Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 36
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 TIV 44 nn Ummæli Stjórinn vill ekki prófkjör „Mín viöbrögð voru þau að forsætisráðherra hefði ekki viljað prófkjör. Hann ræður í rík- isstjóm, vill stjórna Alþingi og svo sannarlega stjórnar hann Sjálfstæðis- ílokknum." Rannveig Guð- mundsdóttir alþingismaður, í Degi. Eðlilegt hjá Sjálf- stæðisflokknum „Mér hefur fundist að próf- kjör væri í mótsögn við eðli þessa ríkisbákns sem Sjálf- stæðisflokkurinn oftast er. Því er eðlilegt að framboðslisti flokksins verði valinn í gluggakistunni í Stjórnarráðs- húsinu." Óskar Guðmundsson blaða- maður, í Degi. Tónverkin ófluttu „Það er merkilegt að til skuli vera hér á landi um og yfir tuttugu tón- verk, hljómsveit- arverk og konsert- ar, sem aldrei hafa verið flutt, fyrir utan öll verk íslenskra tónskálda sem flutt hafa verið er- lendis en íslendingar hafa aldrei fengið tækifæri til að heyra.“ Mist Þorkelsdóttir tónskáld, í Morgunblaðinu. Sveitaþorpið ísland ísland er eins og lítið sveita- þorp og á miklu fleira sameig- inlegt með Kardimommubæn- um en New York. Við ættum að hafa það eins og Bastian bæjarfógeti sem sagði: „Fyrst þarf að skrifa niður, svo þarf að hugsa málið vandlega", þegar betri borgarar í Kardi- mommiubænum heimtuðu taf- arlausar handtökur og fang- elsanir." Pétur Þorsteinsson á Kópa- skeri, i DV. Ráðherra í velmegunarríki „Hvað á ráðherra í velmeg- unarríki að gera við einhverja , jólapakka fulla af gömlu drasli frá # börnum þessa lands. Það er fá- dæma ósvífni að trufla hádegis- verð slíks góð- borgara með því að banka upp hjá honum með svoleiðis jólapakka." Ástþór Magnússon, stofn- andi Friðar 2000, í DV. Björgunarsveitir á Norðurlandi eystra ú [/'s| SVFÍ 1—1 Kópaskeri SVFI Raufarhöfn SVFÍ SVFÍ, Ólafsfirði Dalvík xs. Hjálparsveit skáta, ' /N SVFÍ, I__| Firísey DSVFÍ Grenivík ú SVFi Húsavíkl 0 SVFÍ Kelduhverfi SVFI Þórshöfn SVFI Árskógsströnd Hjálparsveit skáta, Akureyri a a ÚHjálparsveit skáta, Aðaldal ^ SVFÍ L-1 SVFÍ I—I Bárð-, Ljósav-, Mývatnssveit Hálshreppi Hjálparsveit skáta, SVFI I Svalbarðseyri Reykjadal SVFÍ Fl ugbjö rgu n a rsve iti n, Akureyri Hjálparsveit skáta, Grimsstööum Ú Björn Ingi Knútsson, nýráðinn flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli: Starfið er fjölbreytilegt og lifandi DV, Suðurnesjum: „Mér llst mjög vel á starfið. Það er fjölbreytilegt og lifandi og krefj- andi í senn,“ segir Bjöm Ingi Knúts- son en hann tók við starfi flugvall- arstjóra á Keflavíkurflugvelli nú um áramótin. Þann 1. október síðastlið- inn var Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar aðskilin rekstri Flugmálastjórnar á Kefla- ----------- víkurflugvelli og sett yfir hana sérstök yfirstjóm. Flugvallar- svæðið sem heyrir undir flugvallar- stjóra er ótrúlega víðfemt eða um 3000 hektarar. Það samsvarar öllu landi Reykjavíkurborgar vestan El- liðavogs. Innan þessa svæðis eru flugbrautir, mannvirki og búnaður sem fullnægja ýtrustu kröfum um gerð alþjóðaflugvallar. Flugbraut- imar eru búnar mjög fullkomnum blindlendingartækjum og geta tekið við stærstu flugvélum. Til að gefa fólki einhverja hugmynd um um- fang þeirra þá næði norður/suður flugbrautin að meðtöldum öryggis- svæðum frá Köllunarkletti í Reykja- vík í norðri og að Kópavogskirkju í suðri og austur/vestur brautin úr Hljómskálagarði inn að Elliðaám. „Starfið felst meðal annars í því að hafa eftirlit með því að lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum um flugstarfsemi sé framfylgt á Keflavíkurflugvelli með sérstakri áherslu á flugöryggi. Þá heyrir rekstur og uppbygging vallarins undir flugvallarstjóra í samvinnu við Vamarliðið samkvæmt gildandi samningum og fyrirmælum. Hlut- verk flugvallarstjóra er ennfremur að stjórna og bera faglega og fjár- hagslega ábyrgð á starfseminni og fara með skipulags-, bygginga- og um- DV-mynd hverfismál í samvinnu við hlutað- eigandi yfirvöld. Flugvallarstjóri annast ráðningu stcufsmanna, veitir starfsleyfi fyrir flugtengdan rekstur og gerir lóðasamninga á flugstöðv- arsvæðinu. Hér er engan veginn um tæmandi upptalningu að ræða en gefur engu að síður mynd af þeim Maður dagsins fjölbreyttu verkefnum sem heyra undir þetta starf.“ Bjöm Ingi hefur m.a. lokið námi á sviði rekstrar flutningakerfa við London School of Foreign Trade og University of Wales, Institute of Sci- ence and Technology. Frá árinu 1977-1996 starfaði hann hjá Skipa- deild Sambandsins, síðar Sam- skipum, en er nú ný- fluttur til landsins eftir þriggja ára búsetu erlendis þar sem hann starfaði hjá Sofrana Unil- incs Holding SA á Nýja-Sjálandi og Ástralíu, fyrst sem rekstrarráð- gjafi og síðar fram- kvæmda- stjóri rekstrar- sviðs. Björn Ingi segir áhuga- málin margvís- Arnheiður leg. „Eg hef áhuga á fornbílum, á tvo fombíla, Buick, 1948 og GMC, hertrukk, 1942, sem báðir eru í góðu ástandi. Hertmkkurinn er með númerið H-70 og var í eigu sama manns í Húnavatnssýslu frá 1946-1992. Hann gaf mér bílinn til að fylgja honum óskemmdum inn í framtíðina eins og hann orðaði það. Faðir minn átti Buickinn 1952-1986 en þá tók ég við honum. Þá hef hef ég gaman af því að spila golf. Síðan eigum við fjölskyldan sumarbústað sem við eyðum töluverðum tíma í.“ Eiginkona Bjöns Inga er Anna Berg- lind Magnús- dóttir sjúkraliði og eiga þau þrjú börn. -AG Rask-ráðstefnan í Þjóðar- bókhlöðunni Þrettánda Rask-ráðstefna íslenska málfræðifélagsins verður haldin í fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar laug- ardaginn 23. janúar nk. Ráðstefnan hefst klukkan Hálf Köflóttur sem leikur fyrir gesti staðarins. Félagsmiðstöð fatlaðra Félagsmiðstöð fatlaðra er opin á miðvikudögum kl. 17-22 og á sunnudögum kl. 13-18. Á miðvikudaginn verður brandarakeppni þar sem tipparar koma með Myndgátan Samkomur 13.15 og flytja fimm fræði- menn fyrirlestra. Fundar- stjóri er Þórunn Blöndal. Hálf Köflóttur á Kaffi Reykjavík Á Kaffi Reykjavík verður boðið upp á lifandi tónlist i kvöld. Það er hljómsveitin brandara sína og landskunn- ur grínari dæmir og grínar. Félag eldri borgara í Reykjavík í dag verður bridge kl. 13 í Ásgarði í Glæsibæ. Sveita- keppnin hefst síðan mánu- daginn 8. febrúar. . w'h; r~' ---------------------&yþoR — Leysir úr máli Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Bjarni Haukur Þórsson leikur hellisbú- ann sem er eina hlutverkið í leikrit- inu. Hellisbúinn Hellisbúinn er kannski það leikrit sem hefur fengiö mesta að- sókn á þessu leikári. Búið er að sýna verkið í íslensku óperunni frá því í sumar og alltaf fyrir fullu húsi svo óhætt er að segja að þetta bráðskemmtilega verk hafi slegið i gegn og ekkert lát virðist vera á aðsókninni. Aðeins einn leikari er i sýningunni, Bjami Haukur Þórs- son. Hugmyndina að verkinu, sem fjallar á skemmtilegan hátt um samskipti kynjanna, má rekja til leikritsins Defending the Cavem- an efth- Rob Becker en það hefur verið á fjölunum vestur í Banda- ríkjunum í sex ár. Hallgrímur Helgason rithöfundur skrifaði Hellisbúann og byggir hann verk- ið á hugmynd Beckers. Sigurður Sigurjónsson er leikstjóri. Heflisbúinn er verk sem karlar og konur eiga að sjá saman. Verk- Leikhús ið á að geta gefið lexíu um hitt kynið og gæti ef til vill hjálpað fólki að skilja ýmislegt í fari makans sem hingað til hefur ver- ið torskilið. Þess má geta að það er ódýrara fyrir konur á leikritið. Næsta sýning á Hellisbúanum er á miövikudagskvöld. Bridge Hvemig er best að meðhöndla hönd vesturs í þessu spfli eftir spaðaopnun félaga í austur og út- tektardobl suðurs? Einn möguleik- inn er sá að passa í upphafi en það var einmitt það sem vestur gerði þegar spilið kom fyrir í þriðju um- ferð Minningarmóts Harðar Þórðar- sonar sem spilað var sunnudaginn 27. desember síðastliðinn. Austur gjafari og allir á hættu: 4 D9875 •0 KD84 ♦ Á83 * 3 4 3 •0 75 ♦ 762 * ÁKDG654 Austur Suður Vestur Norður 1 spaði dobl pass 1 grand pass 2 tíglar 3 tíglar pass 3 hjörtu pass 3 grönd p/h Það hefði verið eðlilegra fyrir suð- ur að segja 2 tígla við spaðaopnun austurs og því tóku sagnimar nokk- uð óvænta stefhu. Norður hefði get- að sagt 2 lauf, en valdi frekar grand- sögnina. Þrír tíglar vesturs var beiðni til austurs um þriggja granda sögn með tígulfyrirstöðu en austur ákvað að segja fi'á hjartalit sínum í leið- inni. Eftir þriggja granda sögn vesturs vissi austur að sögnin byggðist á lauflit og gat því passað með góðri samvisku með stöðvara í tígli. Norður hóf leikinn á þvi að spila út tígultíu og sagnhafi sá að liklega fengjust ekki nema 8 slag- ir í þessum samningi (laufliturinn gat jú varla verið vandamál). Samt sem áður lá ekkert á því að drepa strax á ásinn í tígli, vörnin gat jú misstigið sig þótt það væri ólíklegt. Feilspor varnarinnar var hins vegar annað en sagnhafi hugði. Norður henti laufi!? í þriðja tígulinn, því hann var ekki búinn að átta sig á lauflengd vesturs. Vestur gat því fengið alla sjö slagi sína á lauf í við- bót við tígulslaginn. Mistök norðurs vora dýrkeypt því talan 100 í NS gaf AV 52 stig af 66 mögulegum. ísak Öm Sigurösson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.