Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999
Préttir
Félagar úr björgunarsveitinni Ingólfi eru hér uppi á þaki húss á horni Lang-
holtsvegar og Kleppsvegar. Um helmingur af bárujárnsplötunum á þakinu
fauk af á laugardagsmorgun. DV-mynd HH
Óveöriö á föstudag og laugardag:
Annríki hjá lögreglu
Það gekk mikið á í óveðrinu á
fostudag og laugardag. Frá hádegi á
föstudag og þar til á miðnætti á
laugardag bókaði lögreglan í
Reykjavík 71 mál sem tengdist að-
stoð við fólk vegna óveðurs. Hins
vegar var rólegt hjá lögreglunni að-
faranótt sunnudags og í gærdag.
Meðal mála sem komu upp var
timbur sem var að fjúka úr hús-
grunni við Tröllaborgir, hlutur fauk
á bíl við Borgartún og skemmdi
hann og hjólhýsi fauk á hliðina uppi
í Grafarvogi og olli það skemmdum
á bifreið. Strætisvagnabiöskýli í
Mosfellsbæ fauk um koli, krana-
bóma fauk upp af stórum krana við
Holtagarða, tilkynnt var um auglýs-
ingaskilti sem var að fjúka á Lauga-
vegi og óskað var eftir aðstoð vegna
útihúsa sem voru að fjúka í Mos-
fellsbæ og var björgunarsveit ræst
út til aðstoðar.
-SJ
Farfuglaheimilið Hafaldan
rýmt í gærkvöld
DV, Seyöisfíröi:
Á föstudaginn brast hér á stór-
viðri en úrkoma var lítil sem engin
í fyrstu. Vind lægði á laugardags-
morgun og eftir hádegi fór verulega
að snjóa.
Síðdegis kom almannavarna-
nefnd saman og tók þá ákvörðun að
rýma skyldi farfuglaheimilið sem
stendur við Ránargötu undir hlíð-
um Bjólfsins skammt utan við bæ-
inn. Þarna er mikil snjóflóðahætta,
þetta er örskammt fyrir innan þann
stað þar sem síldarverksmiðjan
Vestdalsmjöl er en hluti hennar
eyðilagðist í snjóílóði 19. mars 1995.
Þá var mikil mildi að menn sem
voru þar að starfi skyldu vera í
þeim hluta hennar sem slapp við
flóðið en það flutti hluta af mjölhús-
inu í brotum i sjó fram.
í farfuglaheimilinu búa 13 pólskir
farandverkamenn sem starfa hjá
fiskvinnslustöðinni Strandarsíld.
Þeir gista nú í sumarbústað Seyð-
firðingafélagsins í Reykjavík sem er
við Garðarsveg, hinum megin í
bænum.
Þegar snjóalög voru könnuð betur
eftir hádegi i dag og mæld kom í ljós
að snjór er miklu minni en áætlað
var og því hefur hættuástandi nú
verið aflýst. -JJ
Ólafur Þ. Stephensen:
Allt í vinnslu
„í leyfisbréfi Landssímans frá
síöasta ári var okkur gert að
móta og taka í notkun kostnað-
arbókhald fýrirtækisins, en það
er annað að móta og taka í notk-
un og hitt að skila tölum," segir
Ólafur Þ. Stephensen, upplýs-
ingafúlltrúi Landssimans. Hann
segir að það taki sinn tíma að
skila tölum til Póst- og fjarskip-
stastofnunar. „Það er ákveðin
mótsögn hjá Póst- og fjarskipta-
stofnun í því að fyrirtækið á
annars vegar að taka kerfið í
notkun um áramót og á sama
tíma að skila tölunum úr því.
Tölunum verður skilað um leiö
og þær koma,“ segir Ólafur.
Hvað varðar upplýsingar frá
Landssímanum um færslu á sím-
tölum milli símafyrirtækja og
seinkun á afliendingu gagna til
Póst- og ljarskipstastofnunar seg-
ir Ólafur: „Þetta er tæknilegt úr-
lausnaratriði og þegar þetta
verður að lögum veröa skilyrðin
að sjálfsögðu uppfyllt. Það er
hins vegar ekki rétt að Lands-
síminn skili ekki þessum upplýs-
ingum til stofnunarinnar til þess
að hindra samkeppni annarra
fyrirtækja. Okkar tæknimenn
hafa í mörg hom aö líta og þetta
er eitt af því sem þeir eru að
skoða. En það er einu sinni
þannig að keppinautar okkar
eru yfirleitt mjög ákafir að fá
upplýsingar frá Landssímanum,
sem önnur fyrirtæki taka sér yf-
irleitt tíma til að vinna," sagði
Ólafur.
Námsflokkar Hafnarfjarðar bjóða upp á fjölbreytt
og gagnlegt nám fyrir fólk á öllum aldri.
• Erlend tungumál (byrjenda- og framhaldsnámskeið og námskeið
með áherslu á tal). Danska. Norska. Sænska. Enska. Þýska.
Franska. ítalska. Spænska.
• islenska (málfræði og stafsetning).
• Stærðfræði (talnareikningur, alm. brot, algebra, prósentureikn.).
• íslenska fyrir útlendinga (byrjenda- og framh. námskeið).
• Verkgreinar. Tréútskurður. Fatasaumur. Bútasaumur og „Flís og fix“.
Trérennismíði. Eldsmíði. Hnífagerð. Tálgu-námskeið.
• Garðyrkja. Hönnun og skipulagning heimilisgarðsins.
Skjólveggir og sólpallar. Skipulag innkeyrslunnar.
Val og skipulagning trjá- og runnagróðurs.
• Fluguköst og fluguhnýtingar
• Myndlist og listgreinar. Málun og teiknun. Myndlist fyrir börn og
unglinga. Leirmótun. Postulínsmálun. Skrautritun.
Silkimálun. Klippimyndir (Silhouette).
Myndbrúðugerð úr pappamassa.
• ftölsk matargerð og matarmenning
• Vorskreytingar og páskaskreytingar
• Bonsai (ræktun og meðferð japanskra dvergtrjáa).
• Tai Chi Ch’uan (kínversk hreyfilist)
• Námsaðstoð fyrír skólafólk
10. bekkur grunnskóla (danska, enska, íslenska og stærðfræði).
Framhaldsskólanemendur (íslenska, stærðfræði og erlend tungumál).
• Skattaskýrslugerð
• Starfstengt nám:
• Bókhald og rekstur (bókfærsla / rekstur og bókhald smáfyrirtækja).
• MLM markaðssetning (Multi-Level-Marketing).
• Betrí gæði í ferðaþjónustu
• Heimagisting - stofnun og rekstur
Innrítun á vorönn 1999 fer fram dagana 18. - 21. janúar á skrifstofu
Námsflokka Hafnarfjarðar, Strandgötu 31,2. hæð, kl. 13 119.
Upplýsingar í síma 565 1322.
Kennsla hefst skv. stundaskrá 25. janúar í Flensborgarskóla.
Námsgjöld greiðast við innritun. Greiðsiukortaþjónusta.
Ath! ýmis stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms í
Námsflokkum Hafnarfjarðar.
Landssíminn afhendir ekki kostnaðarbókhald:
Landssíminn hindrar
Námsflokkar Hafnarfjarðar
- segir Arnar Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri Íslandssíma
Númer verða eign rétthafa
Um næstu áramót mun renna út
síðasti frestur sem símafyrirtæki
hafa tfl að innleiða frjálsan flutning
símanúmera þegar rétthafar þeirra
„Landssíminn hefur ekki afhent
bókhaldsgögn fyrirtækisins þar sem
fram á að koma á hvaða þjónustu-
leiðum þeir græða og á hvaða leið-
um þeir tapa. Almenna símakerfið
er undir einokunarumsjá Landssím-
ans og þar þurfa aðrir, þ.m.t. Póst-
og fiarskiptastofnun, að fá upplýs-
ingar um kostnað til þess að hægt sé
að keppa við fyrirtækið á þessu
sviöi,“ segir Arnar Sigurðsson, sölu-
og markaðsstjóri Íslandssíma hf.
Hann segir Landssímann draga að
afhenda gögn um kostnaðarbókhald
fyrirtækisins sér til ávinnings og
hindra þar af leiðandi samkeppni.
Auk þess segir Amar að fyrirtæki
með yfirburða markaðshlutdeild
eins og Landssíminn þurfi að hlíta
lögum EES og Evrópulöggjöfinni en
geri það ekki. „Þeir fá stöðugt að
bera undir sig að þeir viti ekki
hversu mikifl þessi kostnaður er
eða ségjast þurfa að kanna hlutina
sjálfir og þetta háir undirbúningi ís-
landssíma mjög. Það er með ólíkind-
um að fyrirtækið komist upp með
þetta,“ segir Amar.
Gústav Arnar, forstöðumaður
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir
að Landssímanum hafi verið sett
það skilyrði þegar leyfi fyrirtækis-
ins var endurnýjað á síðasta ári að
kostnaðarbókhald þess yrði athent í
október 1998. „Þeir skiluðu því ekki
þá en báðu um frest tfl 1. janúar
1999, en það hefur ekki enn borist,"
segir Gústav. Hann segir ákvæði í
lögum um að beita megi dagsektum
í tilfellum sem þessum. „Við höfum
ekki enn tekið ákvörðun um hvort
við munum beita dagsektum vegna
þessa en við munum ihuga það. Það
er leiðinleg leið en við verðum að
sjá hvað Landssíminn gerir,“ segir
hann.
Islandssfmi biður þess að geta hafið samkeppni við Landssímann. Gústav
Arnar, forstöðumaður Póst- og fjarskiptastofnunar.
skipta um þjónustufyrirtæki. Þá
geta notendur haldið símanúmeri
sinu þegar þeir skipta um símafyrir-
tæki. Þessi lög innan Evrópska ef-
hahagssvæðisins hafa í dag tekið
gildi í nokkrum löndum, þ.á m. Bret-
landi og Danmörku. Amar Sigurðs-
son segir Landssímann reyna að
draga á langinn eins og frekast sé
unnt, að veita upplýsingar um
tæknilega framkvæmd þessara mála
sér til ávinnings, þrátt fyrir tilmæli
Póst- og fiarskiptastofnunar. „Við
erum búnir að láta Póst- og fiar-
skiptastofnun fá upplýsingar um
tæknileg atriði hvað þessi mál varða
og þeir sendu þær áfram til Lands-
símans, en þeir telja sig ekki geta
úrskurðað í málinu á meðan yfir-
maður tæknideildar fyrirtækisins
ber í fyrstu fyrir sig vankunnáttu og
síðar að málið væri í athugun," seg-
ir Arnar. Hann bætir því við að
símtöl hafi nú um rúmlega hálfs árs
skeið verið flutt yfir í símkerfi Tals
sem út af fyrir sig sé nægjanleg
sönnun þess að flutningur síma-
númera milli þjónustuaðila sé
framkvæmanlegur. „Það er ljóst að
þetta háir allri samkeppni og þessi
mál verða að fara að skýrast,“ segir
Amar. -hb
Spenna á Suðurlandi
Spenna ríkir á Suðurlandi í próf-
kjöri sjálfstæðismanna. Flestir telja
þó að poppgoöið og hreinlífismaður-
inn Árni Johnsen hafi nokkuð
sterka stöðu og geti leyft sér að
syngja og spfla alveg
fram að prófkjöri án
þess að skaði hljót-
ist af. Þó þykir það
sýnt að keppinaut-
ar hans, þeir Óli
Rúnar Ástþórs-
son, formaður At-
vinnuþróunar-
sjóðs Suðurlands, og
Kjartan Þ. Ólafsson , formaður Fé-
lags garðyrkjubænda, séu nokkuð
hættulegir en fylgi þeirra mælist þó
vart þegar svo skammt er liðið á
baráttuna. Nýjasti frambjóðandinn,
sem er talinn geta valdið nokkrum
usla, er Víglundur Kristjánsson,
athafnamaður á Hellu og sonur
Kristjáns Árnasonar, fyrrum
kandídats í verkalýðsslag Dags-
brúnar. Hann er eini Rangæingur-
inn í prófkjörinu og vel kynntur í
kjördæminu...
Musso-laus
Fjölnir Þorgeirsson, fiöllista-
maður og fyrrum ástmaður Krydd-
stúlkunnar Mel B, flutti inn á síð-
asta ári allmarga Musso-jeppa en
lenti í basli með að fá þá gerðarvið-
urkennda og skráða
hér á landi. Góðir
menn gengu í málið
og loks tókst Fjölni
eftir nokkurra
vikna basl að fá bíl-
ana skráða og að
koma þeim út. Ein-
hvern arð hefur
Fjölni tekist að fá út úr þessum
viðskiptum því að nú ekur hann
sjálfur um á nýjum jeppa. Hann
virðist þó ekki alveg treysta eigin
vöru því að nýi jeppinn hans er
ekki af gerðinni Musso heldur
Toyota LandCruiser...
Kiddi krani
Kristján Þór Júliusson, bæjar- i
stjóri á Akureyri, er maður fiölhæf- ]
ur eins og hann hefur margsýnt og |
sannað. Að undanförnu hefur hann
þó aðallega birst almenningi við að
undirrita ýmsa samn-
inga eða þá að hann
hefur veriö sýndur í
sjónvarpi sem gröfu-
maður. Það er nefni-
lega það nýjasta á
Akureyri að þar
taka háttsettir
menn ekki lengur |
skóflustungur að nýjum bygg- |
ingum heldur er bæjarstjórinn jafn-
an settur upp í skurðgröfur og hann
látinn taka fyrstu „gröfustunguna".
Kristján Þór hefur þótt taka sig vel
út í þessu nýja starfi sínu, hann
ljómar af ánægju, enda er sennflega
grunnt á „gröfumanninum" í okkur
flestum karlmönnunum. Kristján
Þór hefur líka náð þeirri færni á
gröfumar að því hefur verið velt
upp hvort ekki sé rétt að veita hon- ]|
um réttindi á slík verkfæri...
Kosningasmali
Þrátt fyrir að nú sé lokiö kosn-
ingu í prófkjöri Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík er síður en svo að
friður sé kominn á. Eldar loga milli
Finns Ingólfssonar iðnaðarráð-
herra og Alfreðs
Þorsteinssonar
borgarfulltrúa sem
sækir að ráðherran-
um í fyrsta sæti list-
ans. Allraflokka
fólki hefur verið
sópað inn í Fram-
sókn og nú kraumar
kjörkössunum, Meðal smala Alfreðs
eru þjóðþekktir kratar sem jafn-
framt gengu í flokkinn; um stundar-
sakir. Sagan segir að stuðnings-
menn Finns hafi svarað sókn Al-
freðs með því að rugla félagatalið
og tilkynna inn þekkta sjálfstæðis-
menn án þeirra samþykkis.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is