Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 15 Umbótaafl ungs fólks inn í nýja öld „Mikilvægt er að stjórnvöld stuðli að því að auðlindir landsins verði nýtt- ar í almannaþágu gegn sérhagsmunum fárra ..." segir Jóhanna m.a. í greininni. Samfylkingin stend- ur fyrir umbótum og nýsköpun í íslenskum stjómmálum og at- vinnulífi. - Við lítum á það sem eitt af höfuð- viðfangsefnum okkar að efla menntun í land- inu. Arðurinn af sam- eiginlegum auðlindum verði í almannaþágu, komið verði á mark- vissri fjölskyldustefnu m.a. með róttækum umbótum í jafnréttis- málum, áherslu á meiri jöfnuð í eigna- og tekju- skiptingunni og hús- næðiskerfi með hóf- legri greiðslubyrði. Nýsköpun í atvinnu- lífmu taki mið af verndun umhverfis og með áherslu á hugvit og þekkingu, sem gerir okkur kleift að vera sam- keppnisfær við aðrar þjóðir. Stjórnkerfíð verði endurmetið með það að markmiði að gera það lýðræðislegra og skilvirkara og komið verði í veg fyrir sóun á kostnað skattgreiðenda. Aðgerðir sem bæta kjör námsmanna og barnafólks Ástæða er til að bera þessar áherslur Samfylk- ingarinnar saman við gjörðir ríkis- stjómarinnar á þessu kjörtímabili. Þessi ríkisstjórn hefur ekki auðveld- að barnafólki eða námsmönnum róð- urinn. Þvert á móti hefur rikisstjórnin fækkað þeim sem fá bamabætur um 24 þúsund og haft af barnafólki 500 millj- ónir króna í barna- bótum milli áranna 1997 og 1998. Skattlagning húsa- leigubóta mismunar t.d. námsmönnum og unga fólkinu og hefur þær afleiðingar að námslán og bamabætur skerðast en ekki hjá þeim sem fá vaxtabætur. Ljóst er einnig að íhaldið er mjög áfram um skólagjöld sem stuðla mun að aðstöðumun námsmanna. 200 námsmenn bíða líka eftir leigu- íbúðum í Reykja- vik. Á biðlista eru 1200-1500 einstaklingar og fjölskyldur m.a. vegna aðgerða ríkisstjórnarinn- ar í húsnæðis- málum á kjör- tímabilinu. Að- gerðir í þágu unga fólksins er að finna á öllum þessum sviðum í málaskrá Samfylkingarinnar. Auðlindir og eignatilfærsla Unga fólkið þarf líka að muna hvemig farið var með nýtingar- réttinn á miðhálendinu sem ríkis- stjórnin setti í hendur örfárra sveitarfélaga. Einnig hvernig rik- isstjórnin festi í sessi á kjörtíma- bilinu eignarrétt landeigenda að auðlindum sem geta rakað til sín miklum fjármunum frá skattgreið- endum ef þjóðin þarf að nýta auð- lindir sem finnast á landareign þeirra. Eignatiifærslan í fárra manna hendur er því mikil. Má þar lika benda á hvemig stuðlað hefur verið að því að bankakerfið færist á fárra manna hendur og hvemig rikisstjómin útfærir fjármagnstekjuskattinn, þannig að hann er fyrst og fremst skattur á almennan sparnað launafólks meðan sterkum fjár- magnseigendum er hlíft. Mikilvægt er að stjómvöld stuðli að því að auðlindir landsins verði nýttar í almannaþágu gegn sérhagsmunum fárra og að við skilum landinu, gögnum þess og gæðum með sæmd til komandi kynslóða. Það er að finna í mála- skrá Samfylkingarinnar - umbóta- afli unga fólksins inn í nýja öld. Jóhanna Sigurðardóttir Kjallarinn Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður „Arðurinn af sameiginlegum auð- lindum verði í almannaþágu, kom- ið verði á markvissri fjölskyldu- stefnu m.a. með róttækum um■ bótum í jafnréttismálum, áherslu á meiri jöfnuð í eigna- og tekju- skiptingunni og húsnæðiskerfi með hóflegrigreiðslubyrði.“ Vér mótmælum öllu Yfirleitt eru íslendingar rolur sem láta sér standa á sama um óréttlætið í heiminum. En það kemur fyrir að við nennum að drattast fram úr bælinu og hrópa: „Vér mótmælum!" Og það er gam- an að vita til þess að það gerist frekar í góðæri en efnahagslegri lægð. Þessi áratugur hefur til þessa verið und- irlagður svart- sýni og almenn- um niður- skurði. En nú eiga allir sand af seðlum, raf- tækjum og nýja bíla. í kjölfarið nennir fólk að mótmæla. Maður hefði nú haldið að mótmælin ættu að vera í kreppu. Að þá væri fólk pirrað og reitt og vildi sjá breytingar en það er öðru nær. Þá virðist þunglyndi hellast yfir fólk og það lætur sig hverfa inn í margveðsettar íbúðir. Það hrein- lega leggur ekki í að fara út úr húsi. Þjóðin er í ham Heilt bíó fylltist á síðasta ári af fólki sem kærir sig ekki um virkj- anir á hálendinu. Finnst þær ljót- ar og vill hafa hálendið eins og það er. Þúsundir manna sóttu um kvóta til að standa með mannin- um sem var neitað um kvóta. Rík- ið ætlar að vísu að snúa á þetta fólk og okkur öll með enn einni lagasetningunni. Þeir fatta ekki al- veg að við erum að heimta pen- inga. Að sægreifarnir borgi okkur fyrir afnotin af auðlindinni. En þeir skulu vara sig, blessaðir, því þjóðin er í ham. Við látum ekki bjóða okkur hvað sem er í þessu yndislega góðæri. Nú erum við í stuði og mótmælum öllu. í lok síðasta árs kom meira að segja fram maður sem mótmælti mótmælasvelti stúlknanna sem vilja ekki virkjanir á hálendinu. Hann át í mótmælaskyni við það sem þær átu ekki. Þetta er að vísu farið í heilan hring en þjóð sem er í mótmælastuði lætur ekkert stöðva sig. Ástþór, Halldór og sýslumaður Ástþór Magnússon þykir meira að segja finn pappír í mótmæla- fárinu. Hann var flott- ur í sjónvarpinu um jólin þar sem hann barðist við Halidór Ás- grímsson og sýslu- manninn í Reykjanes- bæ. Halldór (og likiega sýslumaðurinn) er hlynntur viðskipta- banninu á íraka en það kálar víst þónokkrum útlenskum krakka- grislingum. En það er eitthvað sem góðærisþjóð vill ekki hafa á samviskunni þegar hún tæt- ir í sig jólasteikina. Og þetta er ekki það eina sem Ást- þór gerði því hann sótti líka um leyfi til að versla við íraka. Ætlar ef- laust að selja þeim lambakjöt, hug- búnað og eitthvað af harðfiski. Það er samt nokkuð vist að Halldór mun synja því. En þá mun Ástþór vænt- anlega leita til dómstóla og þeir eru til alls vísir. Þetta brýtur eflaust í bága við þær mannréttindayfirlýs- ingar sem þingið hefur skrifað und- ir og þá verður þetta íraksmál orðið jafnflókið og kvótamálið. Og daginn eftir mæta þúsundir manna upp í ut- anríkisráðuneyti og sækja um leyfi til að versla við Iraka. - Nema að þá verði aftur komin kreppa og í kreppu viljum við ekki sjá mótmælafíkla á borð við Ástþór Magnússon. Hringferli mót- mælanna Það leiðinlega við þetta allt saman er að það kemur alltaf kreppa. Mótmæli og kreppur koma í bylgjum. - Nokkurra ára góðæri, nokk- urra ára kreppa. - Það hefur alla vega verið reglan hingað til. Það er bara von- andi að kreppan verði ekki skollin á áður en Kári fær allar sjúkra- skýrslumar okkar afhentar. Okk- ur verður að takast að bruna á nýju bílunum niður í bæ til að láta kippa skýrslunum okkar í burtu áður en hann fær þær. Og ef við erum nógu mörg þá getum við hlegið að þessum ís- lendingi með hreim sem situr uppi með fáeinar skýrslur þeirra sem mótmæla okkar mótmælum með því að synja Kára ekki. Þá verða mótmælin að visu enn og aftur komin í heOan hring. En það er nú bara þannig að þjóð sem mótmæl- ir, hún mótmælir öllu. Mikael Torfason „í lok síðasta árs kom meira að segja fram maður sem mótmælti mótmælasvelti stúlknana sem vilja ekki virkjanir á hálendinu. Hann át í mótmælaskyni það sem þær átu ekki. Þetta er að vísu far- ið í heilan hring en þjóð sem er í mótmælastuði lætur ekkert stóðvasig Kjallarinn Mikael Torfason rithöfundur Með og á móti Vinnur MR Gettu betur enn eitt árið? Stefán Pálsson safnvöröur. Einfaldlega bestir „Þann sjötta mars 1992 tapaði MR í fjórðungsúrslitum Gettu betur fýrir liði Menntaskólans viö Hamrahlíð. Síðan þá hefur skólinn hins vegar unnið aUar sínar viður- eignir, stund- um með mikl- um mun og hampaði í vor hinum eftir- sótta verð- launagrip Hljóðnemanum sjötta skiptið í röð. Þessi ár- angur er engin tOvOjun. MR-ingar velja lið sitt mörgum mánuðum fyrir keppni og æfa svo af krafti, ekki sjaldn- ar en tvisvar í viku og mipi oftar þegar að keppni er komið. Ung- lingastarfið er í miklum blóma og með því að þjálfa upp yngri nemendur er ætíð tryggt aö liðið hefur sterkum keppendum á að skipa. Þá má nefna að málfúnda- félagið Framtíðin stendur fyrir veglegri spumingakeppni bekkj- ardeilda, þar sem mörg spurn- ingaljón hafa stigið sín fyrstu skref. MR-ingar þurfa ekki að skammast sín fyrir það lið sem skólinn sendir tU keppni í vor. Tveir liðsmanna voru í sigurlið- inu í fyrra og sá þriðji var annar tveggja liðsstjóra þess liðs. Vita- skuld verður að taka með í reikninginn að nýr dómari er mættur tO leiks, IUugi JökiOs- son, og því verða spumingarnar væntanlega með nokkuð öðru sniði en áður. Ef þessi spá mín rætist og MR-ingar fagna sigri vona ég að andstæðingar taki þeim úrslitum stórmannlega en rjúki ekki upp til handa og fóta með fráleitar athugasemdir og söguburð. Spurningakeppni framhaldsskóla á ekki að vinnast í dómsölum, síst af öUu ef ásak- animar eru falskar.“ Mjög ólíklegt „Ég veit ekki betnr en MH hafi unnið keppnina í fyrra en auðvit- að fengu MR-ingar afhenta ein- hverja doUu fyrir mistök sem þeir hafa kannski litið á að hafi fært þeim sig- urinn en þeir geta ekki eign- að sér sigurinn með henni. En ef menn eru farnir að velta því fyrir sér hvaða skóli vinni þetta I ár þá held ég að það verði í raun og vem bara einn skóli í keppninni í ár. Einn skóli sem eitthvað ber á og það verður auðvitað MH. Það er a.m.k. tilgangslaust fyrir aðra skóla að reyna að taka þátt ef þeir hafa látið sig dreyma um sig- ur því nú ber keppnislið MH af á sviðið gáfna, líkamlegs atgervis og andlegs þroska. En því miður er tU fólk sem neitar að horfast í augu við veruleikann, lifir í sjálfsblekkingu og sækir nám við skóla sem fer eftir námsskrá fyr- ir framhaldsskóla frá árinu 1875. Að míni áliti ganga þeir enn með þær griUur að þeir muni vinna Gettu betur i ár en því miður fyr- ir þá mun fom frægð ekki duga þeim fremur en á síðasta ári. Þeir þrnfa að búa sig undir að MH muni vinna Gettu betur annað árið í röð.“ -hb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.