Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Page 32
FRETTASKOTID
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Sjónvarpsmaður frá New York gerir jólaþátt um menningarlíf í Reykjavík:
Leitar að strák-
um fyrir Playgirl
„Ég var búinn að sjá greinar um að
islenskar konur séu þær fallegustu í
heiminum. Þess vegna vonaðist ég til
að finna hliðstæðu hvað íslenska karl-
menn varðar þegar ég kom hingað.
En kannski hef ég ekki leitað nægi-
lega vel héma að mönnum sem era
tilbúnir til að sitja naktir fyrir. Það er
eins og íslenskir karlmenn séu feimn-
ari en konur við að sýna sig alla,“
•íagöi bandaríski sjónvarpsmaðurinn,
æringinn og blaðamaðurinn Stephen
Holt í samtali við DV.
Stephen er ekki einungis að leita að
íslenskum karlmönnum í kvenna-
Helgarblað DV:
Konur og kvóti
Valdimar Jóhannesson er í
helgarviðtali að þessu sinni. Hann
hefur komið víða við og ræðir m.a.
pólitík og kvennamál sín.
í blaðinu er rætt við Jóhannes
Einarsson, fyrrverandi forstjóra
Cargolux, um viðburðaríka ævi hans,
rætt er við Sjón um nýtt verk og einnig
er Oddur Helgi Halldórsson,
blikksmiður og bæjarfulltrúi á
Akureyri i skemmtilegu viðtali. Litið
er inn í Rauðakrosshúsið og forvitnast
um jólin þar. Birtar eru skemmtilegar
myndir frá jólaskrúðgöngu í Norfolk
þar sem íslendingafélagið á staðnum
hefur meðal annars hlotið verðlaun
fyrir skrautvagninn sinn.
I innlendu fréttaljósi er fjallað um
bitaörverur og í erlendu fréttaljósi er
rjallað um dekkri hliðar meistara
Frank Sinatra. -sm/þhs
Stephen Holt með Páli Óskari
Hjálmtýssyni sem er einn af við-
mælendum hans í jólaþætti New
York-búa. DV-mynd Teitur
tímaritið Playgirl, sem hann hefúr
skrifað greinar fyrir, heldur er hann
aðallega að gera jólaþátt um menning-
arlífið í Reykjavík sem sýna á í sjón-
varpi í New York á fostudag í næstu
viku. Hann fjallar meðal annars um
íslenskar kvikmyndir, leikhús, veit-
ingahús og fleira.
Sigmar B. Hauksson og Guðmundur
Hjalti Sveinsson, frá Ferðamálaráði ís-
lands, eru Stephen innan handar varð-
andi leiðsögn um menningarlífíð:
„Þetta er mjög þekktur sjónvarps-
þáttur á New York-svæðinu,“ sagði
Sigmar í samtali við DV. „Stephen er
þekktur fyrir að vera mjög skemmti-
legur og hress persónuleiki. Hann
mun Qalla um leikhús, listalífið og
matargerð á veitingahúsum í Reykja-
vík. Þetta er sú mynd sem við viljum
leggja áherslu á að kynna núna í
Bandaríkjunum. Við erum búin að
kynna náttúru landsins mjög vel und-
anfarin ár en nú er komið að því sem
borgin hefur upp á að bjóða.
Stepher fór tfr dæmis í heitu pott-
ana í sundlaugunum. Hann varð al-
veg yfir sig hrifinn. Svo létum við
hann drekka fullt af köldu vatni og
anda síðan að sér heitu gufúnum. Það
stóð ekki á svari hjá honum. Hann
sagði að maður „kæmist í vímu“.
Þannig að „Fjör í Reykjavík" er
áherslan núna,“ sagði Sigmar.
„Við ætlum að sýna Bandaríkja-
mönnum menningu sem þeir hafa
aldrei séð áður,“ sagði Stephen. Varð-
andi Playgirl kvaðst hann gjaman
vilja fá ábendingar um íslenska karl-
menn sem eru tilbúinir að láta mynda
sig nakta fýrir Playgirl. „Ég bý á Hót-
el Sögu,“ sagði hann. Hátt í 40 þúsund
krónur eru greiddar fyrir hverja birta
mynd. Stephen sagðist yfir sig hrifinn
af mildu loftslaginu hér á meðan
hann var að borða ýsu hjá Úlfari Ey-
steinssyni á Þremur Frökkum í gær:
„Þetta er svo gott - eins og að borða
ský,“ sagði Stephen Holt. -Ótt
Einar Oddur Kristjánsson í morgun:
Þorsteinn blekkir
ríkisstjórnina
Einar Oddur Kristjánsson
sagði í samtali við DV í
morgun að verið væri að
þurrka út sjómenn sem haft
hefðu krókaleyfi, líka þá
sem hefðu haft leyfi til hand-
færaveiða ákveðinn daga-
fiölda og þá sem mættu vera
á línu og handfærum og loks
sjómenn sem áunnið hefðu
sér þorskaflahámark.
„Þetta mál var kynnt okk-
ur í meirihluta sjávarútvegs-
nefndar klukkan tvö í fyrra-
dag og klukkan fiögur var
það kynnt í stjórnarflokkun-
um. Ég lýsti því þegar yfir að ég
mundi aldrei styðja þetta, aldrei.
Enda tel ég að sjávarútvegsráðherra
sé að blekkja ríkisstjórnina.
Það vita allir að vegna
þessa dóms var nauðsynlegt
að fara fram með lagabreyt-
ingar, sem hún og gerði. En
það sem sjávarútvegsráð-
herrann er að gera er að
hann nýtir sér tækifærið til
að þurrka út þetta leyfis-
form,“ sagði Einar Oddur
Kristjánsson, staddur á Flat-
eyri, í morgun.
Einar Oddur sagði að
verið væri að rústa vest-
firsk sjávarútvegspláss. Nú
verði með öllum ráðum að
leiða mönnum fyrir sjónir hversu
skelfileg aðgerð ríkisstjómarinnar
er. -JBP
Einar Oddur
Kristjánsson -
ráðherra er að
blekkja rfkis-
stjórnina.
VUIIIlillUUAI
HlllB*l***
Heilu piparkökuhúsaþorpi hefur verið komið upp í Kringlunni í Reykjavík.
Þessi kirkja er hluti af þorpinu - sannkölluð piparkökukirkja.
DV-mynd Hilmar Þór
Veðrið á morgun:
Norðanátt
og snjó-
koma
Á morgun verður allhvöss eða
hvöss norðanátt, vægt frost og
snjókoma norðan til. Sunnan til
verður allhvöss norðvestanátt,
skýjað að mestu og hiti á bilinu 1
til 3 stig.
Veðrið í dag er á bls. 45.
Heildverslunin Bjarkey
Ingvar Helgason