Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Qupperneq 6
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur FÖSTUDAGUR 8. JANUAR 1999 Neytendur Komnir gestir í öflugu fréttabréfi Önfiröinga- félagsins er sá háttur hafður á að taka viðtöl við Önfirðinga heima og heiman. Þai- segja viðmælend- ur gjarnEm gaman- sögur úr héraði. Nokkuð skondin saga er í nýjasta heftinu þar sem frú Soffla Ingi- marsdóttir á Flateyri lýsir at- viki í Kaupfé- laginu á staðn- um hvar hún vann við af- greiðslu. Bóndi úr sveitinni kom á mikilli fart og greip innkaupa- körfu og slengdi í hana einu kartoni af salemispappír. Eitt- hvað fannst bóndanum hann þurfa að útskýra fábrotin inn- kaup sin þar sem hann stóð í bið- röð því hann sagði afsakandi svo heyrðist um alla búö: „Það eru sko að koma gestir" ... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkorn @ff. is ST*BCH f#** >00 TABtfitS Kjörstjórnin Vítamínþörf líkamans er breytileg og vissar aðstaeður kalla á aukin bætiefni eða sérstaka fæðu. Listmálarinn og lífskúnstnerinn Steingrímur St. Sigurðsson gerði þokkalega sölu á bók sinni Lausn- arsteini eftir að sættir tókust milli hans og Þorsteins Thorarensen út- gefanda. Um ára- mótin hugðiSt Steingrímur, sem er á áttræðis- aldri, ganga í hjónaband með 26 ára danskri blaðakonu. Ekki hafa enn borist staðfestar fregnir af gangi þess máls en listmálarinn mun hafa snúið heim frá Danaveldi um sein- ustu helgi; einn á Saga klass. Hann dró þar upp blokk og liti og teikn- aði flugfreyjurnar en ekki var sú danska sýnileg... Inn úr kuldanum Sú ákvöröun ríkis og borgar að reisa veglegt tónlistarhús í Reykjavík hefur vakið verðskuld- aða athygli. Hönd í hönd ætla þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri og Bjöm Bjarnason menntamáiaráð- herra að færa þjóðinni hina langþráðu tón- listarhöll. Ánægðastir allra verða væntanlega hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar íslands sem nú sjá fram á að komast loks inn úr kuldanum. Þess er skemmst að minnast að DV lýsti þvi að tónlist- armennimir sátu dúðaðir á hrak- hólum við æfingar sínar. Þá var því lýst að Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og eiginkona mennta- málaráðherra, gekk út af æfingu vegna kuldans ... FRAMBOÐSFRESTUR Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1999. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar 1. hæð Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 17:00, fimmtudaginn 14. janúar 1998. Höfuðverkur Eftirfarandi vítamín og steinefna- blanda hafa reynst áhrifarík gegn höf- uðverk. Takið 100 mg af níasíni þrisvar á dag, 100 mg af B-vítamíni gegn streitu tvisvar á dag eða kalk og magnesium, sem eru hin róandi lyf náttúrunnar. Athugið að taka á helmingi minna af magnesíum heldur en kalki. Svefnleysi Svefnlyf unnin úr barbitúrsýru eru mjög sterk, vanabindandi, geta verið hættuleg blandist þau öðrum lyfjum 4» * Herbagróði Svo sem alþjóð er kunnugt hef- ur dr. Jón Óttar Ragnarsson komist í miklar álnir fyrir tilstilli hins meinta megnmarlyfs Her- balife. En Jón Óttar er ekki einn um að auðgast því fjöldi undirsáta hans hefur einnig gert út á hina feitu. Þannig hefur Sandkorn heim- ildir fyrir því að skipstjóri á einu stærsta skipi ís- lendinga hafi tekið pokann sinn og hætt störfum. Það sem tog- aði skipperinn frá boröi var einmitt Herbalife og sögur herma að nú hafi hann sjöfóld laun. Vandinn er sá að sjómannaafslátt- urinn er horfinn en á móti kemur að ýmsir skattalegir möguleikar fylgja sölunni á megrunarlyfinu ... Á biðilsbuxum Vorn gegn vetri Flestar íslenskar konur hugsa vel um húð sína og margar eyða miklum fjár- munum i alls kyns krem og smyrsl i leit að hinni eilífu æsku. En það er ekki nóg að halda húðinni sléttri og stinnri með kremum heldur er líka nauðsynlegt að verja hana gegn Vetri konungi sem getur farið illa með húð allra, þ.e. kvenna, karla og ekki síst barna. Hér á landi og annars staðar á norðlægum slóðum er húð margra erfiðari við- fangs á veturna en á sumr- in. Húðin getur t.d. orðið þurr eða sprungin vegna kuldans. Hér á eftir fylgja nokkrar tillögur að vamaraðgerðum gegn kuldanum sem von- andi mýkja og fegra húð einhverra. Skortur á raka Húðin er sá hluti líkam- ans sem verður að taka við flestum neikvæðum fylgi- fiskum vetrarins. Eins og áður sagði verður húðin frekar of þurr á vetruna heldur en á sumrin. Ástæðuna er m.a. sú að minni raka er í kalda loftinu heldur en hlýja sumarloftinu. Hitakerfi húsa bætir heldur ekki úr skák því heitt loftið innandyra þurrkar enn frekar viðkvæma húð- ina þegar fólk kemur inn úr kuldan- um. Kuldaboli bítur kinn og þá er best að klæða sig vel og hugsa vel um húðina. Foreldrar ættu sérstak- lega að gæta að því að húð barna er sérstaklega viðkvæm fyrir kulda. Fólk sem þjáist af exemi finnur yfirleitt meira fyrir því á vetrana heldur en á sumrin vegna hins þurra vetrarlofts. Við því verður að bregðast með feitum kremum eða olíum. Ekki er nauðsynlegt að eyða miklum peningum í dýr krem og smyrsl. í flestum tilfellum er nægi- legt að kaupa ódýrt andlitskrem, t.d. úr stórmarkaði, með mikilli fitu og Pasta með hvítlauk og steinselju Þessi einfaldi pastaréttur er léttur í maga og einfaldur í mat- reiðslu. Uppskrift 500 g pasta Nýsoðið pasta í smjöri, ólífuolíu, hvítlauk og steinseljusósu er mjög einföld en seðjandi og Ijúffeng máltíð. 50 g smjör 2 söxuð hvítlauksrif nokkrir dropar af ólífuolíu 2 msk. söxuð steinselja salt og pipar. Aðferð 1) Sjóðiö pastað hæfilega í nægu léttsöltuðu vatni. Skolið af því með heitu vatni og látið vatniö renna af því á sigti. 2) Bræðið smjörið á pönnu, setjið hvítlaukinn í og brúnið hann í eina mínútu. 3) Hellið pastanu á pönnuna og blandið hvítlauknum vel saman viö það, látið krauma í nokkrar mínútur. 4) Helliö nokkrum dropum af olíu yfir pastað á pönnunni og stráið steinseljunni yfir. Kryddið með salti og pipar og berið fram heitt. -GLM bera kremiö síðan á sig áður en haldið er út í kuldann. Þetta ráð á ekki síst við um börnin sem hafa viðkvæmari húð heldur en fullorðn- ir. Þeir sem þjást af of þurri húð ættu að bæta góðri olíu út í bað- vatnið öðru hverju til að auka rak- ann í húðinni. Hins vegar ætti fólk með þurra húð ekki að fara í freyði- böð því þau geta þurrkað húðina. Kuldabólga Margir finna fyrir svokallaðri kuldabólgu á vetruna. Kuldabólgan truflar blóðstreymi likamans og get- ur verið nokkuð sársaukafull. Háræðamar herpast saman, sumir fá útbrot eða kláða og í sumum til- fellum geta vefir líkamans skaðast. Besta leiðin til að forðast kulda- bólgu er að vera í þykkum sokkum og góðum skóm sem halda hita á fót- unum. Ekki láta upphitað heimilið eða vinnustað- inn blekkja þig og hlaupa út á inniskónum því það er kjörin leið til að fá kuldabólgu. Varir og hár Margir finna fyrir vara- þurrk, sprungum í vörum eða fá frekar frunsur á vetruna heldur en á sumrin. Engir fitukirtlar eru í vöranum öfugt við aðra hluta andlitsins og því er gott að nota áburð við varaþurrk, feitt krem eða jafnvel vaselín til að koma í veg fyrir vara- þurrk vegna kuldans. Þeir sem eru gjamir á að fá frunsur ættu að kaupa sér sérstakt frunsumeðal í apótekinu og bera það á frunsuna um leið og hún myndast. Vetrarkuldinn hefur einnig talsverð áhrif á hár manna sem hefúr til- hneiningu til að verða þurrt og líflaust í kuldanum. Góð hárnæring og djúpnæring öðru hverju geta lífgað hárið við og gefið því gljáa og raka. Ónæmiskerfið Þótt ótrúlegt megi virðast þarf fólk ekkert frekar að búast við því að fá kvef á vetruna heldur en á sumrin ef rétt er haldið á spöðun- um. í sumum tilfellum fær fólk kvef af of mikilli inniveru og samneyti við aðra sem era kvefaðir. Það er því ágætis ráð til að forðast sýklana að vera mikið úti. Einnig örvar útiver- an ónæmiskerfið. Uppbygging ónæmiskerfisins er mikilvæg vörn gegn kvefi. Einfalt er t.d. að taka C- vítamín, borða ávexti og annan holl- an mat og láta ekki streituna ná tök- um á sér til að halda ónæmiskerf- inu í góðu lagi. -GLM Bætiefni við kvillum Marblettir Ef þér hættir til að fá marbletti er ráðlegt að taka 1000 mg af C-vítamíni með P-vítamíni, rúþeni og hesperídíni þrisvar á dag til að draga úr við- kvæmni háræða. Marblettir verða til þegar smáæðar undir húðinni rifna. Beinbrot Ef þið hafið einhvem tímann bein- brotnað vitið þið hversu leiðinleg bið- in eftir því að brotið grói er. Hægt er að hraða fyrir því að beinið grói með því að auka neyslu á kalki og D- vítamíni. og geta valdið kalktapi. I stað hefð- bundinna svefnlyíja má taka tryptófantöflur sem unnar eru úr nátt- úrulegum aminósýrum og valda syfju. Áhrifaríkt er að taka þrjár tryptófantöflur hálftíma fyrir hátta- tima, eina húðaða kalk- og magnesíumtöflu þrisvar á dag og þrjár töflur að auki hálftima fyrir háttatíma Tíðaverkir Gott er að taka eftirfarandi bætiefni gegn tíðaverkju og bjúgi í kjölfar tíða: 50 mg af B6-vítamíni þrisvar á dag (er þvagörvandi), 100 mg af samsettu B- vítamíni fyrir og eftir hádegi. -GLM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.