Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
Fréttir
Læknar óttast að Kári eignist Gagnalind og ráði þar með öllum sjúkraupplýsingum:
Hugsanlegt að
hætta samstarfi
- og stöðva sjúkragögnin, segir Tómas Zoega, yfirlæknir geðdeildar Landspítalans
íslensk erfðagreining er eigandi að
20 prósentum í Gagnalind ehf. sem
setur upp sjúkrarskrárforritið Sögu
sem ætlað er að safna saman upplýs-
ingum um sjúklinga fyrir gagnagrunn
á heilbrigðissviði. Þessi eignaraðild
ÍE að Gagnalind er mjög umdeild og
margir telja þama vera á lofti hættu-
merki þar sem sá aðili sem hafi einka-
leyfi á gagnagrunninum hafl jafn-
framt sterk ítök á vinnslustigi
sjúkraupplýsinga. Forritið hefur þeg-
ar verið tekið í notkun á heilsugæslu-
stöðvum og nokkrum sjúkrahúsum.
Það er þó enn sem komið er lokað en
seinna meir verður opnað í miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði. Gagn-
rýnt er að ekki skuli skilið á milli
þeirra sem hafa aðgang að gagna-
grunninum og þeirra sem fara með
skráningu gagna og flutning til land-
læknis þar sem dulkóðun fer fram.
DV hefúr heimildir fyrir því að lækn-
ar hafi hvatt landlækni til að láta mál-
ið til sín taka. Þá hafa fleiri aðilar
áhyggjur af málinu og því óöryggi
sem því fýlgir að einn aðili geti feng-
ið sllka yfirsýn. Þá er á það bent að
Gagnalind, sem setur upp sjúkra-
skrárkerfið Sögu, muni jafnframt sjá
um viðhald á kerfmu í framtíðinni.
Stærstu eigendur Gagnalindar eru Is-
lensk erfðagreining hf. með 20 pró-
senta hlut, Landssíminn með 20 pró-
sent, Þróunarfélag íslands með 15 pró-
sent, Skýrr með 15 pró-
sent og hópur lækna og
starfsmanna fyrirtækis-
ins eiga 30 prósent. Það
vekur ugg hjá einhveij-
um að Skýrr er í meiri-
hlutaeign Opinna kerfa
hf. Talið er að Skýrr
muni gegna lykilhlut-
verki hvað varðar flutn-
ing gagna og uppsetn-
ingu gagnagrunnsins.
Þeir þræðir sem liggja
að Gagnalind eru taldir
líklegir til að gefa ís-
lenskri erfðagreiningu
færi á því að ná undir-
tökum í fyrirtækinu og
þar með flutningi
sjúkragagna og geymslu
þeirra.
Hissa á ráðherra
Tómas Zoega, yfir-
læknir á geðdeild Land-
spítalans, telur hættu-
merki á lofti. Á hans
deild er þegar byrjað að
skrá upplýsingar um
sjúklinga i Sögu. Hann
segist í meginatriðum
vera ánægður með for-
ritið sjálft en áhyggjur
hans snúi fyrst og
Tómas Zoéga, yfirlæknir geödeildar Landspítal-
ans, óttast að Kári Stefánsson og íslensk erföa-
greining nái yfirráðum í Gagnalind hf. og fái þar
með yfirsýn yfir öll sjúkragögn, allt frá skráningu
og í gagnagrunn. Tómas vinnur með sjúkra-
skrárforritið Sögu og segist ekki hafa athug-
semdir við sjálft forritið heldur það hverjir hafi að-
gang að gögnunum. DV-mynd Teitur
fremst að því að sami aðili geti ráðið
gagnagrunninum og flutningi gagn-
anna að honum.
„Ég er mjög hissa á því að heil-
brigðisráðherra og landlæknir skuli
ekki hafa gert athugasemdir við eign-
araðild íslenskrar erfðagreiningar að
Gagnalind. Þó þarna sé um að ræða 20
prósenta hlut þá þarf aðeins einn að-
ila í samstarf svo íslensk erfðagrein-
ing ráði meirihluta í Gagnalind,“ seg-
ir Tómas.
Hann segir að þegar til tals kom á
seinasta ári að ÍE keypti Gagnalind að
öllu leyti hafi læknar hótað að hætta
samstarfmu gengju kaupin eftir. Sú
hætta sé enn til staðar að fyrirtækið
nái meirihluta í Gagnalind og læknar
séu mjög á verði vegna þess.
„Þessi óeðlilegu tengsl gætu orðið
til þess að læknar verði að hætta þátt-
töku í gagnagrunninum. Það gengur
ekki upp að sami aðili og ræður
gagnagrunninum ráði einnig meiri-
hluta í fýrirtækinu sem safnar upp-
lýsingunum," segir Tómas.
Aðspurður um eignaraðild Is-
lenskrar erfðagreiningar að Gagna-
lind sagði Þorsteinn Ingi Víglunds-
son, framkvæmdastjóri Gagnalindar,
að 20 prósenta hlutur skipti ekki máli
þar sem um minnihlutaeign væri að
ræða. Hlutnun fylgdi að vísu aðild að
stjóm fyrirtækisins en engin áhrif á
daglegan rekstur. -rt
Prófkjör framsóknarmanna á Noröurlandi vestra:
Arni öruggur í 2. sæti
DV, Akureyri:
„Ég er mjög ánægður en það kom
mér á óvart hversu afgerandi úrslitin
voru. Ég þakka það góðri vinnu stuðn-
ingsmanna minna í Skagafirði, bæði í
þéttbýli og dreifbýli," sagði Ámi
Gunnarsson þegar talningu lauk í próf-
kjöri framsóknarmanna á Norðurlandi
vestra um miðnætti og ljóst var orðið
að hann hafði hlotið mjög góða kosn-
ingu i 2. sætið á lista flokksins. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra var
einn í kjöri í 1. sæti listans og hlaut
einnig mjög góða kosningu.
Alls greiddu 2.290 atkvæði í próf-
kjörinu og hlaut Páll 1.705 atkvæði í 1.
sætið og 2.217 atkvæði alls. Baráttan
stóð aðallega um 2.
sætið, en í það
sæti hlaut Ámi
Gunnarsson 943 at-
kvæði og 1.644 alls,
Herdís Sæmundar-
dóttir fékk 750 at-
kvæði í 2. sætið og
1.446 alls og Elín R.
Líndal fékk 427 at-
kvæði í 2. sæti og
1.594 alls. Herdís
hlaut því 3. sætið,
en Birkir J. Jóns-
son hafnaði í 4.
sæti þar sem hann fékk 1.429 atkvæði í
það sæti en Elín aðeins 1.264 atkvæði.
Birkir sem er Siglfirðingur er aðeins
Páll Pétursson
hlaut góða
kosningu í
1. sætið.
Árni Gunnarsson:
„Kom á óvart
hversu afgerandi
úrslitin voru.“
19 ára. Elín hafn-
aði í 5. sæti, Sverr-
ir Sveinsson hafn-
aði í 6. sæti og Val-
garður Hilmars-
son í 7. sæti. Úr-
slitin era bindandi
hvað varðar ijögur
efstu sætin.
Mjög ánægður
„Ég er mjög
ánægður með
mína útkomu og afar kátur með að
tveir þriðju þeirra sem kusu vilja að ég
leiði listann," sagði Páll Pétursson þeg-
ar úrslitin lágu fyrir. „Mér fmnst það
afleitt að ekki geta þau öll sem gáfú
kost á sér í 2. sætið skipað það sæti,
þetta em allt hæfir einstaklingar og út-
koman getur ekki orðið önnur en að
við teflum fram mjög sterkum og sig-
urstranglegum lista við kosningamar í
vor,“ bætti Páll við.
„Mér líst vel á baráttuna sem er
fram undan, ég hef bent á að það er
enginn ungur ffamsóknarmaður á Al-
þingi og enginn annar virðist á leið
þangað en ég. Ég er landsbyggðarmað-
ur og það er enginn skortur á verkefh-
um fýrir þann sem vill beijast fyrir
landsbyggðina," sagði Ámi Gunnars-
son um það hvemig kosningabaráttan
og væntanleg seta á Alþingi legðist í
hann. -gk
Prófkjör framsóknarmanna á Norðurlandi eystra:
Er glöð og þakklát
- sagði sigurvegarinn, Valgerður Sverrisdóttir - Jakob Björnsson beið ósigur og hafnaði í 4. sæti
DV, Akiureyri:
Valgerður Sverrisdóttir alþingis-
maður sigraði örugglega í prófkjöri
framsóknarmanna á Norðurlandi
eystra. Hún hlaut alls 1.343 atkvæði í
það sæti og 2.242 atkvæði alls, en 2.497
greiddu atkvæði. Jakob Bjömsson,
sem bauð sig fram gegn Valgerði í 1.
sæti, hafnaði hins vegar í 4. sæti, fékk
1.844 atkvæði í það sæti og 2.028 at-
kvæði ails. Það verður Daníel Áma-
son, framkvæmdastjóri á Akureyri,
sem skipar 2. sæti listans, hann fékk
1.493 atkvæði í það sæti og 2.325 alls
og Elsa Friðfinnsdóttir, sem verður í
3. sæti, fékk 1.701 atkvæði i það sæti
og 2.246 atkvæði
alls. Kosningin
var bindandi fýrir
4 efstu sætin.
„Ég er glöð og
þakklát, en ég
hafði alltaf á til-
fmningunni að ég
myndi hafa þetta,“
sagði Valgerður
þegar úrslitin lágu
fýrir. „Ég tel að
störf mín á Al-
þingi hafi ráðið
úrslitum, sem og góð vinna stuðnings-
manna minna um allt kjördæmið. Viö
munum tefla fram sterkum lista með
Valgerður Sverr-
isdóttir, örugg f
efsta sætinu.
mikla breidd bæði
hvað varðar
reynslu og kyn-
ferði. Markmiðið
hjá okkur hlýtur
að vera að fá þrjá
þingmenn kjörna
í vor,“ sagði Val-
gerður.
Mikil vonbrigði Jakob ®|or"=s'
3 son, tefldi djarft
„Niðurstaðan og tapaði
er mikil von-
brigði eins og
alltaf þegar markmið nást ekki. Ég
tefldi djarft en þetta er niðurstað-
an,“ sagði Jakob Bjömsson, allt
annað en kátur með úrslitin. Jakob
sagðist hafa gert sér grein fyrir því
að svona kynni að fara þannig að
hann hefði verið við öllu búinn.
Jakob sem er oddviti framsókn-
armanna í bæjarstjórn Akureyrar
tapaði bæjarstjórastólnum í bæjar-
stjórnarkosningunum sl. vor. Að-
spurður hvort þetta tvennt kynni
að marka endalok ferils hans í
stjórnmálum sagði Jakob: „Þetta
hafa ekki verið góðir mánuðir hjá
mér en ég hef ekki hugleitt það
hvort ég dreg mig til baka. Ég vil
hins vegar nota tækifærið og þakka
þeim sem studdu mig.“ -gk
Stuttar fréttir i>v
Davíð til Mexíkó
Davíð Odds-
son forsætisráð-
herra og kona
hans, Ástríður
Thorarensen,
halda I opin-
bera heimsókn
til Mexíkó á
næstunni. Þau
dvelja í landinu 1. og 2. febrúar í
boði forseta landsins, Ernestos
Zedillo. Áður en farið verður til
borgarinnar Mexíkó mun Davíð
heimsækja borgimar Guaymas
og Maztlan þar sem íslensk fyrir-
tæki hafa haslað sér völl á sviði
sjávarútvegs og iðnaðar.
Færeyingar í viöræðum
Færeysk stjórnvöld og íslensk
erfðagreining eiga nú í viðræðum
um hugsanlegt samstarf í erfða-
fræðirannsóknum, en heilbrigðis-
ráðherra lagði á síðasta ári fram
tillögu þess efnis. Ekki eru allir
sammála um samstarfið, því
danskur prófessor varar Færey-
inga við þvl, segir það varhuga-
vert. RÚV sagði frá.
Norðurál skoðað
Vinnueftirlitið skoðaði í gær
aðstæður í álverksmiðju
Norðuráls á Grundartanga og
fundaði með öryggisnefnd fyrir-
tækisins. Samtökin Sól í Hval-
firði hafa lýst yfir þungum
áhyggjum vegna tíðra vinnuslysa
og mikillar mengunar hjá fyrir-
tækinu. Guðjón Sólmundsson,
umdæmisstjóri vinnueftirlitisins
á Akureyri, telur fyrstu mánuði
álversins hafa einkennst af því að
veriö sé að koma fyrirtækinu í
gang. Morgunblaðið greindi frá.
Þáttaskil í
sögu tungunnar
Tímamót
urðu í gær þeg-
ar Bjöm
Bjarnason
menntamála-
ráðherra og
umboðsmaður
Microsoft stór-
fyrirtækisins á
Norðurlöndum undirrituöu
samning um að þýða Windows 98
og Microsoft explorer, net-
vafraforritið yfir á íslensku.
Tannlæknadeilan
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið telur að fullyrðingai'
Tannlæknafélags íslands, að með
breytingum á endurgreiðslum al-
mannatrygginga vegna tannlækn-
inga hafi staða ákveðinna þjóðfé-
lagshópa verið skert, séu rangar.
Visbending vegna þessa sé að
með breytingunum hafi greiðslur
Tryggingastofnunar vegna tann-
lækninga hækkað um 70 milljón-
ir króna á ári.
Aukin sala
Icelandic Seafood jók sölu á
flestum tegundum á síðasta ári
en þá jókst sala alls um 22 pró-
sent og verðmæti sölunnar nam
5,3 milljörðum króna. Fram-
kvæmdastjóri félagsins segist
bjartsýnn á að markaðsstaða
haldist enda þótt útlit sé fyrir
minna framboö á rækju frá ís-
landi sem er um helmingur af
sölu fyrirtækisins í Bretlandi.
Morgunblaðið greindi frá.
Ólögleg framleiðsla
Alþjóðleg samtök hugbúnaðar-
framleiðenda hafa komið upp um
ólöglega framleiðslu á hugbúnaði
í Danmörku fyrir um 16 milljarða
króna. Samtökin eru einnig að at-
huga ólöglega fjölfóldun hugbún-
aðar hér á landi. Ríkisútvarpið
greindi frá.
Fegrunarátak skipulagt
Borgarráð
hefur samþykkt
tillögu um að
skipa starfshóp
sem sjá mun um
að skipuleggja
umhverfis- og
fegrunarátak í
borginni í til-
efni þess að Reykjavík verður
menningarborg árið 2000. Átakið
mun standa árið 1999 og 2000.
Morgunblaðið greindi frá.
-hb