poka
Sœnski landsliðsmaðurinn Jesper
Mattsson er genginn til liðs við
enska A-deildarliðið Nottingham For-
est frá sænska liðinu Halmstad. For-
est greiðir 35 milljónir króna fyrir
þennan 30 ára gamla varnarmann.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn ætlar
aö bjóða upp á knattspyrnuferð til
Englands 29.-31. janúar. Farið verður
á stórleik Lundúnaliðanna Arsenal
og Chelsea. Nánari upplýsingar um
ferðina gefur íþróttadeild Úrvals-Út-
sýnar i s. 569-9300.
Alexandra Meissnitzer frá Austur-
ríki vann sinn
annan sigur i
heimsbikar-
keppninni á
skíöum í gær
þegar hún varð
hlutskörpust í
risasvigi 1 Val
D’Isere í
Frakklandi.
Þýska stúlkan
Martina Ertl varð önnur og Rogine
Cavagnoud frá Frakklandi hafnaði í
þriðja sæti.
Denis Irwin og Dwight Yorke verða
að öllum líkindum ekki með Man-
chester United þegar liðið sækir Tott-
enham heim á morgun. Þeir meidd-
ust báðir í leiknum gegn Bayem
Múnchen í fyrrakvöld.
Tony Adams, fyrirliði Arsenal, mun
ekki leika með sínum mönnum fyrr
en i febrúar en hann gekkst undir að-
gerð i baki í vikunni. Þetta er áfall
fyrir meistarana enda var reiknað
með því að Adams yrði klár í kring-
um áramótin.
Eric Gerets, þjálfari belgísku meist-
aranna í knattspyrnu, Club Brúgge,
verður næsti þjálfari PSV Eindhoven
í Hollandi. Fleiri félög hafa reynt að
krækja í Gerets og er þýska liðið
Stuttgart eitt þeirra. Gerets hefur til-
kynnt forráöamönnum PSV að hann
muni ganga frá samnigi viö liðið síð-
ar í þessum mánuði. Gerets, sem er
fyrrum landsliðsmaður Belga, þekkir
vel til hjá hollenska liðinu enda lék
hann með því frá 1985 til 1992.
Daninn Per Frandsen hefur fram-
lengt samning sinn viö Bolton og
gildir hann nú út tímabilið 2001. For-
ráðamenn Bolton munu á næstu dög-
um setjast niður með Arnari Gunn-
laugssyni og bjóða honum nýjan
samning en hann hafnaði á dögunum
tilboði félagsins.
Nokkrar stúikur í fimleikaliði Norð-
ur-Kóreu hafa fengið keppnisleyfi á
Asíuleikunum i fimleikum sem nú
standa yfir. Nokkrar þátttökuþjóöir
kærðu stúlkurnar og sögðu þær ekki
hafa náð 16 ára lágmarksaldri til að
fá keppnisrétt á leikunum. í gær var
úrskurðað i málinu og fengu þær
keppnisleyfi eftir að gengið hafði ver-
ið úr skugga um aldur þeirra. Reynd-
ust þær allar 16 ára eða eldri.
Steinar Ingimundarson, sem lék
með Leiftri í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í sum-
ar, stefnir á að
spila með úr-
valsdeildarliði
á höfuðborgar-
svæðinu næsta
sumar. „Mér
bauðst að vera
aöstoöarþjálf-
ari hjá Leiftri
en vegna at-
vinnu minnar verð ég að vera í
Reykjavík,” sagði Steinar við DV.
-GH/SK/VS
Leiftur i UEFA-bikarinn
Knattspyrnusamband Evropu akvað í gær að legg]a nið-
ur Evrópukeppni bikarhafa. Héðan í frá fara bikarmeistar-
ar Evrópuþjóða í UEFA-bikarinn, og þangað fer Leiftur frá
Ólafsfirði sem annars hefði verið fulltrúi íslands í Evrópu-
keppni bikarhafa á næsta tímabili. Þá var meistaradeild
Evrópu stækkuð en þangað komast framvegis 32 lið í stað
24. Alls veröa 72 þátttökulið í meistarakeppninni og 121 í
UEFA-bikarnum. -VS
Fylgst með Hermanni
Útsendarar frá þremur liðum úr ensku A-deildinni í knattspyrnu, Southampton,
West Ham og Charlton, sáu stórleik Hermanns Hreiðarssonar með Brentford gegn
Plymouth á þriðjudaginn. Eins og fram kom í DV í gær var Hermann besti maður
vallarins og skoraði fyrra markið í 2-0 sigri Brentford.
Umræddir útsendarar voru að fylgjast með nokkrum leikmönnum Brentford og
talið er að Hermann hafi verið einn þeirra. Litlu munaði að Hermann færi til Charl-
ton í haust, sem kunnugt er, en þá seldi Crystal Palace hann til Brentford. -VS
Úrvalsdeildin í
Halla úr leik
Halla Mai'ía Helgadóttir úr Víkingi, ein besta
handknattleikskona landsins, er úr leik í bili
vegna brjóskloss í baki og hún þarf jafnvel að
gangast undir uppskurð. Þetta er mikið áfall fyrir
Víkingsliðið, en Halla María er þar í lykilhlut-
verki, og þá missir Halla María af æfingatörn
kvennalandsliðsins um jól og áramót. -VS
URVALSDEILDIN
Keflavík 9
Njarðvik 10
KR 10
Snæfell 10
KFÍ 9
Grindavik 10
Haukar 10
Þór A. 9
IA 9 4 5 679-722
Tindastóll 10 4 6 831-883
Skallagr. 10 1 9 787-898
Keith Vassell, þjalfari
og leikmaður KR,
brýst fram hjá
Tindastólsmönnunum
Sverri Þór Sverrissyni
og Cesare Piccini í
leiknum í Hagaskóla í
gærkvöld.
DV-mynd ÞÖK
Tiundu umferð lýkur i kvöld með
tveimur leikjum. KFÍ og ÍAleika á
ísafirði ki. 20 og Þór A. mætir Kefla-
vík á Akureyri kl. 20.30.
Alex Ferguson, stjóri Manchester United:
- Njarðvík vann slaginn við Grindavík
Það var Suðurnesjaslagur eins og
þeir gerast bestir þegar Njarðvík
tók á móti nágrönnum sínum úr
Grindavík í gærkvöld. Njarðvíking-
ar höfðu betur, 101-84, en það var
ekki að sjá að liðin litu á þennan
leik sem upphitun fyrir bikarslag
liðanna á sunnudag því baráttan
var svakaleg hjá báðum liðum.
Bæði lið byrjuðu að spila mjög
svo stifa maður á mann vörn og
voru átökin gríðarleg á köflum.
Jafnræði var með liðunum og urðu
hálfleikstölur 45-45. Njarðvíkingar
komu miklu ákveðnari til seinni
hálfleiks og fór Brenton Birming-
ham þar fremstur f flokki. Grind-
víkingar börðust af krafti en hittnin
var ekki til staðar hjá þeim nema
Herberti Arnarsyni sem var sjóð-
andi heitur og hitti úr öllum mögu-
legum og ómögulegum færum. Síð-
asti möguleiki þeirra var að fara í
pressuvöm þegar lítið var eftir en
Njarðvíkingar áttu svar við henni
og juku forskotið upp í 17 stig.
Bæði lið eiga hrós skilið fyrir
skemmtilegan leik þar sem menn
tóku vel á hver öðrum og sýndu oft
skemmtileg tilþrif.
Birmingham virðist finna sig vel
á móti Grindvíkingum og skoraði
mikið þegar Njarðvíkingar voru að
losa sig við Grindvíkinga i seinni
hálfleik. Friðrik Ragnarsson, Páll
Kristinsson og Hermann Hauksson
áttu allir mjög góðan leik. Hjá gest-
unum var Herbert frábær og sýndi
mönnum hversu öflugur leikmaður
hann er, en aðrir voru í meðal-
mennskunni.
„Okkur hefur gengið erfiðlega
með Grindavík í vetur. Það er eins
og það henti okkur illa að spila á
móti þeim en við sýndum í kvöld að
við getum unnið þá. Þess vegna er
þessi sigur mjög mikilvægur fyrir
okkur andlega og við hlökkum mik-
ið til bikarleiksins á sunnudag,"
sagði fyrirliði Njarðvíkinga, Friðrik
Ragnarsson, eftir leikinn.
Góður endasprettur KR-inga
KR-ingar byrjuðu vel á nýjum
heimavelli sínum í Hagaskóla og
Skallagr. (42)86
Valur (37) 78
4-A, 12-11, 23-15, 34-27, (42-37), 48-48,
59-56, 70-62, 76-67, 86-78.
Stig Skallagríms: Eric Fransson
31, Hlynur Bæringsson 14, Tómas
Holton 13, Sigmar Egilsson 12, Krist-
inn Friðriksson 10, Henning Henn-
ingsson 3, Finnur Jónsson 3.
Stig Vals: Kenneth Richards 20,
Bergur Emilsson 19, Hinrik Gunnars-
son 15, Kjartan Sigurðsson 12, Hjört-
ur Hjartarson 4, Ólafur Hrafnsson 4,
Guðmundur Björnsson 4.
Fráköst: Skallagrímur 35, Valur
23.
3ja stiga körfur: Skallagrímur
3/14, Valur 9/20.
Vítanýting: Skaliagrímur 21/26,
Valur 7/12.
Dómarar: Leifur Garðarsson og
Jón H. Eðvaldsson, sæmilegir.
Áhorfendur: 282.
Maður leiksins: Hlynur Bær-
ingsson, Skallagrími.
unnu Tindastól, 92-72, í gær. Leikur-
inn getur ekki talist venjulegur eða
öruggur 20 stiga sigur því aðeins
munaði tveimur stigum, 68-66, þegar
flórar mínútur voru eftir. Stólamir
voru þá búnir að vinna upp 13 stiga
forskot KR, en þá náði KR 5 stiga
sókn, fyrst 3 stiga körfu frá Eiríki og
um leið var brotið á Vassell undir
körfunni og hann nýtti bæði vítin.
Eftir það misstu gestirnir einbeiting-
una og KR skoraði 24 af 30 síðustu
stigum leiksins. Á meðan snerist
leikur Stólanna aðallega um nöldur
og rifrildi við dómara.
Vassell og Eiríkur héldu uppi
sókn KR, skoruðu 61 af 92 stigum
liðsins en hjá Tindastóli vantaði
John Woods sem meiddist gegn
Keflavík og það munaði miklu, sér-
staklega þegar leikmenn liðsins
fóru að þreytast í lokin. Ómar Sig-
marsson lék afar vel í fyrri hálfleik
er hann gerði 15 af 19 stigum sínum
og eins komst Arnar Kárason vel
frá leiknum. Stólamir töpuðu þama
sínum 5. leik í röð eftir 4 sigra i
fyrstu 5 leikjunum.
Fyrstu stig Skallagríms
Skallagrimur vann mikilvægan
sigur á Val í botnslag liðanna í
Borgarnesi, 86-78, og innbyrti þar
með fyrstu stig sín á tímabilinu.
Liðin era nú jöfn á botninum og
eiga greinilega harða baráttu fyrir
höndum.
„Það kom ekkert annað til greina
en að vinna þennan leik og það
gekk eftir, sem betur fer. Við tap
fyrir Val á heimavelli hefði útlitið
verið ansi svart. Við erum vonandi
loksins búnir að snúa við blaðinu,“
sagði Sigmar Egilsson, leikmaður
Skallagríms.
Leikurinn einkenndist af tauga-
spennu og baráttu. Heimamenn
höfðu undirtökin nær allan tímann
og sigur þeirra var nokkuð öraggur
undir lokin.
Hlynur Bæringsson, 16 ára piltur,
lék mjög vel með Skallagrími og er
tvímælalaust eitt mesta efni lands-
ins 1 dag. Tómas Holton var mjög
sterkur, sem og Sigmar í seinni
Njarövík (45) 101
Grindavík (45) 84
6-8, 12-13, 12-20, 25-27, 30-30, 35-34,
40-39, (4545), 5045, 60-52, 67-60,
74-62, 86-71, 92-77, 101-84.
Stig Njarðvíkur: Brenton Birm-
ingham 32, Páll Kristinsson 19, Friö-
rik Ragnarsson 19, Hermann Hauks-
son 14, Teitur Örlygsson 7, Friðrik
Stefánsson 6, Ragnar Ragnarsson 2.
Stig Grindavíkur: Herbert Amar-
son 34, Warren Peebles 15, Guðmund-
ur Bragason 13, Páll Axel Vilbergsson
7, Garcia Navalon 7, Pétur Guð-
mundsson 4, Guðlaugur Eyjólfsson 4.
3ja stiga körfur: Njarðvik 5,
Grindavík 7.
Vítanýting: Njarðvik 9/13,
Grindavík 8/12.
Dómarar: Jón Bender og Björgvin
Rúnarsson.
Áhorfendur: 380.
Maður leiksins: Brenton Birm-
ingham, Njarðvik.
hálfleik. Eric Fransson hefur oft
verið grimmari þó hann gerði 31
stig en hann á við meiðsli að stríða.
Bergur Emilsson hélt Val inni í
leiknum í fyrri hálfleik með 5 3ja
stiga körfum úr 6 skotum. Kenneth
Richards vaknaði síðan til lífsins i
síðari hálfleik og gerði þá 17 stig.
Öruggur sigur Snæfells
Snæfell komst í 4. sætið með ör-
uggum sigri á Haukum í Stykkis-
hólmi, 77-70.
„Við vorum ákveðnir að gera bet-
ur en í síðasta leik og náðum fljót-
lega þægilegri forustu. Haukarnir
voru þó baráttuglaðir og erfiðir við
að eiga. Við vorum kannski ekki að
spila okkar besta leik en gerðum þó
margt gott,“ sagði Birgir Mikaels-
son þjálfari og leikmaður Snæfells.
„Við vorum bara ekki í takt við
leikinn í byrjun og það gengur
ekki,“ sagði Sturla Jónsson, liðs-
stjóri Hauka.
Leikurinn fór rólega af stað hvað
sóknina áhrærði en varnarleikur-
inn var þess harðari og cdlt að því
grófur á köflum. Snæfell setti þó
fljótlega í fluggírinn og skoraði 4
þriggja stiga körfur á örfáum mínút-
um og náði þægilegri forustu. Hauk-
ar neituðu þó að gefast upp en áttu
einfaldlega við ofurefli að etja, enda
spiluðu þeir þennan leik án útlend-
ings og einnig vantaði Sigfús Gizur-
arson. Þetta þýddi að Rob Wilson
ríkti sem kóngur í teignum og tók
öll þau fráköst sem nálægt honum
komu.
í liði Snæfells var Rob Wilson
góður, Birgir, Bárður, Spyropoulos
og þá sérstaklega Mark Ramos áttu
einnig góðan dag. Ramos má þó
ógna meira með skotum utan af
velli en hann hefur sýnt að það get-
ur hann vel. Hann er hins vegar
mjög góður varnarmaður. Hjá
Haukum var Jón Arnar Ingvarsson
yfirburðamaður. Daníel Árnason
átti fína spretti í fyrri hálfleik og
Bragi Magnússon í þeim síðari.
Einnig eiga þeir marga efnilega
unga leikmenn sem spiluðu vel í
gærkvöldi. -BG/ÓÓJ/EP/KS/VS
KR (46) 92
Tindastóll (44) 72
0-3, 6-6, 6-12,11-15, 20-21, 24-24, 24-28,
28-30, 32-30, 40-37, 4442, (4644), 5044,
5246, 63-50, 66-58, 66-62, 68-66, 73-66,
75-67, 85-69, 85-72, 92-72.
Stig KR: Keith Vassell 36, Eiríkur
Önundarson 25, Lijah Perkins 12,
Mikael Björnsson 6, Marel Guðlaugs-
son 6, Atli Einarsson 3, Óskar Krist-
jánsson 3.
Stig Tindastóls: Ómar Sigmars-
son 19, Arnar Kárason 14, Valur Ingi-
mundarson 12, Cesare Piccini 11,
Sverrir Þór Sverrisson 7, Gunnlaugur
Erlendsson 3, Svavar Birgisson 3,
ísak Einarsson 1.
Fráköst: KR 32, Tindastóll 28.
3ja stiga körfur: KR 4/15, Tinda-
stóll 6/23.
Vítanýting: KR 24/33, Tindastóll
12/25.
Dómarar: Eggert Aðalsteinsson og
Rögnvaldur Hreiöarsson. Ágætir.
Áhorfendur: Um 100.
Maður leiksins: Keith Vassell,
KR, 36 stig og 14 fráköst.
Snæfell (49)77
Haukar (30) 70
9-6, 15-8, 24-12, 30-20, 43-28, (49-30),
51-33, 5940, 6444, 72-50, 74-63 77-70.
Stig Snæfells: Athanasias Spyro-
poulos 19, Bárður Eyþórsson 18, Rob
Wilson 14, Mark Ramos 12, Birgir
Mikaelsson 6, Ólafur Guömundsson
4, Jón Þór Eyþórsson 3, Baldur Þor-
leifsson 1.
Stig Hauka: Bragi Magnússon 23,
Jón Arnar Ingvarsson 20, Daníel
Ámason 9, Óskar F. Pétursson 6, Ró-
bert Leifsson 5, Baldvin Johnsen 4,
Leifur Leifsson 3.
Fráköst: Snæfell 30 vörn, 16 sókn,
Haukar 14 vörn, 11 sókn.
3ja stiga körfur: Snæfell 25/10,
Haukar 21/7.
Vítanýting: Snæfell 37/28, Haukar
20/15.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson
og Rúnar B. Gíslason, þokkalegir.
Áhorfendur: 200.
Maður leiksins: Rob Wilson,
Snæfelli.