Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999
Fréttir
Skoðanakönnun DV um afstöðu til uppistöðulóns í Eyjabökkum:
66% eru andvíg lóni
Uppistöðulón í Eyjabökkum
Tóku afstöðu
Allt úrtakið
(2%)
(14%)
(29%)
(66%)
(56%)
Fylgjandi
Andvíg
_____‘ Óákveöin
Svara ekki
DV
Meirihluti þjóðarinnar, 66% eða 2
af hverjum 3, er andvígur því að
Eyjabakkar, norðan Vatnajökuls,
fari undir miðlunarlón vegna virkj-
unarframkvæmda. Rúm 84% taka
afstöðu til þessarar spurningar.
Þetta eru niðurstöður skoðanakönn-
unar DV sem framkvæmd var
mánudaginn 11. janúar.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt milli höfuðborgar-
svæðis og landsbyggðar sem og kynja.
Ofannefndar niðurstöður fengust við
spurningunni: „Ertu fylgjandi eða
andvígur uppistöðulónum orkuvera í
Eyjabökkum, norðan Vatnajökuls?"
Miðað við allt úrtakið sögðust
28,7% vera fylgjandi uppistöðulóni í
Eyjabökkum en 55,5% andvíg. 13,5%
voru óákveðin og 2,3% neituðu að
svara. Þetta þýðir að 84,2% tóku af-
stöðu til spurningarinnar.
Ef einungis er tekiö mið af þeim
sem tóku afstöðu voru 34,1% fylgj-
andi uppistöðulóni en 65,9% andvíg
eða tveir af hverjum þremur.
Landsbyggðarkarlar
borgarsvæðisins og landsbyggðarinn-
ar. í hópi fylgjenda eru 58,1% á lands-
byggðinni en 41,9% á höfuðborgar-
svæðinu. Ekki er marktækur munur
á afstöðu í hópi andvígra. í hópi karla
eru 61% fylgjandi en 39% andvíg. í
hópi kvenna snýst þetta við, 45,6%
eru fylgjandi en 54,4% andvíg. Sam-
kvæmt þessu á miðlunarlón I Eyja-
bakkaverum mestan stuðning meðal
landsbyggðarkarla.
Stuðningur Framsóknar
Þegar niðurstöður könnunarinnar
eru greindar eftir stuðningi við flokka
kemur í ijós að fylgjendur miðlunar-
lóns eru hlutfallslega flestir meðal
stuðningsmanna Framsóknar og fleiri
meðal stuðningsmanna stjómarflokka
en stjórnarandstöðu. Framsókn sker
sig úr að þessu leyti. I því sambandi
má geta að Finnur Ingólfsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins, er
iðnaðarráðherra. Meðal stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokks eru 36,9%
fylgjandi lóni en 40,6% andvíg.
Andstaðan er mest meðal stuðn-
ingsmanna Alþýðubandalags, 100%.
Þess ber þó að geta að afar fáir eru á
bak við fylgi þess.
Afgerandi andstaða er við miðlun-
arlónið meðal stuðningsmanna sam-
fylkingarinnar, 65%, og Græns fram-
boðs, 65%. Tæp 67% stuðningsmanna
Frjálslynda flokks Sverris Hermanns-
sonar eru andvíg miðlunarlóni I Eyja-
bökkum.
Niðurstöður könnunarinnar og af-
stöðu eftir flokkum má sjá á meðfylgj-
andi grafi. -hlh
Ummæli fólks
„Einhvers staðar þurfa virkjanir
að vera og til að svo megi vera þarf
landsvæði að fara undir vatn. Hjá því
verður ekki komist,“ sgði karl í
Reykjavík. „Mér er sama þótt þeir
virkji þama allt og sökkvi öflu ef fólk
fær vinnu út á það,“ sagði karl í
Hafnarfirði. Gömul kona i Reykjavík
sagði: „Það er ægilegt ef það á að
drekkja okkur öllum.“ „Það á að
hætta að nota þessi uppistöðulón og
nýta jarðgufuna betur,“ sagði karl á
Vesturlandi. „Þessi náttúruvið-
kvæmni er tómt rugl. Fólk og at-
vinnulíf þarf að fá sitt rafmagn,“
sagði karl á Norðurlandi. „Það getur
verið nauðsynlegt að fóma einhveiju
þegar á að virkja en ég vil alls ekki
láta virkja ef selja á orkuna til út-
landa,“ sagði kona á Austurlandi „Ég
er á móti þessum virkjunum. Það er
farið fullhratt f þessum málum,“
sagði kona á Austurlandi meðan karl
eystra sagði: „Mér finnst ekki liggja
svona á að virkja úti um allt. -hlh
Munur er á afstöðu íbúa höfuð-
Alþ öuflokkur
||i4%
Uppistöðulón í Eyjabökkum
- afstaða eftir flokkum
Sjálfstæðisflokkur
(22%)
(43%)
(43%)
Kvennalisti
(50%) (50%)
Framsóknarflokkur
(9%)
(44%)
(48%)
Samfylking
(14%) (19%)
(37%)
(41%) /
Grænt framboö
(10%)
(25%)
(67%) (65%)
/ //
Frjálslyndi lýðræðis-
Andvígir Þjóðvaki flokkurinn
Fylgjandi (100%) (100%) I
Óákveðnlr
Alþ öubandalag
(100%)
Frjálslyndi flokkurinn
(33%)
(67%)
nrea
Hannes kominn í leitirnar
Athygli hefúr vakið síðustu
vikumar að Hannes Hólm-
steinn Gissurarson hefur lítið
sem ekkert blandað sér í
harðar deilur um kvótastefn-
una. Þó hefur löngu verið
kunnugt og á almanna vitorði
að Hannes er einn helsti
stuðningsmaður gjafakvótans
og þeirrar farsælu og feng-
sælu stefnu að afhenda veiði-
heimildir til þeirra fáu út-
gerðarmanna sem mynda
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna. Mun það eflaust
vera í fullu samræmi við það
frelsi sem Hannes Hólmsteinn
hefur lengst og best allra
manna predikað. Frelsi til
veiða, frelsi til kvótaeignar,
frelsi til kvótaframsals, frelsi
hinna fáu til að auðgast.
En nú er komin skýring á
því hvers vegna Hannes
Hólmsteinn var fjarri góðu
gamni til vamar kvótaeigendum þegar bæði
hæstiréttur og kverólantar allra handa hafa haft
uppi tilburði til að taka þetta frelsi frá útgerðar-
mönnunum.
Hannes Hólmsteinn hefur sem sé dvalið í út-
löndum, nánar tiltekið í Mið- og Suöur-Ameríku,
þar sem hann hefur flutt fyrirlestra yfir fávísum
þjóðum og stjórnvöldum í Chile, Úrúgvæ og
Argentínu. Morgunblaðið greinir frá þessari för
Hannesar og tekur við hann viðtal og samkvæmt
frásögn Hannesar vöktu fyrirlestrarnir mikla at-
hygli og þeirra var getið í fjölmiðlum.
Hannes segir að fiskveiðar og fiskveiðistjóm sé
afar frumstæð í þessum löndum og hann hafi
kynnt fyrir útvegsmönnum þar í löndum
þá kvótastefnu sem hér tíðkast með svo
góðum árangri að nærveru Hannesar er
ekki lengur þörf.
Hannes er ekki aðeins orðinn alþjóðleg-
ur sérfræðingur um ágæti fiskveiðistjórn-
unar, heldur hefur hann kynnt sér þær
fisktegundir sem veiddar era af Ameríku-
mönnum og hefur látið þau boð út ganga
að hér þurfi að gera mikla bragarbót á ef
þessar vanþróuðu þjóðir eigi að komast á
það frelsis- og menningarstig sem íslend-
ingar hafa náð með markvissri söfnun
kvótans á sem fæstar hendur. Skammtið
fiskinn, skammtið veiðarnar, úthlutið
kvótanum bara til þeirra sem eru innund-
ir, bannið öðrum, gefið Hæstarétti langt
nef, látið þið frelsið njóta sín í skömmtun-
arkerfi frjálshyggjunnar og ykkur mun vel
farnast. Þetta voru skilaboðin sem Hannes
flutti í Chile, Úrúgvæ og Argentínu og
honum var fagnað sem spámanni, eftir því
sem hann segir sjálfur.
Hannes Hólmsteinn skrapp heim til að
vera viðstaddur sextíu ára afmæli LÍÚ og
ekki kæmi á óvart þótt hann verði beðinn um að
vera hátíðargestur í afmælishófinu, en síðan þarf
hann að drífa sig aftur til fjarlægra landa, því þar
er hans þörf. Meir en hér heima. Meir en orð fá
lýst. Kvótagróðinn er afrakstur frjálshyggjunnar
og málflutnings Hannesar Hólmsteins.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Lág laun þingmanna
Ólafur G. Ein-
arsson, forseti Al-
þingis, segir að
laun alþingis-
manna séu hættu-
lega lág. Hann vifl
meina að þau end-
urspegli ekki laun
manna í öðrum
ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu.
Dagur greindi frá.
Djúp lægö
Lægðin sem olli illviðrinu sem
gekk yfir landið um helgina er með-
al dýpstu lægða á N-Atlantshafi á
öldinni. Dýpst varð hún 920 milli-
bör þegar hún var miðja vegu milli
íslands og Færeyja. Morgunblaðið
sagði frá þessu.
Heimasíða Hæstaréttar
Hæstiréttur íslands hefur opnaö
heimasiðu og er slóð hennar
http://www.haestirettur.is. Þar
verða birtir samdægurs aflir dómar
Hæstaréttar sem kveðnir verða
upp, ásamt héraðsdómum í sömu
málum.
Árshátíð Hagaskóla
Flosi Kristjánsson, aðstoðar-
skólastjóri í Hagaskóla, segir að
nemendur verði ekki sviptir árshá-
tíð og skíðaferðalagi ef hægt veröi
að upplýsa að fullu hvetjir eigi sök
á sprengingunum í skólanum. Dag-
ur greindi frá þessu.
Dópsali fær dóm
Eiturlyfjasali nokkur var dæmd-
ur í niu ára fangelsi í Danmörku á
fóstudaginn. Hann hafði notfært sér
ungar stúlkur til aö smygla fyrir sig
eiturlyfjum en ein þeirra var Valdís
Ósk Hauksdóttir sem nú situr í
fangelsi vegna smyglsins. Morgun-
blaðið greindi frá.
Dreifbýlisstrætó
Einar K. Guð-
finnsson, formað-
ur samgöngu-
nefndar Alþingis,
segir að ríkisvald-
ið yrði tregt til að
styrkja áætlanir
um að setja upp
strætókerfi í Eyja-
firði. Slíkur styrkur yrði fordæmis-
gefandi að hans mati. Dagur greindi
frá þessu.
Bíóframtíð Suðurlands
Á laugardag var haldinn á Hótel
Selfossi opinn fundur um möguleik-
ana á aö bíó taki til starfa á Sel-
fossi. Þaö var Kjartan Ólafsson,
frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðis-
manna á Suðurlandi, sem stóð fyrir
fundinum.
Kvikmyndagjöf
Á laugardaginn var Kvikmynda-
safni íslands afhent gjöf frá sænska
kvikmyndasafninu. Þetta vom 57
kvikmyndir sem gefnar voru til að
aðstoða Kvikmyndasafniö viö að
heíja rekstur safnbíós hér á landi.
Verðgildi gjafarinnar nemur
nokkrum milljónum.
Verndun Mývatns
Sigbjöm Gunnarsson, sveitar-
stjóri í Mývatnssveit, telur friðun-
arlögin frá 1974 vera tímaskekkju
og þau stangist jafnvel á við nýrri
lög. Því eigi að hans mati að afnema
lögin, annars sé enginn búsetu-
grundvöllur í Mývatnssveit. Dagur
greindi frá.
Flotinn endurnýjaður
Um þessar
mundir á sér stað
mikil endurnýj-
un á nótaveiði-
skipaflota lands-
manna. Að sögn
Kristjáns Ragn-
arssonar, for-
manns LÍÚ, er
endumýjunin að mestu leyti til
komin vegna þess að verið sé að
reyna að auka hlut íslendinga í
veiðum á kolmunna. Mbl. greindi
frá. -KJA