Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Kirkjuferjujaröirnar í Ölfusi:
50 milljóna loðdýra-
skuldir féllu á ríkið
Forsjá og umsjón landbúnaðarráðu-
neytisins með ríkisjörðunum að
Kirkjuferju og Kirkjuferjuhjáleigu í
Ölfusi hefur verið sérstæö síðasta ára-
tuginn. Landbúnaðarráðherra úthlut-
aði jörðunum til ábúðar skömmu fyr-
ir jól, eins og greint var frá í forsíðu-
frétt DV í gær og er sú úthlutun um-
deild, en það er forsagan ekki síður.
Þann 20. mars 1991, eða skömmu
fyrir þingkosningar það ár, gerði
Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi
landbúnaðarráðherra, samning við
ábúendur jarðanna um að kaupa af
þeim fasteignir og lausafé tengt ref-
arækt sem þá var stunduð á báðum
jörðum en komin í þrot. Kaupverðið
var hátt í 50 milljónir króna á þáver-
andi gengi. Rök ábúenda og lögmanns
þeirra fyrir þessum viðskiptum voru
þau að ríkið keypti af þeim fasteignir
og lausafé þar sem þeir væru orðnir
of skuldsettir til að stuðningsaðgerðir
ríkisvaldsins við loðdýraræktina
dygðu þeim. Þeir yrðu því að bregða
búi ef ekki kæmi eitthvað annað og
meira til svo tryggja mætti áfram-
haldandi búsetu á jörðunum og koma
í veg fyrir frekari útgjöld ríkisins.
Samningurinn við ábúendur á
Kirkjufeiju var upp á 36 milijónir
króna og 26 milljónir átti aö greiða
með því að yfírtaka skuldir. Kaup-
samningur um eignirnar á Kirkju-
ferjuhjáleigu var upp á 11,5 milljónir.
Þar af voru yfirteknar skuldir 9 millj-
Á Kirkjuferju, annarri tveggja jarða sem landbúnaðarráðherra úthlutaði til ábúðar skömmu
fyrir jól, er sorpurðunarstaður Sunnlendinga. DV-mynd ÞÖK
ónir. Skuldir ábúenda á báðum jörð-
unum voru einkanlega við Stofnlána-
deild landbúnaöarins, Landsbankann
og Byggðastofhun. Þáverandi ráð-
herra hafði ekki heimild í fjárlögum
til þessarar samningsgerðar.
Þegar ný ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar tók við eftir kosningamar vorið
1991 settist Halldór Blöndal í stól land-
búnaðarráðherra og Friðrik Sophus-
son í stól fjármálaráðherra. Hvorugur
hafði áhuga á því að taka þennan
samning í arf þar sem engin laga-
heimild fyrir honum fyrirfyndist. Þeir
frystu því allar greiðslur
samkvæmt honum og leit-
uðu til ríkislögmanns sem
taldi samninginn ólögleg-
an. Hann stæðist ekki
ákvæði jarðalaga um
kaupskyldu ríkisins á
fasteignum ef ábúandi
væri að flytjast af jörð-
inni. Þá væri ríkinu ekki
skylt samkvæmt lögrmum
að kaupa lausafé, kaup-
verðið væri ekki byggt á
úttekt hlutlausra aðila
auk þess sem húsin væru
ekki nauðsynleg til al-
menns búrekstrar og ættu
því að metast til lægra
verðs en hin nauðsynlegu
hús.
Miklar deilur urðu á Al-
þingi vegna löggildingar á
samningnum og svo fór að
aldrei fékkst lagaheimild
fyrir honum. Ábúendurnir
höfðuðu loks mál til þess
að fá ríkið til að efna
samning Steingrims J. Sig-
fússonar. Lyktir málsins
urðu þær að þriggja manna ráðherra-
nefnd núverandi rikisstjómar, þeirra
Davíðs Oddssonar, Guðmundar
Bjamasonar og Friðriks Sophussonar,
komst að þeirri niðurstöðu að efna
samninginn með því skilyrði þó að
ábúendumir vikju af jörðunum. -SÁ
Siggi tattoo kominn frá Flórída:
Reyndu að hrekja
mig úr Hlíðunum
Ibúamir kalla stofuna Hlíða-Tattoo
en í raun heitir hún Fafner mc Tattoo
eftir vélhjólaklúbbi á Suðumesjum en
þaðan kemur Siggi tattoo. Siggi er
bjartsýnn og hann opnaði húðflúrstofu
á homi Lönguhlíðar og Mávahlíðar:
„íbúamir hér í Hlíðunum tóku mér
illa í upphafi. Strax og það spurðist um
hverfið að ég væri að opna tattoo-
vinnustofu i Lönguhlíðinni var reynt
að bregða fyrir mig fæti á allan hátt.
Það var hringt í öll yfírvöld og ég klag-
aður í bak og fyrir en allt kom fyrir
ekki. Ég opnaði stofúna og var ekki bú-
inn að vera lengi þegar allir vom bún-
ir að taka mig í sátt,“ segir Siggi tattoo
sem er ættaður úr Vogum á Vatns-
leysuströnd og heitir fullu nafni Sig-
urður Erlendsson. Hann bjó alla sína
tíð í Vogum og vann í fiski þar til hann
flutti vestur um haf fyrir nokkmm
árum. Þar datt hann í tattoo-ið:
„Ég var í Jacksonville í Flórída og
vann fyrst á stofu sem heitir Big City
Tattoo. Þaðan flutti ég mig yfir til All
American Tattoo og endaði hjá Tattoo
Billy en Billy var sá alflinkasti og
kenndi mér allt sem ég kann,“ segir
Siggi og viðurkennir að hann sakni
Billys.
En Siggi er ekki einn í Hlíðunum.
Með honum er kærastan sem hann
kynntist á bar í Jacksonville og heitir
Valerie de la Hanty. Kærastan dvelur
langdvölum hjá Sigga í Hlíöunum og
kann því vel:
„Það var mikið að gera fyrir jólin
en nú er allt steindautt. Þess vegna æfi
ég mig nú á lærunum á kæmstunni og
kann þvi vel,“ segir Siggi tattoo.
Tattoo-verk hjá Sigga í Hlíða-Tattoo
kostar frá fimm þúsund krónum upp í
fimmtíu þúsund krónur - allt eftir
stærð og litafjölda. Startgjaldið er þó
Siggi Tattoo og Valerie de la Hanty bíða eftir viðskiptavinum í Hlíðunum og
á meðan stækkar myndin á lærinu. DV-mynd Hilmar Þór
alltaf fimm þúsund. Verkið sem hann þessa dagana á eftir að leggja sig á
er að skapa á lærinu á kæmstunni fjöratíu og fimm þúsund fullgert. -EIR
Menningarhús á landsbyggðinni
Á næstu árum munu menningar-
hús rísa á nokkrum stöðum á lands-
byggðinni og er það sameiginlegt
verkefni ríkis, sveitarfélaga og ein-
staklinga. í sumum tilvikum yrði
um að ræða endurnýjun á gömlum
húsum en annars staðar yrði að ráð-
ast í nýjar framkvæmdir.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði að verkefnið kæmi til
með að kosta verulega fjármuni en
ekki væri vitað um hve háa upphæð
yrði að ræða. Ríkið mun bera meiri
hlut eða um 60%.
Menntamálaráðherra er sérstak-
lega falið að vinna að undirhúningi
menningarhúsanna.
„Þetta er ekki gamla félagsheimil-
ishugmyndin sem áður var þekkt og
hefur gert heilmikið gagn,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
Þeir kynntu fyrirhuguð menningarhús. Björn Bjarnason menntamáiaráð-
herra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Davtð Oddsson forsætisráð-
herra og Páll Pétursson félagsmálaráðherra. DV-mynd Hilmar Þór
„heldur er þetta hugmynd sem lýtur
að því að reisa menningarhús á til-
teknu árabili í þeim kjördæmum
sem fjærst liggja Reykjavík." Húsin
yrðu að öllum líkindum á Egilsstöð-
um, Sauðárkróki, ísafirði, Akureyri
og í Vestmannaeyjum. Aðrir staðir
era þó ekki útilokaðir.
Davíð sagði að húsin ættu að geta
veriö með listviðburði og starfsemi
sem ríkisvaldið meðal annars og
aðrir aðilar styrkja beint á höfuð-
borgarsvæðinu. „Það er í lögum um
margvíslegar þær menningarstofn-
anir sem ríkisvaldið rekur að þeim
beri að sinna og rækta landsbyggð-
ina enda era þetta stofnanir í eigu
allra landsmanna. Þrátt fyrir góðan
vilja hefur veriö annmarki á því að
hægt væri að rækta þetta hlutverk."
-SJ
Ráöuneyti í ólestri
Ríkisendur-
skoðim hefur gert
fjölda athuga-
semda við rekst-
ur landbúnaðar-
ráðrmeytisins,
annars ráðuneyta
Guðmundar
Bjamasonar.
Reikningar fyrir sérfræðiþjónustu
em m.a. sagðir ekki vera lögformleg-
ir, rangfærslur komi fram í bók-
haldi, skil á ferðareikningum starfs-
manna séu óviðunandi og kröfur
vegna ofgreiddra launa óinnheimt-
ar. Morgunblaðið sagði frá.
Jólapakkar ófarnir
Jólapakkar sem safnað var í
tengslum við jólasveinalandið Norð-
urpólinn á Akureyri fyrir jól er enn
á landinu og fylla nú 15 stór bretti á
Keflavíkurflugvelli. Pakkamir verða
fluttir með Cargolux til stríðs-
hrjáðra barna í Bosníu og komast
ekki til viðtakenda fyrr en um
næstu mánaðamót. Dagur segir frá.
Baugur á nú Lyfjakaup
Eigendur Lyflu ehf., þeir Ingi Guð-
jónsson og Róbert Melax, hafa selt
Baugi hf. þriðjungshlut sinn í Lyfia-
kaupum ehf. Baugur á nú fyrirtækið
að fúllu. Viðskiptablaðið sagði frá.
Meiri skatttekjur
Tekjur ríkisins vegna eignarskatta
lögaðila jukust um 547 milljónir
króna, eða 33,3 prósent milli áranna
1996 og 1997 að því er fram kemur í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um rík-
isreikning fyrir árið 1997. Aðalástæð-
an er bætt eignastaða fyrirtækjanna.
Viðskiptablaðið sagði frá.
Verslun á íþróttavöllinn
Stjórn Kaupmannafélags Akur-
eyrar vill að hugmynd um hátt í tíu
þúsund fermetra verslanamiðstöð
þar sem nú er knattspymuvöllur
Akureyringa verði gaumgæfð. Dag-
ur sagði frá.
Ekki sameinaöar
Fréttastofur
Ríkisútvarps og
Sjónvarps verða
ekki sameinaðar,
heldur verður
samvinna þeirra
aukin. Þetta kem-
ur fram í samtali
við Boga Ágústs-
son, fréttastjóra Sjónvarps, í Degi.
Réttindi aðfluttra
Félagsmálaráðuneytið hefur gefið
út upplýsingabækling fyrir útlend-
inga sem flytjast til íslands. í honum
em upplýsingar um íslenskt samfé-
lag, réttindi og skyldur og einnig um
þær opinbem stoftianir sem útlend-
ingar þurfa að eiga samskipti við
þegar þeir koma til landsins.
Flugeldar á Netinu
Á gamlárskvöld og fram á nýárs-
dag var hægt að fylgjast með lifandi
myndum af flugeldum yfir Reykja-
vík á heimasíöu SPRON á Netinu.
Yfir ein milljón manns reyndi að
heimsækja heimasíðu SPRON þessa
nótt.
Mega ekki auglýsa
Frambjóðendur í prófkjöri sam-
fylkingar í Reykjaneskjördæmi
verða að undirrita yfirlýsingu um
að þeir auglýsi ekki framboð sitt í
fjölmiðlum. Sameiginlegt blað verð-
ur gefið út þar sem allir frambjóð-
endur verða kynntir.
Nýr þjóögarðsvöröur
Nýr þjóðgarðsvörður hefur verið
settur yfir þjóðgarðinn í Skaftafelli
meðan Stefán Benediktsson er í
leyfi. Hann heitir Ragnar Frank
Kristjánsson og er landslagsarki-
tekt. Morgunblaðið sagði frá.
Jafnsettur Böðvari
í nýrri úttekt
Ríkisendurskoð-
unai- á stjóm-
skipulagi og flár-
málum lögreglu-
stjóraembættis-
ins í Reykjavík
segir að sam-
kvæmt núgild-
andi skipuriti sé staða og hlutverk
varalögreglustjórans fremur óljóst
og virðist sem hann sé nánast jafn-
settur lögreglustjóra, Böðvari Braga-
syni. -SÁ