Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Síða 19
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
3^
DV
Sviðsljós
DiCaprio með
eigin heimasíðu
Aðdáendur hins unga snoppu-
fríða Hollywoodleikara Leonar-
dos DiCaprios þurfa ekki lengur
að bíða eftir
slúðurblöðun-
urn til að fá
fréttir af elsk-
unni. DiCaprio
hefur tekið Net-
ið í sína þjón-
ustu og er kom-
inn með heima-
síðu. Þar er
hægt að fræðast um sitt lítið af
hverju sem vinur vors og blóma
tekur sér fyrir hendur. Til dæm-
is að hann horfði á geimskutluna
Endeavour taka á loft. Slóðin er:
www.leonardodicaprio.com.
Kate kveikti
næstum í
Litlu munaði að illa færi fyrir
ofurfyrirsætunni partíglöðu Kate
Moss á dögunum. Hún var næst-
um búin að kveikja í heilsuhæl-
Binu þar sem
hún leitaði sér
lækninga á
partífíkn sinni.
Bandaríska
dagblaðið New
York Post segir
að fyrir slysni
hafi kviknað í
herbergi fyrirsætunnar. Hún
mun hafa gleymt logandi ilmkert-
um þegar hún brá sér af bæ eitt
andartak. Kertin kveiktu í slæðu
sem lá þar nærri og af hlaust
heldur meiri eldur en gott þykir.
Heilsuhælið var rýmt um stund-
arsakir á meðan verið var að
ráða niðurlögum eldsins. Ein-
hverjar skemmdir urðu á húsinu
en ekki urðu slys á mönnum.
Denise Richards er nýja Bondpían:
Þekktust fyrir sjóðbull-
andi heitar ástarsenur
Denise Richards ætlar að taka Pi-
erce Brosnan í bakaríið. Hvort
henni tekst það í næstu myndinni
um ofurnjósnara hennar hátignar,
sjálfan James Bond, skal ósagt látið.
Eitt er þó víst: Denise Richards
verður næsta Bondpían. Ekki kven-
maður af verri endanum, heldur
kjarnorkuvopnasérfræðingur að
nafni dr. Christmas Jones.
Denise þessi er 26 ára. Iðnir kvik-
myndahúsagestir hafa séð hana í að
minnsta kosti tveimur kvikmynd-
um í Reykjavík. Hún vakti fyrst á
sér athygli í geimvísindamyndinni
Starship Troopers. Þekktust er hún
þó sjálfsagt fyrir eldheitar og sjóð-
bullandi ástarsenur með stallsystur
sinni Neve Campbell í kvikmynd-
inni Wild Things.
Orðrómur hafði verið á kreiki um
að kynbomban Sharon Stone mundi
leika höfuðandstæðing Bonds í
myndinni. Það verður að bíða betri
tíma. Tökur myndarinnar, The
World Is Not Enough, hefjast í janú-
ar næstkomandi, í bæði Englandi og
Tyrklandi. Myndin verður svo klár Denise Richards, næsta Bondpían, er þessi á sundskýlunni. Með henni á
fyrir jólin 1999. myndinni er Neve Campbell. Stúlkurnar léku saman í Wild Things.
Whitney og Bobby ætla að þrauka
Sjaldan verður sagt um hjónaband
þeirra Whitney Houston og Bobbys
Browns að það hafi verið dans á rós-
um. Þvert á móti. Þau ætla þó ekki
að láta gamlar syndir, svo sem bar-
smíðar og fleira, eyðileggja allt.
Whitney og Bobby gefast ekki upp.
í viðtali við blökkumannatímarit-
ið Ebony segir söngvadísin að þau
Bobby hafi skilið að borði og sæng í
heilan mánuð einhvern tíma í fyrra.
Þau voru þá ákveðin i að binda enda
á stormasamt hjónabandið.
Ekki voru skjötuhjúin þó lengi að-
skilin. Þau söknuðu hvort annars
svo mikið að þau rottuðu sig saman
aftur.
Whitney setti Bobby þó skilyrði.
Hann varð að gera hosur sínar græn-
ar fyrir henni einu sinni enn. Og
hún beit á agnið. Aftur.
Gíróseðlar Uggja frammi í
öllum bönkum, sparisjóðum
og á pósthúsum.
Þú getur þakkað fyrir þitt hlutskipti
Gefum bágstöddum von
UEIÐLKST
J - slm: BII 1011 - FAX: bll IIJS
reidliit9reldlist.is
"'tfi
Ll£)iJ_rJJ jJ_rJ
á ííájJíjj
. ! '•
;___________________________________________________________________________________