Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 31 ! ! I Netið hefur áhrif á ferðaþjónustu: Lækkar kostnað flugfé- laga og farþega Viöskipti á Netinu gera um þess- ar mundir flugfélögum kleift að lækka kostnað og hjálpa neytendum að leita uppi kostaboð. Ferðaskrif- stofur eiga hins vegar undir högg að sækja vegna slíkra viðskipta. Ný rannsókn leiddi í ljós fyrir skömmu að viðskipti með farseðla á Netinu námu um 2,5% af heildarvið- skiptum á þessum vettvangi á síð- asta ári. Jafnframt er því spáð að aukning verði á viðskiptum á Net- inu þannig að sambærileg tala fyrir árið 2002 verði orðin 8,4%. Fyrir flugfélög þýðir þetta að hægt er að spara kostnað við hefð- bundna sölu farmiða, þar sem við- skiptavinimir afgreiða sig að mestu leyti sjálfir á Netinu. Það gerir þeim einnig kleift að bjóða ýmis sérkjör fyrir þá sem bóka miða á þennan hátt. Þetta þýðir hins vegar að ferðaskrifstofur missa viðskipti því neytendur kaupa miðana beint af flugfélögunum. Einhveijar málsókn- ir hafa spunnist vegna þessa, en lík- legast er að ferðaskrifstofur verði að sætta sig við orðinn hlut og einbeita sér að því að selja ferðir sem þarfn- ast mikiUar skipulagningar, því þar nýtist sérþekking þeirra best. En þó svo að flugfélög jafnt sem farþegar virðist hafa hag af þessari þróun verða menn að hafa varann á. Til dæmis gætu flugfélög lent í vanda vegna farþega sem leita sí- fellt að hagkvæmustu fargjöldun- um. Áður keyptu slíkir farþegar miðana með miklum fyrirvara til að halda miðaverði í lágmarki. Nú geta séðir neytendur leitað að ódýrum farseðlum sem seldir eru á síðustu stundu, en slík viðskipti þýða aukna áhættu fyrir flugfélögin. Sala farseðla á Netinu er farin að skipta ferðaþjónustuna talsverðu máli og mun mikiivægi slíkra viðskipta aukast á næstu árum. Á raftækjasýningu í Las Vegas sem fram fór í siðustu viku var þetta fyrirbæri meðal sýningargripa. Hér er á ferðinni netsími sem kallast ApiioPhone, en hann gerir notendum kleift að hringja langlínusímtöl ókeypis gegnum Netið án þess að nota þurfi til þess tölvu. Búið er að leyfa notkun símans í 50 lönd- um, en hann var fyrst kynntur fyrir níu mánuðum. Hvert eintak netsímans kostar 199 dollara (um 14.000 krónur). 4 * Microsoft-réttarhöldin hálfnuð: Gates sagður Ijúga Síðastliðinn miðvikudag lauk fyrri helmingi vitnaleiðslna í máli Bandaríkjastjómar gegn Microsoft þegar klárað var að yfirheyra síð- asta vitnið sem saksókn- ari kveður til réttarins. Nú Ítekur réttur- inn hins vegar til við að yfir- heyra vitnin sem verjand- inn leiðir fyrir réttinn. Réttarhöld- in hafa nú staðið yfir í um tíu vikur og búist er við Iað þeim muni ekki ljúka fyrr en í mars í fyrsta lagi. Síðasta verk saksóknara áður en hann dró sig í hlé var að fram- vísa yfir 1000 blaðsíðum af nýjum gögnum, aðailega tölvupósti, auk þess sem bætt var við upptök- um af yfirheyrslum yfir Bill Gates, forstjóra Microsoft, sem fóra fram í f sumar. Saksóknarar höfðu áður lagt fyrir réttinn hluta af þessum yfir- heyrslum. Þar kemur meðal annars fram að Gates neitar að hafa beðið einn starfsmanna sinna að rann- saka fjármál Netscape, helsta keppi- nautar Microsoft á vaframarkað- inum. Hins vegar vill sak- sóknari meina að tölvupóstur frá Bill Gates til starfsmanns Microsoft sem ákæruvaldið hefur undir höndum gefi allt annað til kynna. Á næstu vik- um má búast við að vitni verjendanna muni leggja áherslu á að starfsaðferðir Microsoft séu eðlilegar og ekki refsi- verðar. Athyglisvert verður að fýlgj- ast með hvort þeim tekst að gera það á sannfærandi hátt. Bill Gates, forstjóri Microsoft. Favorít 3030-VV Gerð: Taumagn: Þvottakerfi: Orkunotkun: Vatnsnotkun: Þvottatími: Frístandandi H-85, B-60, D-60 Ryðfrítt innra byrði Ytrahús sinkhúðað (ryðgar ekki) 4-falt vatnsöryggiskerfi Hjóðlát 49db (re 1 pW) Sjálfvirk hurðarbremsa 12 manna stell 3 kerfi skolun 10 mín. venjulegt 65°C 69 mín. spamaðar 65°C 60 mín. Spamaðarkerfi 65°C 1,5 kwst Venjulegt 65°C kerfi 1,5 kwst Spamaðarkerfi 65°C 16 lítrar Venjulegt 65°C kerfi 20 lítrar Venjulegt kerfi 65° 69 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.